Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Qupperneq 46
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992.
58
Afmæli " r»v
Matthías Guðmundsson
Matthías Guðmundsson, fyrrv. ban-
kaútibússtjóri Útvegsbankans á
Akureyri, Þórunnarstræti 91, Akur-
eyri, verður sjötugur á morgun.
Starfsferiil
Matthías fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk gagnfræða-
prófi í Reykjavík en stundaði síðar
nám við bréfaskóla, íslenska og er-
lenda og hefur sótt mikinn fjölda
námskeiða, hér á landi og erlendis.
Matthías hóf störf hjá Útvegs-
banka íslands í Reykjavík 1938 og
vann þar ýmis störf. Hann starfaði
við útibú bankans á Siglufirði
1945-46 og við útibúið í Vestmanna-
eyjum 1947. Þá var hann deildar-
stjóri í innheimtudeild í nokkur ár,
útibússtjóri á Seyðisfirði 1967-78 og
útibússtjóri á Akureyri 1978-82 er
hann fór á eftirlaun.
Matthías hefur m.a. verið fram-
kvæmdastjón.Akureyrardeildar
Rauða kross íslands.
Fjölskylda
Matthías kvæntist 12.7.1947 Helgu
Torfadóttur, f. 20.2.1926, fulltrúa á
FMST. Hún er dóttir Torfa Tímot-
eussonar, skipstjóra á Siglufirði, og
Ásdísar Sigurgeirsdóttur húsmóð-
ur.
Böm Matthíasar og Helgu eru
Guðmundur, f. 15.7.1948, stýrimað-
ur á rækjutogara, búsettur í Nova
Scotia, kvæntur Anne Matthíasson
fasteignasala og er stjúpdóttir Guð-
mundar Barbara; Torfi Rafn, f. 25.3.
1951, verslunarstjóri í Hagkaupi í
Skeifunni, kvæntur Sunnevu
Filippusdóttur, kennara við Öskju-
hlíðarskóla, og em börn þeirra
Helga, f. 1977, og Harpa, f. 1979; Ás-
geir, f. 16.2.1954, verkfræðingur í
Kópavogi, kvæntur Önnu Sigurðar-
dóttur fóstru og er sonur þeirra
Hlynur, f. 1975; Rósa, f. 7.11.1958,
d. 2.6.1959; Amar, f. 19.11.1964, nemi
við HÍ, og er sambýliskona hans
Anna Kristín Arnardóttir, nemi viö
KHÍ.
Systkini Matthíasar: Þorsteinn, f.
13.5.1923, prentari í Los Angeles,
kvæntur Margréti Jónasdóttur og
eiga þau ijögur börn; Gunnar, f.
26.12.1924,forstjóri og eigandi flutn-
ingafyrirtækisins GG, var kvæntur
Sigríði Eiríksdóttur og áttu þau
saman sex börn; Anna, f. 23.8.1926,
skrifstofumaður hjá GG, var gift
Ragnari Thorvaldsson og áttu þau
saman þrjú börn; Pálína, f. 15.2.1928,
kennari við Vogaskóla, ekkja eftir
Sigurö Sigurgeirsson og áttu þau
sex börn; Rósa, f. 25.3.1930, gift
Bjarna Braga Jónssyni aðstoðar-
seðlabankastjóra og eiga þau þijú
börn.
Hálfbræður Matthíasar; Aðal-
steinn, f. 8.8.1893, fyrrv. afgreiðslu-
maður hjá Olís, kvæntur Vilborgu
Jónsdóttur og eiga þau fjögur böm,
og Magnús, f. 13.8.1905, nú látinn,
var þríkvæntur og eignaðist sex
böm.
Foreldrar Matthíasar voru Guð-
mundur Matthíasson, f. 22.9.1874,
d. 27.4.1949, verkstjóri og kaupmað-
ur í Reykjavík, og Sigurrós Þor-
steinsdóttir, f. 15.7.1896, d. 11.7.1971,
húsmóðir.
