Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.1991, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 9. SEPTEMBER 1991. BÍLASPRAUTUN ÉTTINGAR Varmi Auðbrekku 14, sími 64-21 -41 BÍLATEPPI BÍLAMOTTUR BÍLADÚKAR BÍLAFILT Sjáum um að leggja teppi og dúka í alla bila. Sníðum mottur og setjum krossvíð I vsk bíla. Teppa- þjónusta Einars, Hamarshöfða 1, simi 68 88 68. Skútuvogi 10a - Sími 686700 |{ IAPAN VIDEOTOKUVELAR 3 LUX MEÐ ÞRÁÐLAUSRI FJARSTÝRINGU SEM GEFUR ÞF.R M()GULEIKA Á AÐ AFSPILA BEINT VIÐ SJÓNVARPSTÆKIÐ ÞITT. MEÐ ALLRA BESTU MYNDGÆÐUM. - 3 LUX ÞÝÐA ALLRA'BESTU IJÓSNÆMNI Á MYNDBANDSVÉLUM Á MARK- AÐNUM í DAG. ÞAÐ ER EKKI BARA NÓG AÐ TALA UM LINSUOPSTÆRD. HELDUR VERÐUR UÓSKUBBURINN AÐ VERA ÞETTA NÆMUR. - MACRO LINSA 8xZOOM - SJÁLFVIRKUR FOCUS - MYNDLEITUN í BÁÐAR ÁTTIR - , SJÁLFVIRK UÓSSTÝRING — VINDHUÓÐNEMI - FADER - RAFHLAÐA/HLEÐSLUTÆKI/MILLI- STYKKI o.n. - VEGUR AÐEINS l.l KG. kr. 69.950/“ stgr. munalán 35 Afborgunarskilmálar [E’ VÖNDUÐ VERSLUN mÆmm, FÁKAFEN 11 — SlMI 688005 I Útlönd DV Árangurslaus ráðstefna um frið í Júgóslavíu um helgina: Makedóníumenn fagna sjálfstæðiskosningum Þúsundir Makedoniumanna sungu og donsuðu á götum Skopje, höfuðborg- ar lýðveldisins, í gærkvöldi til að fagna þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf- stæði lýðveldisins. Simamynd Reuter Þúsundir manna sungu og dönsuðu á götum Makedóníu í gærkvöldi eftir að hafa greitt atkvæði með því að þetta júgóslavneska lýðveldi verði sjálfstætt ríki. Þó svo að opinber úrslit lægju ekki fyrir lýstu leiðtogar Makedóníu því yíir að 65 prósent kosningaþátttaka tryggði mikinn stuðning við það að lýðveldið yrði „sjálfstætt og fullvalda ríki“. „íbúar Makedóníu sýndu í dag að þeir vilja verða frjálst og fullvalda ríki,“ sagði Nikola Kljusev, forsætis- ráðherra lýðveldisins, á sigurhátíð- inni. Makedónía er þriðja júgóslavneska lýðveldið sem mun lýsa yfir sjálf- stæði sínu og þar með er sambands- ríkinu skrefmu nær því að leysast upp. Þing Makedóníu mun formlega lýsa yflr sjálfstæði á næstu vikum. Um tíu þúsund manns flykktust niður í miðbæ Skopje, höfuðborgar Makedóníu, til að fagna. Flugeldar lýstu upp næturhimininn og fólk dansaði við ættjarðarlög og veifaði rauðum fána lýðveldisins. Stjómendur kosningcmna sögðu að 65 prósent atkvæðisbærra manna aö minnsta kosti hefðu tekið þátt í kosn- ingunum þótt albanski minnihlutinn sæti heima þar sem hann telur að sér sé mismunað. Talið er aö fáir, ef nokkrir, hafi svarað neitandi þeirri einfóldu spumingu um hvort þeir styddu sjálfstæði Makedóníu. Makedónía sem á landamæri að Grikklandi, Búlgaríu og Albaníu og er fátækasta lýðveldi Júgóslavíu fylgir nú í fótspor Slóveníu og Króa- tíu á leiðinni til sjálfstæðis. Makedóníumenn ætla þá aðeins að segja sig úr ríkjasambandinu ef hin lýðveldin tvö ætla að skera á öll tengsl. Leiðtogar Makedóníu gera ekki ráð fyrir að herinn reyni að koma í veg fyrir sjálfstæði lýðveldis- ins eins og gert var í Slóveníu og Króatíu en önnur vandamál blasa við. Fjórðungur vinnufærra manna er atvinnulaus, iðnaðurinn er að hruni kominn lýðveldið er umkringt gömlum óvinum. Líklegt er talið að lýðveldið verði að bíða lengi eftir við- urkenningu á alþjóðavettvangi. Reuter Atökin milli Serba og Króata aldrei blóðugri - eftirlitsmenn Evrópubandalagsins taka sér stöðu á bardagasvæðunum Serbar og Króatar berjast enn af heift