Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.1991, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1991.
Útgáfufélag: FRJÁLS FJOLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÖNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JONSSON
Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, SlMI (91 )27022 - FAX: (91 )27079
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð i lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Ódýrari iðnaðarvörur
Iðnaðarvörur á íslandi munu verða ódýrari eftir árið
1993, ef EES-samningurinn verður staðfestur. íslenzk
iðnfyrirtæki munu mæta aukinni samkeppni, og þau,
sem ekki standa sig, munu fara á höfuðið. Önnur inn-
lend iðnfyrirtæki munu hagnast. í heild sinni er þetta
talið munu verða til mikilla bóta fyrir íslenzkan iðnað.
En hagurinn verður fyrst og fremst neytandans.
Áhrif af sameiginlegum markaði Evrópubandalagsins
eru talin munu verða allt að sex prósent lækkun á verð-
lagi. Með tilkomu evrópska efnahagssvæðisins þýðir
þetta, að íslenzkur iðnaður mun standa frammi fyrir
mjög aukinni samkeppni innfluttra vara. Sumir óttast
þetta. En vel að merkja þýðir þetta einnig, að verð lækk-
ar á þeim innfluttu hráefnum, sem íslenzkur iðnaður
þarfnast til sinnar framleiðslu. Það verður því í dæminu
að líta á markaðinn fyrir aðföngin. Fleira kemur til. EES
mun þýða opnun markaðar fyrir fjármagn og þjónustu,
og í þeim greinum verður verðlækkun. Til dæmis munu
vextir hér á landi lækka mikið. Félag íslenzkra iðnrek-
enda metur þetta réttilega svo, að líkur séu á verulegri
verðlækkun íslenzkrar framleiðslu. Hinir innlendu aðil-
ar munu yfirleitt geta lækkað verð á afurðum sínum
og verða með því færari um að veita samkeppni hinum
innfluttu vörum.
Tæknilegar viðskiptahindranir munu yfirleitt verða
úr sögunni með tilkomu EES. Stjórnvöld hér á landi
verða knúin til að búa íslenzkum iðnaði sömu starfsskil-
yrði og erlendu keppinautunum. Iðnrekendur gera sér
vonir um, að hið rangláta aðstöðugjald muni verða lagt
niður. Sá skattur hér á landi, á veltu, samrýmist ekki
opnum markaði Evrópuríkja. Jafnframt má gera ráð
fyrir, að tekjuskattur á fyrirtæki verði lækkaður til sam-
ræmis við það, sem gerist í samkeppnisríkjunum. Við
þetta og vaxandi gildi markaðsbúskaparins, mun hagur
iðnfyrirtækja fara batnandi.
EES mun leiða til verðlækkunar hjá innlendum
banka- og þjónustufyrirtækjum. EES mun valda verð-
lækkun á iðnaðarvörum, innfluttum og innlendum.
Samningar íslands í EFTA og við EB fela í sér, að vör-
ur, sem fullnægja ákveðnum skilyrðum um uppruna,
njóta tollfrelsis. En tollfrelsið eitt hefur ekki tryggt, að
viðskipti gangi greiðlega. Viðskiptahindranir af ýmsu
tagi hafa komið í veg fyrir það. Nú á að afnema þessar
hindranir að því er tekur til iðnaðarvara. Þetta er
nauðsylegt framhald fyrri samninga um tollfrelsi.
íslenzkir útflytjendur iðnaðarvara munu einnig
hagnast á EES. Vara, sem þykir boðleg hér, mun einnig
þykja það erlendis. Útflytjendur munu græða á afnámi
viðskiptahindrana.
Verðlag í Evrópubandalaginu á að lækka um allt að
sex prósent, þegar til lengdar lætur. Væntanlega lækkar
verð innflutnings frá bandalaginu um svipað hlutfall.
Þetta mun færa íslendingum bætt viðskiptakjör, sem
gætu numið allt að einum af hundraði af framleiðslu í
landinu.
Hagnaðurinn verður íslenzku þjóðarinnar. Ekki mun
af veita, því að enn er tvísýnt um, hvert ella stefndi um
þjóðartekjur okkar á næstu árum. Launþegar munu
geta reiknað sér aukinn kaupmátt af þessum sökum,
þegar verðlagið lækkar. Neytendur munu hljóta í senn
verðlækkun iðnaðarvara og aukið framboð og gæði.
