Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Síða 29
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992. 41 Helgarpopp Fyrsta starfsári Björgvins Halldórssonar í Stúdíó Sýrlandi er lokid: Gæði hljóðvera byrja og enda með fólkinu Björgvin Halldórsson segir Stúdíó Sýrland standast samanburð viö mörg hljóðver úti i heimi. DV-mynd Brynjar Gauti Þótt Björgvin Halldórsson sé langþekktastur meðal þjóðarinnar sem hljómlistarmaður er hans að- alstarf ekki að syngja og leika á hljóðfæri. Síðan fyrsta febrúar í fyrra hefur hann veitt forstöðu. hljóðverinu Sýrlandi í Reykjavík. Hann segist horfa ánægður til baka til liðins árs. „Þaö er gaman að veita góðu stúdíói forstöðu," segir hann. „Og það er einnig viss ögrun að fást við svona starf. Samkeppnin er hörö og þróun tækjabúnaðar stúdíóanna sömuleiðis. Síöan ég byijaði erum við til dæmis búnir að auka vinnslumöguleikana með því að fjölga hljóðrásum í upptökumixer upp í fjörutíu og átta. Viö erum Uka komnir með tölvustýringu, fransk/enskt tæki sem heitir Opti- file. Með því að hafa stúdíóið vel tækj- um búið getum við gert margt ann- að en bara að taka upp plötur,“ heldur Björgvin áfram. „Ég get nefnt sem dæmi að við hljóðsetjum hér bíómyndir. Við önnuðumst hljóðsetningu bamamyndarinnar Fuglastríðið í Lumbruskógi. Hér er tónlistin í myndina Sódóma Reykjavik unnin og Hilmar Öm Hilmarsson er byrjaður aö leggja drög að tónlistinni í kvikmynd Kristínar Jóhannesdóttur, Svo á jörðu sem á himni, og hefur einnig verið að vinna að tónhst við sjón- varpsmynd Hrafns Gunnlaugsson- ar, Allt gott.“ Annríki allt árið Um langt skeið hafa hljómplötur fyrst og fremst selst fyrir jól. Því hefur aðalannatíminn í hljóðverum verið á haustin. í fyrrasumar mátti sjá að þróunin væri nokkuð að breytast varðandi yfirráð jóla- markaöarins þegar útgefendur blésu til íslensks tónhstarsumars. Það dreifði nokkuð álaginu á hljóð- verin. Björgvin Halldórsson segir að ýmislegt fleira hjálpi til að nýta tæki og húsakost því sem næst allt áriö um kring. „Hljóðsetning kvikmyndanna hjálpar til dæmis mikið upp á,“ segir hann. „Nú, Söngvakeppni Evrópusjónvarpsstöðva hefur allt- af sitt að segja, endurútgáfa eldra efnis á geisladiskum skapar mikla vinnu og eitt og annaö til viðbótar fellur tí.1. Janúar var til dæmis full- bókaður hjá okkur. Næstu mánuð- ir líta vel út. Egill Ólafsson og Gunnar Þóröarson hafa t.d. pantað tíma til að vinna að verkefnum sem þeir hafa tekið að sér. Síðan verður hér tekin upp safnplata sem kemur út með vorinu. Hljómsveitin Síðan skein sól hefur verið að setja enska texta við sína tónlist og fer senn aö taka upp ný lög með plötu í huga. Hilmar Öm, Felixverðlauna- hafmn okkar, vinnur allt sitt efni hér og við stöndum nú í bréfaskipt- um við erlenda aðila til að kanna jarðveginn fyrir að fá erlenda tón- hstarmenn til að koma hingað og taka upp plötur sínar. Svo getur farið að söngkona, RoseUa að nafni, komi hingað til að taka upp bæði tónlist og myndbönd. Þar eð Sýr- land sinnir eingöngu hljóðvinnslu höfum við fengið Saga Film í sam- vinnu við okkur til að annast myndböndin. Staöreyndin er sú,“ heldur Björg- vin áfram, „að Sýrland stenst alveg samanburð við góð stúdíó erlendis og viö bjóðum að auki lægra verð fyrir hvem upptökutíma en sam- bærileg stúdíó erlendis. Enda hefur hér verið unnið efni fyrir erlendan markað. Bæði Sykurmolamir og Risaeðlan hafa notast við þetta hljóðver." Endurvinnsla Öðm hverju berast jólalegir tón- ar úr stjórnherbergi Sýrlands. Gunnar Smári Helgason tækni- stjóri er þar við störf og er að end- urhljóðblanda