Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1991, Qupperneq 21
20
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991.
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991.
21
Iþróttir
Iþróttir
Karl Þóröarson, til hægri, og Luka Kostic stiga dansinn á Hótel Akranesi.
DV-mynd Brynjar
Þeir Luka Kostic og Karl Þórðarson fóru á kostum á uppskeruhátíð knatt-
spyrnufélags ÍA sem fram fór á Hótel Akranesi fyrir skemmstu. Að vanda
var boðið upp á mörg eldfjörug skemmtiatriði en dans þeirra Kostic og
Kalla, þar sem þeir sýndu brot úr „Svanavatninu", vakti meiri kátínu
en flest. Til þess að auka áhrifamátt sýningarinnar enn frekar var Karl
klæddur eins og sannri ballerínu sæmir en klæðnaður Luka var heldur
hefðbundnari. Ljósmyndari DV var að sjálfsögðu á staðnum og festi hann
þennan skemmtilega viðburð á filmu. SS Akranesi
Guðmundur Hilmarsson
íþróttaf réttamaður DV
skrifarfráParis
Sport-
stúfar
Fjórir leikmenn ís-
landsmeistara Víkings
í knattspyrnu voru
heiðraöir sérstaklega á
uppskeruhátíð knattspymu-
deildarinnar um helgina. Atli
Einarsson fékk Hafliðaskjöldinn,
sem ieikmaður ársins, valinn af
leikmönnum. Atli Helgason fékk
glæsílegan bikar sem leikmaður
Víkings 1991, Guðmundur Steins-
son fékk Metabo-bikarinn sem sá
stigahæsti í eínkunnagjöf sum-
arsins og Helgi Björgvinsson var
útnefndur leikmaður ársins af
knattspyrnudeildinni.
Sex á þjálfara-
námskeíð í Noregi
Sex íslenskir knattspyrnuþjálfar-
ar sækja um næstu helgi nám-
skeið sen norska knattspymu-
sambandið heldur fyrir þjálfara
landsliða og 1. deildar liða. Ásgeir
Elíasson, Guðni Kjartansson og
Kristínn Björnsson fara á vegum
KSÍ, og þeír Logi Ólafsson, Vík-
ingi, Guðjón Þórðarson, ÍA, og
Pétur Ormslev, Fram, á vegum
sinna félaga.
Redskins komið
í úrslitakeppnína
Washington Redskins varð um
helgina fyrsta liöið til að tryggja
sér sæti í úrslitakeppninni um
meistaratitilinn í ameríska fót-
boltanum. Redskins vannstórsig-
ur á Pittsburgh Steelers, 41-14,
og hefur unnið alla 11 leiki sína
á tímabilinu, sem er fágæt byrj-
un. Úrslit um helgina og í nótt
urðu þessi:
W.Redskins - P.Steelers...41—14
Chicago Bears - Ind.Colts.31-20
D.Broncos - KC Chiefs....24-20
Atlanta TB Buccaneers....43-7
M.Vikings - GB Packers..35-21
Ph.Eagles - C.Bengals...17-10
NY Jets - NE Patriots...28-21
Det.Uons - LA Rams......21-10
LA Raiders - S.Seahawks..31-7
NY Giants - D.Cowboys....22-9
SD Chargers - NO Salnts..24-21
SF 49ers - Ph.Cardinals.14-10
H.Oilers - CI.Browns....28-24
BuffaloBills - M.DoIphins..41-27
í Austurdeíldinni er BufFalo
Bills efst I austurriðli, Houston
Oilers í miðriðh og Denver
Broncos í vesturriðli. í Vestur-
deildinni er Washington Redsk-
ins efst í austurriðli, Chicago Be-
ars í miðriðli og New Orleans
Saints i vesturriðli.
Yfírburðasigur
hjáÍR-ingum
ÍR-ingar jittu ekki í
raiklum vandræðum
með Keilufélag
Reykjavíkur í 1. deild
karla í körfuknattieik um helgina
og unnu stórsigur, 118-60. ÍA er
á hælum ÍR-inga og vann Vík-
vetja létt, 82-57. Loks vannReyn-
ir sigur á ÍS í Sandgerði, 71-65.