Ætt
Guðmundur var sonur Matthías-
ar, sjómanns í Litla-Landi við Lind-
argötu í Reykjavík, Péturssonar,
ættaður af Álftanesi. Móðir Guð-
mundar var Guðrún Sigurðardóttir
frá Háleggsstöðum.
Sigurrós var dóttir Þorsteins,
Horni í Austur-Skaftafellssýslu,
bróður Katrínar, fóðurömmu Lúð-
víks Jósepssonar, fyrrv. ráðherra.
Þorsteinn var sonur Þorsteins, b. á
Felli, bróður Auðbjargar á Brunn-
um, langömmu meistara Þórbergs
og Gunnars Benediktssonar rithöf-
undar, Svavars Guðnasonar list-
málara og Steins Stefánssonar,
Matthias Guðmundsson.
skólastjóra á Seyöisfirði. Þorsteinn
á Felh var sonur Sigurðar, b. að
Kálfafelli og á Reynivöllum í Suður-
sveit, þar sem afkomendur hans búa
enn, Arasonar. Móðir Þorsteins á
Felh var Guðný Þorsteinsdóttir.
Móðir Þorsteins Þorsteinssonar var
Lovísa Jónsdóttir. Móðir Sigurrósar
var Halldóra, systir Stefáns, afa
Stefáns Jónssonar, rithöfundar og
alþingismanns. Hahdóra var dóttir
Jóns, b. á Hvalnesi í Lóni, Stefáns-
sonar.
Til hamingju með afmælið 1. febrúar
Svava Guðmundsdóttir,
Hátúni 10, Reykjavík.
70ára
Jóhanna Gunnarsdóttir,
Bólstaðarhlið 58, Reykjavik.
Húneraðheiman.
Margrét Theódórsdóttir,
Norðurgötu 7, Siglufirði.
Steingerður Theódórsdóttlr,
Aðalbraut 19, Raufarhöfn.
Jóhann Sigurjónsson,
Bjarkargötu 8, Patreksfirði.
Gústaf Jónasson,
Heiðarbrún 1, Hveragerði.
Fjóla Guðbrandsdóttir,
Brennihhð 7, Sauðárkróki.
Matthildur Jóhannsdóttir,
Mariubakka 26, Reykjavík.
Jóhann Guðmundsson,
Núpabakka 19, Reykjavik.
Sigurður Guðmundsson,
Markarvegi 1, Reykjavík,
ÞórGunnarsson,
60 ára
Lára Hansdóttir,
Reykjahlíð8, Reykjavik.
Páii Sæmundsson,
Bergþórugötu 11, Reykjavík.
Árni S. Norðijörð,
Grxmdarlandi 20, Reykjavík.
Sigvaidi Jóhannesson,
Tungufelh v/Suðurlandsbr.,
Reykjavík.
Jakobina Ingadóttir,
Hrauntungu 103, Kópavogi.
Nesvegi48, Reykjavík.
Svava Sigurbjörg Hjaltadóttir,
Seilugranda 8, Reykjavík.
Ingibjörg Pálsdóttir,
Álftalandi 9, Reykjavik.
Hrönn Sigurðardóttir,
Álfaskeiöi 98, Hafnarfirði.
Guðmundur B. Magnússon,
Kvíabala3, Kaldrananeshreppi.
Stephen Paul Jones,
Þórunnarstræti 93, Ákureyri.
Ásta Sigríður Sigtryggsdóttix,
Huldubraut 17, Kópavogi,
Amgunnur Atladóttir,
Kríuhólum 4, Reykjavik.
Hrafnhiidur Gunnlaugsdóttir,
Bergstaðastræti 49, Reykjavík.
Kantarnir brjótast um
buxnabrúnina og varna leka
LIBRESSE PLUS MEÐ HLÍFUM GAGNVART LEKA
3 Libresse plus verður hluti
af buxunum
Ragnhildur Þorgeirsdóttir
Ragnhildur Þorgeirsdóttir, Álfa-
skeiði 49, Hafnarfirði, er sjötug í
dag.
