Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Blaðsíða 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991.
Fólkífréttum
Eggert Larusson
fræöingur í Reykjavík; Birgir Lár-
Eggert Lárusson, formaður Hins ís-
lenska kennarafélags, hefur verið í
fréttum að undanfornu, m.a. vegna
úrsagnar HÍK úr BHM.
Starfsferill
Eggert fæddist í Reykjavík 20.5.
1948 og ólst þar upp. Hann lauk
kennaraprófi 1%9, stúdentsprófi frá
KÍ1970, BS-prófi í jarðfræði og
landafræði frá HÍ1974 og lauk dokt-
orsprófi í jarðfræöi við háskólann í
Durham á Englandi 1984.
Eggert var stundakennari við
Gagnfræðaskóla Austurbæjar
1972-74, stundakennari í hagrænni
landafræði við HÍ1974, aðstoðar-
kennari í landafræði og aðferða-
fræði við háksólann í Durham
1974-76, er kennari við Flensborgar-
skólafrá 1979 og stundakennari við
KHÍ frá 1980. Þá hefur hann verið
veðurfréttamaður á Stöð 2 frá 1989.
Eggert var fyrsti formaður Landa-
fræðifélagsins 1979-81, formaður
HÍK frá 1989, varaformaður BHMR
frá 1990, formaður hagsmunanefnd-
ar HÍK1988-89, var formaður AI-
þýðubandalagsins í Hafnarfirði í tvö
ár og situr í samninganefnd HÍK frá
1987. Eggert samdi kennslubók um
veður- og haffræði sem út kom á
vegum Máls og menningar 1989.
Fjölskylda
Eggert var kvæntur Gillian R.
Fougler, f. 19.12.1952, jarðeðlisfræð-
ingi en hún er dóttir Edgar Fougler,
úrsmiðs í Ipswich á Englandi, og
konu hans, Alice A. Fougler. Eggert
ogGillianskildu.
Sonur Eggerts og Gillian er Lárus,
f. 23.12.1975, nemi.
Sambýliskona Eggerts er Amfríð-
ur, f. 28.7.1969, dóttir Smára Aðal-
steinssonar, fisksala í Reykjavík, og
konu hans, Gerðar Garðarsdóttur
húsmóður.
Dóttir Eggerts og Arnfríðar er
Ríkey.f. 4.1.1991.
Eggert á fimm systkini. Þau eru
Bjöm R. Lárusson, f. 7.11.1942, hús-
gagnasmíðameistari í Hafnarfirði;
Hrafnhildur Lámsdóttir, f. 18.8.
1944, læknir í Lundi í Svíþjóð; Heim-
ir L. Fjeldsted, f. 7.10.1945, mjólkur-
usson, f. 12.11.1951, rekur billiard-
stofu; Sigurbjöm, f. 14.7.1956, bú-
setturíReykjavík.
Foreldrar Eggerts eru Lárus
Harrý Eggertsson, f. 22.6.1910, d.
7.4.1991, sjómaður í Reykjavík, og
kona hans, Ingibjörg Björnsdóttir,
f. 22.8.1911, húsmóðir.
Ætt
Láms Harrý var sonur Eggerts
Fjeldsted, b. á Klukkulandi í Dýra-
firði, bróður Lárusínu, móður Helga
Hjörvar útvarpsmanns og ömmu
Auðar Haralds rithöfundar. Eggert
var sonur Lárusar Fjeldsted, b. í
Kolgröf í Eyrarsveit, bróður Andr-
ésar á Hvítárvöllum, afa Lárusar
Fjeldsted hæstaréttardómara, afa
Katrínar Fjeldsted, læknis og borg-
arráðsmanns. Andrés var einnig
langafi Guðjóns Teitssonar, for-
stjóra Ríkisskips. Láms var sonur
Vigfúsar, gullsmiðs í Stóru-Tungu á
Fellsströnd og ættfoður Fjeldsted-
ættarinnar Sigurösonar, og Karitas-
ar Magnúsdóttur, sýslumanns í
Búðardal, Ketilssonar.
Móðir Lárasar var Ríkey Jóns-
dóttir, b. á Meiribakka, Jóhannes-
sonar, b. á Blámýram, Jónssonar.
Móðir Jóhannesar var Þóra Jóns-
dóttir, b. á Laugabóli í Ögurhreppi,
Bárðarsonar, ættfoður Arnardals-
ættarinnar, Illugasonar. Móðir Rík-
eyjar var Helga Bjamadóttir, í
Hagakoti, Einarssonar.