Staðan í 1. deild er þessi:
ÍR..........6 6 0 545-409 12
Akranes.....6 5 1 472-420 10
Höttur......6 3 3 454-150 6
Reynir......6 3 3 518-477 6
UBK.........6 2 4 529-462 4
Víkverjí....6 2 4 362-449 4
ÍS..........6 2 4 380-403 4
KFR.........6 1 5 328-518 2
FH og KA í
bikarnum í kvöld
Keppni í 16-liða úrslit-
um bikarkeppni karia
í handknattleik heföt í
kvöld með tveimur
leikjutn í Kaplakrika í Hafnar-
firði. Þar er stórleikur á dagskrá
klukkan 20 því þar eigast víð FH
og KA. Á eftir, klukkan 21.30,
mætast síðan B-hð FH og Gróttu.
Detroit Pistons
fékk skell í nótt
Detroit Pistons fékk skeh í nótt
þegar hðið sótti heim Indiana
• Pacers í bandarísku NBA-deild-
inni í körfuknattleik. Indiana
vann öruggan sigur, 118-101.
Banach lést
í bílslysi
Þórarinn Sigurðsson, DV, Þýskalandi:
Þýski knattspyrnumaðurinn
Maurice Banach hjá úrvalsdeild-
arhðinu FC Köln lést í bílslysi á
hraðbrautinni á milh borganna
Wúpperdal og Remscheid á
sunnudagsmorguninn. Banach
var einn á ferð í bíl sínum þegar
bílhnn lenti á brúarstöpli og við
það gaus upp eldur í biJFreiðinni.
Talið er að Banach hafi látist
samstundis.
Maurice Banach, sem var 24 ára
að aldri, lætur eftir sig unnustu
og tvo syni, þriggja ára og níu
mánaða.
Maurice Banach hafði leikið
framúrskarandi vel með félagi
sínu á þessu tímabili og var þegar
hann lést annar markahæsti leik-
maðurinn í þýsku úrvalsdeild-
inni, hafði skorað 11 mörk.
Banach lék sinn síðasta leik með
Köln gegn Schalke síðdegis á
laugardag.
í Njarðvík
Körfuknattleiksmaðurinn
Gunnar Örlygsson, sem hætti
sem kunnugt er að leika með Þór
frá Akureyri á dögunum, hefur
ákveðið að leika með Njarðvík-
ingum í vetur.
Gunnar var einn þrigggja
Njarðvíkinga sem hættu í Þór
vegna óánægju með þjálfara
Þórs, Brad Casy. Georg Birgisson
mun ætla að taka sér frí frá
körfuknattleiknum og einbeita
sér að knattspymu í framtíðinni.
Um áform Sturlu Örlygssonar er
ekki vitað en eins og fram hefur
komið í DV fer hann annaðhvort
í Njarðvík eða á sjóinn.
-SK/ÆMK
Hafsteinn
sæfari ársins
Ársþing sighngasambands ís-
lands fór fram í íþróttamiðstöð-
inni í Laugardal um helgina. í
skýrslu stjórnar kom fram að
þátttaka í innlendum mótum hef-
ur aukist til muna enda vom veð-
urguðirnir hliðhollir siglurum á
árinu. Auk þess tóku íslenskir
siglingamenn þátt í nokkrum er-
lendum mótum og þátttaka hefur
verið tilkynnt í slík mót á næsta
ári.
Fjárhagstaða SÍL er góð um
þessar mundir. Hagnaður varð
af rekstri sambandsins og eigin
fláröflun var yfir 50% af heildar-
tekjum.
Hafsteinn Jóhannsson var út-
nefndur sæfari ársins 1991. Aron
Reynisson hlaut titilinn sighnga-
maður ársins að þessu sinni.
