Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1992, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1992, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1992. Fréttir________________________________________ Ördeyðan á VestQarðamiðmn: Ovenjulega hár sjávar- hiti orsök að hluta - segir Guðjón A. Kristjánsson, skipstjóri á Páli Pálssyni ÍS „Það er vissulega rétt að ástandið hefur ekki verið gott á Vestfjarða- miðum að undanfömu. Hinu er ég ekki sammála að ekki sé nóg af fiski að vaxa upp á miðunum. Hér er svo mikið af smáfiski að um og upp úr síðustu helgi urðu skyndilokanir hólfa svo miklar hér að segja má að Vestfjarðamið séu lokuð um þessar mundir, allt frá Djúpál og vestur fyr- ir Strandagmnn. Þetta gerðist um leið og kaldi sjórinn kom upp í síð- ustu viku. Þá kom smáfiskurinn með. Hér er um að ræða eins og tveggja ára gamlan fisk. Ég skal játa að þótt maður megi ekki veiða þetta var maður feginn að sjá allt þetta magn í mælitækjunum," sagði Guð- jón A. Kristjánsson skipstjóri þegar DV ræddi við hann í gær þar sem hann var um borð í skipi sínu, Páli Pálssyni. Guðjón sagöi það rétt að lítið væri af fjögurra til sex ára fiski sem ætti að vera uppistaðan í aflanum. Hann sagöi að minna væri af honum nú en undanfarin ár. „Hinu mega menn ekki gleyma í þessu sambandi að hitastig sjávar hér á Vestfjarðamiöum er langt frá því að vera eölilegt. Hér er sjór fjög- urra til fimm gráöa heitur nú í byrj- un febrúar. I venjulegu árferði er hann frá núlli og upp í tveggja gráða heitur í janúar og febrúar. Sjórinn var kominn niður í eölilegt hitastig í desember en síðan gerði þráláta suðvestanátt í janúar og sjór fór hlýnandi í stað þess að kólna. Þegar sjór kólnar þjappast fiskurinn saman en það gerðist auðvitaö ekki. Þaö sem aftur gerðist um síöustu helgi var að upp kom hafís og köld sjótunga og um leið þjappaðist fiskurinn saman. Fyrst í stað var nokkurt fiskirí en síðan var hólfunum lokaö eins og ég sagði áðan vegna þess hve mikill smáfiskur var í aflanum," sagði Guð- jón. Hann sagðist ekki búast við neinu kraftfiskiríi á næstunni en benti á að afli línubáta í köntunum fyrir vestan land hefði verið mjög góður, og þaö af stórum fiski. Það benti til þess að slíkur fiskur væri til ennþá, enda þótt togaramir hefðu ekki náð honum enda færi aldrei saman góð veiði á línu og í troll. „Ég er því alls ekki svo svartsýnn en ég veit að við förum ekki að fiska neitt af ráði í trollið hér fyrir vestan fyrr en loðan kemur og þorskurinn á eftir,“ sagöi Guðjón A. Kristjáns- son. -S.dór Sameining Landakotsspítala og Borgarspitala: Höngum ekki yf ir þessu f ram yf ir mánaðamót - segir framkvæmdastjóri Landakotsspítala Fulltrúar Landakotsspítala og Borgarspítalans funda nær daglega til að ræða sameiningu spítalanna. Gert er ráð fyrir að ríkið komi inn í viðræðumar á næstu dögum. Fýrir liggur samþykki St. Jósefssystra fyr- ir sameiningu en ekki er aö vænta endanlegrar afstöðu af þeirra hálfu fyrr en endanleg samningsdrög liggja fyrir. Búist er við niðurstöðu úr þess- um viðræðum á næstu dögum. Eins og DV greindi frá í gær leggj- ast St. Jósefssystur alfarið gegn því að Landakotsspítali verði gerður að hjúkrunarstofnun fyrir aldraða, eða elliheimili eins og þær kalla það. Vilja þær að spítalinn verði rekinn með því sem næst óbreyttu sniði. Af hálfu heilbrigisráðherra hefur hins vegar komið fram sá