Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1992, Page 32
F R ÉTTASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn- Auglysingar-Áskrift-Dreifing: Sirni 632700
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1992.
Vatnsmál borgarmnar:
Mun óska eftír
nafnakalli
- segir Júlíus Hafstein
„Ég mun greiða atkvæði gegn
þessu í borgarstjóm og óska eftir því
að það fari fram nafnakall um þenn-
an lið. Ég vil fá það á hreint hvaða
sjálfstæðismenn ætla virkilega að
taka þetta skref,“ sagði Júlíus Haf-
stein horgarfulltrúi um þá ákvörðun
borgarráðs að auka hlutafé Reykja-
víkurborgar í íslenska vatnsfélaginu
hf. um 4 milljónir króna. Málið verð-
ur tekið fyrir í borgarstjóm í dag.
Þar hyggst Júlíus biðja um nafna-
kall.
„Ég var nú að vonast til þess að
félagar mínir í borgarráði myndu
ekki gera þetta,“ sagði Júlíus. „En
þetta breytir ekki afstöðu minni. Ég
tel að Reykjavíkurborg sé ekki að
stíga þau réttu skref sem hún á að
stíga. Það er hægt aö vinna með út-
flutningsatvinnugreinunum, en með
allt öðrum hætti en þessum. Það gera
menn án þess að vera hluthafar í
einhverjum hlutafélögum. Þetta
skapar óróa í málinu, sem borgaryf-
irvöld hefðu átt að forðast. “ -JSS
Alþingi kemur saman:
Ýmisátakamál
tekinfyrir
næstu daga
Alþingi kemur aftur saman í dag
eftír tveggja vikna hlé sem gert var
að lokinni afgreiðslu á ráðstöfunum
í ríkisfjármálum, bandorminum svo-
kallaða, í janúar. í dag hefst fundur
Alþingis klukkan 10.30 og eru þá fyr-
irspumir á dagskrá.
Strax í upphafi liggja fyrir Alþingi
nokkur stórmál sem án vafa verða
átakamál á þinginu. Þar má sem
dæmi nefna frumvarp um Lánasjóð
námsmanna, frumvarp um fram-
leiðslu, verðlagningu og sölu á bú-
vörum, sem er í tengslum við bú-
vörusamninginn sem gerður var síö-
astliðið vor, og endurskoðun vega-
áætlunar. Ef að líkum lætur verða
þar mörg sjónarmið uppi.
Gert er ráð fyrir að þingstörf standi
fram í miðjan maí. -S.dór
Landakotsspítali:
Þingmennfunda
meðstarfsfólki
Þingmenn Reykvíkinga áttu í gær
fund með starfsmannaráði Landa-
kotsspítala. Þar kom fram að ekkert
samráð hefur verið haft við starfs-
fólkið vegna hugsanlegrar samein-
ingar við Borgarspítalann. Þá finnst
starfsfólki að niðurskurðurinn á
Landakotsspítala umfram önnur
sjúkrahús sé ósanngjarn. -kaa
Pálmi Kristinsson, fram- mismunar verktökum hér innan- „Þetta er það fyrirkomulag um
kvæmdastjóri Verktakasambands lands stórlega." hemaöarlegar framkvæmdir sem
íslands, segir að allt frá stofnun Pálmi segir ennfremur að Verk- tíökast víöast hvar í ríkjum NATO.
þess, eða i 24 ár, hafi það barist takasambandið hafi mótað mjög Ástæðan er eðli framkvæmdanna.
fyrir útboðum á framkvæmdum ákveðna stefnu árið 1988 eftir ára- Þetta eru nú einu sinni hernaðar-
fyrir varnarliðið á Keflavíkurflug- langa baráttu við stjómvöld um legar framkvæmdir."
