Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Page 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991.
Fréttir
Fiskeldi Grindavíkur hf.:
Gjaldþrotið tæp-
ar 280 milljónir
- eignimarverðaseldaráuppboðiímánuðinum
Lýstar kröfur í þrotabú Fiskeldis
Grindavíkur hf. nema samtals 277
milljónum króna. Þær skiptast þann-
ig aö kröfur utan skuldaraðar nema
232 milljónum króna. Almennar
kröfur eru tæpar 40 milljónir og for-
gangskröfur, sem lýst var, eru rúmar
8,5 milljónir króna.
Stærstu veðkröfurnar eiga Lands-
bankinn meö tæpar 80 milljónir,
Fiskveiðasjóður með 75,5 milljónir
og Framkvæmdasjóður með rúmar
60 milljónir. Eignir þrotabúsins
verða seldar á uppboði síðar í þessum
mánuði. Bæði fasteignir og lausafé
búsins voru yfirveösett. Talsvert
magn af fiski var í búinu, eða um 40
tonn. Stór hluti þess var of smár til
að hægt væri að selja hann. Tæpan
fjórðung var hægt að selja en afgang-
urinn var settur í bræðslu.
Fiskeldi Grindavíkur var lýst
gjaldþrota 24. júlí síðastliðinn. Upp-
haflega var fyrirtækið tvær stöðvar,
Eldi hf. á Húsatóftum og Fiskeldi
Grindavíkur hf. við Brunna. Um ára-
mót 1988-’89 voru fyrirtækiri samein-
uð. Eignir þrotabúsins eru því í
tvennu lagi. A Brunnum eru aöallega
fiskeldisker en á Húsatóftum er eld-
ishús og tvær aðrar byggingar til
fiskeldis, ásamt öllum búnaði. íbúð-
arhús er einnig á síðarnefnda staðn-
um.
Þegar fyrirtækin voru sameinuð
var fjárhagsstaða þeirra slæm.
Reksturinn hafði veriö fjármagnaður
með afurðalánum og ábyrgðir full-
nýttar. Það var því erfitt að fá afurða-
lánin afgreidd.
Þá kom upp hugmynd um að auka
framleiðslugetu fyrirtækisins úr 80
tonnum af laxi í um 400 tonn af
bleikju. í janúar 1991 ákvaö Lands-
bankinn breytingar á verðmætamati
fisks. Samkvæmt því varð fiskurinn
að vera þyngri ein eitt kíló til að
hann væri hæfur til veðsetningar.
Á þessum tíma var staða fyrirtæk-
isins sú að það þurfti um átta millión-
ir næstu sjö mánuði í rekstrarfé,
umfram tekjur. En það fékk einungis
tvær milljónir. Fyrri hluta sumars
lá svo ljóst fyrir að Fiskeldi Grinda-
vikur hf. væri ekki meðal þeirra fisk-
eldisfyrirtækja sem fengu frekari
fyrirgreiðslu hjá hinu opinbera.
Stjórn þess lýsti það því gjaldþrota í
júlí, eins og áður sagði.
Hluthafar í Fiskeldi Grindavíkur
voru ýmsir útgerðarmenn á Suður-
nesjum, allmörg fyrirtæki svo og fjöl-
margir einstaklingar á svæðinu.
-JSS
Mjólkurdeilan fyrir norðan:
Það er mjög þungt í fólki
- segir Mltrúi starfsmanna á Akureyri
Gyffi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta mál er járn í jám og samn-
ingafundurinn í síðustu viku leiddi
ekki til neins nema e.t.v. þess að deil-
an hefur harönað. Þaö er óhætt að
segja að það sé mjög þungt í fólki
vegna þessarar deilu,“ segir Ingi
Pálsson á Akureyri en hann er full-
trúi starfsfólks í Mjólkursamlagi
KEA í samninganefnd.
Iðjufélagar, sem starfa í mjólkur-
samlögunum á Akureyri og á Húsa-
vík, em í þriggja daga verkfalli.
Ótímabundið verkfall hefur veriö
boðað frá og með nk. mánudegi.
„Við felldum samningana 1989 og
gerðum þá samning við Kaupfélag
Eyfirðinga um að við sæktum þessi
námskeið og í næstu samningum
yrði samið um námskeiðsálag vegna
þess. í þeim samningum kom svo
þjóðarsáttin og viðsemjendur okkar
töldu sig ekki geta samið um neitt.
