Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Síða 31
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992.
43
Reykjavík fyrr og nú
Æskuheimili Ólafs Thors
Nú, þegar hundraö ár eru liðin frá
fæðingu Ólafs Thors, er vel við
hæfi að staldra við hjá Fríkirkju-
vegi 11 - æskuheimili þessa dáða
stjómmálaleiðtoga. Húsið er senni-
lega glæsilegasta einbýlishús sem
reist hefur verið á íslandi. Þá er
Höfði ekki undanskilinn, því þó
hann hafi verið stórt og reisulegt
höfðingjasetur og fyllilega samboð-
inn þeim Einari Benediktssyni,
Reagan og Gorbtasjov, jafnast hann
í engu á við Fríkirkjuveg 11 í glæsi-
leik, íburði og einstaklega vönduð-
um efnivið og frágangi á öllum
sviðum.
Ragnar í Smára lét einhvern tíma
þau orö falla að athafnamaðurinn
væri skáld, og framkvæmdimar
skáldskapur hans. Því má þá ugg-
laust bæta hér við að Korpúlfsstað-
ir og Fríkirkjuvegur 11 eru einhver
fegurstu ljóðin í ljóöabók íslenskra
athafnamanna. Bæði þessi mann-
virki eru augljós vitnisburður um
athafnaþrá og óvenjumiklar gáfur
og verksvit. Þau eru minnisvarði
um stórhug, hugmyndaauðgi,
smekkvísi, skipulagningu og fram-
sýni eins manns sem skákar heilu
hersveitunum af geldum embættis-
mönnum og hrokafullum sérfræð-
ingum nútímans.
Athafnamaðurinn
Thor Jensen
Thor Jensen var fjörutiu og
þriggja ára er hann hóf að reisa
þetta hús yfir fjölskyldu sína árið
1907 en fullbyggt var það vorið 1908.
Hann fæddist í Kaupmannahöfn en
kom til íslands 1878. Thor hafði
verið verslunarsveinn á Borðeyri,
var verslunarstjóri í Borgarnesi
þegar sonur hans, Ólafur, fæddist,
var um skeið mesti sauðabóndi á
Suðurlandi, stundaöi útgerð og
verslun á Akranesi en missti þá
aleiguna og varð gjaldþrota.
Hann gerði stuttan stans í Hafn-
arfirði en flutti til Reykjavíkur með
tvær hendur tómar 1901 og tók þá
aftur til við kaupmennsku af full-
um krafti. Thor braut þá blað í
verslunarsögu höfuðstaðarins,
bauð vandaðri vöru og lægra verð
en dönsku kaupmennirnir í
Reykjavík höfðu komið sér saman
um. Þá hóf hann fljótlega þilskipa-
útgerð og varð nú brátt einn helsti
athafnamaður bæjarins. Hann átti
síðar eftir að stofna og reka um
árabil með sonum sínum lang-
stærsta útgerðarfyrirtæki lands-
ins, reisa síldarverksmiðju, stunda
búskap víða og reisa að Korpúlfs-
stöðum fullkomnasta kúabú á
Norðurlöndum.
Lóð úr túni
landlæknis
Þegar Thor festi kaup á lóð undir
húsið í túni Jónasar Jónassens
landlæknis, á svonefndum Útsuð-
Hús Thors Jensen við Fríkirkjuveg. - Mynd Magnúsar Ólafssonar. - Ljósmyndasafn Reykjavíkurborgar.
urvelh, náði Fríkirkjuvegurinn að-
eins suður að kirkjunni, en vík lá
úr Tjöminni á móts við lóðina, yfir
núverandi Fríkirkjuveg og inn í
núverandi Hallargarö. Thor keypti
víkina af bænum, lét sjálfur fylla
hana upp og varð sjálfur að kosta
framlengingu á Fríkirkjuvegi í suð-
ur, auk þess sem hann lét hlaða
grjótkamb meðfram Tjörninni.
Tjarnargatan var hins vegar komin
að vestanverðu og flest timburhús-
in byggð sem þar standa enn.
Thor teiknaði
húsið sjálfur
Thor, sem var sonur húsasmíða-
meistara, hafði alla tíða yndi af
húsbyggingum. Eftir að hafa
ákveðið húsinu stað fór hann á
Landsbókasafnið og sökkti sér niö-
ur í bækur um byggingarlist. Hann
valdi sér síðan grófa fyrirmynd
sem hann svo breytti og útfærði.
Loks fékk hann Einar Erlendsson
húsasmíðameistara til að gera end-
anlega uppdrætti en smiðinni
stjórnaði Steingrímur Guðmunds-
sonar húsasmiður. Þá sá Thor sjálf-
ur um að panta allt efni í húsið sem
valið var af kostgæfni enda hafði
hann verið helsti timburinnflytj-
andi hér á landi.
Fyrsta hæð hússins eru 268 fer-
metrar að grunnfleti en önnur
hæðin 242 fermetrar. Að kjallaran-
um undanskildum voru fimmtán
herbergi í húsinu. Niöri var eld-
húsið og sex herbergi, skrifstofa
húsbóndans, dagstofa og vinnu-
Ólafur Thors og bræður hans á
tröppum æskuheimilisins - stækk-
un úr gömlu myndinni.
stofa húsfreyjunnar að austan-
verðu en borðstofa, salur og Rauöa
stofan að vestanverðu. Uppi voru
átta svefnherbergi og lestrarstofa.
Þá hafði Thor vínkjallara og þar
var einnig billjardstofa.
í húsinu var vatnslögn fyrir bæði
heitt og kalt vatn sem þá voru
óþekkt þægindi. Stór vatnsbrunn-
ur var á bak við húsið og vatns-
geymir í kjallaranum en vatnið
leitt um rörin með þrýstidælu. Þá
var rafmagn leitt í húsið frá ljósa-
mótor.