þrátt fyrir að leiðtogar þeirra og annarra lýðvelda í Júgóslavíu hafi farið til friðarráðstefnu á vegum Evrópubandalagsins í Haag í Hol- landi um helgina. Enginn sýnilegur árangur varð af ráðstefnunni. Þá hafa eftirlitsmenn frá Evrópu- bandalaginu tekið sér stöðu á átaka- svæðunum í Króatíu í fyrsta sinn og freista þess að ganga milli striðandi fylkinga. Hópur eftirlitsmanna kom í gær til bæjarins Osijek, helstu borgarinnar í austurhluta Króatíu. Þar hafa bar- dagar verið einna harðastir síðustu daga og er borgin nú umsetin skæru- leiðum Serbar og herliði júgóslav- neska sambandshersins. Svo á að heita að vopnahlé sé enn í gildi í Júgóslavíu en bardagar hafa ekki hætt. Yfirmenn eftirlitssveita Evrópubandalagsins segja að bar- dagar hafi til þessa hætt á þeim stöð- um þar sem eftirlitsmenn hafa boðað komu sína. Undantekning frá þessu hefur þó verið í Osijek þar sem skæruhðar Króata vörpuðu sprengj- um á sambandshermenn eftir að eft- irhtsmennimir komu til borgarinn- ar. Tölur um mannfall eru óljósar. Þó er viðurkennt að sex menn hafi fallið í gær. Flestir eru þó á því máh að mun fleiri hafi fallið. Báðir aðilar neita að gefa nokkuð upp um hvern- ig liðsmönnum þeirra hefur vegnað Serbar segja að liðsmenn Króata hafi pyndað þessa ættmenn þeirra tii dauða. Lík mannanna voru jarðsett i gær. Mannfall var að sögn mikið í Júgóslavíu síöasta sólarhringinn þrátt fyrir nærveru eftirlitsmanna frá Evrópu- bandalaginu. Símamynd Reuter í bardögunum. Útvarpið í Belgrad sagði í gærkveldi að Króatar hefðu orðið fyrir miklu mannfalli. Ráðamenn í löndum Evrópubanda- lagsins voru mjög svartsýnir á frið í Júgóslavíu eftir friðarráðstefnuna um helgina. Vöruðu þeir viö að full- komið borgarastríð brjótist út í land- inu og það gæti haft alvarlegar afleið- ingar í allri Evrópu. Reuter Eiturlyfjabarón snýrsérað bleikjueldi Kólombiski eiturlyfiabaróninn Pablo Escobar hefur ákveðið að snúa sér að bleikjueldi þar sem hann situr nú í fangelsi í heima- landi sínu. Með þessu móti hyggst hann fá fangavist sýna stytta því að fiskeldið verði að teljast til þjóðþrifaverka. Escobar hefur einnig hafið lauparækt og sáð fyrir grænmeti í fangelsisgarðin- um. Escobar situr inni ásamt 14 fé- lögum sínum úr svokölluðum MedelineiturlyQahring. Þeir voru ýmist handteknir aflögregl- unni eða gáfu sig fram sam- kvæmt sérstöku tilboði stjómar iandsins um mildari dóma fyrir þá sem hættu ólöglegum atvinnu- rekstri af fúsum og frjálsum vilja. Þá er sagt að þeir sem gangi til vinnu í fangelsinu fái það metið til frádráttar á fangavistinni. Escobar og menn hans eru í sérstakri öryggisgæslu í fangelsi nærri borghini Medehn en þar í héraðinu ræktuðu þeir eiturlyf sem fóru á markað i Bandaríkj- unum og Evrópu. Ríkissljórn Kólombiu liefur verið undir mikl- um þrýstingi frá Bandaríkja- mönnum um að stöðva eiturlyfja- smygl frá landinu og hefur orðið verulega ágengt í baráttunni. Að sögn dagblaða í Kólombíu vinna Escobar og menn hans átta tíma á dag við bleikjueldið í tjörn á fangelsislóðinni. Þess á miili sinna þeir garðræktinni. Að sögn fangelsisyfirvalda hafa þeir félag- ar sýnt ótvíræða hæfileika á þessu nýja verksviði. Þeir eru nú með um fimm þús- und bleikjuseiði í eldi og ætía að færa út kvíarnar í búskapnum með því að taka upp svínarækt þegar aðstaða verður fyrir hendi. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.