Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1992, Blaðsíða 52
LOKI
Er ekki nóg að Markús
fari í gönguferðir
um miðbæinn?
LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 1992.
Guðmundur J.:
Forkastanleg
framkoma
* bankannaí
vaxtamálum
„Framkoma bankanna í vaxtamál-
unum er hreint út sagt forkastanleg.
Þeir eru aö tala um 0,5 til 1,0 prósent
vaxtalækkun þegar augljóst er að
raunvextir þurfa aö fara niður í 6 til
7 prósent og nafnvextir í 11 prósent.
Meö þessari framkomu eru stjóm-
endur bankanna að leiða yfir okkur
gengislækkun. Fyrirtækin, sem segj-
ast ekki geta greitt krónu í kaup-
hækkun, verða að sæta þessum ok-
urvöxtum sem bankamir halda uppi.
Það getur ekki endað nema með
' W gengislækkun og veldur því pati sem
nú er hjá stjómendum fyrirtækja.
Meðan bankamir komast upp með
þessa háu vexti er allt í voða. Eg segi
alveg eins og er: ég óttast að þessi
framkoma bankanna setji yfirstand-
andi kjarasamninga í alvarlega
hættu. Þetta gæti allt spmngið í loft
upp hjá okkur,“ sagði Guðmundur
J. Guðmundsson, formaður Dags-
brúnar og stjórnarmaður í VMSI, í
samtali við DV í gær.
Guðmundur sagði að það væri mik-
^ il reiði ríkjandi hjá aðilum vinnu-
markaðarins vegna framkomu bank-
anna. Menn hefðu gert allt sem þeir
gátu til að fá vexti lækkaða. Það
væri forsenda þess að hægt væri að
ljúka kjarasamningum að þessu
sinni. Og aðilar vinnumarkaðarins
hefðu búist við miklu meiri, raunar
umtalsverðri vaxtalækkun að þessu
sinni. Sú von hefði nú bmgðist.
Hann sagði að strax í byijun næstu
viku mætti búast við að kjarasamn-
ingaviðræður hæfust fyrir alvöru en
hann sagðist jafnframt óttast að við-
ræðumar færa út um þúfur vegna
vaxtanna. -S.dór
-sjáeinnigbls.4
ORYGGISSIMINN
Vandað og viðurkennt öryggistæki
tyrir þig og þó sem þér þykir vænt um
Sala - Leiga - Þjónusta
®.91*29399
Y+Jr Allan sólarhringinn
Oryggisþjónusta
¥ARI síðan 1 969
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Kuldi og sums staðar él
Á sunnudag em horfur á norðvestan- og vestanátt og kulda. É1 verða um vestan- og norðvestanvert landið en annars stað-
ar þurrt. Kaldast verður á Vestfjörðum, 6 stiga frost. Á mánudag verður hæg, breytileg átt og víðast þurrt. Fremur kalt verður
í veðri, kaldast á Norður- og Norðausturlandi.
gjöldum af mótorhjólum. Allir félagsmenn, um 300 talsins, hafa sagt upp tryggingum sínum hjá tryggingafélögunum
í mótmælaskyni. Fremst á myndinni sjást fulltrúar í trygginganefnd Sniglanna, Jón Páll Vilhelmsson, Haukur Helga-
son, Þorsteinn Marel Júlíusson, Þórður G. Sigfríðsson og Sonja Viktorsdóttir. - Sjá nánar á bls 4. DV-mynd GVA
Sprenging 1 Súlunni E A:
Sáum fyrst ekk-
ert fyrír reyk
- vélstjóri brenndist
„Við vorum að kasta og ætluðum
að fara að draga nótina þegar það
varð sprenging í vélinni. Það
sprungu tveir skoiloftsblásarar. Ég
var úti. Það kom bara hvellur og það
drapst á vélinni. Síðan fylltist allt af
reyk inni og við sáum ekki neitt
fyrst,“ sagði Kristinn Snæbjömsson,
stýrimaður á loðnuskipinu Súlunni
EÁ 300, í samtali við DV í gær.
Varðskip kom með Súluna í togi til
Norðfjarðar í gærkvöldi eftir að skip-
ið varð vélarvana við Lónsbugt í
fyrrinótt. „Vélstjórinn kom fljótlega
upp sjálfur. Hann var að fara niður
þegar vélin fór á yfirsnúning. Þegar
drashð sprakk var hann að fara yfir
vélina. Hann brenndist á hægri
handlegg upp að öxl, í andliti og hár-
ið sviðnaði. En það var ekki alvar-
legt,“ sagði Kristinn.
Varðskipsmenn gerðu að sárum
mannsins sem brenndist. Gert er ráð
fyrir að um tvo sólarhringa taki að
gera við vélina.
-ÓTT
Laun lögreqlumanna
lækka um 20 milljónir
Starfsemi lögreglunnar i Reykja-
vík verður skorin niöur um sextfu
milljónir króna á yfirstandandi
fjárlagaári. Lögregian mun hafa
um 880 milljónir króna til ráðstöf-
unar. Að sögn lögreglusfjóra mun
niðurskurðurinn mest bitna á yfir-
vinnu og mun aö því leyti hafa
launalækkun lögreglumanna í fór
með sér. Fastráönum veröur ekki
sagt upp en ráðningar í afleysingar
skomar niður um meira en helm-
ing. Um þriðjungur niðurskuröar-
ins felst í minni flárfestingum.
„Þegar írumvarpið var sett upp
var gert ráð fyrir 58 milljón króna
niðurskurði á launaliðum en 2
milljónum á öömmgjöldum," sagði
Böðvar Bragason iögreglustjóri við
ÐV. „Ég vil nálgast þetta öðmvísi
og skera niður önnur gjöld vera-
lega - meira heldur en þarna er
talað um. Hér era almenn rekstrar-
gjöld um 200 milljónir á ári og fjár-
festingar áætlaðar 25 mílljónir í
bíla og tæki. Af þessum200 milljón-
um vil ég mjög gjarnan skera niður
um 20 milljónir en afgangurinn
verði af launahðum.
Við getum sagt að hátt í 20 millj-
ónir muni sparast vegna yfirvinnu.
En sumarafleysingar munu
minnka um mcira um helming -
þaö gefur hugsanlega eitthvað á
bilinu 15-20 milljónir. Með þessu
móti tel ég einhvern möguleika á
að framkvæma þetta.“
- Hvernig kemur þetta niður á
þjónustu við stofnanir og borgara?
„Það segir sig sjálft að lögreglan:;
: í Reykjavík verður öðnivísi eftir
að niðurskurði af þessu tagi er
beitt,“ sagði Böðvar.
Tveir fjölmennir fundir hafa ver-
ið haldnir á lögreglustöðinni i
Reykjavík þar sem tölur um sparn-
að vora kynntar í grófmn dráttum.
-ÓTT
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjóm - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 63 27 00