Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991. Menning „Ef ekkevt breytist, þá breytist ekkert-.. „Mér hefur virst það fara fyrir brjóstið á allmörgum aö einatt er talað um áfengis- vandamálið sem fjölskyldusjúkdóm. Fólk spyr hvernig þaö komi heim og saman að vandamál eins aðila geti verið vandamál annars. Þegar ég heyri spurningar af þessu tagi, er það alltaf einlægósk mín að spyrjand- inn hafi aldrei og muni aldrei þurfa að kynn- ast vandamálinu af eigin raun.“ (Bls. 9) Þannig farast Súsönnu Svavarsdóttur orð í inngangskafla að bók sinni Gúmmíendur synda ekki en þar tekur hún viðtöl við níu konur sem allar eiga það sameiginlegt að hafa verið giftar virkum alkóhólistum. Með þessum orðum vill höfundur leggja áherslu á það, sem oft vill gleymast, að áfengisvand- inn er ekki einungis vandamál alkóhólistans heldur einnig þeirra sem næstir honum standa. í inngangi telur Súsanna ástæðu til að nefna að hún hafi sjálf kosið að ræða ein- göngu við eiginkonur en það þýði ekki að karlmenn geti ekki gengið í gegnum svipaða reynslu - „og það þýðir ekki heldur áð ég sé að benda á karlmenn og segja að þeir séu aumingjar og svín. Viðmælendur mínir eru ekki fórnarlömb karlanna. í fjölskyldu sem býr við virkan alkóhólisma eru alhr fórn- arlömb - líka alkóhólistinn." (Bls. 10) Höfundur ræðir htihega sína eigin reynslu af hjónahandi með alkóhólista og sársaukan- um sem fylgir því að reyna að breyta því óbreytanlega: alkanum sem neitar að horfast í augu við eigin veikleika. Jafnframt lýsir hún þeim leiðum sem hún ákvað aö fara þegar allar bjargir virlust bannaðar: „Mér hafði ekki tekist að koma honum í meðferð þrátt fyrir miklar umræður um vandamál okkar, þrátt fyrir grát og gnístran tanna, þrátt fyrir skipanir og hótanir - og ekki einu sinni þótt ég léti sem hegöun hans og framkoma kæmi mér ekki við. Ég gafst að lokum upp - og gaf honum frelsi til að Súsanna Svavarsdóttir, níu viðtöl í Gúmmí- endur synda ekki. Bókmenntir Sigríður Albertsdóttir hugsa sjálfur, finna út hvað hann vildi - frelsi tii að velja hvers konar lífi hann kysi að hfa, með eöa án áfengis. Þaö haföi tekið mig tíma að afsala mér ábyrgð á honum, en það tókst." (Bls. 16) í framhaldi af þessum orðum segist hún hafa verið haldin mörgum þeim einkennum sem „góðir“ stuðnings- menn hafa en hver alkóhóhsti hefur yfirleitt einn eða fleiri stuðningsmenn sem aðstoða hann við að drekka, jafnvel þótt þeir haldi að þeir séu að reyna að fá hann til að hætta að drekka. Hún útskýrir síðan helstu ein- kenni stuðningsmanna en þeir „telja sig bera ábyrgð á öðrum manneskjum, tilfmningum þeirra, hugsunum, atferli, vali, löngunum, þörfum, velferð, skorti á velferð og á örlögum þeirra almennt...“ o.s.frv. (Bls. 16) Þ.e.a.s.: stuðningsmaðurinn verður smátt og smátt svo upptekinn af þörfum alkóhóhstans að hann gleymir öllu öðru. Smátt og smátt týn- ir hann sínu eigin sjálfi og hættir að gera sér grein fyrir hvað hann vill eða hvers hann þarfnast. Líf stuðningsmannsins hverfist um alkóhólistann og hann gerir sér enga grein fyrir að „gúmmíendur synda ekki“. „Maður getur beðið hana fallega, krafist þess, skipað henni, grátbeðið hana, hótað henni öhu illu, storkað henni, klappað hinum öndunum, farið, reynt að drepa sig - hún syndir samt ekki.“ (Bls. 22) í viðtölunum níu gera konurnar grein fyrir því hvernig lífi þær hfðu samvistum við alkí- hóhstann og hvernig þær reyndu ítrekað, jafnvel árum saman, að fá „gúmmíöndina“ til að synda. Þær lýsa ömurlegri vanmáttar- kennd, hræðslu og reiði og dæmin sem tínd eru til eru vægast sagt hrikaleg. í upphafi hvers viðtais er konunum lýst og hver staða þeirra er í dag og í framhalch af því segja þær sögu sína. Hvernig þær urðu ástangnar og hvemig þær áttuðu sig smátt og smátt á því að „elskan" þeirra var ekki sá draumaprins sem þær héldu hann vera. Þær lýsa djúpum og sársaukafullum vonbrigðum sínum þegar þær standa menn sína hvað eftir annað að því að ljúga, svíkja og blekkja og því hvernig allir þeirra draumar og væntingar fóra fyrir lítið. En bókin hefur ekki eingöngu að geyma mergjaðar qg hrylhlegar fylliríssögur heldur er meira lagt upp úr því að lýsa því hvernig hegðun þess sem drekkur fer smátt og smátt að gegnsýra allt hans nánasta umhverfi, heimilið, börnin, vinnuna o.s.frv. Konurnar hafa ahar sömu sögu að segja: hvernig þær reyna aftur og aftur að „bjarga" drykkju- manninum og hætta ekki fyrr en þær eru sjálfar svo rammvilltar í frumskógi bren- glaörar siðferðiskenndar að þær vita ekki hvað snýr upp og hvað niður. Þær lýsa því hvernig þær, eftir mislanga sambúð, áttuðu sig á að „Ef ekkert breytist, þá breytist ekk- ert - og það eina sem þú getur breytt ert þú sjálf.