Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Síða 10
10
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992.
Myndbönd
Glímtvið
samviskuna
TIME TO KILL
Útgefandi: Bergvik hf.
Leikstjóri: Giuliano Monyaldo.
Aðalhlutverk: Nicholas Cage, Giancarlo
Giannini og Ricky Tognazzi.
Ítölsk/bandarísk, 1990 - sýningartími
110 min.
Bönnuö börnum innan 12 ára.
í Time to Kill leikur Nicholas
Cage ítalskan liðsforingja sem
verður viðskila við flokk sinn í
Eþíópíu. Hann hittir fyrir innfædda
stúlku sem hann hrífst af en verður
henni óvart að bana. Hræðsla við
hefnd innfæddra gerir það að verk-
um að hann verður var um sig og
nálgast sú hræðsla geðveiki þegar
hann heldur að stúlkan hafi verið
haldin smitandi sjúkdómi.
Time to Kill er að mörgu leyti vel
gerð kvikmynd. Enrico, en svo
heitir liðsforinginn, fær aldrei sam-
úð áhorfandans enda á hann það
ekki skilið. Handritið er virkilega
vel skrifað og leikur Nicholas Cage
er góður en Time to Kill er nokkuð
langdregin og um leið fráhindrandi
en hún er öðruvísi og góð tilbreyt-
ing frá amerískum kvikmyndum.
Óboðinngestur
HIDER IN THE HOUSE
Útgefandi: Bíómyndir.
Leikstjóri: Matthew Patrick.
Aðalhlutverk: Gary Busey, Mimi Rogers
og Michael McKean.
Bandarísk, 1989- sýningartimi 94 min.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Er hægt að búa í stóru einbýlis-
húsi án þess að vita að þar er einn
íbúi fyrir? Það er harla ólíklegt en
einmitt þetta gerist hjá fjölskyldu
sem flytur í nýtt hús. Uppi á lofti
hefur geðveikur maður, sem einu
sinni brenndi foreldra sína inni,
komið sér fyrir og fylgist með at-
höfnum fjölskyldunnar og skiptir
sér af málefmnn hennar þegar það
hentar honum.
Það má nú kannski segja að
handritið sé heldur ótrúlegt og alls
ekki vel skrifað og margt í Hider
in the House er klúður en myndin
er spennandi og hröð. Gary Busey
hefur einstakt lag á að leika ómenni
þegar hann vill það við hafa en
hann getur einnig brugið upp sak-
leysisvip þegar við á og nær hann
ágætum tökum á geðveikri persón-
unni og er hann dóminerandi per-
sóna myndarinnar.
Lífið með Regitze
DANSAÐ MEÐ REGITZE (DANSEN MED
REGITZE)
Útgefandi: Myndform.
Leikstjóri: Kaspar Rostrup.
Aðalhlutverk: Ghita Norby, Frits Hel-
muth, Rikke Berndsen og Henning Mor-
Itzen.
Dönsk, 1989 - sýningartími 90 min.
Leyfö öllum aldursflokkum.
Danskir kvikmyndagerðarmenn
hafa átt mikilli velgengni að fagna
á undanfomum árum. Tvö ár í röð
fékk dönsk kvikmynd óskarsverð-
laun sem besta erlenda kvikmynd-
in. Voru það myndimar Pelle sig-
urvegari og Gestaboð Babette.
Dansað með Regitze var einnig ná-
lægt þeim verðlaunum en hún var
tilnefnd á eftir hinum tveimur og
fáir gerðu því ráð fyrir að óskars-
verðlaunin féllu til danskra kvik-
mynda þrjú ár í röð.
Dansað með Regitze er alls ekki
síðri kvikmynd heldur en fyrr-
nefndar óskarsverðlaunamyndir.
Hér er um að ræða hugljúfa og
gamansama mynd um ævi tveggja
einstaklinga. Við fáum svipmyndir
úr lífi þeirra í blíðu og stríðu.
Hjónin Karl Áke og Regitze halda
hina árlegu sumarveislu sína og
sem fyrr er Regitze allt í öllu, er
bæði örlátur gestgjafi og lífgar upp
á tilveruna hjá öðmm. Karl Áke
er rólegri og í veislunni fer hann
að rifja upp svipmyndir úr lífi
þeirra hjóna, allt frá því hann sá
eiginkonu sína fyrst og fram til
nútímans. Það kemur í ljós að í lífi
þeirra hafa skipsj á skin og skúrir.
Þau eru mjög ólík að eðlisfari en
Ghita Norby leikur hina sterku og lífsglöðu Regitze af mikilli innlifun.
Hún er hér ásamt Henning Moritzen sem leikur vin þeirra hjóna.
elska hvort annaö og standast
hvert áhlaupið af öðru í einkalíf-
inu.