plötuna Jólastrengi sem út kom árið 1977. Til stendur að hún komi út á geisladiski fyrir næstu jól og ekki er ráð nema í tíma sé tekið að fara yfir upptökuna og lagfæra eitt og annað sem má betur fara. Fleiri gamlar plötur fá svip- aða meðhöndlun á næstu mánuð- um. „Skífan ætlar að endurútgefa á geisladiskum fjölmarga titla á ár- inu,“ segir Björgvin. „Ég get nefnt sem dæmi Bráðabirgðabúgí SpO- verks þjóðanna, allar plötur Brunahðsins, þijár plötur Brimklóar og tvær sólóplötur Björgvins Halldórssonar. Þarna er líka platan Dagar og nætur, sóló- plötur Pálma Gunnarssonar, tvær með Ruth Reginalds, flestar plötur Halla og Ladda, í takt við tímann með Sinfóníuhljómsveit íslands, Emil í Kattholti, LangspO með Jó- hanni G. Jóhannssyni..." Björg- vin hikar. „Ég gleymi ábyggilega einhveijum. Það verður mikið verk að fara yfir aOar þessar plötur og lagfæra þær svo að tónhstin njóti sín á geisladiskum." Það er ekki séríslenskt fyrirbæri að eldri tónlist sé gefin út á geisla- diskum. Endurútgáfa er umsvifa- mikil um ahan heim. Sumt sem kemur út hljómar nákvæmlega eins og þegar það kom út á vinyl- plötu fyrir mörgum árum. Annað er búiö aö lagfæra htihega svo sem að draga úr suöi, bæta í bassann og gera hljóminn nútímalegri. Enn- fremur er hægt aö finna gamlar upptökur sem búið er að lagfæra svo kirfilega að heita má að þær séu orðnar nýjar að talsverðu leyti, feUa út hljóðfæri, bæta við öðrum og svo framvegis. „Við erum ágæflega í stakk búnir að ganga frá eldra efni þannig að það njóti sín á geisladiskum," segir Björgvin Halldórsson. „Reyndar eru úti í heimi öflugar tölvur sem geta gert ótrúlegustu hluti. Við reynum ekki að standast þeim Umsjón Ásgeir Tómasson snúning. Mér þykir ólíklegt að við eigum eftir aðsjá slíkan búnað hér á landi á næstunni. TO þess er markaðurinn allt of lítíll. Það er heldur ekki allt fengið með dýrustu og fullkomnustu tækjunum. Gæði hljóðveranna byija og enda með fólkinu sem vinnur við tækin. Hins vegar hefur þróunin orðið sú á síðustu árum að stúdíóin hafa orðið að sérhæfa sig,“ bætir Björg- vin við. „Margir tónhstarmenn eiga orðið htil heimastúdíó. Það sem háir þeim hins vegar er hversu htíl þau eru. Það hóar til dæmis enginn saman fimm tO sex manna hljómsveit heima í stofu og tekur upp plötu. Þess vegna verða stúdíó- in alltaf að vera tO staðar, til dæm- is fyrir hljómsveitir sem vilja taka upp í heilu lagi. Emmg fyrir kvik- myndatónhstina. í heimastúdíóun um eru heldur ekki tæki sem standast samanburð við það sem við erum til dæmis með hér í Sýr- landi. Það fjárfestir enginn einn aðOi í slíkum tækjum til að láta setja upp heima hjá sér.“ Sungið í Eurovision Ekki snýst allur sólarhringurinn hjá Björgvmi Hahdórssyni um rekstur fyrirtækis. Eitthvað hlýtur hann að sinna tónhstinm líka. „Já, það er rétt,“ svarar hann. „Eg syng eitt lag í Eurovision- keppmnm - bara eitt. - Ég neita því ekki að ég hef hka verið að leiða hugann að sólóplötu á þessu ári. Ég er hka byrjaður aö leggja drög að barnaplötu sem ég get ekki tjáð mig um á þessu stigi. Eirmig leik ég með Sléttuúlfunum, hljómsveit Óskastundarinnar. Auk þess mun ég skemmta á Hótel Sögu í nokkrar vikur. Það er eitt og annað í deigl- unni. TO stendur að taka upp plötu með Diddú í Litháeu þar sem hún syngur þekktar óperuaríur við undirleik Sinfóníulfljómsveitar Li- háens í VOníus. Platan verður tek- in upp ytra en eftirvinnslan fer lík- lega fram hér heima. Þannig mætti raunar lengi telja. Það bíða fjöl- mörg skemmtileg verkefni þess aö tekist verði á við þau.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.