“ (Bls. 14) Gúmmíendur synda ekki er einlæg og op- inská bók og konurnar níu lýsa því á nokkuð sannfærandi hátt hvernig þær hætta smátt og smátt að hta á sig sem fórnarlömb að- stæðna og fara þess í stað að reyna að taka ábyrgð á eigin lífi. Þær koma sársaukanum vel til skila, sársaukanum sem fylgir því að standa vanmáttugur frammi fyrir sjúklegri hegðun mannsins sem maður elskar og getur á engan hátt breytt. í inngangi bendir höf- undur á að bókinni sé „ekki ætlað að leysa fjölskylduvandamál alkóhólista í eitt skipti fyrir öll. Henni er ekki einu sinni ætlað að leysa vandamál einnar fjölskyldu. Þeim við- tölum sem hér birtast er aðeins ætlað að gefa mynd af því hvers konar fjölskyldu- vandamál alkóhóhsmi er.“ (Bls. 10) Þessum thgangi sínum nær höfundur eflaust því þaö er hæpið að nokkur maður reyni að halda því fram eftir lestur þessarar bókar að alkó- hólismi sé einungis vandi drykkjumannsins. En þótt hér sé ekki bent á neinar galdra- lausnir á vanda alkóhólista eða aðstandenda þeirra á bókin öragglega erindi til margra sem halda að þeir séu „aleinir í heiminum“. Þær sögur sem hér era raktar sýna það og sanna að það er ekkert vandamál svo stórt að ekki sé hægt að vinna sig frá því, vandinn er bara að finna sína eigin leið. Súsanna Svavarsdóttir. Gúmmiendur synda ekki. Forlagiö, 1991 Á puttanum um landið - Paul Weeden í íslandsför Bandaríski gítarleikarinn Paul Weeden, sem reynd- ar býr í Noregi, er nú staddur hér á landi einu sinni sem oftar og mun leika víða um land og halda nám- skeið, m.a. á ísafirði, Homafirði og við Tónlistarskóla FÍH. Undanfarin ár hefur Weeden verið gítarleikari Count Baise stórsveitarinnar, .sem nú er stjórnað af Frank Foster, og þess á milli flækist hann landa á mihi og er eflaust ahs staðar aufúsgestur enda smitar hann frá Djass Ingvi Þór Kormáksson sér lífsgleði og krafti. Þótt hann sé orðinn 69 ára gam- ah lítur hann ekki út fyrir að vera degi eldri en fimm- tíu og sex og hálfs árs. Síðasthðið miðvikudagskvöld lék Weeden ásamt Sig- urði Flosasyni, Tómasi R. Einarssyni og Einari Vali Scheving á Blúsbarnum við Laugaveg. Aldursmunur elsta og yngsta manns hljómsveitarinnar er um það bil hálf öld og er því ekki hægt að segja að kynslóðabil í djassmúsík sé mikið. Þeir félagar náðu yfirleitt ágæt- lega saman og virtust kunna vel við að spha „ofan í áheyrendum". Einar Valur er greinilega í stöðugri framfór og var gaman að heyra í honum í „Don’t Stop the Carnival" þar sem hann notaðist við „bjuða" (n.k. sambland kjuða og bursta sem gefur frá sér hljóð svip- að og klappað sé á trommurnar með lófunum). Tómas var líka í stuði og hann og trommarinn áttu góðan dag saman og spillti öragglega ekki hinn rytmíski hljóma- sláttur gítarleikarans sem skapaði spennu og losaði um á víxl og harmoníseraði svo unun var á að hlýða. Áhugamenn um góðan gítarleik ættu ekki að sleppa þessum manni óheyrðum úr landi. Wes Montgomery, Barney Kessel og George Benson eru nöfn sem koma upp í hugann þegar hlustað er á Weeden og aðdáendur fyrrnefndra eru í góðum málum á tónleikum með honum. Það vakti nokkra athygli gesta Blúsbarsins að sjá gítarleikarann notast einungis við þumalfingur hægri handar en ekki gítarnögl eða fimm fingur handarinnar eins og venjulegast er. Jafnvel tveggja nótna spil í átt- undum virtist bara framleitt með þessum eina fingri. Það er merkhegt hvað hægt er að komast á puttanum. Á efnisskrá voru lög úr smiðju Tómasar og Sigurð- ar, ýmsir standarðar, „Come Rain or Come Shine", „In a Mellow Tone“, lög eftir Kenny Dorham og Miles Davis og aðrir ópusar sem undirritaður kunni ekki deili á. Að síðustu skal þess getið að Sigurður Flosason lék eins og við var að búast. Hann virðist ekki geta átt slæman dag. Draumarnir flæða. Paul Weedon gerir víðreist í þessari íslandsferö sinni. m iin^ t Vil

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.