Frá öllum öðrum húsum á þess-
um slóðum var skolpinu veitt í
Tjörnina. En Thor tók slíkt ekki í
mál. Hann lét grafa stóra rotþró
bak við húsið sem tók viö skolpinu.
Saga hússins
Thor bjó með fjölskyldu sinni í
húsinu til 1937 en flutti þá að Lága-
felli í Mosfellssveit þar sem hann
bjó til dauðadags 1947. Einn sona
hans bjó síðan í húsinu ásamt fjöl-
skyldu sinni um skeið en 1942 eign-
uðust templarar það. Reykjavíkur-
borg eignaðist Fríkirkjuveg 11 árið
1963 og hefur átt það síðan.
Árið 1967 lá við að borgarstjóm
fremdi eitt af sínum hrikalegustu
fólskupörum í menningar- og
skipulagsmálum (og er þá mikið
sagt). Þá var undirritað samkomu-
lag milli Reykjavíkurborgar og
Seðlabankans um makaskipti á
fasteignunum Fríkirkjuvegi 11 og
Lækjargötu 4 og hugðist Seðla-
bankinn þá reisa bankabyggingu í
Hallargarðinum. Vegna eindreg-
inna mótmæla góðra manna var
þó horfið frá þessu ráðabmggi 1971
en bankinn fékk í sárabætur svæö-
ið norðan við Arnarhólinn til að
djöflast á.
Æskulýðsráð var lengi til húsa
að Fríkirjuvegi 11 og þar var tóm-
stundaathvarf fyrir unglinga á sjö-
unda og áttunda áratugnum.
íþrótta- og tómstundaráð Reykja-
víkurborgar og ferðamálanefnd
borgarinnar nýta nú allt húsið sem
skrifstofur og fundarsali.
Húsið endurbætt
Fríkirkjuvegur 11 var lengi í_
nokkuri niðumíðslu en fljótlega
eftir að Seðlabankamenn urðu frá
að hverfa var farið að huga að við-
haldi og endurbótum á húsinu. Nú
hefur um alllangt skeið verið unnið
markvisst að endurbótum á húsinu
undir stjórn Leifs Blumenstein
byggingafræðings. Fer nú bráðlega
að sjá fyrir endann á því markmiði
að koma húsinu í sem nákvæmleg-
ast upprunalegt horf.
Lengst til vinstri á gömlu mynd-
inni sér í annað glæsilegt einbýhs-
hús, Næpuna, sem landshöfðingi
lét reisa sér árið 1903. Upp af stóru
svölunum sér í þakið á Laufásvegi
22, húsi þeirra Erlings Gíslasonar
leikara og Brynju Benediktsdóttur
leikstjóra. Þar sunnan við en ofar
í holtinu sér svo á hús í byggingu
sem hjálpar okkur að aldursgreina
myndina. Þaö er Þingholtsstræti
33, hús Þorsteins Erlingssonar
skálds sem byggt var 1911.
Gamla myndin, sem hér birtist,
var tekin af Magnúsi Ólafssyni ljós-
myndara. Hún er varðveitt hjá
Ljósmyndasafni Reykjavíkurborg-
ar á glerplötu sem er 24 x 30 cm.
Ugglaust er þetta besta gamia
myndin af húsinu sem völ er á. Auk
þess er hún skemmtilegt dæmi um
það hvað gamlar ljósmyndir kunna
að geyma ef vel er að gáð. Þegar
Eyjólfur Halldórsson, forstöðu-
maður Ljósmyndasafnsins, valdi
myndina fyrir DV, datt honum í
hug að láta stækka upp þann hluta
myndarinnar þar sem mennirnir
standa á tröppunum. Og viti menn,
í ljós kemur að það er enginn ann-
ar en Ólafur Thors, þá nítján ára,
sem stendur efst á pallinum. Neðar
situr sennilega Haukur bróðir hans
undir yngsta bróðurnum, Hilmari.
Thor Jensen og
ráðhús Reykjavíkur
í hinu þráláta karpi um ráðhús
við Tjömina var þeirri athyglis-
verðu hugmynd hreyft nokkrum
sinnum að réttast væri að gera hús
Thors Jensen að ráðhúsi en að
húsabaki eða jafnvel neðanjarðar
og baka til mætti bæta við húsið
skrifstofuálmum í stíl við aðalhús-
ið sjálft.
Ýmislegt bendir til þess að Davíð
Oddsson hafi um nokkurt skeið
verið hrifinn af þessari hugmynd
þó hún næði ekki fram að ganga
þegar upp var staöið.
Minningu Thors Jensen hefði
verið sýndur verðugur sónii með
þessari tilhögun. Hún hefði orðið
vitnisburður um sjálfstæði og
menningarlega reisn Reykvíkinga.
Þá hefði hús Thors Jensen við
Tjörnina orðið okkur skemmtileg
ábending um hvort tveggja í senn:
að einstaklingar geta hugsaö stórt
á eigin ábyrgð og yfirvöld geta far-
ið sparlega með almannafé.
Kjartan Gunnar Kjartansson
A T A T?í~\OOT T IV /rrVOT7»T7»T T CD 717»
ALAr O^^l 1 JVLO^-b LLLuJjÆ
Lopi - band - bómullarpeysur - ullarpeysur -
værðarvoðir - fínullarnærföt
Opið daglega frá kl. 10.00-18.00, einnig sunnudaga.
Sendum í póstkröfu, sími 91 -666303.
ERT ÞÚ
ÖRUGGLEGA
ÁSKRIFANDI?
EINN BÍLL Á
MÁNUÐI í
ÁSKRIFTAR-
GETRAUN
. . . OG SIMINN ER 63 27 00