Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Qupperneq 30
42
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992.
Skák
Keppni tölvunnar við nemendur
Skákskóla íslands og yngri félags-
menn Taílfélags Reykjavíkur sl.
laugardag hefur eflaust opnað
augu margra fyrir því hve tölvuvís-
indum fleygir hratt fram. Nú er svo
komið að enginn skákmaður er
óhultur gegn sterkustu tölvuforrit-
unum enda fór svo að forritið M-
Chess gersigraði mannlega mót-
herja sína á laugardag, fékk 91,5
gegn 28,5 vinningum.
Kjami hf. stóð að keppninni í
samvinnu við Skákskóla Islands og
TR og var teflt á 30 borðum, fjög-
urra skáka einvígi með 20 mínútna
umhugsunartíma. Áskorandinn,
M-Chess, er nýtt skákforrit, samið
af bandaríska stærðfræðingnum
Marty Hirsch, og hefur það unnið
til íjölda verðlauna, m.a. sigrað á
heimsmeistaramóti PC-tölva í
Vancouver í fyrra.
Er tölvan orðin sterkari en maðurinn í skák?
Áskorun tölvunnar:
Mannsheilinn stóðst
tölvunni ekki snúning
- Lárus og Sævar efstir á skákþingi Reykjavíkur
Tölvumar í keppninni á laugar-
dag voru allar frá sama framleiö-
anda, Silicon Valiey Computers, en
hins vegar voru þær mismunandi
öflugar. Sveitina leiddi 80486 tölva
með 50 Mhz örgjörva, sem er sá
öflugasti sem nú er til fyrir PC-
tölvur og munu ekki nema um
hundrað slíkir vera komnir til Evr-
ópu. Á boröum 2-10 voru 80486 tölv-
ur með 33 Mhz örgjörva; á borðum
11-20 vora 80386 tölvur með 40 Mhz
örgjörva og 80386 tölvur með 33
Mhz örgjörva á borðum 21-28.
Nokkur munur er á styrkleika for-
ritsins eftir því hve því er stýrt af
öflugri tölvu og kom það berlega í
ljós í keppninni.
Áskorun tölvunnar fólst m.a. í
því að ef einhverjum tækist að
sigra 4-0 fengi hann/hún 80486
tölvu og tilheyrandi að gjöf frá
Kjarna hf., að verðmæti á fjórða
hundrað þúsund. E.t.v. átti þetta
sinn þátt í þvi að nokkurs taugatitr-
ings gætti hjá sterkustu keppend-
unum og var því leikurinn strax
oröinn nokkuð ójafn, því að tölv-
umar virtust svipbrigðálausar
með öllu.
Svo fór að einungis fjórum kepp-
endum tókst aö bera tölvuna ofur-
hði. Þröstur Árnason og Bragi Þor-
finnsson unnu, 3-1, og Hannes Hlíf-
ar Stefánsson og Helgi Áss Grétars-
son fengu 2,5 v. Jafntefli gerðu fjór-
ir skákmenn: Sigurður Daði Sigfús-
son, Ingi Fjjalar Magnússon, Jón
Viktor Gunnarsson, Láms Knúts-
son en aðrir uröu að beygja sig fyr-
ir véhnni. Enginn vann ahar skák-
irnar og hreppti tölvuna eftirsóttu
en þeir sem fengu 1 vinning eða
meira fengu forritið gefins. Hö-
skuldur H. Dungal í Kiama hf. til-
kynnti hins vegar að tölvan yrði
eign Skákskóla íslands og vonandi
kemur hún þjr sem flestum að
notiun. í gær, fostudag, tók dr.
Kristján Guðmundsson skólastjóri
formlega við þessari rausnarlegu
gjöf.