Ingibjörg er dóttir Bjöms, vörubíl-
stjóra í Reykjavík, Guðmundssonar,
b. á Hrafnagili í Laxárdal, Guð-
mundssonar, b. á Ingveldarstöðum,
bróður Sigríðar, langömmu Péturs,
föður Siguijóns borgarráðsmanns.
Guðmundur var einnig bróðir Þor-
valds á Skefilsstöðum, langafa Jóns,
alþingisforseta á Akri, föður Pálma
alþingismanns en Þorvaldur var
einnig afi Ragnheiðar, langömmu
Magnúsar frá Mel fjármálaráðherra
og Halldórs Þormars, sýslumanns á
Sauðárkróki, Jónssona. Guðmund-
ur var sonur Gunnars, hreppstjóra
og ættföður Skíðastaðaættarinnar,
Gunnarssonar. Móðir Björns var
Ingibjörg Björnsdóttir, hreppstjóra
Eggert Lárusson.
á Hafragili í Skagafirði, bróður Guð-
mundar á Ingveldarstöðum. Móðir
Ingibjargar var Guðrún Ólafsdóttir,
smiðs á Ingveldarstöðum og Hafra-
gili Kristjánssonar og Sigurlaugar,
systur Gunnars á Skíðastöðum.
Móðir Ingibjargar og amma Egg-
erts var Evlalía Olafsdóttir, sjó-
manns og steinssmiðs í Hlíðarhús-
um í Reykjavík, Jónssonar, b. í
Hrútsstaðahjáleigu, Bjarnasonar, b.
á Syðra-Velli í Flóa, Þorgrímssonar,
b. í Ranakoti, Bergssonar, hrepp-
stjóra og ættföður Bergsættarinnar,
Sturlaugssonar. Móðir Evlalíu var
Sigurbjörg Jónsdóttir, b. í Hvammi
í Kjós og á Gróttu á Seltjarnarnesi,
Jónssonar.
Afrnæli
Gudrún Ólafsdóttir
Guðrún Ólafsdóttir hjúkrunarfræö-
ingur, Amarhrauni2, Hafnarfirði,
erfertugídag.
Starfsferill
Guðrún er fædd í Reykj avík en
ólst upp í Hafnarfirði. Hún gekk í
Lækjarskóla og Flensborg og tók
gagnfræðapróf úr síðarnefnda skól-
anum. Guðrún stundaði nám í
Sjúkraliðaskóla íslands og útskrif-
aðist þaðan 1978. Hún stundaði síðar
nám í Hjúkranarskóla íslands og
brautskráðist sem hjúkrunarfræð-
inguráriðl986.
Guðrún fór í sveit sem unghngur
og var sjö sumur við sveitastörf 1
Landeyjum. Hún hefur starfað á St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði meira og
minna frá 16 ára aldri, fyrst sem
gangastúlka, þá sjúkraliði og nú
semhjúkrunarfræðingur. Guðrún
hefur aðallega unnið á handlækn-
ingadeild en einnig á lyfjadeild.
Guðrún vann einnig um nokkurra
mánaða skeið í Sælgætisgerðinni
GóuíHafnarfirði.
Fjölskylda
Guðrún giftist 19.9.1970 Kristjáni
Jens Kristjánssyni, f. 4.4.1950,
slökkviliðsmanni í Hafnarfirði. þau
slitu samvistum. Foreldrar Krist-
jáns: Kristján Kristjánsson sjómað-
ur, látinn, og Ásdís Amfmnsdóttir.
Þau bjuggu á Akranesi en Ásdís býr
nú í Hafnarfirði með seipni manni
sínum og fósturföður Kristjáns,
Þorleifi Finnssyni, starfsmanni á
vinnuvélum.
Börn Guðrúnar og Kristjáns: Ólaf-
ur, f. 14.12.1970, starfsm. hjá Wuth-
innflutningsfyrirtæknu; Matthías,
f. 9.3.1972, umsjónarmaður í Dals-
nesti; Ásdís, f. 7.8.1973, nemi í
Kvennaskólanum.
Bræður Guðrúnar: Birgir, f. 8.11.
1942, lögregluþjónn í Keflavík, maki
Stella Olsen skrifstofumaður, þau
eiga tvö böm, Telmu og Snorra; Sig-
uröur, f. 20.5.1944, slökkvilismaöur
í Hafnarfirði, maki Ingunn Elísabet
Viktorsdóttir sjúkraliði, þau eiga
þrjú börn, Viktor Rúnar, Kristínu
og Guðrúnu Lísu; Einar, f. 6.2.1954,
endurskoðandi, maki Ingibjörg
Magnúsdóttir húsmóðir, þau eiga
tvo syni, Magnús Inga og Kristin.
