Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Side 11
LAUGARDAGUR 1. FEBRUAR 1992. 11 Vísnaþáttur Aðsent og heimafengið $TOR- ÚTSALA Það verður hverjum að list sem hann leikur. Svo hljóðar gamalt íslenskt mál, merkir að sjálfsögðu: Það sem maður leggur góða rækt við langa stund, helst frá barn- æsku, vandar sig, gerir sér ljósa grein fyrir að hverju er stefnt, lukkast best. Slíkt kallar á skap- festu því að flaumur tímans rennur áfram og það sem er rétt stefna ungs manns á hans öld er orðin önnur og úrelt miðað við þaö sem var á tið feðra hans og mæðra. En höldum áfram með hugtakið hst. Það orð hefur tvöfalda merkingu á okkar tungu, í einni andrá list huga og handar, í hinni er talað um afrek á sviði þrekrauna og íþrótta. En hvort sem haft er í huga á máltæk- ið okkar við. Sá sem til frama og viðurkenningar skal vinna, fjöld- ans eða fárra, verður að einbeita sér, gera það að mikilli list sem hann leikur. • Hagmælska er þjóðaríþrótt okkar íslendinga. Við höfum lengi búið við fomar reglur, sem vom nauð- syniegar fram eftir öldum, þar sem bækur voru ekki á hverju strái og við viðurkenndum eigirúega varla annað sem fagra braghst en það sem bundið var hljóðstöfum og rími. Nú er hér ekki staður til rök- ræðu um þessi efni og því síður um það sem einhveijum kann að þykja vera nokkur ráðgáta, hvers vegna undirritaður hefur gefið sig að jafn- ólíkum gerðum sem órímuðum skáldskap og hagmælskulegum vísum. Stundum er þetta fært í tal við mig. Mín kynslóð er alin upp á tímamótaöld. A heimih fósturfor- eldra minna var rímnakveðskapur, sama var um heimih Steins Stein- ars. Þetta ræddum við þegar fund- um okkar ungskálda bar saman hér í Reykjavík. Báöir ortum við öðruvisi en almenningur vildi að við gerðum, hvor þó með sínum hætti. Aldursmunur okkar var rúm átta ár. Þeir tala nú mest um Stein og skáldskap hans sem þekktu hann lítið. Rúmið leyfir ekki að ég fjölyrði um þetta. Vík aftur talinu að hst- þjónustu. Þegar einstakur fulltrúi þjóðar skarar fram úr á alþjóðleg- um vettvangi, hvort sem það er nú í hstum eða hkamlegum íþróttum,- ríkir almenn gleði með þeim sem finnst þeir eiga hlutdehd í sigrin- um. Um það hugsa ekki ahir hve mikhr og margir ósigrar kunna að hggja að baki. Stundum gera jafn- vel þeir sem hlut eiga að máli sér ekki ljóst hve víða og langt rætum- ar hggja. Það verða ekki allir oka- tæk skáld sem leggja það fyrir sig í æsku aö hnoða saman vísu. Sum- ir alast hka upp við kveöskap án þess að taka eftir því að sumar vís- umar eru ótrúlega snjahar í ein- faldleika sínum, aðrar eru ómerki- legar þótt rétt séu kveðnar. En þeir sem aldrei á ævi sinni láta hug sinn stöðvast við vísu eru þó enn verr settir. - Hér verð ég að ljúka hug- leiðingum mínum. Aðsent Ekki vil ég veröa til að rifja upp gömul deilumál varðandi Hóla- skóla. En hér er samt staka tveggja manna ónefndra úr Skagafirði: Heiðurs klæddir hempu og kjól, hér um ból og sunnar, hafa garpar Hólastól haldið fleiri en Gunnar. Erlendur Jónsson, fyrrverandi bifreiðarstjóri, f. 1912 á Stokkseyri, hefur lengi búið í Kópavogi. Eftir hann er þessi vísa: Þó að slitni bræðrabönd og brestir hugann seiði, Vísnaþáttur þá er eins og huhn hönd hjálpi mér og leiði. Með eftirfarandi vísu fylgir að- eins höfundamafnið Eyjólfur á Sól- heimum? Ei skal kvarta, efla þrótt,. enn mun skarta fagur, eftir svarta neyðarnótt nýr og bjartur dagur. En þessa mun skáldið Jón Trausti hafa ort 1911 þegar Siifur- bergsmáhð svokahaða var til um- ræðu á Alþingi. Gott að sjúga gamian merg gjaldþrotum að hamla. Seldi ég fyrir silfurberg sáhna þeim gamla. Um þetta efni em vist til óteljandi vísur. Þessi hefur týnt höfundi sín- um. Hún er gömul: Meðan endist ævin mín ætíð skal ég glaður, hesta sitja, virða vín og vera kvennamaður. Og enginn veit víst hvaðan þessi er ættuð: Minn um huga hrohur fer, hristir gustur lokkinn, sekur sleppur, saklaus er settur í gapastokkinn. Sigríður í Garðshomi orti: Líður tíðin ama öll, angrið stríða þrýtur. Sléttuhhðar fögur fjöll freyrinn skíða htur. Og þessi er eftir Jóhönnu Magn- úsdóttur: Kristur víða kenndi mér kærleiks fríða gengi, betra að hða órétt er en að stríða lengi. Um konur þær sem hér yrkja vit- um við aðeins nöfnin. Veit nokkur meira? Heimafengið Stundum þegar ég er að leita að vísum í þáttinn minn og jafnvel gera mér ferð til höfuðborgarinnar verður mér hugsað til Sigurðar skálds frá Amarholti. Hann var lengi apótekari í Vestmannaeyjum. Margs konar óhöpp hlóðust að hon- um í einkalífi og minna varð úr afköstum en hann og aðrir væntu. En allt snjaht það sem það var. Síð- ustu ár sín bjó hann ásamt konu sinni í Reykjavík. Hann reikaði um miðbæinn. Veraldarauður og hehsa strokin úr vistinni. Þá létu hagyrðingar stundum prenta eftir sig gamanvísur og ahs- konar bragi og fengu stráka th að selja á götunum. Einhveiju sinni mættu þeir Sigurði á Austurvelh og buðu honum að kaupa. Hann velti vöngum góðmannlega og sagði: Nei, þakka ykkur fyrir, drengir mínir. Ég get ort sjálfur. Þeir Sigurður og Þorsteinn rit- höfundar Björnsson, guðfræðingur úr Bæ, voru kunningjar. Þessa vísu orti Sigurður einhvemtíma um Þorstein: Hann er maður hreinn og beinn, hrekkjakróka aldrei vald’ann. Hættulegur er sá einn sem aldrei lýgur, - nema sjaldan. Þeir voru báðir fátækir, sá sem orti og hinn sem um var kveðið. En þó misjafnlega leiknir oftast. Athugið að oft hður dijúgur tími frá ritun þátta uns þeir birtast. Jón úr Vör Fannborg 7, Kópavogi UTSALAN HEFST Á MÁNUDAGINN 3. FEBRÚAR STÓRAFSLÁTTUR ÁFLESTU ■VERDHRUNÁ SUMU I Kringlunni S. 689811 í Hverafold S. 676511 Póstkrafa Kaupmenn athugið Freyju rís súkkulaðið er nu á sérstöku tilboðsverði. Gerið góð kaup. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.