Starfsferill
Ragnhhdur er fædd að Króki í
Grafningi í Árnessýslu og ólst þar
upp fyrstu fjögur árin en eftir það
að Háteigi í Garðahverfi við Hafnar-
fjörð.
Ragnlúldur hefur unnið ýmis störf
en var starfsmaður Bókasafns
Hafnarfiarðar síöustu 16 árin.
Ragnhildur hefur tekið töluverð-
an þátt í félagsstarfi. Hún var virk
í starfi Verkakvennafélagsins
Framtíðarinnar í Hafnarfirði og var
ritari þess 1955-57 og 1969-73.
Ragnhildur hefur verið í búsett í
Hafnarfirði allan sinn búskap.
Fjölskylda
Ragnhildur giftist 1.2.1947 Sæ-
mundi Breiðfiörð Helgasyni, f. 23.10.
1916, vélstjóra. Foreldrar hans voru
Helgi Kristján Guðmundsson bóndi
og Steinunn Helga Guömundsdóttir
húsfreyja en þau bjuggu að Svína-
nesi í A-Baröarstrandarsýslu.
Synir Ragnhildar og Sæmundar:
Þorgeir, f. 20.11.1947, húsgagna-
smíðameistari, maki Margréti Guð-
mundsdóttir sjúkraliði, þau eiga
þijár dætur, Ragnhildi Önnu, Báru
Kristínu og Höllu Eyberg; Helgi, f.
14.2.1951, prentari, maki Guðbjörg
Harðardóttir, húsmóðir með meiru,
þau eiga þrjú börn, Hörö Guðna,
Sæmund Breiðfiörð og Evu Dögg.
Ragnhildur og Sæmundur eiga tvö
bamabamabörn.
Ragnhhdur á einn bróöur á lífi,
Magnús vélstjóra, maki Ingibjörg
Þorleifsdóttir húsmóðir. Þgu eru
búsett á Akranesi og eiga fimm syni.
Foreldrar Ragnhildar voru Þor-
Ragnhildur Þorgeirsdóttir.
geir Þórðarson bóndi.f. 12.5.1891,
d. 16.5.1971, og AnnaMagnúsdóttir,
f. 12.8.1892, d. 28.1.1988, húsfreyja,
en þau bjuggu að Háteigi í Garða-
hverfi og í Hafnarfirði.
Ragnhildur er að heiman.
Gunnar Sigurdsson
Gunnar Sigurðsson, fyrrv. vara-
slökkvihðsstjóri, Álfheimum 27,
Reykjavík, sem nú dvelur að
Reykjalundi í Mosfellsbæ, verður
sjötíu og fimm ára á morgun.
Starfsferill
Gunnar fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk prófi frá
Iðnskólanum 1937, stundaöi nám í
járnsmíði hjá Magnúsi Jónssyni og
lauk sveinsprófi í rennismíði 1939
en meistarabréf í þeirri iðngrein
öölaðist hann 1942. Þá lauk hann
vélsfióraprófi frá Vélskóla íslands
1941 og stundaði nám í Brand-
instruktor við Civilforsvarets Tekn-
iske Skole í Tinglev í Danmörku og
lauk þaðan námi 1966.
Gimnar starfaði í vélsmiðjunni
Kih, Hamri og Héðni á meðan á
námi stóð. Hann var formaður UMF
Aftureldingar í Mosfehssveit
1953-55 og 1958 og varaformaður
UMSK1954-59. Þá sat hann í stjórn
Starfsmannafélags Reykjavíkur
1955-59, í stjórn ÍR1942 og 1943 og
var formaður ÍR1965-72.
Fjölskylda
Gunnarkvæntist20.6.1945 Ragn-
hildi Guðmundsdóttur, f. 10.8.1919,
d. 26.11.1984, húsmóður.
