Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991. Viðskipti________________________________________________ dv Aukin óþolinmæði kaupmanna vegna viðskipta í Kolaportinu: Virðisaukaskatti stolið beint við fætur ráðherra? Aukinnar óþolinmæöi gætir á meðal kaupmanna yfir viðskiptun- um í Kolaportinu. Telja kaupmenn að þar ílæði virðisaukaskatturinn undan ráðherra í nokkrum mæli, ef ekki algjörlega. Magnús Finnsson, framkvæmda- stjóri Kaupmannasamtakanna, segir að þegar Kolaportið hafl verið sett á fót fyrir nokkrum árum hafi hugsun- in verið sú aö selja afgangsvörur á markaðnum, eins og úr lagerum og notaða hluti. „Nú eru hins vegar dæmi þess að seldur er nýr varningur í Kolaport- inu. Jafnvel er svo komið að fluttar eru inn vörur sem fara beint í sölu þarna," segir Magnús. Hann segir að í upphafi hafi ætlun- in verið að lífga úpp á mannlifið í miðbænum með opnun Kolaportsins. „Krafa kaupmanna er einfaldlega sú að allir kaupmenn þessa lands sitji við sama borð. Við viljum að kaupmenn í Kolaportinu noti sér- staka kassa og strimla, svo hægt sé að sjá nákvæmlega hver virðisauka- skatturinn er, einnig að strangar reglur Heilbrigðiseftirlitsins gildi líka í Kolaportinu við sölu á græn- meti og matvörum líkt og gerð er krafa um í matvöruverslunum." -JGH Þórunn kaupir Áfanga Útgáfufyrirtækið Farvegur hf„ sem er í eigu Þórunnar Gestsdóttur rit- stjóra, hefur keypt tímaritið Áfanga af Fróða hf. Þórunn gefur út ferða- tímaritið Farvís. Hún hyggst sam- eina þessi tvö tímarit undir heitinu Farvís-Áfangar. Þórunn hefur gefið út Farvís frá árinu 1988. Tímaritið hefur frá upp- hafi lagt áherslu á frásagnir af mjög sérstökum og ævintýralegum ferða- stöðum erlendis sem innanlands. Tímaritið Áfangar hefur hins vegar eingöngu lagt áherslu á feröir innan- lands. Tímaritið hefur komið út í ell- efu ár. Sigurður Sigurðsson blaða- maður gaf þaö fyrst út en seldi það síðan Fróða hf. Að sögn Þórunnar mun síðasta tölublað Áfanga í núverandi mynd koma út á næstu dögum á vegum Fróða en í næsta mánuði hyggst hún komameöfyrstuútgáfunaafFarvís- Farvís kaupir Áfanga. Magnús Hreggviðsson, aóaleigandi Fróöa, og Þór- Áfongum. unn Gestsdóttir, ritstjóri og eigandi Farvegs hf., sem gefur út Farvís, hand- -JGH sala kaupsamninginn. Leiðrétting: Pappírslausar tollskýrslur I frétt DV um pappírslausar toll- skýrslur á dögunum var sagt að tvö fyrirtæki, Toyota og Póstur og sími, hefðu tekið upp pappírslausar toll- skýrslur og hefðu sýnt þær á sýningu á Hótel Loftleiðum. Þetta er ófullnægjandi frétt. Á sýn- ingunni voru fyrirtækin Skýrr og ísal líka með pappírslausar toll- skýrslur. Þá var sagt að við sendingar á pappírslausum tollskýrslum notuðu Toyota og Póstur og sími hugbúnað- inn Bústjóra. Þetta er líka ófullnægjandi frétt. Þessi tvö fyrirtæki nota þennan hug- búnað. Hins vegar notar ísal hug- búnaðinn ÓpusAllt og Skýrr notar hugbúnaðinn Tollmeistarann. Þess má geta að fyrirtækin Hekla hf. og Húsasmiðjan munu á næst- unni taka upp pappírslausar toll- skýrslur. Hekla verður með hugbún- aðinn Alvís og Húsasmiðjan hf. með hugbúnaðinn Birki. -JGH Flugleiðir: Mikiartilfærslur áyfirmönnum Mikiar tilfærslur verða á næstu mánuðum á yfirmönnum Flug- leiða. Hans Indriðason, hótel- sfjóri á Hótel Loftleiðum, fer til Noregs og verður svæðisstjóri í Noregi með aösetur í Ósló. Ekki - hefur verið ákveðið hver tekur við hótelstjórastarfi Hans. Símon Pálsson, svæðisstjóri í Noregi, fer til London og verður svæðisstjóri yfir Bretlandi og ír- landi. Steinn Lárusson, svæðissljóri í Bretlandi og írlandi, flyst heim og tekur við starfi í söludeild félagsins. Þá er Einar Akran, svæðissfjóri í Lúxemborg, aö láta af störfum vegna aldurs. Davíð Vilhelmsson, svæðisstjórí Austurríkis, með aðsetur í Frankfurt i Þýskalandi, tekur við starfi hans í Lúxem- borg. Davíð verður áfram með Austurríki á sinni könnu. Þá hefur Elísabet Hilmarsdótt- ir, áöur í söludeild, tekið við starfi markaðsstjóra Flugleiöahótel- anna, Hótel Loftleiða og Hótel Esju. -JGH Orka frá ís- landi lýsir Par- ísarborg? íslenski blaðamaðurinn, Birna Helgadóttir, hjá dagblaðinu Europe- an skrifar grein á dögunum