Ari Bergmann Einarsson var
endurkjörinn formaður SÍL en í
þakkarávarpi gat hann þess að
hann gæfi ekki kost á sér til end-
urkjörs að ári. Aðrir í aöalstjóm
eru Valdimar Karlsson, Baldvin
Einarsson, Páll Hreinsson og
Helga Ingvarsdóttir.
-JKS
EyjóHurfékk
tvoíeinkunn
Þóraiinn Sigurðsson, DV, Þýskalandi:
Þýska íþróttablaðið Kicker gef-
ur Eyjólfi Sverrissyni tvo í eink-
unn fyrir leikinn gegn Wattensc-
heid um helgina. Að fá tvo í ein-
kunn í Kicker þýðir að leikmað-
urinn hafi leikið í landsliðsklassa
en einn þýðir að vera í heims-
klassa.
EHF stofnað í Berlín:
Fyrsta Evrópu-
keppnin 1994 í
handknattleik
Evrópusamband í handknattleik
var stofnað í Berlín um síðustu helgi
og eiga þrjátíu þjóðir aðild að því.
Tveir fulltrúar Handknattleikssam-
bands íslands, Jón Hjaltalín Magnús-
son formaður og Gunnar K. Gunn-
arsson varaformaður, sátu stofn-
fundinn.
Gunnar var kjörinn varaformaður
dómstóls sambandsins en Jón féll í
kosningu til tækninefndar. „Það var
Svíi sem var kjörinn formaður
nefndarinnar og því vildu menn fá
fulltrúa af öðru svæði og kusu því
Tékka sem einnig var í framboði,"
sagði Jón við DV.
Keppt um sæti í
keppninni á Islandi
Á fundinum var ákveðið aö fyrsta
Evrópukeppni landsliða í handknatt-
leik hæfist árið 1993. Þar verður
keppt í 4-5 liða riðlum, heima og
heiman, og síðan verður úrshta-
keppni árið 1994 þar sem jafnframt
verður keppt um sæti í lokakeppni
heimsmeistaramótsins á íslandi
1995.
„Þaö er eftir að taka endanlega
ákvörðun um hvort það verði 8, 12
eða 16 þjóðir sem keppa til úrslita
1994. Það er hins vegar ljóst að þessi
Evrópukeppni mun verða mikil
kynning á Islandi vegna keppninnar
hér á landi áriö eftir,“ sagði Jón
Hjaltalín.
Fimm borgir vilja
fá höfuðstöðvarnar
Fimm borgir hafa boðist til að hýsa
höfuðstöðvar Evrópusambandsins,
Berlín, Vín, Zúrich, Bratislava og
Lissabon. Að sögn Jóns er líklegast
að þær verði í Berlín eða Vín.
Evrópa er síðasta heimsálfan, að
Eyjaálfu undanskilinni, til að stofna
sérstakt samband. Það stingur nokk-
uð í stúf þar sem vagga handboltans
er í Evrópu en á þó sínar eðlilegu
skýringar. Stofnþjóðir Alþjóða hand-
knattleikssambandsins voru allar úr
Evrópu og íþróttin var ekki stunduð
annars staðar til að byrja með þann-
ig að Evrópusamband er síðari tíma
þörf sem nú er komin í framkvæmd.
-VS
Kristján og Aðalbjörg unnu
- á RC Cola-móti karla og kvenna 1 borðtennis
Kristján Jónasson og Aðalbjörg Björgvinsdóttir sigruðu í meistaraflokk-
um karla og kvenna á RC Cola-mótinu í borðtennis sem fram fór um
helgina. Úrsht í einstökum flokkum uröu þannig:
Meistaraflokkur karla
1. Kristján Jónasson.............................. ...Víkingi
2. Albrecht Ehmann...................................Stjörnunni
Meistaraflokkur kvenna
1. Aðalbjörg Björgvinsdóttir...........................Víkingi
2. Ingibjörg Árnadóttir.................................Víkingi
1. flokkur karla
1. Albrecht Ehmann..................................Stjörnunni
2. Sigbjöm Sigfússon....................................Víkingi
1. flokkur kvenna
1. Lflja Benónýsdóttir.................................Víkingi
2. Ásdís Krsitjánsdóttir................................Víkingi
Ólafur Stephensen, Víkingi, sigraði í 2. flokki karla og í eldri flokki sigr-
aði Ragnar Ragnarsson úr Erninum. -GH
Alr~ #i| 9Aif|rÍ2Bifí|riiv ék
flrlCI III ■ Ivy VmJCI v ■■Viil Cl
æfingar á föstudögum
Gífuriegur dugnaður og ástundun frjálsíþróttafólks úr Skagafirði hefur vakið tals-
veröa athygli. Kjaminn úr keppnisliði UMSS lætur sig ekki muna um að aka suður
til Reykjavíkm- á æfingar á föstudögum og ætlar að gera það í vetur, svo framar-
iega sem veður og færö leyfir.
