Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Page 19
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992. 19 Múmínálfarnir hafa aldrei verið vinsælli en nú. Þessar furðuverur, sem Tove Jansson skapaði fyrir um 50 árum, lifa i örsmárri veröld sem venjulegt fólk kemur ekki auga á en þar gerist samt margt spennandi og skemmtilegt. Múmínálfamir aldrei vinsælli: Vinaleg ringul- reiðí Múmíndalnum - fyrsta bókin kom út fyrir tæpum 50 árum Múmínálfarnir hafa notið mik- illa vinsælda víða um heim, alit frá því að fyrstu bækumar um þá komu út fyrir tæpum 50 árum. Hér á landi eru rúmir tveir áratugir frá því að múmínbækurnar komu fyrst út. Þeir nutu strax vinsælda en aldrei eins mikilla og eftir að Sjónvarpið hóf sýningar á teikni- myndum um þessar merkilegu ver- ur. Höfundur múminálfanna er finnski rithöfundurinn og lista- maðurinn Tove Jansson, fædd 1914. Faðir og móðir Tove voru bæði listamenn svo að hún á ekki langt að sækja hæfileika sína. Fjölskyld- an bjó í stóru stúdíóhúsnæði í Hels- inki. Tove lýsir heimilinu sem virkilegri ævintýraveröld sem bauð upp á ótal möguleika fyrir böm. Móðir hennar vann við að myndskreyta bækur og sagði henni sögur í myrkrinu framan viö arin- inn. Faðir hennar var meira fyrir spennuna. Ef kviknaði í húsi í ná- grenninu vakti hann bömin og þusti með þau úttil að horfa á bál- ið. Á sumrin fór íjölskyldan á smá- eyju þar sem róið var á skektu í alls kyns veðrum. Faðir Tove naut sín aldrei betur en í dúndrandi þrumuveðri. „Hefði ég ekki átt jafnskemmti- lega bamæsku hefði ég aldrei byrj- að að skrifa," segir Tove. Hún seg- ir: „Sögur mínar em ekki ætlaðar einum sérstökum hópi og í þeim geri ég enga tilraun til að kenna eða koma aö einhverri skoðun. Ég skrifa um það sem heillar mig og hræðir mig. Sögumar gerast í kring um fjölskyldu þar sem vina- leg ringulreiö er allsráðandi.“ En Tove kemur ekki ein við sögu. Lars bróðir hennar, sem líka er rithöfundur og listamaður, á ekki síður þátt í velgengni þáttanna um múmínálfana. Eftir að hafa slegið í gegn með fyrstu múmínbókunum byijaði enska kvöldblaðið Evening News að birta teiknimyndasögur um múmínálfana. Það var árið 1954. Teiknimyndasögurnar áttu síðan eför aö birtast í dagblöðum á yfir 20 tungumálum. 1960 tók Lars bróðir hennar við gerð teikni- myndasagnanna og sneri sér einnig að öðru birtingarformi. 1978 hóf pólska sjónvarpið sýningar á 39 teiknimyndum um múmínálfana. Múmínálfamir urðu síðan mjög vinsælir í Japan en þar voru nýlega framleiddir 52 þættir um þá þar sem sögunum er fylgt nákvæmlega eftir. Hafa þeir þættir verið sýndir í flestum Evrópulöndum. -hlh LAXVEIÐIÁ TIL LEIGU Tilboð óskast í veiðirétt Setbergsár á Skógarströnd sumar- ið 1992. Tilboð, sem greini verð og greiðsludaga, sendist Þóri Guðmundssyni, Brekkubæ 33, 110 Rvik, í ábyrgðar- pósti sem sannanlega er póstlagður fyrir lokun pósthúsa föstudaginn 7. febrúar 1992. Nánari upplýsingar veita Þór- ir, simi 91-73886, og Jóri, sími 93-81017. Nauðungaruppboð á byggingu T-573, Keflavíkurflugvelli, þingl. eign Suðurnesjaverktaka hf„ fer fram í skrifstofu embættisins við Grænás í Njarðvíkum miðvikudaginn 5. febrúar 1992 kl. 13.30. Uppboðsbeiðandi er Ingi H. Sigurðsson hdl. LÖGREGLUSTJÓRINN Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI Blómstrandi mannlíf í Kolaportinu Kolaportið nú einnig á sunnudögum Um þessa helgi byijar Kolaportið aftur á sunnudögum og verður sérstaklega haldið upp á þennan fyrsta sunnudag ársins með margvíslegum hætti. Má þar nefna ýmsar sniðugar uppákom- ur og allir krakkar, sem koma í heimsókn, fá smágjafir frá Kola- portinu. Gailerí Port Síðustu helgi var opnað nýstár- legt myndhstargallerí í Kolaport- inu sem einkum er ætlað frí- stundamálurum og listamönnum sem eru að byrja að koma sér á framfæri. Á opnunardaginn sýndu 35 myndlistarmenn yfir 100 verk og vakti galleríið mikla athygh. Um 20 verk seldust fyrsta daginn og lofar það góðu. Þessa helgi verður Galleri Port opið báða dagana og verða þar verk eftir 42 myndhstarmenn. Bókamarkaður Bókamarkaðurinn stendur nú yfir í Kolaportinu og eru þar á boðstólum um 1500 titlar frá 26 bókaforlögum. Á bókamarkaðn- um er fjöldi titla sem ekki hefur áður sést á bókamörkuðum og má sérstaklega nefna þátttöku bókaforlaga af landsbyggðinni sem ekki hafa áður verið með. Verðlag bókanna þykir nú með besta móti og er fjöldi titla seldur á undir 100 krónur. 200 sölubásar um helgina Að venju verður mikið úrval söluvarnings á boðstólum í Kolaportinu um helgina. Flestir seljendur eru nýir um hveija helgi og nú er sérstök áhersla lögð á að laða að seljendur með notaða muni og þeim boðinn sér- stakur afsláttur af leigu sölubása á sunnudögum í febrúar. Kolaportið er opiðá laugardögum kl. 10-16 og á sunnudögum kl. 11-17. Auglýsing 100NXsportbíll kr. lÆ.OOO.-.stgr. 5ra dyra skutbíll kr. 1.043.000.-.stgr. IMI55AIM SUNNY100NX SP0RTBILL EÐA SUNNY 4WD FJÖLSKYLDUBÍL!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.