Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1991, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1991.
Útlönd
Smokkurinn
brást að lokum
Ótrúum eiginmanni í Tanzaníu
tókst að verjast eyðniveirunni
meö því að nota smokk en það
dugði manninum ekki til að halda
lífi því eiginkonan hjó mann sinn
til bana með haka.
Deila hjónanna hófst á því aö
konan fann smokk i buxnavasa
manns síns. Hann gortaði af þvi
að nota smokkinn í heimsóknum
til vinkvenna sinna. Þar með
voru dagar hans taldir. Eyðni er
mjög útbreidd í Tanzaníu.
Ferfætthæna
verpirtveimur
eggjum á dag
Ferfætt hæna í héraðinu Shan-
dong í Kína verpir allt aö tveimur
eggjum á dag aö því er fréttir í
staðarblaðinu herma. Hún er
fædd með þeim ósköpum að geta
gengið á fjórum fótum og er meö
tvöfalda eggjastokka. Þess eru
dæmi að hún hafi skilað eiganda
sínum 50 eggjum á mánuði frá
því hún hóf varp síðla sumars.
Skipakóngur-
inn Kloster
áhausnum
Norski skipakóngurinn Kioster
leitar nú að meðeiganda að fyrir-
tæki sinu vegna fjárhagserfiö-
leika. Kloster gerir m.a. út nokk-
ur skemmtiferöaskip og hefur
lengi verið talinn með ríkustu
mönnum í Noregí. Til greina
kemur að selja skíp ef meöeigandi
finnst ekki. Reuter og NTB
Sara Ferguson, hertogynja af Jórvík, lét sér vel lynda þegar lamadýrið Tony smellti kossi á kinn hennar. Sara er
i Toronto í Kanada vegna árlegrar vetrarsýningar. símamynd Reuter
Tony kyssir hertogaynju
Það fá færri en vilja að kyssa her-
togaynjuna af Jórvík, hana Söru
Ferguson. Fyrir utan hertogann
Edward, eiginmann hennar, taka
menn, að sögn, sér ekki bessaleyfi til
slíkra verka á hverjum degi.
Lamadýrið Tony í Toronto í
Kanada telst víst ekki til manna,
enda lét hann sér ekki muna um að
smella kossi á kinn hertogaynjunn-
ar. Sara er nú í Kanada til að gegna
skylduverkum fyrir þegna Elísabet-
ar móður sinnar.
í gærkveldi opnaði hún formlega
vetrarsýningu sem haldin er árlega
í borginni. Kanadamenn láta sér títt
um bresku konungsfjölskylduna og
þó engir eins og Tony sem reyndar
er ættaður úr Andesfjöllum í Suður-
Ameríku.
Reuter
BILAUTSALA
Verðum með um 40 bíla til sýnis og sölu um helgina
með 20% til 45% afslætti. Opið laugardag 10.00 til
16.00 og sunnudag 13.00 til 16.00
BÍLASALAN BLIK
SKEIFUNNI 8, SÍMAR 686477 OQ 686642
Lyktaf sólar-
strönd kemur
heimíhús
Breskir sóldýrkendur fengu
nasaþef af sólarströnd, í orðsins
fyllstu merkingu, í ferðabæklingi
sem kom út í gær. Bæklingurinn
hefur verið meðhöndlaður með
einhverjum efnum þannig að
hann lyktar eins og sólarolía með
kókoslykt.
„Eftir því sem við hest vitum,
hefur þetta aldrei verið gert fyrr.
Við erum þeir fyrstu til að gefa
út ferðabækling með lykt,“ sagði
í tilkynningu frá fyrirtækinu sem
stendur á bak við bækling þenn-
an.
Rafmagn úr
vindmyllumí
fyrstasinn
Fyrsta vindraforkuver Finn-
lands verður tekið í notkun næst-
komandi sunnudag. Um er að
ræða fjörar vindmyllur sem eiga
aö framleiða 1600 megavattstund-
ir á ári, eða sem svarar notkun
áttatíu einbýlishúsa.
Raforkuver þetta sem er í ein-
hverjum mesta rokrassi vestur-
strandar Finnlands var byggt
með aðstoð danskra tæknimanna
og húist er við að það framleiði
rafmagn mestanpart ársins.
Stærstí raforkuframleiðandi
Finnlands er meðal eigenda hins
nýja raforkuvers en til skamms
tíma höfðu menn litla trú á að
svona nokkuð væri yfirleitt hægt.
Settu menn m.a. fyrir sig meint
vindleysi í landinu.
Pavarottiíhapp-
drættisvinning
á írlandi
írska þjóðarhappdrættið gaf
írum í gær færi á að fá ókeypis
miða á tórdeika með ítalska ten-
órsöngvaranum Luciano Pava-
rotti þann 30. desember. Dublin
var menningarborg ársins 1991 í
Evrópu og eru tónleikarnir loka-
viðburðurinn í þeim hátíðahöld-
um.
Óperuunnendur eiga að senda
inn nöfn sín á póstkorti og verða
1300 þeirra dregin út. Hinir fimm
þúsund miðarnir á tónleikana
verða seldir á 100 irsk pund, eða
tæplega tíu þúsund krónur ís-
lenskar. Tónleikarnir verða-
haldnir í jámbrautaskýli sem
hefur verið breytt í konsertsal.
Fyrrum kóngur
vill heim
Fyrrum konungur Afganistans
sagði í gær að morðtilræðið við
hann á mánudag hefði stappað í
hann stálinu og hann væri stað-
ráðnari en áður að snúa heim úr
útlegð.
Maður nokkur sem þóttist vera
blaðamaður stakk kónginn fyrr-
verandí, Zahir Sha, sem er 77 ára,
þrisvar sinnum með hnífi eftir
að hafa tekið „viðtar1 við hann á
heimili hans í Róm.
„Mig langar meira til að fara
heim núna en nokkra sinni fyrr,“
sagði konungurinn í viðtah viö
ítalska útvarpið,
Nýstjórn
íZambíu
Frederick Chiluba, nýkjörinn
forsetí Zambiu, kynnti nýja
stjórn sína í gær og sagðist ætla
að vinna bug á efnahagsþreng-
ingum landsins þar sem kopar er
helsta tekjulindin.
Chiluba sigraði Kenneth
Kaunda, sem hafði lengi verið
forseti, í fyrstu fjölfokkakosning-
unumí23ár. ReuterogFNB