Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991. Meiming Myndgáta Tríó Reykjavíkur Tónleikar voru í Hafnarborg í Hafnarfirði á sunnu- dagskvöldi þar sem Tríó Reykjavíkur lék. Á efnis- skránni voru verk eftir Ludwig van Beethoven. Það hefur verið til siðs hjá Tríói Reykjavíkur að vanda til hinnar prentuðu efnisskrár og var svo einn- ig nú. Mátti þar finna allítarlegar upplýsingar, bæði um flytjendurna og verkin. Píanósónatan í c moll op. 10, sem Halldór Haraldsson lék, á margt sameiginlegt með hinni frægu Pathétique sónötu. Báðar eru í þrem þáttum þar sem þeir ytri eru ákafir og ástríðuþrungn- ir en sú stemning tengist oft tóntegundinni c moll, ekki aðeins hjá Beethoven heldur einnig hjá Haydn og Mozart. Báðar sónötur hafa djúpa og ríka hæga þætti í Ab dúr. C moll sónatan er þrátt fyrir þessi ein- kenni ekki eins sterklega grípandi verk og Pathetique. Sónatan fyrir selló og píanó op. 102 tilheyrir hinu - svonefnda þriðja tímabili í æfi Beethovens og ber þess að ýmsu leyti merki. Á þessu tímabili gekk Beethoven lengst í að brjóta af sér hlekki hins hefðbundna og skapaöi nýja tónlist sem átti eftir að tröllríöa tónhstar- heiminum lengi á eftir. Meðal þess sem einkennir verk hans frá þessum tíma er mun ítarlegri úrvinnsla úr stefjum þar sem segja má að ekki sé hætt fyrr en allur safi hefur veriö úr kreistur. Þá reynir hann að sneiða hjá hinum kassalöguðu áhrifum hinnar hefðbundnu kadensu sem t.d. í verkum Haydns og Mozarts bútar tónlistina niður í hæfilegar lotur og hendingar. Beetho- Tórúist Finnur Torfi Stefánsson ven kærði sig ekki lengur um svo einfaldan skýrleika. Hann sækist eftir því óræða og boðar þar með komu nýrrar stefnu, rómantíkurinnar. Þá ber meira á fjöl- röddun -í verkum Beethovens frá þriðja tímabilinu en nokkru öðru og virðist það hafa hentað vel stílþróun hans á þessum tíma almennt auk þess sem hann sýndi með þessu virðingu sína fyrir J.S. Bach. Verkið, sem hljómaði best á þessum tónleikum, var Tríó í D dúr op. 70. Sérkennilegastur kafli í því verki er largo þátturinn sem gengur undir nafninu Geister vegna þess að einhverjum fannst efnið draugalegt. Kom þessi þáttur mjög vel út í flutningi Tríós Reykja- víkur. Leikur Tríósins, sem er skipað Guðnýju Guð- mundsdóttur, fiölu, Gunnari Kvaran, sellói, auk Hall- dórs Haraldssonar, sem áður er getið, var yfirleitt góður. Sums staðar skorti á skýrleika og hreinleika en þeir staðir voru mun fleiri sem hljómuðu vel og voru áheyrendur ósparir á að klappa tónlistarfólkinu lof í lófa í lokin. Andlát Guðbjörg Erlendsdóttir, Furugerði 1, lést 17. nóvember sl. Ólafur Ásmundsson frá Hálsi í Fnjóskadal lést á Elliheimilinu Grund 17. nóvember. Haukur Einarsson prentari, frá Miðdal, lést á heimih sínu, Þorfinns- götu 2, að morgni 17. nóvember. Margrét Ásgeirsdóttir, vistheimilinu Seljahlíð, áður Brekkulæk 4, andað- ist í Borgarspítalanum 18. nóvember. Haukur Guðmundsson frá Gerðum í Garði lést á Hrafnistu laugardaginn 16. nóvember._________________ Jarðarfarir Sigríður Jónsdóttir, Melhaga 6, Reykjavík, lést mánudaginn 11. nóv- ember. Jarðarforin fer fram frá Hafnarfj arðarkirkj u miðvikudaginn 20. nóvember kl. 13.30. Sólveig Lúðviksdóttir, Smiðshúsi, Álftanesi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 20. nóvember kl. 13.30. Bergur Pálsson skipstjóri lést 14. þessa mánaðar. Jarðarförin fer fram ..Vfrá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 21. nóvember kl. 13.30. Þorsteinn