Við teljum okkur véra að sækja það
sem við eigum inni enda höfðum við
loforð frá Vinnumálasambandinu
um að frá þessu máli yrði gengið fyr-
ir næstu samninga. En því miður er
ég mjög svartsýnn á framhald þess-
arar deilu,“ sagði Ingi.
„Ég verð því miður að segja að
þetta er mjög erfitt mál og það er
ekki til að auðvelda lausn á því ef
þeirri hugmynd hefur verið komið
inn hjá fólki að það sé verið að svíkja
eitthvað sem lofað hefur verið,“ segir
Hjörtur Eiríksson hjá Vinnumála-
sambandi Samvinnufélaga. „Ég
kannast ekki við að fólkinu hafi ver-
ið lofað launahækkun vegna starfs-
námskeiða. Ég var í samningavið-
ræðunum 1989 og það var engu lofaö
nema viöræðum. En að námskeiösá-
lagi hafi verið lofað er bara ekki
rétt,“ segir Hjörtur.
Miklu var dreift af mjólk fyrir noröan á laugardaginn áður en verkfallið hófst.
DV-mynd GK
Lánstraust erlendis:
íslendingar
viðbotninn
„Við erum mjög neðarlega í
samanburði við önnur Evrópu-
löhd i þessari könnun og höfum
verið það,“ sagði Þórður Friö-
jónsson, forstöðumaöur Þjóð-
hagsstofnunar, um könnun sem
gerð var fyrr í haust á láns-
trausti þjóða í heiminum. Niður-
stöðurnar birtast í bandaríska
fjármálaritinu Instítutional In-
vestor. Samkvæmt þeim nýtur
ísland ekki ýkja mikils lárist-
rausts.
„Það hefur ekki orðið nein um-
talsverð breyting á lánstrausti
íslendinga erlendis," sagði Þórð-
ur. „Mig minnir að þeir hafi farið
niður um eitt sætí eða svo.“
-JSS
Launavísi-
talalækkar
Launavísitala fyrir nóvember
er 1,2 prósentustigum lægri en í
október. Hún tekur mið af meðal-
launum í undanfama mánuöi og
vegur þriðjung í lánskjaravísi-
tölu næsta mánaöar á eftir.
Samanborið við þróun vísi-
tölunnar síðustu 12 mánuöi hefur
hún lækkað um 4,3 prósent á
þrem undanFómum mánuðum. Á
ársgrundvelli hefur hún hins
vegar hækkað um 9,3 prósent.
-kaa
Ólafsfjörður:
Íkveikjaí
íbúðarhúsi
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Eldur kom upp i íbúðarhúsi víð
Ólafsveg á Ólafsfirði á sunnu-
dagsmorgun og þykir fullvíst að
þar hafi verið um íkveikju aö
ræða.
Húsráðendur vöknuðu í morg-
unsáriö og uppgötvuðu þá að eld-
ur var laus á tveimur stöðum 1
íbúðinni, bæði i eldhúsi og í stofu.
Vel gekk að slökkva eldinn og
skemmdir urðu ekki miklar.
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri vinnur að rannsókn málsins
og gaf þær upplýsingar að málið
væri ekki upplýst en væri í í'rek-
ari rannsókn. -
I dag mælir Dagfari
Sterkustu menn heims
Tveir Islendingar unnu til gull-
verðlauna í heimsmeistaramóti í
kraftíyftingum um helgina. Sá
þriðji fékk brons. Það er ekki á
hverjum degi sem íslendingar
verða heimsmeistarar í lyftingum
enda þótt það sé orðinn nær dagleg-
ur viðburöur að íslendingar verði
heimsmeistarar. Er þá skemmst að
minnast þess að íslenska sveitín
varð heimsmeistari í bridge á dög-
unum og mættu þá bæði forsaétís-
ráðherra og utanríkisráðherra á
Keflavikurflugvelli til að taka á
mótí bridgesveitínni. Búast má við
því að ráðherramir mætí aftur í
Keflavík þegar kraftlyftingamenn-
irnir koma heim, enda hefur kraft-
lyftingaheimsmeistarinn látíð þess
getið að heimsmeistaratignin í
brigde sé ekkert á viö heimsmeist-
aratitlana í kraftlyftingum. Það er
vegna þess að bridgemennimir
þurftu lítíð sem ekkert að hafa fyr-
ir sínum sigri. Þeir þurftu bara að
hugsa meðan kraftlyftingamenn-
imir þurftu eingöngu að taka á.
