Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1991, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1991.
3
Fréttir
Félag eldri borgara byggir þjónustuíbúðir:
Fermetrinn í íbúðunum
kostar 75 þúsund krónur
- margir liðir koma inn í verðdæmið, segir Svan Friðgeirsson
„Það eru sjálfsagt margir liðir sem
koma inn í verðdæmið þegar eldri
borgarar eru að kaupa sér húsnæði.
Þjónustuíbúðirnar, sem við erum að
selja, kosta um 75 þúsund krónur
fermetrinn og er þá sameign talin
með. Það má þó ekki misskilja þetta
á þann veg að það sé þjónusta í íbúð-
unum sjálfum heldur verður Reykja-
víkurborg með þjónustumiðstöð og
hjúkrunarheimili sem tengist þeim.
í íbúðunum sjálfum er hins vegar
Fyrsta skóflustungan að húsi Félags eldri borgara í Hraunbæ var tekin í
apríl á síðasta ári. Húsið var afhent eigendum í lok síðasta mánaðar.
Sólvogur byggir fyrir aldraða 1 Fossvogi:
Fermetrinn á
115 þúsund krónur
Á vegum fasteignasölunnar Fjár-
festingar eru nú til sölu íbúðir fyrir
sextuga og eldri í fjölbýlishúsi Sól-
vogs í Fossvogi. Um er að ræða
tveggja til fjögurra herbergja íbúðir
og er verðið á bilinu 8 til 15,7 milljón-
ir. Verð á hverjum fermetra er því
um 115 þúsund krónur. Byggingar-
meistari er Hörður Jónsson.
„Fyrir þetta verð er fólk að kaupa
fuUbúnar íbúðir, nema hvað varðar
gólfefni, á mjög góðum stað. Það hef-
ur verið mikið spurst fyrir um þessar
íbúðir," voru þær upplýsingar sem
DV fékk hjá fasteignasölunni.
Samkvæmt söluauglýsingum
verða íbúðirnar afhentar í apríl 1993.
Á fyrstu hæð hússins verður íbúð
fyrir húsvörð og salur þar sem
Reykjavíkurborg mun bjóða upp á
ýmiss konar þjónustu, gufubað,
sturtur, búningsklefar og heitir pott-
ar. Á efri hæðum hússins verður
sameiginleg setustofa ásamt sam-
komu- og spilasal.
-kaa
SFR svarar samninganefnd rítósins:
Engir samningar
án verðtryggingar
Samninganeftid Starfsmannafé-
lags ríkisstofnana segir ekki koma
til greina að gera kjarasamninga
nú, hvorki til lengri eða skemmri
tíma, nema verðtryggingar séu fyr-
ir hendi. Þetta kemur fram í at-
hugasemdum sem nefndin hefur
sett við áöur framkomnar hug-
myndir samninganefndar ríkisins.
Að mati nefndarinnar er óráðlegt
að semja til langs tíma í komandi
samningum vegna þeirrar óvissu
sem ríkir um þróun efnahagsmála
á næsta ári. Þá krefst nefndin þess
að nú þegar veröí hafrn umræða
um sérmál félagsins. Er þetta svar
við þeirri hugmynd rikisins að
samið verði tU langs tima, án verð-
tryggingar og án sérsamninga við
einstök félög.
Fram kemur í athugasemdum
samninganefndar SFR að þar á bæ
eru menn ekki til viðræðu um að
semja um nokkuð það sem skerðir
áunnin réttindi opinberra starfs-
manna, hvorki lífeyrisréttindi,
fæðíngarorlof, veikindaréttindi né
önnur réttindi.
„Þeim hugmyndum og forsend-
um um hagræðingu og aukna
framleiöni í ríkisrekstri sem samn-
inganefnd ríkisins setur fram í
plaggi sínu hafnar Starfsmannafé-
lag ríkisstofnana alfarið. Hins veg-
ar er SFR reiðubúiö að ræða al-
menna hagræðingu og aukið at-
vinnulýöræði í einstökum stofnun-
um,“ segir í lok athugasemdanna.
öryggishnappar sem tengdir eru til
húsvarðar sem ávallt er til staðar.
Hann sér síðan um alit viðhald og
hreingerningar í sameign," segir
Svan Friðgeirsson, byggingarráð-
gjafi Félags eldri borgara.
Félag eldri borgara veitti nýverið
móttöku fjölbýhshúsi fyrir félags-
menn sína að Hraunbæ 103. í húsinu
eru 29 þriggja herbergja íbúðir, 107,5
fermetra, og 17 tveggja herbergja
íbúðir, 83,3 fermetra, auk húsvarðar-
íbúðar. Uppreiknað til verðlags í dag
er verð hverrar tveggja herbergja
íbúðar tæpar 6,5 milljónir og hverrar
þriggja herbergja íbúðar um 7,7
milljónir. Heildarstærð hússins er
4.700 fermetrar.
Að sögn Svans verður með vorinu
opnuð þjónustumiðstöð á vegum
Reykjavíkurborgar við hliðina á fjöl-
býlishúsinu. Þar mun eldri borgur-
um bjóðast ýmiss konar þjónusta,
svo sem fótsnyrting, hárgreiðsla,
læknisaðstoð félagsráðgjöf, fondur,
léttar æfingar og matur í sérstökum
matsal.
Svanur segir íbúa hússins enn ekki
hafa stofnað húsfélag og því sé of
snemmt að segja til um hvert mánað-
arlegt húsgjald verði. Gjaldið muni
þó líklega verða á bilinu átta til níu
þúsund fyrir þriggja herbergja íbúð-
irnar. Inn í því sé hiti, rafmagn í
sameign, laun húsvarðar, viðhald og
ti-yggingar.
Að sögn Svans eru eldri borgarar
nú að byggja sambærilegar íbúðir í
Suður-Mjódd og segir hann verð
þeirra íbúða verða svipað og í Hraun-
bænum. Hins vegar sé gert ráð fyrir
að í þjónustu- og hjúkrunarmiðstöö
Reykjavíkurborgar verði ívið meiri
þjónusta en í Hraunbænum.
-kaa