„Við erum ákveðin í því aö reyna að bæta okkur í vetur og setjum ekkert fyrir
okkur svona ferðalög til að komast í stórt og gott pláss, þar sem nauðsynleg tæki
em til staðar og færir leiðbeinendur. Við erum fimm til sex héðan’sem sækjum
þessar æfingar í vetur,“ sagði Gisli Sigurðsson, þjálfari UMSS.
Ólafur Unnsteinsson annast þjálfun hjá UMFÍ á íþróttafólki héraðssambandanna
sem dvelur á höfuðborgarsvæðinu yfir vetrarmánuðina. Æfingar eru í Baldurs-
haga, stærstu og bestu aðstöðu sem frjálsíþróttamenn hérlendis njóta að vetrar-
Þess má geta að lið UMSS sigraöi með glæsibrag í 2. deildinni síðasta sumar og
er ákveðiö aö halda sæti sínu í 1. deild á sumri komanda. -ÞÁ/Sauðárkróki
Mo til Everton og
Wouters til Bayern
Everton keypti í gær skoska landshðsmanninn Mo Johnston frá Glasgow
Rangers og greiddi fyrir kappann um 160 milljónir króna. Johnston hefur
leikið með Rangers í tvö og hálft ár en áður hafði hann leikið með Patrick
Thistle, Watford, Celtic og franska hðinu Nantes.
Johnston hefur átt erfitt uppdráttar að vinna sér sæti í byijunarliðinu
hjá Glasgow Rangers. Hann er 28 ára gamall og hefur leikið 38 landsleiki
fyrir Skota.
Jan Wouters frá Ajax til Bayerp
Jan Wouters var í gær seldur til Bayem Múnchen frá hollenska liðinu
Ajax fyrir 1,6 milljónir dollara. Wouters er 31 árs og hefur aö baki 40
landsleiki fyrir Holland. Arsenal sýndi einnig áhuga á Wouters en Bay-
ern var á undan að taka upp tékkheftið. -JKS
Kraftlyftingamennirnir Hjalti „Úrsus“ Árnason, Jón Gunnarsson og Guðni Sigurjónsson komu í gær heim frá Sviþjóð þar sem Hjalti og Guðni urðu um helgina
heimsmeistarar og Jón hlaut bronsverðlaun. Jón Baldvin Hannibalsson, utanrikisráðherra, tók á móti þeim í Leifsstöð, og á myndinni ávarpar hann kraftakarlana.
DV-mynd Ægir Már
i Víking
á ný og leikur með þeim í 1. deildinni í knattspyrnu næsta sumar. Aðal-
steinn þjálfaði Leiftur á Ólaföfiröi í sumar og reiknað var með að hann
yröi þar át'ram eftir að hafa komið liðinu upp í 2. deild en hann gekk frá
samningum við Víkinga um helgina.
Aöalsteinn ér 29 ára gamall og hefur lengst af leikið með Víkingi og
var fyrirliði hðsins sumaríð 1990. Hann hefur einnig spilað með Völsungi
í 1. deild. Aðalsteinn er öflugur miöjumaður og ætti að vera Víkingum
góöur liösstyrkur.
„Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti fyrir okkur þegar Aðal-
steinn hringdi í mig á sunnudaginn og tilkynnti að hann teldi sig ekki
bæði geta sinnt þjálfun og að vera í skóla. Þetta kemur sér afar illa fyrir
okkur en hann var búinn að ákveða að vera hjá okkur. Hann hélt fund
með leikmönnum fyrir tveimur vikum þar sem veturinn var skipulaður.
Þetta er hans val en í mínum huga eru þetta ekki góð vinnubrögð. Við
stöndum vel hvaö leikmenn varðar en vonandi fmnum við þjálfara fljót-
lega,“ sagði Þorsteinn Þorvaldsson, formaður knattspymudeildar Leift-
urs, 1 samtali við DV í gær. -VS/JKS
íslendingar mæta Frökkum 1 landsleik u-21 árs í Rouen í dag:
„Þetta verður erfitt"
- Guðni og Eyjólfur meiddust í gær en leika á morgun
Guömundur Hilmarsson, DV, París:
íslenska landsliðið í knattspyrnu kom í
gær til Parísar og voru þá allir leikmenn
hðsins mættir hingað nema fyrirliðinn
Sigurður Grétarsson sem var væntanleg-
ur seint í gærkvöldi. Frá flugvellinum
hélt íslenska liðið á æfingavöll neðri deild-
arfélags hér í París og æföi á vellinum við
mjög góðar aðstæður í hálfa aðra klukku-
stund.
í upphafi æfingarinnar varð Guðni
Bergsson að hætta, fann til í nára og eftir
að læknir íslenska hðsins hafði skoðað
Guðna í gær er reiknað með að hann verði
leikfær á miðvikudagskvöld. Undir lok
æfingarinnar sneri Eyjólfur Sverrisson
sig á ökkla og í samtali viö DV sagði Eyjólf-
ur meiðslin minni háttar og ætti ekki aö
koma að sök.
Leikur íslands og Frakklands á miðviku-
daginn í Evrópukeppninni verður þriðji
landsleikurinn undir stjórn Ásgeirs Elías-
sonar. 2-0 sigur vannst í fyrsta leiknum
gegn Spánverjum og vináttuleik gegn
Kýpur lauk með jafntefli. Landsliðið hefur
reyndar ekki tapað fjórum síðustu leikjum
sínum og vonandi verður framhald á
þeirri velgengni annað kvöld. Kjarninn í
franska hðinu kemur úr stórhðinu Mar-
seille en franska liðið hefur sem kunnugt
er þegar tryggt sér sigur í riðlinum og
með sigri gegn íslandi á morgun ynnu
Frakkar riðilinn með fullu húsi stiga.
21 árs liðið mætir
Frökkum í Rouen í dag
íslenska landsliðið, skipað leikmönnum
21 árs og yngri, mætir Frökkum í dag.
Fyrri leik þessara þjóða á íslandi lauk
með sigri Frakka, 0-1, og voru það mjög
ósanngjörn úrsht. Skemmst er að minnast
frækins sigurs íslenska liðsins gegn Spán-
veijum í síðasta mánuði þannig að okkar
menn eru til ails líklegir. „Vissulega verð'
ur þetta erfitt, enda alltaf erfitt að leika á
útivelli. Ósanngjarnt tap gegn Frökk-
um á dögunum er einnig ofarlega í
hugum strákanna og ætlunin er að
hefna þeirra úrslita i leiknum í Rou-
en,“ sagði Hólmbert Friðjónsson,
þjálfari liðsins. Líklegt er að byrjun-
arlið íslands í dag verði skipað sömu
leikmönnum og gegn Spánverjum:
Kristján Finnbogason í markinu,
varnarmenn verða Kristján Halldórs-
son, Amaldur Loftsson, Brandur Sig-
urjónsson, miðjumenn; Arnar Grét-
arsson, Rúnar Kristinsson, Haraldur
Ingólfsson, Ingólfur Ingólfsson, Stein-
ar Adolfsson, framherjar; Anton Bjöm
Markússon og Valdimar Kristófers-
son.
Guðni Bergsson meiddist lítillega á
æfingu í gær en verður mjög líklega
með á móti Frökkum annað kvöld.