Dansað með Regitze er fyrst og
fremst mannleg kvikmynd sem
snertir alla þá sem á horfa. En
húmorinn er einnig hárfinn og
skemmtilegur og ávallt á réttum
stöðum. Ein þekktasta leikkona
Dana, Ghita Norby, sýnir einstak-
lega góðan leik í hlutverki Regitze
og Fritz Helmuth gefur henni lítið
eftir og leikararnir sem leika þau
ung eru einnig mjög góðir.
-HK
DV-myndbandalistirm
Naked Gun 2‘A stekkur beint í fyrsta sætið i þessari viku. I þessari
farsakenndu gamanmynd leikur Leslie Nielsen aftur lögreglumanninn
Frank Dreplin. Hann er hér ásamt Pricillu Presley sem einnig var
með i fyrri niyndinni.
1 (-) Naked Gun 2'/,
2 (2) Kiss before Dying
3 (1) Hrói höttur, prins þjófanna
4 (2) Silence of the Lambs
5(6) Murder 101
6 (7) Mermaids
7 (3) Taking Care of Business
8(4) Out for Justice
9 (9) He Said, She Said
10 (-) State of Grace
11 (10) Godfather III
12 (12) Green Card
13 (-) The Pope Must Die
14(8) L.A. Story
15 (-) ThreeMenandaLittfeLady
Barátta kynjanna
HE SAID, SHE SAID
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjórar: Ken Kwapis og Marisa Silv-
er.
Aðalhlutverk: Kevin bacon, Elizabeth
Perkins og Sharon Stone.
Bandarísk, 1991 - sýningartími 94 min.
Leyfö öllum aldurshópum.
I He Said, She Said er sama sagan
sögð tvisar frá sitthvoru sjónar-
hominu og til að aðgreina þessa tvo
hluta enn meir eru tveir leikstjórar
sem stjóma sínum hluta hvor, Ken
Kwapis sfjómar fyrri hlutanum
He Said, þar sem karlrembuskoö-
anir em viðraðar. Það er kvenleik-
stjóri, Marisa Siiver stjómar hin-
um síðari þar sem kona kemur
fram með sín rómantísku sjónar-
mið oger sá hluti betur heppnaður.
Hér er sem sagt á ferðinni nýstár-
leg hugmynd og skemmtileg en því
miður þegar heildin er skoðuð
gengur ekki alveg upp að gera heil-
lega kvikmynd.
I byrjun myndarinnar kynnumst
við sambýlisfólkinu í vinnu sinni
en það sér um vinsælan sjónvarps-
þátt, sem einmitt heitir He Said,
She Said. Allt í einu kastar hún í
miðri útsendingu bolla í elskhuga
sinn og stransar út. Það er greini-
legt að eitthvað er að í einkalífinu
hjá þeim og nú fáum við fyrst hans
úttekt á sambandi þeirra og finnst
manni hans úgáfa vera í raun eðli-
leg og það htla frjálslyndi sem hann
vill 1 sambandi þeirra htið spilla
fyrir þangað til við fáum hennar
úttekt á sambandinu, þá verða
hlutimir ahs ekki eins einfaldir og
hann vih verða láta, en eins og í
öhum ævintýrum er endirinn góð-
ur.
Eins og áður segir er hugmyndin
nokkuð góð og úrvinnslan oft á tíð-
um sæmileg en helsti gahi er sam-
leikur þeirra Kevins Bacon og
Ehzabeth McGovem sem er ósann-
færandi og yfirborðskenndur og
hafa bæði gert betur.
-HK
Páfí í stuði
THE POPE MUST DIE
Útgefandi: Skífan.
Leikstjóri: Peter Richardson.
Aðalhlutverk: Robbie Coltrane, Herbert
Lom og Beverly D'Angelo.
Bresk, 1991 - sýningartimi 96 mín.
Leyfð öllum aldurshópum.
Robbie Coltrane er breskur háð-
fugl sem aðallega hefur verið í sjón-
varpi. Hann hefur undanfarið verið
að geta sér gott orð í gamanmynd-
um og er sjálfsagt mörgum minnis-
stæð frammistaða hans í Nuns on
the Run. í The Pope Must Die færir
hann sig upp á skaftið og fer í gervi
sjálfs páfans og hefur ekki verið
gert jafnmikið grín að Vatikaninu
og íbúum þess síðan Dave Ahen var
upp á sitt besta.
Coltrane leikur prest sem ferst
betur að leika rokktónlist heldur
en að predika enda fer það svo að
hann er látinn hætta. En vegna
heymarleysis ritara þegar nýr páfi
er thnefndur er hann tilnefndur
næsti páfi. Renna á hann tvær
grímur enda veit hann best sjálfur
að hann á htið erindi í páfastól. Það
er þó mafíuforingi einn sem verður
enn meira undrandi en hann hafði
ætlað einni undirtyhu sinni páfa-
embættið.
The Pope Must Die er farsi og era
einstaka atriði mjög fyndin. Eins
og oft gerist með farsa er heildin
frekar veik en frumleikinn og hug-
myndaauðgi handritshöfunda færa
myndina upp yfir meðahag og gera
hanaaðágætriafþreyingu. -HK