vilji að fjölga öldmðum hjúkrunarsjúkhngum til muna á spítalanum. Að sögn Loga Guöbrandssonar, framkvæmdastjóra Landakotsspít- ala, miöa viðræðumar við Borgar- spítalann að framtíðarlausn en snerta að litlu leyti núverandi rekstr- arerfiðleika á spítalanum. Hann seg- ir samningamenn sína hafa fulit umþoð yfirstjómar spítalans til þess- ara viðræöna. Aöspurður vildi hann ekki greina frá gangi viðræðnanna. „i dag em það spítalamir sem em í beinum viðræðum og væntanlega em menn í ráðuneytinu að undirbúa þátttöku í þeim. Markmiðið er að semja um sameingu spítalanna. Það er hins vegar ekki sjálfgefið að það takist. Ég get til dæmis ekki ímyndað mér að við höngum yfir þessu fram yfir mánaðamót. Verði ekki komin niðurstaða fyrir þann tíma hljóta viðræðumar aö vera komnar í strand.“ -kaa Loðnu landað úr Guðmundi Ólafi frá Ólafsfirði á Eskifirði. Sameining sjúkrahúsa: Lykillinn aðlausn í hendi systranna „Viö erum ekki komnir að leið- arenda í þessum viðræðum. Núna erum viö að skoða ýmsar skuldbindingar sem hvíla á hvoru sjúkrahúsinu um sig. Einnig erum við að ræða mis- munandi félagsform. Þessir fund- ir standa enn yfir og þeim er alls ekkert lokiö. Það er hins vegar brýnt að niðurstaða fáist í þessi mál,“ segir Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri Borgarspítal- ans, um viöræður sem nú standa yfir milli stjómenda Borgarspít- alans og Landakotsspítala um sameiningu þessara stofnana. Jóhannes segir aö í viðræðun- um sé unnið út frá skýrslu sem starfshópur skilaði fýrir jól. í henni er meðal annars gert ráö fyrir að Landakotsspítali taki í auknum mæli að sér aldraða hjúkrunarsjúkhnga. En er þetta raunhæf forsenda að mati Jó- hannesar í ljósi þess aö st. Jósefs- systur leggjast gegn því að gera Landakotsspítala að elliheimih? „Þetta er forsenda sem við -vinnum út frá. í skýrslunni er gert ráö fyrir samkomulagi sem viö gerum ráö fyrir að gildi í framtíöinni. Systurnar hafa lykil- inn aö lausn málsins í hendi sér. Þær verða að samþykkja breyt- inguna. Þessi niðurstaða hggur fyrir og henni hefur ekki verið breytt ennþá. Þetta eru íorsendur sem unniö er út ffá.“ Jóhannes segir aö í fjárlögum sé gert ráð fýrir að veita 195 millj- ónir til Borgarspítalans í stofn- framkvæmdir verði aö samein- ingu. Aö auki sé gert ráð fýrir tæplega 100 núHjónum til að standa straum af flutningi verk- efna milli sjúkrahúsanna i kjölfar sameiningar. „Við viljum fá þetta mál af- greitt eins fljótt og kostur er. Það gengur ekki, hvorki fyrir okkur né Landakotsspítala, að vera í einhverri óvissu,“ segir Jóhann- es. -kaa í dag mælir Dagfari Þú tryggir ekki effir á Fræg eru þau ummæh sem höfð eru eftir Sigurði Bemdsen að það þurfi stálheiðarlegt fólk til að kveikja í. Stundum hefur verið snúiö út úr þessum orðum Sigurð- ar og jafnvel eru sumir sem ahs ekki skilja inntak þeirra. Halda að í þeim fehst þversögn. En Siggi Bemdsen hafði rétt fyrir sér í þessu sem öðm, enda hefur það marg- komið i ljós að þegar kveikt hefur verið í húsum og öðrum verðmæt- um hefur það hvað eftir annað komist upp, vegna þess að ekki hefur vcrið hægt að treysta þeim sem tóku að sér íkveikjuna. Bmninn í Klúbbnum nú í vik- unni sannar þessa kenningu. Lög- reglan heldur þvi fram að þar hafi verið um íkveikju aö ræða og hneppt eiganda innbúsins i gæslu- varðhald. Bent er á að eldur hafi verið laus á mörgum stöðum í hús- inu samtímis