Ö. Stephensen, fyrrver- andi leiklistarstjóri, verður jarð- sunginn frá Dómkirkjunni í Reykja- vík miðvikudaginn 20. nóvember kl. 15. Jósefína Þorleifsdóttir, Ægisgötu 17, Akureyri, sem andaðist 11. nóvemb- er, verður jarðsungin frá Akureyrar- kirkju í dag, þriðjudaginn 19. nóv- ember, kl. 13.30. Þórður Örn Karlsson skipstjóri, Heimavöhum 15, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju í dag, 19. nóvember, kl. 14. Jóhann Björnsson myndskeri, Grundarstíg 12, Reykjavík, er lést í jBorgarspítalanum að morgni 12. nóvember, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 19. nóvember, kl. 15. Hjónaband Þann 14. september voru gefm saman í Garðakirkju af séra Bjama Þór Bjama- rsyni Alda Haraldsdóttir og Eyþór Þórðarson. Heimili þeirra er að Austur- þergi 16, Reykjavík. Ljósm. Jóhannes Long Þann 7. september vom gefm saman í Hallgrímskirkju af séra Pálma Matthias- syni Guðrún Jóhannesdóttir og Jón Ásgeirsson. Heimili þeirra er að Snorra- braut 79. Ljósm. Gunnar Kristinn. Tilkynningar Félag eldri borgara Opiö hús í Risinu í dag kl. 13-17. Bridge og frjáls spilamennska. Kl. 15 skálda- kynning. Hjörtur Pálsson talar um Snorra Hjartarson og leikaramir Baldvin Halldórsson og Herdís Þorvaldsdóttir lesa úr verkum skáldsins. Kl. 17 er kynn- ing á vetrarferðum til Benidorm. Kl. 20 dansað. Tískusýning á vegum Hönnunar stofu Maríu Lovísu Miðvikudagskvöldið 20. nóvember kl. 21 verður haldin tískusýning á vegum Hönnunarstofu Maríu Lovisu á skemmti- staðnum TVeir vinir og annar i fríi aö Laugavegi 45. María Lovísa mun kynna nýjustu línuna sína og einnig mun há- greiðslustofan Carmen verða með hár- greiðslusýningu. Hárgreiðslumeistari er Helga Bjamadóttir, Ísiandsmeistari 1991. Gull & silfur verður með skartgripasýn- ingu og ilmvatnskynning á vegum Herm- és, þar að auki verða kynntar blóma- skreytingar frá Art blóm og postulín. Húsið opnað kl. 18 og verður boðið upp á léttan matseðil á viðráðanlegu verði. María Lovísa lauk námi úr Margaret- skolen í Kaupmannahöfn 1979 og vann á vegum íslensks uilariðnaðar í eitt ár og rak síðan verslunina Mariumar í 5 ár. Hún rekur-hönnunar- og vinnustofu að - LaUgÖV8gÞ46J'Kinucí .vi .í* . „Dætur norðurljósanna“ Miðvikudaginn 20. nóvember kl. 20.30 flytur Nordiaensamblen ásamt rithöf- undinum Kerstin Thorvall dagskrá í Norræna húsinu sem nefnist „Dætur norðurljósanna". Eins og nafnið gefur til kynna er hún helguð konum, norrænum tónskáldum. Nordiaensamblen (Nordia- sveitin) leikur tónverk eftir konur frá Norðurlöndunum. Fulltrúi íslands er Karólina Eiríksdóttir. Hljómsveitin frumflytur tónverk eftir Karólinu, „Rhapsody in C“ sem var sérstaklega pantað frá henni. Kerstin Thorvall kynn- ir tónskáldin, og skýrir mat sitt á stöðu kvenna í heimi listanna fyrr og nú út frá sögu norska rithöfundarins Coru Sandel, „Lyckan". Hún verður einnig kynnir á tónleikunum. Nordiaensamblen var stofnað árið 1985 og er skipuð stengja- kvintett, blásarakvintett og píanói, myndar því litla sinfóniuhljómsveit, „sinfóniettu11. Nomus og Norræni menn- ingarsjóðurinn studdu hljómsveitina til tónleikahaldsins, sem „Lánsmusik i Vástemorrland“ skipuleggur. Aðgangur er ókeypis. Hallgrímskirkja - starf aldraðra Á morgun, miövikudag, veröur haldið Opið hús í safnaðarsal kirkjunnar og hefst kl. 14.30. Sýndar verða myndir úr fjögurra daga ferð um Eyjafjörð. Kaffl- veitingar. Bílaþjónusta ef óskað er. Fundir Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Lausngátunr. 