Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1991, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1991.
Fréttir
Margir fá sér gæludýr að óhugsuðu máli:
A milli 50 og 100 gælu-
dýr af Ivf uð mánaðarlega
- fólk ætti að hugsa sig vel um áður en það fær sér gæludýr, segir yfirdýralæknir
„Það er töluverður íjöldi gælu-
dýra sem kemur, að ósk eigenda,
frá Dýraspítalanum og dýralækn-
ingastofum hingað til okkar að
Keldum til brennslu. Fjöldi dýr-
anna er breytilegur, það koma
syrpur í þessu. Langmest kemur
fyrir sumarfríin," sagði Sigurður
Sigurðarson yfirdýralæknir í sam-
tali við DV.
Samkvæmt heimildum DV er tal-
an á milli 50 og 100 af gæludýrum
sem fara í brennslu þegar mest er.
„Ég held að það sé töluvert af
fólki sem fær sér heimilisdýr að
óhugsuðu máli því þau þurfa mikla
umönnun. Það er skylda manna að
fara vel með þessi dýr og vera ekki
að stofna til skyndikynna af þessu
tagi. Menn eiga því að hugsa sig
vel um áður en þeir fá sér heimiiis-
dýr.
Það má einnig minnast á annað.
Það eru á ári hverju flutt inn um
500 tonn af hunda- og kattamat.
Þessi innflutningur ætti að vera
alger óþarfi í landi þar sem marg-
falt meira hráefni er fleygt sem
hægt væri að gera að fyrsta flokks
gæludýramat.
Af þessum 500 tonnum eru 250
tonn frá Bretlandi en í Bretlandi
er riðuveiki mjög útbreidd. Hugs-
anlegt er að smitefni geti borist
hingað til lands. Þessi innflutning-
ur er sorglegur því íslendingar
hafa gert mikið átak til þess aö
uppræta riðu, átak sem er vel á veg
komið.
Framleiðendur hunda- og katta-
matar hér á landi þyrftu að tileinka
sér ákveðna framleiðslutækni en
það ætti ekki að vera neitt vanda-
mál,“ sagði Sigurður.
-ÍS
Það er gott að hafa djúpa vasa þegar kuldaboli er að reyna að bíta í puttana.
‘; i
>,
Bl
Jón Hjaltalin Magnússon um íþróttahöll fyrir HM ’95:
Vísar bráðabirgða-
lausnum alveg á bug
„Það hefur fjöldi manns haft sam-
band við okkur hjá handknattleiks-
sambandinu undanfama daga til að
vekja athygli á hugmyndum sínum
um byggingu íþróttahallar sem not-
uð yrði undir heimsmeistarakeppn-
ina í handknattleik. Þar á meðal eru
ýmsar ágætis hugmyndir en ég vil
taka það strax fram að við vísum
öllum bráðabirgðahugmyndum á
bug. Möguleg notkun margumtalaðs
flugskýlis var athuguö 1988 og horfið
frá henni. Ég held að það sé ekki
gott afspumar fyrir ísland sem fund-
arstaö framtíðarinnar ef keppnin fer
fram í flugskýli sem er lánað,“ sagði
Jón Hjaltalín Magnússon, formaður
HSÍ, í samtali við DV.
Eftir að samkomulag varð milli rík-
isins og Kópavogsbæjar um að reisa
ekki margumtalaða margnota
íþróttahöll í Kópavogi, sem notuö
yrði fyrir heimsmeistarakeppnina í
handknattleik 1995, komu fram ýms-
ar hugmyndir um byggingu íþrótta-
hallar. Þar á meðal var talað um við-
bót við íþróttamiðstöðina í Laugar-
dal, byggingu yfir skautasvellið í
Laugardal, nýtingu flugskýlis Flug-
leiða á Keflavíkurflugvelli, stækkun
fyrirhugaðs íþróttahúss fyrir Hauka
í Hafnarfirði og nú síðast byggingu
stálgrindarhúss.
Jón hafnar flugskýli Flugleiða sem
möguleika en tók vel í hugmyndina
um stálgrindarhús enda kostaði slíkt
hús reist, án innréttinga, um 225
milljónir króna.
„Ég hef verið sár þegar menn hafa
talað um byggingu heillar íþrótta-
hallar fyrir HM ’95. Við erum yfir-
leitt að tala um viðbót við þegar fyrir-
hugaðar byggingar, til dæmis í Kópa-
vogi eða Hafnarfirði. Sem stendur
horfum við til Kópavogsbæjar og
Breiðabliks en hvemig sem málin
þróast er ég sannfærður um að bygg-
ing þessa húss verður að veruleika.
Fyrsta skóflustungan verður líklega
tekin á vordögum."
- Miðað við hve lengi þessi bygging
hefur verið í undirbúningi, var þá
ekki farið seint af stað með umræð-
una?
„Það getur verið að við hefðum átt
að vera virkari í miðlun upplýsinga.
Hins vegar er ég mjög ánægður með
umræðuna á Alþingi í vikunni og
þann stuðning sem við fengum þar.