um margumrætt mál, hugsanlegan sæ- streng á milh íslands og Evrópu. Þessu máli er gert hátt undir höfði í European. Segir í grein Birnu að orka frá íslandi eigi hugsanlega eftir að lýsa upp hluta af Evrópu í kring- um áriö 2000. Þá segir að uppi séu hugmyndir um að leggja rafstreng í hafi á milli ís- lands og Evrópu sem muni flytja ódýra og umhverfisvæna orku á hverjum degi, nægjanlega mikla til að lýsa upp stórborg eins og París. -JGH Iceland power pack set to warm Europe Grein Birnu Helgadóttur, íslenska blaöamannsins hjá European, um hugsanlegan sæstreng á milli ís- lands og Evrópu. Viðskiptin i Kolaportinu eru blómleg. Kaupmenn hafa hins vegar miklar grunsemdir um að þar sé virðisaukaskatti stolið undan og að reglur Heil- brigðiseftirlitsins séu þverbrotnar. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst INNLAN överðtryggð ' ' ' ' Sparisjóösbœkur óbundnar 3,5-4 Allir nema Sparisjóð r Sparireikningar 3ja mánaöa uppsögn 4-6,5 Sparisjóðirnir 6 mánaða uppsögn 5-7,5 Sparisjóðirnir Tékkareikningar, almennir 1 Allir Sértékkareikningar 4-7 Landsbanki VlSITÖLUBUNDNlR REIKNINGAR 6 mánaða uppsögn 3,0 Allir 1 5-24 mánaða 7-7,75 Sparisjóðirnir Orlofsreikningar 5,5 Allir Gengisbundnir reikningar í SDR 6,5-8 Landsbanki Gengisbundnir reikningar í ECU 8,5-9 Landsbanki ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-4 Búnaðarbanki Óverðtryggð kjör, hreyfðir 8-8,5 Sparisjóðirnir SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR Vísitölubundnir reikningar 4-8 Landsbanki Gengisbundir reikningar 4-8 Landsbanki BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki óverðtryggö kjör 10,5-11 Búnaðarbanki INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR Bandaríkjadalir 3,75-4,1 Sparisjóðirnir Sterlingspund 8,25-8,8 Sparisjóðirnir Þýsk mörk 7,5-7,8 Sparisjóöirnir Danskar krónur 7,75-8 Sparisjóðirnir ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst OTLAN ÓVERDTRYGGÐ Almennir víxlar (forvextir) 15,5-18,5 Búnaðarbankinn Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi Almenn skuldabréf 16,25-1 9,5 Búnaöarbankinn Viðskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdráttur) 18,75-21,75 Búnaöarbankinn OtlAn VERÐTRYGGÐ Skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki afurðalAn islenskar krónur 15.75-19,25 Búnaöarbankinn SDR 9-9,5 Islandsbanki, Landsbanki Bandaríkjadalir 7,25-8,0 Sparisjóðirnir Sterlingspund 12-12,75 Landsbanki Þýsk mörk 11 Allir Húsnæðislán 4.9 Lifeyrissjóöslán 5-9 Dráttarvextir 27.0 MEÐALVEXTIR Almenn skuldabréf nóvember 19,0 Verðtryggö lán nóvember 10,0 VI'SITÖLUR Lánskjaravísitala nóvember 3205 stig Lánskjaravisitala október 31 94 stig Byggingavísitala nóvember 599 stig Byggingavísitala nóvember 1 87,3 stig Framfœrsluvisitala október 159,3stiq Húsaleiguvísitala 1,9% hækkun 1. október VERÐBRÉFASJÓÐIR HLUTABRÉF Gengi bréfa veröbréfasjóða Sölu- og kaupgengi aö lokinni jöfnun: KAUP SALA Einingabréf 1 6,006 Sjóvá-Almennar hf. 5,50 5,80 Einingabréf 2 3,198 Ármannsfell hf. 2,30 2,40 Einingabréf 3 3,946 Eimskip 5,70 5,95 Skammtímabréf 2,003 Flugleiðir 2,00 2,20 Kjarabréf 5,643 Hampiðjan 1,80 1,90 Markbréf 3,029 Haraldur Böðvarsson 2,95 3,10 Tekjubréf 2,139 Hlutabréfasjóður VlB 1,00 1,05 Skyndibréf -1,755 Hlutabréfasjóöurinn 1,64 1,72 Sjóösbréf 1 2,887 islandsbanki hf. 1,66 1,74 Sjóðsbréf 2 1,951 Eignfél. Alþýðub. 1,65 1,73 Sjóðsbréf 3 1,994 Eignfél. Iðnaðarb. 2,43 2,53 Sjóðsbréf 4 1,744 Eignfél. Verslb. 1,72 1,80 Sjóösbréf 5 1,200 Grandi hf. 2,75 2,85 Vaxtarbréf 2,0344 Olíufélagið hf. 5,10 5,40 Valbréf 1,9069 Olís 2,05 2,15 Islandsbréf 1,256 Skeljungur hf. 5,50 5,80 Fjórðungsbréf 1,140 Skagstrendingur hf. 4,80 5,05 Þingbréf 1,253 Sæplast 7,33 7,65 Öndvegisbréf 1,234 Tollvörugeymslan hf. 1,04 1,09 Sýslubréf 1,276 Útgerðarfélag Ak. 4,70 4,90 Reiðubréf 1,219 Fjárfestingarfélagið 1,35 1.42 Almenni hlutabréfasj. 1,12 1.17 Auðlindarbréf 1,04 1,09 Islenski hlutabréfasj. 1,15 1,20 Síldarvinnslan, Neskaup. 3,23 3,40 ’ Við kaup á viðskiptavixlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, ef mjðað við sérstakt kaupgqngi.; n'nrA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.