184: Leggur niður rófuna Kvenfélagið Seltjörn Vináttufundur í félagsheimilinu í kvöld, 19. nóvember, kl. 20.30. Föndur, veiting- ar. Allir velkomnir. Kiwanisklúbburinn Hekla Fundur í kvöld kl. 19.30 í Kiwanishúsinu, Brautarholti 26. Ræðumaður Sveinn Bjömsson, forstjóri Strætisvagna Reykjavíkur. Ökukennarafélag íslands 45ára Ökukennarafélag íslands var stofnpð 22. nóvember 1946 og fagnar þvi 45 ára af- mæh sínu innan tíðar. Dagsins hyggst félagið minnast með því m.a. að gangast fyrir opnum fundi um „Umferöarmál, stöðu og framtíðarmótmi ökukennslu hér á landi" á afmælisdaginn sjálfan, 22. nóv- ember. Á fundinum verður einnig sagt frá „Norrænum umferðaröryggisfögum" og kynnt í máii og myndum kennsla á æfmgasvæðum. Meðal málshefjenda em Guðmundur Ágústsson, form. Umferðar- ráðs, Haukur Ingibergsson frá Hagsýslu- stofnun, Sigurður Helgason, upplýsinga- fulltrúi Umferðarráðs og fleiri, Ap loknu . -máli - framsögumanna verða paílboi;ðs- . timrífeður 'og gefst fundarmönflúm, þáf 1 tækifæri til að bera fram spurningar. Fundurixm verður haldinn að Skipholti 33 í Reykjavík (áður húsi Tónabíós) og hefst kl. 13.30 og fundarlok verða kl. 17. Fundurinn er öllu áhugafólki opinn án endurgjalds. Námskeið ITC deildin Irpa gengst fyrir námskeiði í kvöld, 19. nóv- embedr fyrir félaga sína. Á námskeiðinu sem haldið verðm- að Brautarholti 30, 3. hæð kl. 20.30 stundvíslega, verður kennd framsögn og framkoma í ræöustól. Leið- beinandi verður Ingi Bogi Bogason kenn- ari. Þátttaka á námskeiðinu er ókeypis. Upplýsingar gefur Vilhjálmur í síma 78996. Allir velkomnir. Tapað fundið Gleraugu fundust Gleraugu fundust við Vestorgötu 2. Upp- lýsingar i síma 11812. Fíóla í óskilum í gamla miðbænum Svört og hvít kettlingafull læða með rauða flauelisól hefur verið í óskilum í gamla miðbænum síðan á fimmtudaginn sl. Hún er með stóra svarta skellu á nef- inu, svartan topp og lítinn hvítan blett á milli augnanna. Inni í ólinni, sem er orð- in máð, stendur arstígur 11 og Sóley í sviga. Upplýsingar í sima 10539. Skuggi er týndur Skuggi fór að heiman frá sér á miöviku- daginn sl. Hann er svartur, loðinn og eyrnamerktur nr.: R1H091. Ef einhver hefur orðið var viö hann þá vinsamlegast hafíð samband í síma 16738 á daginn eða í síma 40510 á kvöldin. Sýningar Kristján Fr. Kristjánsson opnar málverkasýningu í dag, 19. nóvember, opnar Kristján Fr. Kristjánsson, listverkasali og listmálari, málverkasýningu í Gallerí 8. Gaileríið mun framvegis hafa myndlistarsýningar sem hluta af starfsemi sinni, enda með bjartan og góðan sýningarsal í Austur- stræti 8. Þetta er sjötta einkasýning Kristjáns en á þessari sýningu verða sýnd 17 málverk. Kristján hefur áður sýnt m.a. á Mokka og í Iðnó við Tjömina. Sýningin stendur til 2. desember og er opin kl. 10-18 virka daga og kl. 13-18 um helgar. Leikhús | ISLENSKA ÓPERAN FRÚ EMILÍA = rrnfrnfín^nn „Haust með Ibsen“ eftir Leiklestur þekktra leikverka eftir Henrik Ibsen i Listasafni íslands W.A. Mozart við Fríkirkjuveg. Föstudaginn 22. nóv. kl. 20. Laugardaginn 23. nóv. kl. 20. AFTURGÖNGUR Laugard. 23. nóv. og sunnud. Ósóttar pantanir seldar tveimur dögum fyrir sýningar- 24. nóv. kl. 14. BRÚÐUHEIMILI dag. Laugard. 30. nóv. og sunnud. Miðasalan opin frá kl. 15-19, sími 11475. I.des.kl. 14. FRÚ EMILÍA-LEIKHÚS Greiðslukortaþjónusta VISA - EURO - SAMKORT - í • f - f ' * r a ( r !' J 1 1 - / : • * r £ .t:ci:vcbiiiá isguÍT 'i i 1.4 vi* Lit .TlHanií

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.