Synir Gunnars og Ragnhiidar eru
Guðmundur, f. 1948, garðyrkjub. á
Flúðum, kvæntur Helgu Guðnýju
Hahdórsdóttur kennara og eiga þau
þijú böm, Stefán Ara, f. 1975, Ragn-
hildi, f. 1979, og Sigrúnu, f. 1985; Sig-
urður Ágúst, f. 1953, forstjóri Happ-
drættis DAS, kvæntur Guðrúnu
Björk Bjömsdóttur læknaritara og
eiga þau þijár dætur, írisi Björk, f.
1974, Ragnhildi, f. 1976, og Birnu
Sif, f. 1983.
Systkini Gunnars eru Sigurgísli,
f. 1923, húsgagnaarkitekt og eftirhts-
maöur hjá Grunnskólum Reykja-
víkur, kvæntur Eddu Vikar Guð-
mundsdóttur og eru börn þeirra
Guðmundur Vikar læknir, Hilmar,
fyrrv. landsliðsmaður í handknatt-
leik; Hjördís arkitekt og Sjöfn mat-
vælafræðingur; Bára, f. 1930, hús-
móðir, gift Reyni Þórðarsyni bygg-
ingameistara og eru börn þeirra Sig-
urður byggingameistari, Þórunn,
fulltrúi hjá Flugleiðum, og Hafdís
fóstra.
Foreldrar Gunnars voru Sigurður
Ágúst Guðmundsson, f. 1883, d. 1950,
skipstjóri í Reykjavík, og Gíshna
Sigurðardóttir, f. 1891, d. 1990.
Ætt
Sigurður Ágúst var sonur Guð-
mundar yngra, sjómanns og öku-
manns í Reykjavík, Jónssonar, b. á
Hóh í Grindavík, Jónssonar. Móðir
Guömundar var Elín Guðmunds-
dóttir. Móðir Sigurðar Ágústs var
Guörún Jónsdóttir, b. á Þórodds-
stöðum í Sandgerði, Þórðarsonar, í
Meðalholti í Flóa, bróður Ögmund-
ar, langafa Errós. Þórður var einnig
bróðir Guðrúnar, móður Salvarar,
langömmu Bjöms Th. Bjömssonar
hstfræðings en bróðir Salvarar var
Þorkeh í Helgadal, afi Beneditks
Kristjánssonar, hestamanns og
íþróttamanns á Reykjum í Mos-
fehsbæ. Þórður var sonur Þorkels,
b. á Heiðarbæ í Þingvahasveit,
Loftssonar, b. á Heiðarbæ, Þóróifs-
sonar. Móðir Þórðar var Salvör,
systir Salbjargar, langömmu Tóm-
Gunnar Sigurðsson.
asar Guömundssonar skálds. Salvör
var dóttir Ögmundar, b. á Hrafn-
kelsstöðum, Jónssonar, b. þar, Jóns-
sonar, b. á Stóra-Núpi, Magnússon-
ar í Bræðratungu og Þórdísar Jóns-
dóttur, Snæfríðar íslandssólar.
Gíslína var dóttir Sigurðar, sjó-
manns á Helgastöðum í Reykjavík,
Jónssonar, b. á Hofi á Kjalarnesi,
Runólfssonar, b. á Ketilsstöðum,
Magnússonar, b. á Bakkaj Hall-
grímssonar, sálmaskálds ogprests
að Saurbæ á Hvalfiarðarströnd, Pét-
urssonar. Móðir Jóns á Hofi var Sig-
ríður Ólafsdóttir. Móðir Sigurðar á
Hofi var Ástríður Sigurðardóttir, b.
á Hofi, Þórólfssonar og Margrétar
Loftsdóttur.
Gunnar tekur á móti gestum á af-
mælisdaginn í Oddfehowshúsinu í
Vonarstræti frá klukkan 15.00-
18.00.