Leiknum verður
sjónvarpað kl. 19.40
á morgunn
Jákvæð
viðbrogð
» m»
i RapIiii
i dctiiii
„Við áttum jákvæðar viðræður við stjórnarmenn Alþjóða handknatt-
leikssambandsins (IHF) og fulltrúa i tækninefnd ura möguieikana á
að lækka áhorfendatöluna á úrslitaleik heirasraeistarakeppninnar sem
haldin verður á íslandi 1995,“_sagði Jón Hjaltalín Magnússon, formað-
ur Handknattleikssambands íslands, í samtali við DV í gær. Hann sat
um helgina stofiifund Evrópusambands i handknattleik sem haldinn
var í Berlín.
„Erik Larsen, sem á sæti í tækninefndinni, hefúr þegar sent skýrslu
til EHF þar sem hann fer fram á aö kröfur um hús fyrir úrslitaleikinn
verði endurskoðaðar. Hann benti þar á að úrslitaleikur í heirasraeist-
arakeppni kvenna í Kóreu fór fram í höll sem tók 15 þúsund manns
en áhorfendur voru aðeins þrjú þúsund.
Þegar endanlegar hugmyndir um stærð hússins og hönnum liggja
fyrir, verða þær lagöar fyrir IHF. Það var almennt vel í þetta tekiö í
Berlín og ég er bjartsýnn á að þetta gangi upp,“ sagði Jón Hjaltalín
Magnússon.
-VS
HM kvenna í knattspymu:
Reiðarslag
þeirra sænsku
Úrslitakeppni heimsmeistaramóts
kvenna í knattspyrnu hófet um síð-
ustu helgi. Opnunarleikurinn var á
milli gestgjafanna Kínverja og
heimsmeistara Noregs og sigruðu
heimamenn örugglega, 4-0. Sigur
kínversku stúlknanna kemur nokk-
uð á óvart þar sem þær norsku hafa
verið ósigrandi undanfarin ár.
Áhugi á kvennaknattspymu er
hins vegar mikill í Kína og komst
kínverska Mðið í undanúrslit á síð-
asta heimsmeistaramóti. Leikur lið-
anna fór fram í borginni Canton á
leikvelh sem tekur 60.000 manns og
var uppselt á leikinn.
Tólf landslið taka þátt í úrslita-
keppninni í Kína og er þeim skipt í
þrjá riðla. í A-riðli leika lið Kína,
Noregs_, Danmerkur og Nýja-Sjá-
lands. í B-riðli leika Japan, Brasiha,
Svíþjóö og Bandaríkin og í C-riðli
leika Þýskaland, Nígería, Taiwan og
Ítalía.
Danir unnu Nýja-Sjáland 3-0 í A-
riðh og í C-riðh sigruðu ítölsku stúlk-
urnar lið Taiwans 5-0 og þýsku stúlk-
urnar sigruðu þær nígerísku.
í B-riðli sigraði Brasiha Japan 1-0
og Bandaríkin sigruðu Svíþjóð, 3-2.
Sigur bandarísku stúlknanna kemur
sömuleiðis á óvart þar sem sænsku
stúlkurnar voru taldar sigurstrang-
legastar í riðlinum. Tapið kom sem
reiðarslag fyrir Svía. Sænska liðið
byrjaði mun betur en nýtti ekki fær-
in sín og bandarísku stúlkurnar
skoruðu fyrsta markið skömmu fyrir
leikhlé. Við markið fóru þær sænsku
á taugum og bandarísku stúlkurnar
bættu tveimur mörkum við. Um
miðjan síðari hálfleik tók sænska lið-
ið við sér og fiskaði m.a. vítaspyrnu
en Anette Hansson skaut framhjá.
Sænsku stúlkurnar náður þó að
koma knettinum tvisvar í mark and-
stæðinganna' en þar við sat. 16.000
áhorfendur sáu leik Svíþjóðar og
Bandaríkjanna.
í gær var hvíldardagur hjá knatt-
spyrnukonunum en í dag verður
leikin heil umferð.
-ih