Daði Jónsson hjá Verk- og kerfis-
fræðistofunni hf. hefur reiknað út
árangur M-Chess forritsins í
keppninni m.v. skákstig. Sam-
kvæmt útreikningum hans var
heildarframmistaða forritsins upp
. á 2125 íslensk Elo-stig. Á fyrstu tíu
borðunum, þar sem öflugustu tölv-
umar sátu, náði forritið 55% vinn-
ingshlutfallh og árangri upp á 2230
stig. Á borðum 11-20 var árangur-
inn 81% gegn stigalægri mönnum,
sem gerir árangur upp á 1980 stig
og á síðustu borðunum var árang-
urinn 91% upp á 1860 stig.
Athyghsvert er að á sex efstu
borðunum - gegn sterkustu mót-
herjunum - náði forritið bestum
árangri. Vinningshlutfalhð var
46% og frammistaða upp á 2310 ís-
lensk Elo-stig, eða 2321 alþjóðleg
Elo-stig.
Daði telur misjafna frammistöðu
forritsins eftir borðum eiga sér
þrjár skýringar. í fyrsta lagi vom
tölvurnar á efstu borðunum öflugri
en á þeim neðstu - 486-33 tölvumar
eru 2,6 sinnum hraðvirkari en
386-33 tölvumar. Þá eru yngstu
skákmennirnir á neðstu borðunum
margir hverjir í mjög örri framfor
sem enn er ekki komið í ljós á stiga-
hstanum. Loks gat verið um að
kenna óstyrk aðstoðarmanna, sem
færðu leiki inn á hverja tölvu og
færðu síðan taflmennina fyrir tölv-
una og ýttu á skákklukkuna. Skák-
manni var a.m.k. einu sinni úr-
skurðaður vinningur vegna mis-
taka aðstoðarmanns en þeir stóðu
sig þó langflestir með mikilli prýði.
Útsjónarsamar
í erfiðum stöðum
Forritið M-Chess kann „byijana-
teóríuna" upp á sína tíu fingur en
byrjanimar era þó ekki þess sterk-
asta hhð. í mjög flóknum stöðum,
þar sem aht er í háalofti, er erfitt
að eiga við það - það er á auga-
bragöi búið að greiða úr flækjun-
um, oftast sér í vh. Höfundur for-
ritsins telur því einnig mjög th
tekna, hversu vel það leiki í enda-
tafli, segir að það leilú ekki „ein-
kennandi tölvuleiki". í keppninni á
laugardag sýndist mér þetta þó
ekki eiga alls kostar við. Mér virð-
ist mesti styrkur forritsins á hinn
bóginn vera fólginn í útsjónarsemi
í erfiðum stöðum. Skákmaður af
Skák
Jón L. Árnason
holdi og blóði lætur það gjaman
angra sig ef hann fær lakari stöðu,
jafnvel tapaða og gerir andstæð-
ingnum auðvelt fyrir með úr-
vinnslu. Af tölvunni hvorki dettur
né drýpur. Hún á það th að beijast
af ótrúlegri seiglu!
Tölvan lærir ekki af mistökum
sínum - gerir sömu vitleysuna aft-
ur og aftur. Þetta tókst Þresti Árna-
syni að færa sér í nyt en hann
komst næst því að vinna ahar skák-
imar - átti unnið tafl í fyrstu skák-
inni sem hann tapaði.
Þröstur vann M-Chess í tvígang
með hvítu mönnunum og var kom-
ið með unnið tafl eftir tólf leiki í
þeim báðum, sem tefldust ná-
kvæmlega eins! Byijunin var
Griinfeldsvörn:
I. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5
Rxd5 5. Rf3 Bg7 6. g3 c5 7. Bg2 cxd4
8. Rxd4 Rxc3 9. bxc3 e5? 10. Rb5 0-0
II. Dxd8 Hxd8 12. Rc7
Svartur missir hrókinn í horninu
og Þresti var ekki skotaskuld úr
því að vinna úr yfirburðunum í
báðum skákunum.
Endatafl M-Chess í íjórðu skák-
inni gegn Helga Áss Grétarssyni
benti einnig th þess að forritið ætti
sitthvað eftir ólært. Þessi staða
kom fram og hafði M-Chess hvítt:
Lesandinn ætti sjálfur að reyna
að flnna út hvemig hvítur heldur
jafntefh. M-Chess gerði einu mis-
tökin sem hægt er að gera:
59. Kg4 Kg6 60. Kh4 h5 61. Kh3 Kg5
62. Kg3?? Rf5+ 63. Kh3 Rd6
Með því að laga stöðu riddarans
lítillega, hefur svartur tryggt sér
vinningsstöðu.