Þetta gefur okkur til kynna, að EES-samninginn á
að staðfesta.
Haukur Helgason
Kommúnisminn ku vera dauður,
aö minnsta kosti að nafninu til, allt
frá Sovétríkjunum til Albaníu en
það valdakerfi sem kommúnism-
anum tilheyrir lifir góðu lífi. Kom-
múnisminn sem hagkerfi er gjald-
þrota stefna og hugmyndafræði
hans er hrunin en þar með er ekki
sagt að þeir menn sem komust til
valda í kommúnísku kerfi og eiga
því allan sinn frama að þakka hafi
á einni nóttu breyst í sannfærða
lýðræðissinna.
Kommúnisminn í Evrópu lifir
enn undir dulnefni í Rúmeníu,
Búlgaríu og umfram allt í Serbíu.
Það er kommúnisminn í Serbíu,
með tilheyrandi ofurvaldi ríkisins
og ægivaldi eins einræðisherra,
sem framar öðru er ábyrgur fyrir
ástandinu í Júgóslavíu. Slobodan
Milosevic, forseti Serbíu og for-
maður kommúnistaflokksins, sem
nú hefur breytt um nafn en ekkert
annaö, er harður kommúnisti af
gamla skólanum og þar á ofan serb-
neskur þjóðrembumaður og öfga-
fullur áróðursmaður í hatri sínu á
öðrum þjóðum ríkjasambandsins.
Alræði flokksins
Það var kommúnistaflokkurinn
sem hélt Júgóslavíu saman undir
Tito og allt kerflð miðaðist við að Slobodan Milosevic, forseti Serbíu, á friðarráðstefnu EB i Haag i Hol-
öll völd væru í höndum flokksins. landi 5. nóvember sl. - „Hefur vakið af dvala draum Serba um Stór-
Með hruni kommúníska kerfisins Serbíu.“ simamynd Reuter
Dreggjar
kommúnismans
hrundi líka grundvöllurinn undir
ríkjasambandinu. Samkvæmt
stjómarskránni, sem Tito skildi
eftir sig, var það flokkurinn einn
sem hafði rétt til aö velja stjórnend-
ur ríkisins á öllum sviðum, allt frá
sveitarstjórnum upp í alríkisþing-
menn og forseta.
Með því aö Slóvenía og Króatía
afnámu alræði flokksins tóku þau
ríki ekki í raun lengur þátt í stjórn
ríkjasambandsins nema að formi
til. Það form var aðallega fólgið í
þátttöku til málamynda í forseta-
embættinu, sem er þannig upp-
byggt að forsetar lýðveldanna sex
og sjálfstjórnarríkjanna tveggja
fara sameiginlega með forsetavald
en einn þeirra er kallaður forseti
Júgóslavíu í eitt ár í senn. Forset-
inn hefur sáralítil völd, eins og
reyndar allir aðrir, því að sú stjórn-
arskrá, sem Tito lét eftir sig, dreifir
valdinu svo mjög að við stjórnleysi
hggur. í þessari lömun fram-
kvæmdavaldsins er að leita skýr-
ingar á ofurvaldi serbneska komm-
únistaflokksins undir dulnefni og
formanns hans.
Milosevic hefur vakið af dvala
draum Serba um Stór-Serbíu, þar
sem til Serbíu teldust Bosnía,
Makedónía, Vojvodina og Kósóvo,
að ógleymdum þeim hlutum Króa-
tíu sem eru byggöir Serbum. Stríð-
ið við Króatíu er landvinningastríð,
ætlunin er að innlima í Stór-Serbíu
öll þau svæði sem eru byggð Serb-
um og meira til, því aö byggðir
Serba þar eru dreifðar og miklar
breytingar þarf að gera á landa-
mærum til að þessi einstöku serb-
nesku svæði lendi innan Serbíu.
Stríðið er fyrsta landvinningastríð
í Evrópu frá lokum heimsstyrjald-
arinnar og er furðulegt hve létti-
lega því hefur í raun verið tekið á
þeim stöðum þar sem vænta mætti
andstöðu, svo sem hjá NATO.
