Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Side 33
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992. 45 Trimm f slandsmótið í þolfimi: Allir geta verið með - segir framkvæmdastjóri keppninnar „íslandsmótið í þolfimi verður haldið á Hótel íslandi sunnudaginn 8. mars næstkomandi. Það er mik- iil áhugi á þessari grein hérlendis og við erum bjartsýn á að þetta gangi vel. Undirbúningurinn er kominn á góðan skrið en ég vil sér- staklega taka fram að það geta allir verið með og hægt er að skrá sig til leiks á velflestum líkamsræktar- stöðvum," sagði Gunnlaugur Rögn- valdsson, framkvæmdastjóri ís- landsmótsins í þolfimi, í stuttu spjalli við DV. Eins og greint hefur verið frá hér á trimmsíðu DV stendur fyrir dyr- um íslandsmót í þolfimi og verður frekari umfjöliun um keppnina á næstu vikum en tafið er að um 6-7000 manns stundi þessa iðju hér- lendis. Hér er um nýjung að ræða en keppt verður í karla-, kvenna- og paraflokki. Að sögn Gunnlaugs verður einstaklingskeppninni þannig háttað að alfir þátttakendur verða á sviðinu í einu í 45 mínútur sem er álíka og lengd eins þolfimi- tíma. Síðan verða tólf valdir úr til að gera skylduæfingar í átta mínút- ur og loks verður fækkað niðin- í átta þátttakendur. Þeir munu gera eigin rútínu eða æfingar í tvær mínútur og síðan verða krýndir íslandsmeistarar. Í paraflokki verður farið í gegnum tvö síðar- töldu stigin. Glæsileg verðlaun eru í boði fyrir sigurvegarana í öllum flokkum en .. .,----------------í þoKimi verður keppt í þremur flokkum, það er karla-, kvenna- og paraflokki. Það er þvi hæpiðað þessi æfing sjáist á sviðinu á Hótel íslandi en þó er aldrei að vita. DV-myndir Brynjar Gauti þar ber hæst aö þeir verða sendir á heimsmeistaramótið í Japan sér að kostnaðarlausu. Dómarar á þessu fyrsta íslandsmóti í þolfimi verða þrír, tveir erlendir og einn innlendur. Samfara keppninni þann 8. mars verða ýmsar uppá- komur í gangi sem fjafiað verður um síðar. Þeim sem hafa áhuga á að vera með er bent á auglýsingu hér á síðunni er lýtur aö skráning- arstöðum. -GRS Þolfimi snýst greinilega ekki bara um að puða og púla. Talið er að á milli 6000 og 7000 manns stundi þolfimi hérlendis og þar Sigurvegarar á íslandsmótinu í þolfimi verða sendir til þátttöku á heims- á meðal er þessi unga snót sem hér gerir æfingu, sem trimmsíðan meistaramótinu í Japan sér að kostnaðarlausu. veit ekki hvað heitir, af mikilli einbeitingu. Nýtt á íslandi: Sjálfsvamarlistin aikido anna. DV-myndir GVA í Gallerí Sport í Mörkinni 8 í Reykjavík gefst nú fólki tækifæri á að læra sjálfsvamarlistina aikido. Hér er um nýjung að ræða og aikido bætist því í hóp austurlenskra íþróttagreina sem þegar eru kenndar hérlendis en auk áöumefndrar greinar má nefna að staðurinn býður upp á kennslu í t.d. júdó og karate. Marteinn Þórðarson kennir aikido og hann hefur tekið saman nokkra punkta um þessa sjálfsvamarfist. •Eðfi aikido er hringlaga hreyfingar sem án undantekninga fylgja lögmál- um náttúmnnar. Markmiðið með þessum hreyfingum er að víkja und- an áreitni í umhverfinu en ekki streitast á móti. Aikido er nútíma sjálfsvamarlist, þróuð út frá hefðum og siðum samúræjanna en gmnd- völluð af Morihei Usehiba. O-sensei, eins og Usehiba var ætíð nefndur, hafði þegar á unga aldri vald yfir ýmsum sjálfsvamarkerfum og þekkti leyndarmál þeirra. Á sínum bestu árum tókst honum að þróa upp jákvætt sjálfsvamarkerfi í anda frið- ar er hann nefndi aikido. Það sem vakti fyrir O-sensei var að gera iðkendur sjálfsvamarlista siðferðislega eða móralskt meðvitaða rnn ofbeldi og hann sagði að í bar- daga fyndust fjögur þroskastig. Aikido er ekki tækni til að útrýma óvini og kjarninn er, í örstuttu máfi, friður og samræming. Aikido er að grunngerð alls staðareins en mögu- leikamir til aö tengja saman hreyfi- mynstur em óendanlegir. Sá stíll, sem mesta áherslan verður lögð á í Gallerí Sport, heitir Hombo-Dojo. -GRS S U Z U K I Skráningarstaðir: Reykjavík: Suzuki bílar hf.,xGym 80, Stúdíó Jónínu og Ágpstu, Ræktin og World Class. Kópavogur: Alheimskraftur Hafnarfjöröur: Hress Keflavík: Líkamsrækt Önnu Leu og Bróa, Æfingastúdíó og Perlan Akureyri: Dansstúdíó Alice ísafjöröur: Studio Dan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.