Foreldrar Guðrúnar: Olafur Frí-
mannsson, f. 13.5.1921, d. 5.4.1987,
Guðrún Ólafsdóttir.
vélvirki og pípulagningarmaður, og
Kristín Sigurðardóttir, f. 10.10.1921,
d. 6.2.1986, húsmóðir, en þau bjuggu
allan sinn búskap að Selvogsgötu
18íHafnarfirði.
Bragi Sigurþórsson
Bragi Sigurþórsson byggingaverk-
fræðingur, Vogalandi 3, Reykjavík,
ersextugurídag.
Starfsferill
Bragi er fæddur á Fossá í Kjós og
ólst þar upp og að Vindási í Kjós og
í Hvammi í Norðurárdal. Hann hef-
ur verið búsettur í Reykjavík frá
1944.
Bragi lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1951,
fyrri hluta prófi í verkfræði frá Há-
skóla íslands 1954 og prófi í bygg-
ingaverkfræði frá DTH í Kaup-
mannahöfn 1957.
Bragi var verkfræðingur hjá Al-
menna byggingafélaginu hf. í
Reykjavík 1957-71. Hann stofnaði
ásamt öðrum Almennu verkfræði-
stofuna hf. í Reykjavík 1971 og hefur
starfaðþarsíðan.
Bragi hefur verið hönnunarstjóri
við ýmis verkefni, m.a. við Seðla-
bankann og Jámblendiverksmiðj-
una á Grundartanga. Hann vann
ennfremur við hönnun á Norræna
húsinu og Sementsverksmiðju rík-
isins á Akranesi ásamt ýmsum fleiri
mannvirkjum. Bragi er nú verkefn-
isstjóri við byggingu Þjóðarbók-
hlöðunnar.
Fjölskylda
Bragi kvæntist 18.8.1962 Ingu
Björk Sveinsdóttur, f. 24.4.1941,
kennara í Fossvogsskóla. Foreldrar
Ingu: Sveinn Ólafsson, vélstjóri og
jámsmíðameistari, látinn, og Hans-
ína Fr. Guðjónsdóttir.
Börn Braga og Ingu: Sólrún, f. 1.12.
1959, óperasöngkona í Hannover í
Þýskalandi, maki Þórarinn Stefáns-
son píanóleikari, Sólrún á einn son
frá fyrra hjónabandi, Braga Berg-
þórsson; Þórdís, f. 7.4.1964, sálfræð-
ingur, maki Þorbjöm Guðjónsson,
læknanemi; Friðrik, f. 8.4.1968,
verkfræðinemi í Svíþjóð, maki
Anna Brynja Sigurgeirsdóttir,
nemi; Brynja, f. 20.3.1972, nemi í
Menntaskólanum við Sund.
Bragi Sigurþórsson.
Foreldrar Braga: Sigurþór Ólafs-
son, f. 9.3.1899, d. 8.1.1933, bóndi á
Fossá í Kjós, og kona hans, Þórdís
Ólafsdóttir, f. 19.6.1908, ljósmóðir,
en hún er nú búsett á Grandavegi
47íReykjavík.
Bragi er að heiman á afmælisdag-
inn.
95 ára 60ára
Helga Þorgiisdóttir, Snorrabraut 58, Reykjavík. Lúðvík Ásmundsson, Sigríöarstöðum, Fljótahreppi. PállÞórisson, _ Lindarhóli, Tunguhreppi.
80 ára
Halldóra Bjamadóttir, Sogavegi 150, Reykjavík, Jóhanna Baldvinsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavik. 75 ára 50ára Sæunn Hjaltadóttir, Aðalgötu 16, Siglufiröi. Þór Jónsson, írafossi 1, Grímsneshreppi.
\
yUMFERÐAR
RÁÐ
RAUTT
UÓS/
Björgheiður Jónsdóttir,
Akursbraut 22, Akranesi.
Fanney Helgadóttir,
Asparfelli 4, Reykjavík.
Helga Magnúsdóttir,
Dalbraut 14, Reykjavík.
Árni Kristjánsson,
Reykjavegi 52a, Mosfellsbæ.
40ára
Svava Björg Jóhannsdóttir
HIíðarvegi52, Ölafsfirði.
Jóhánna Gunnþórsdóttir,
Strandaseli 6, Reykjavik.
SigrúnG. Ragnarsdóttir,
Fljótaseli 20, Reykjavík.
Sigurður Jósef Björnsson,
Barmahlíð 33, Reykjavík.
Eygló Óskarsdóttir,
Heimavöllum 7, Keflavík.