64. Kg3 h4 65. Kh3 Kh5 66. Kh2 Kg4
67. Kg2 h3+ 68. Kh2 Kh4 69. Kgl
Kg3 70. c8=D
Þessi kom Helga Áss á óvart en
M-Chess th hróss, má segja að það
var ekki lengi að reikna afbrigðið
70. Khl Re4 71. c8=D RÍ2+ 72. Kgl
h2+ 73. Kflhl = D+ 74. Ke2Ddl +
75. Ke3 Dd3 mát!
70. - Rxc8 71. Kfl h2 72. Ke2 hl=D
og Helgi Áss vann í fáum leikjum.
Ævintýralegasta skák keppninn-
ar var tefld á fyrsta borði í 2. um-
ferð, þar sem M-Chess, 50 Mhz, og
Þröstur Þórhahsson áttust við.
Þresti tókst að véla drottninguna
af forritinu en það var þó ekki á
því aö gefast upp og náði hættuleg-
um mótfæmm. Því tókst hins vegar
ekki að halda næghega vel á spöð-
unum og er það varð að gefa hrók
fyrir frelsingja Þrastar á a-hnunni,
var kominn fram einkennheg
staða: Þröstur hafði drottningu en
M-Chess biskup og fjögur peð!
Sjálfsagt hefði Þröstur á góðum
degi getað knúiö fram sigur en
hann var í miklu tímahraki og fór
of geyst í sakimar. Aður en hann
vissi af, var tölvan búin að vekja
upp drottningu!
Þannig var staðan. M-Chess hafði
hvítt og átti leik:
Áfram tefldist á eldingarhraða:
49. h5 Kc7 50. g4 Dhl 51. Bf3 Dh2 +
52. Bg2 Kd6 53. Kf3 Ke6 54. Bfl Kf6
55. Bd3 Kg5 56. Bf5 Dhl+ 57. Kf2
Kh4? 58. h6! Dh2+ 59. Kf3 Kg5 60.
h7 Dhl+ 61. Kg3 Dh4+ 62. Kf3 Kfl6
63. e4! Kg5 64. e5 Dh3 + 65. Ke4 Dg2 +
66. Kd3 Dh3+ 67. Kc4 Dhl 68. Kc5
Kf4 69. e6! Da8 70. e7 De8 71. h8=D!
Dxh8 72. Bd7 Db8 73. e8=D og Þröst-
ur gafst upp!
Skákþing Reykja-
víkur
Eftir átta umferðir á skákþingi
Reykjavíkur vom Lárus Jóhannes-
son og Sævar Bjarnason efstir með
6,5 v. Láms vann Guðmund Gísla-
son í áttundu umferð og Sævar
lagði Júlíus Friðjónsson.
I 3.-4. sæti vom Guðmundur
Gíslason og Kristján Eðvarðsson
með 6 v., Björgvin Víglundsson,
Haukur Angantýsson og Sigurður
Daði Sigfússon höfðu 5,5 v. og bið-
skák, Heimir Ásgeirsson, Jóhann
H. Sigurðsson og Bragi Þorfinns-
son, sem aðeins er tíu ára gamall,
höfðu 5,5 v. og deildu 8.-16. sæti.
Hannes Hlífar Stefánsson hafði 5
v. og biðskák og með 5 v. komu
Guðfríöur Lilja Grétarsdóttir, Arn-
ar Gunnarsson, Júlíus Friðjóns-
son, Dan Hansson, Ingvar Jóhann-
esson og Sigurbjöm Bjömsson.
Níunda umferð var tefld í gær-
kvöldi, tíunda umferð hefst kl. 14 á
morgun, sunndag, og ellefta og síö-
asta umferð verður tefld í Faxafeni
12 á miðvikudagskvöld. JLÁ