Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991.
13
Sviðsljós
315bömfá
endur-
skinsmerki
Kristján Einarsson, DV, Selfossi
Um þessar mundir eru lögreglu-
menn úr íþróttafélagi lögreglu-
manna á Suöurlandi að dreifa end-
urskinsþorðum til allra sex ára
þarna á Suðurlandi.
Tilgangurinn er að gera börnin
meira áberandi í skammdegisum-
ferðinni, og þ.a.l. öruggari.
Samtals fá 315 böm þessa endur-
skinsborða en lögreglan gefur þá í
samvinnu við Vátryggingafélag ís-
lands, Tryggingu hf„ Tryggingamið-
stöðina, Mjólkurbú Flóamanna og
Sláturfélag Suðurlands.
Svava keppir í
Miss World
„Eg flýg til London þann 27. nóv-
ember og hitti þar hina keppendurna
ög forsvarsmenn keppninnar," sagði
Svava Haraidsdóttir, fegurðar-
drottning íslands og fulltrúi íslands
í Miss World-keppninni, sem haldin
verður í Puerto Rico þann 28. des-
ember.
Aðspurð sagðist Svava, sem er 19
ára, ekkert hafa verið spennt fyrir
því í fyrstu að vera úti yfir jólin en
þetta er í fyrsta sinn sem hún verður
að heiman yfir hátíðarnar.
„Maður verður bara að taka því.
Við verðum mikið á ferðinni, förum
t.d. til Afríku og New York en verð-
um svo komin til Puerto Rico um
miðjan desember.
Okkur hefur verið sagt að þann 25.
verði haldin einhver rosajólahátíð
fyrir okkur. Ég viðurkenni nú alveg
að ég er svolítið kvíðin. Bæði það að
verða ekki heima yflr jóhn og svo er
þetta svo langur tími, heill mánuð-
ur.“ Svava æfir nú fyrir keppnina
fyrir hádegi alla daga og vinnur eftir
hádegi í versluninni Sautján.
Hún segist htið spá í það hvort hún
vinni keppnina eða ekki, hún ætlar
bara að njóta þess að ferðast og sjá
heiminn og býst ekki við neinu.
íslenskar stúlkur hafa gert garðinn
frægan í þessari keppni og er
skemmst að minnast árangurs Hólm-
fríðar Karlsdóttur og Lindu Péturs-
dóttur en þær stöllur sigruðu með
eftirminnilegum hætti með tveggja
ára millibili.
ÍÍM-ÍSOMSS'
Svava Haraldsdóttir æfir stíft þessa dagana fyrir þátttökunni í keppninni
Miss World. DV-mynd Brynjar Gauti
Aðalfundur
Aðalfundur Samtaka sparifjáreigenda verður haldinn
þriðjudaginn 26. nóvember 1991 að Hótel Sögu,
Þingstofu A, kl. 20.00.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf samkv. 6.
grein laga samtakanna.Stjórnin leggur
fram tillögu til lagabreytinga sem varð-
ar m.a. tilgang og nafn samtakanna.
Stjórnin
Hópur sex ára barna í Sandvikurskóla á Selfossi með endurskinsborðana ásamt kennara sínum og tveimur lög-
reglumönnum. DV-mynd Kristján Einarsson
Við þökkum 8.752 farþegum
sem fylltu ieiguflugið okkar til Kaupmannahafnar og London á þessu ári.
Sameiginlega tókst okkur að gera utanlandsferðir að almenningseign.
Vegna þessa frábæra árangurs fá nú 680 viöskiptavinir sérstakt
Bónus-verð á flugferðum, sem hér segir: 'e/?
/■ _ ■ ho$
•WIMff!
KR.13.COO
>3l
Brotttör til Amsterdam:
Maí3„ 10., 17..24. og 31.
Júní 7„ 14., 21. og 28.
Júlí 5„ 12„ 19- og 26.
Ágúst 2„ 9„ 16„ 23. og 30.
Sept. 6„ 13., 20. og 27.
Jún/3.,10 17 °9 27-
JÚ^;8.152o9 24-
A9ÚstS.,i2 ’.f °929.
SeP'-2-.9„16 2q°9 26'
23. og 3Q
11.900
Frjálst val um fjölbreytta gistimöguleika og framhaldsferðir meö dönskum, enskum og hollenskum feröaskrifstofum.
Farþegar okkar njóta 20-40% afsláttarkjara vegna stórsamnlnga við hótel og bflaleigur.
Þessar Bónus-ferðir okkar þarf aö panta og staðfesta 18.-23. nóvember, á meðan þessi sæti endast
Flugferöir okkar eru áfram sannkölluö og kærkomin kjarabót fyrir islenskan almenning.
r Flugferðir okkar til Glasgow kostar álíka mikiö og tólf jólarjúpur og flugferð okkar
/ '/>, / til London eródýrari en venjulegt flugfar frá Reykjavíktil Egilsstaöa, sem er 14.420.- kr.
' #0 jt
Til hamingju - Góöa ferö
FLUGFEROIR
SOLRRFLUG
Vesturgata 17, Síml 620066.
óll verð eru staögrelðsluverö án flugvallaskatta og forfallatryggigar og miðast við gengl 15. nóv 1991