Við eigum stuðningsmenn þvert á
stjórnmálaflokka. Við skulum ekki
gleyma því að veriö er að tala um
fjölnota íþróttahús sem dugar okkur
næstu áratugina. Það er löngu komið
fram að bygging fjölnota húss verði
nauðsynleg fyrr en seinna." -hlh
Gjaldþrot Álafoss:
Einstaklingar og fyrir-
tæki tapa 300 milljónum
Landsbankinn tapar um 150 millj-
ónum króna á gjaldþroti Álafoss,
ekki um 455 milljónum eins og sagði
í DV í gær. Þetta kom fram hjá Birni
Líndal, aðstoðarbankastjóra Lands-
bankans. Lýstar almennar kröfur
Landsbankans í þrotabú Álafoss
voru rúmar 450 milljónir króna.
Björn sagði að margir opinberir aðil-
ar og sterkir einkaaöilar hefðu verið
í ábyrgðum gagnvart Landsbankan-
um. Þær upphæðir væru þegar
greiddar til bankans. Heildartap
Landsbankans vegna gjaldþrots Ála-
foss væri því um 150 milljónir króna.
Vegna stöðu Álafoss lagði Lands-
bankinn til hliðar á afskriftareikning
bæöi árið 1989 og 1990. Sú upphæð,
sem þannig var tekin út úr rekstri
bankans til þess að mæta fyrirsjáan-
legu tapi vegna Álafoss, er um 150
milljónir króna.
í samtali við DV vildi Björn ekki
upplýsa hvaða aðilar þaö væru sem
gengist höfðu í ábyrgðir fyrir Álafoss
gagnvart Landsbankanum. Um 300
milljónir lenda nú á þeim vegna
gjaldþrots fyrirtækisins.
Heimildir DV herma að þar sé
meðal annars um að ræða Akur-
eyrarbæ, Framkvæmdasjóö íslands,
Sambandið, Teppabúðina, Prjóna-
ver, Skóverksmiðjuna Strikið, Ár-
blik, Fínull, Vinnumálasamband
samvinnufélaganna ásamt ýmsum
öðrum aðilum sem tengdust eða áttu
í viðskiptum við Álafoss.
-kaa
Dómur Hæstaréttar 1 Jökulsmálinu:
Dómi í máli 4 fiskvinnslu-
stöða ekki verið hnekkt
„Það hefur ekki verið tekin nein
ákvöröun um það hvort úrskurði
ráðuneytisins í málum fjögurra fisk-
vinnslustöðva vegna meints kvóta-
svindls á árinu 1987 verði hnekkt. í
sjálfu sér getur ráðuneytið gert þaö,“
segir Jón B. Jónasson, skrifstofu-
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu.
Fyrir skömmu ógilti Hæstiréttur
úrskurð ráðuneytisins vegna meints
kvótasvindls fyrirtækisins Jökuls hf.
á Helhssandi árið 1987.
Upphaf málsins má rekja til þess
að kvótalögregla sjávarútvegsins
skoðaði hráefnismagn og afurða-
magn 37 fiskvinnslustöðva á Vestur-
landi. Aö mati sjávarútvegsráðu-
neytisins gátu 5 fiskvinnslustöðvar,
ekki gert grein fyrir 650 tonnum af
afla. Var hann því gerður upptækur
og stöðvunum gert að greiða á
níundu milljón króna í sekt.
Tvær stöðvanna greiddu sekt þá er
ráðuneytið úrskurðaði að þær ættu
að greiða, hinar gerðu það ekki.
Málinu lyktaði með því að Skúh
Alexandersson, eigandi Jökuls,
kærði málsmeðferðina og vann mál-
ið fyrir Hæstarétti.
Að sögn Jóns hafa þær fjórar stöðv-
ar sem sættu sömu málsmeðferð í
ráðuneytinu og Jökull ekki enn ósk-
að eftir því að úrskurði ráðuneytisins
í málum þeirra verði hnekkt. Hins
vegar verði það mál rætt í ráðuneyt-
inu á næstu dögum og ákvöröun þar
að lútandi tekin.
-J.Mar
Ferð Vigdísar til Tékkó-
slóvakíu frestað
„Það hefur veriö hætt við opinbera
fór forseta íslands til Tékkóslóvakíu
þann 12. til 14. þessa mánaðar vegna
ókyrrðar í landinu. Efnahagsástand-
ið er ekki svo slæmt heldur logar
aht í deilum vegna kröfu Slóvaka um
sjálfstæði. Þeir gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að eyðileggja fyrir
Havel forseta,” segir Ári Lieberman,
fréttaritari Tékknesku fréttastof-
unnar hér á landi, en hann er ný-
kominn frá Tékkóslóvaklu.
Á skrifstofu forsetaembættisins
fengust þær upplýsingar að nýlega
hefði borist ósk um að ferð forsetans
yrði frestað vegna ástandsins í land-
inu„ .......
„Þaö væri best fyrir Tékka að losna
við Slóvaka en Vesturlönd eru á
móti því og þess vegna er það ekki
hægt.
Það er slæmt ástand í Bratislava,
höfuðborg Slóvakíu. Til að myndá
er fólki nú hótað öllu illu ef það greið-
ir ekki atkvæði með sjálfstæði lands-
ins í fyrirhugaöri þjóöaratkvæða-
greiöslu. Það eru einkum minni-
hlutahópar sem verða fyrir ofsókn-
um, svo sem gyöingar, Ungveijar og
sígaunar. Ástandið er mjög slæmt og
spuming hvenær það fer allt í kalda-
kol,“ segir Ari.
-J.Mar