Sögulegur grunnur
Annað meginatriði stríðsins, að
kommúnismanum frátöldum, er sú
staðreynd að Serbía á ekkert tilkall
til Króatíu. Króatía hefur aldrei í
sögunni verið hluti af Serbíu. Eftir
stutt tímabil sjálfstæðis á tíundu
öld lenti Króatía undir stjórn hins
svokallaða heilaga rómverska keis-
aradæmis sem var hvorki heilagt
né rómverskt heldur þýskt. Síðan
undir. stjóm. Austurríkis. og. enn.
KjaUarinn
Gunnar Eyþórsson
fréttamaður
síðar ungverska hluta Austurrík-
is - Ungverjalands, allt þar til 1918.
Serbía lenti aftur á móti undir
stjórn Býsanz og síðar Tyrkjasold-
áns, allt frá 1389 til 1878, og var
konungsríki til 1918, þegar sameig-
inlegt konungsríki Serba, Króata
og Slóvena með aðild hinna ríkj-
anna, sem nú eru í Júgóslavíu, var
stofnaö.
Júgóslavía var síöan endurreist
1945 sem kommúnistaríki en Júgó-
slavía er byggð á hugmyndum sem
ekki standast. Júgó-Slavía merkir
ríki Suður-Slava en þessir Suður-
Slavar eiga sárahtið sameiginlegt.
Slavnesku þjóðirnar eru Slóvenar,
Serbar og Króatar en hinar þjóð-
irnar era ekki slavneskar. Króatar
og Slóvenar eru vestrænir, róm-
versk-katólskir og mótaðir af mið-
evrópskum hugsunarhætti. Serbar
og Makedóníumenn ásamt meiri-
hluta íbúa Bosníu/Herzegóvínu eru
ortódox-kristnir, mótaðir af aust-
urrómversku kirkjunni og yfir-
stjórn Tyrkja. íbúar Kósóvo og
nærri helmingur íbúa Bos-
níu/Herzegóvínu era múshmar svo
og.íbúar. Svartfjallalands......
Enda þótt Serbar og Króatar tah
að heita má sama tungumál nota
þeir ekki sama letur, Króatar lat-
inuletur, Serbar kírillíska letrið.
Menning þessara þjóða er ólík í
gi'undvallaratriðum og djúpstætt
hatur ríkir á milli þeirra sem á
rætur langt aftur í aldir þegar veldi
Tyrkja ógnaði vestrænni menn-
ingu. Það er fjarstæða að Serbar
eigi nokkurn sögulegan eða sið-
ferðislegan rétt til að sitja yfir hlut
Króata. Júgóslavía var barin sam-
an undir yfirdrottnun Serba 1918
en konungsríkiö varð síðar að fas-
istastjórn sem hélt ríkinu saman
með ofbeldi til 1941 þegar Þjóðverj-
ar hernámu landið.
Kommúnískar aðferðir
Af því er mikil saga, sem hér er
ekki ráðrúm að rekja, en leppríki
Króata á þeim áram og grimmdar-
verk sem þá voru framin á Serbum
af króatískum fasistum eru Serb-
um nú ofarlega í huga. Minningin
um þennan tíma heldur hatrinu
glóandi.
Tito hélt ríkjasambandinu saman
með hefðbundnum kommúnískum
aðferðum, lögreglu, fangabúðum
og kúgun. Eftir hans dag hefur aht
stefnt að því sem nú er komið fram.
Það er kommúnistinn Milosevic
sem nú reynir að beita aöferðum
Titos til að halda saman því sem í
raun á ahs ekki saman.
Það er kominn tími til að þjóðir
heims fari að endurskoöa hug sinn
til Júgóslavíu, sætta sig við að
ríkjasambandið er ekki til lengur
og verður aldrei endurreist. Því
fyrr sem þjóðir Evrópu viðurkenna
sjálfstæði Króatíu og Slóveníu því
fyrr er þess aö vænta að þessar síð-
ustu útþenslutilraunir kommún-
ismans í Evrópu verði brotnar á
bak aftur.
Gunnar Eyþórsson
„Það er kommúnisminn í Serbíu með
tilheyrandi ofurvaldi ríkisins og ægi-
valdi eins einræðisherra sem framar
öðru er ábyrgur fyrir ástandinu í Júgó-
slavíu.“