og ahar kringum- stæður gefi tilefni th að halda aö kveikt hafi veriö í góssinu. Ef þessi kenning reynist rétt og fæst sönnuö er það vegna þess að sá sem kveikti í reyndist ekki nógu varkár eöa grandvar maður. Það kemst upp um hann. Það er einmitt þetta sem Bemdsen átti við. Menn verða að geta treyst því að íkveikjan fari þannig fram að enga tortryggni veki og engin verksummerki gefi til kynna annað en að eldur hafi orðið laus fyrir slysni. Nú er það að vísu svo að sá sem situr í varðhaldinu er sami maður- inn og tahnn er eigandi að innbú- inu sem brann. Ef kenning lögregl- unnar reynist rétt getur eigandinn sjálfum sér um kennt að hafa eklci fengið sér betri og vanari mann th að ganga í þetta verk. Eigandinn hefur bmgöist sjálfum sér. Hann hefur ekki haft aðgang að nógu heiðarlegum manni og tahð að hann gæti treyst sjálfum sér. Slíkt á maður aldrei aö gera. Sérstaklega ef maður hefur aldrei kveikt í áö- ur. íkveikjur era vandaverk, sem krefjast vandvirkni og heiðarleika. Annars hggur það alls ekki fyrir að um íkveikju hafi veriö að ræða. Það er ennþá hugarfóstur eitt. Eig- andinn er sakaður um að hafa tek- iö tryggingu rétt áöur en kviknaði í Kiúbbnum. En það getur líka ver- iö thvUjun ein og mikh mhdi að tryggingarfélagið skyldi hafa sam- þykkt trygginguna rétt áður en eld- ur var laus í húsinu. Bruninn gat eiginlega ekki beðið miklu lengur og eigandinn var búinn að ganga hart fram í þvi að innbúiö yrði tryggt og það vora seinustu forvöð. Bruninn rétt slapp fyrir hom og það er ekki vandamál eigandans heldur tryggingarfélagsins að láta plata sig til að taka innbúið í trygg- ingu áður en kviknar í. Trygging- arfélög geta sjálfum sér um kennt að fahast á tryggingar rétt áður en eldsvoðamir bresta á. Það er auövitað hlt th þess að vita aö menn geti ekki átt innbú í friði og tryggt í friði og horft á eign- ir sínar fuðra upp í friði öðravísi en eiga það á hættu að vera stung- ið inn og sakaðir um að hafa kveikt í hjá sjálfum sér. Það getur vel ver- ið að aht hafi verið á hausnum í bihjardinum í Klúbbnum og eldur- inn hafi bjargað því sem bjargað varð, en eigandinn veit að maður tryggir ekki eftir á og hann hafði rænu á því aö eiga fyrir iðgjaldinu og það er ekki honum að kenna þótt eldurinn hafi brotist út með þeim óhepphega hætti að rannsókn bendi th íkveikju. Menn geta ekki staðið yfir branarústum og stjóm- að eldinum. Annaðhvort era menn búnir að kveikja í og forða sér áður en branahðið kemur eða maður er búinn að tryggja sig fyrir annarra manna íkveikjum í trausti þess að stálheiðarlegir menn sjái um að eldurinn komi ekki upp um þá. Langlíklegast er að eigandi inn- búsins í Klúbbnum hafi séö brun- ann fyrir. Hann hafi lagt sig fram um það að fá brunatryggingu og það mátti ekki á mhh sjá hvort tryggingin næðist. Enda var það eins og við manninn mælt, að loks- ins þegar tryggingin fékkst braust út eldur í húsinu. Þetta stóðst aht á endum. íslendingar era glöggir á eldsvoða, sérstaklega þeir sem eiga aht sitt undir því að eldur brjótist út. Það eina sem ber að varast er að eldurinn breiðist þannig út aö tryggingamar og lögreglan fari aö fetta fingur út í góðan og heiðarleg- an bruna. Þess vegna þurfa stál- heiðarlegir menn að vera annars vegar, eins og Siggi Bemdsen var fyrir löngu búinn að finna út. Það tryggir enginn eftir á. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.