Þeir þurfa ekki aö hugsa í kraftlyft-
ingum. Sumir segja aö það sé þess
vegna sem íslendingar séu svona
góðir í kraftlyftíngum en þaö er nú
allt annar handleggur.
Þetta er auðvitað hárrétt ábend-
ing og vekur upp þá spurningu
hvort íslendingar eigi ekki einmitt
að einbeita sér að einhveiju sem
ekki krefst hugsunar, þvi það er í
rauninni miklu meira afrek að gera
eitthvað sem ekki krefst hugsunar
heldur en hitt þar sem menn þurfa
bara að hugsa. Það er enginn vandi
að vinna ef maöur fær að hugsa.
En það er mikill vandi að gera eitt-
hvaö án hugsunar.
Þegar heimsmeistaramir í bridge
komu heim kom líka með sömu vél
Magnús Ver Magnússon sem vann
sigur í keppninni um títilinn
„sterkastí maður heims“. Magnús
gleymdist hins vegar alveg í látun-
um út af bridgekeppninni og eng-
inn tók á mótí honum nema í mesta
lagi konan hans og ráðherrarnir
fluttu engar ræður yfir Magnúsi
Ver og var það til mikillar skamm-
ar og í rauninni algjör óþarfi, vegna
þess að forsætisráðherra var í stuði
þetta kvöld og flutti bráðskemmtí-
lega ræðu, eins og allir muna. Hon-
um hefði ekki orðið skotaskuld úr
því að flytja ræðu yfir sterkasta
manni heims ef ráðherranum hefði
verið sagt frá því að sterkasti mað-
ur heims var líka að koma heim.
Forsætisráðherra hafði haft vit á
því að hringja í borgarstjórann í
Reykjavík og sameiginlega ákváðu
þeir að gefa Bridgesambandinu tíu
miiljónir króna sem Bridgesam-
bandið skuldaði borginni og var
það mikill rausnarskapur hjá for-
sætisráðherra að láta borgarstjóra
gefa peninga borgarinnar af þessu
tílefni.
Vonandi gleymast ekki kraftlyft-
ingamennirnir þegar þeir koma
heim meö gullpeningana. Davið
veröur aftur að flytja ræðu og þó
hann verði ekki endilega ölvaður
þá er vonandi að hann verði ölvað-
ur af gleði til aö flytja skemmtilega
ræðu yfir kraftlyftingamönnunum
og vonandi gleymir hann ekki að
hringja í borgarstjórann til að fá
loforö hjá honum um að borgin
geri eitthvað fyrir kraftlyftinga-
menn í líkingu við það sem borgin
gerði fyrir bridgemennina. Ekki er
tsfgg
vitað um aö Kraftlyftingasamband-
ið skuldi börginni, enda eru kraft-
lyftingamenn ekki nógu duglegir
við að skulda. En sambandið gæti
út af fyrir sig hlaupið til og keypt
húseign og látíð borgina vita svo
borgin getí borgað húseignina í til-
efni af sigrinum.
Ef þessu heldur áfram með
heimsmeistaratitla í útlöndum
verðrir nóg að gera þjá ráðherrum
landsins við að taka á móti öllum
okkar heimsmeisturum og þjóðin
yrði auðvitað að hafa þá afsakaða
á meðan við þessi skyldustörf sín
að drekka kampavín í flugstööinni
og flytja ræður við móttökuathafn-
ir íslenskra heimsmeistara og þá
verða allar efnahagsaðgerðir að
bíða. Enda er miklu skemmtilegra
að flytja ræður yfir heimsmeistur-
um heldur en að standa í leiðinleg-
um efnahagsaögerðum. Það heyra
menn á Davíð þegar hann annars
vegar rekur raunir sínar á ríkis-
stjórnarfundum og hins vegar
brillerar í ræðuhöldum á flugvell-
inum.
Kannske er það vegna þess að
Davíð hefur vit á því að tala án
þess að hugsa þegar hann tekur á
mótí heimsmeisturum.
Dagfari