velli og afnámi einkaréttar fs- mál framkvæmda fyrir vamarlið- Að sögn Pálma óttast hann ekki
lenskra aðalverktaka á fram- ið. samkeppni við erlenda verktaka
kvæmdunum. Kjarninn í þeírri stefhu sé að sett um verk á Keflavíkurflugvelli. ís-
„Við höfum til þessa barist fyrir verði á laggimar opinbert fyrir- lenskir verktakar hafi staðist sam-
daufum eyrum stjómvalda. Mis- tæká, innkaupastofnun vamarliðs- keppni við erlenda verktaka á inn-
réttíð hefur blasað við en svo virð- framkvæmda, sem yrði í eigu ríkis anlandsmarkaði á undanfomum
ist sem fyrst núna sé fólk að átta og sveitarfélaga á Suðumesjum. árum. En því stærra sem viökom-
sig á að núverandi fyrirkomulag á Það myndi annast alla samninga andi verk er því meiri möguleika
vamarliðsframkvæmdum, einka- við vamarliðið um framkvæmdir. hafa erlendu verktakarnir á að ná
réttur íslenskra aðalverktaka, er Þessi aðili byði síðan verkin aftur tíl sín verkinu.
ekki eðlilegir viðskiptahættir og út á fijálsum markaði. -JGH
Það var mikið um prakkarastrik i Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi enda var verið að frumsýna barnaleikritið Emil í
Kattholti eftir Astrid Lindgren. Eins og öll börn vita er Emil ærslabelgur hinn mesti og kunnur að prakkarastrik-
um. Fjögur börn leika aðalhlutverkin tvö, Emil og idu, til skiptis. Á myndinni eru Sturla Sighvatsson og Aníta Briem
en þau léku hlutverkin i gærkvöldi. Með þeim er Þórhallur Sigurðsson, leikstjóri verksins. DV-mynd BG
- sjá leikdóm á bls. 32
Jólin með greiðslukortum:
Tæpir 10
mil|jarðar
Þjóðin stendur í ströngu þessa dag-
ana við að gera upp jóhn. Heildarvið-
skipti íslendinga út á greiðslukort,
fyrst og fremst Visa og Euro, voru í
kringum 9,7 miUjarðar króna um jól-
in. Þar af þurftu korthafar að greiða
um 5,3 mUljarða í gær en hinn 7. jan-
úar síðastUðinn greiddu korthafar
um 4,4 miUjarða.
Visa er meö um 75 prósent af mark-
aðshlutdeildinni. Á þeim bæ einum
áttí að greiða 4 miUjarða í gær og 3,3
miUjarða í byijun janúar. „SkUin
voru góð í byrjun janúar eða um 80
prósent á eindaga. Afgangurinn kom
innframeftirmánuðinum." -JGH
Loðnuskipfékk
pokaískrúfuna
Emil Thorarensen, DV, Eskifiröi:
Loðnuskipið Jón Kjartansson,
Eskifirði, fékk poka loðnunótarinnar
í skrúfuna á loðnumiðunum í gær,
miðvikudag, þar sem skipið var á
veiðum viö Ingólfshöfða. Oskaö var
aðstoöar varðskipsins Óðins.
Varðskipið kom á staðinn kl. 19 en
þrátt fyrir gott veður treystu kafarar
sér ekki tíl þess að fara niður og
skera nótina úr skrúfunni. Ákveðið
var að draga Jón inn á Berufjörð.
Þar verður nótín skorin úr. Skipin
voru væntanleg inn kl. 10 í morgun.
Eldur í sildarbát
Talsverður eldur kviknaði í vélar-
rúmi síldarbátsins Þorsteins GK 16
við Lónsbugt i nótt. Oha spýttist um
vélarrúmið en skipverjum tókst að
slökkva eldinn. Báturinn varð vélar-
vana. Barðinn GK12 tók bátínn í tog
og kom með hann til Fáskrúðsfjarðar
í morgun. -ÓTT
Ráðgjafarnefnd
umþyrluskiliaf
sér fyrir marslok
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra hefur skipað „ráðgjafarhóp“ til
að taka ákvöröun um hvaða þyrlu-
tegund eigi að gera samning um að
kaupa til landsins fyrir Landhelgis-
gæsluna. „Ég hef óskað eftir að þeir
reyni að ljúka þessu fyrir marslok,"
sagði Þorsteinn við DV í morgun.
Nefndina skipa þeir Gunnar Berg-
steinsson, forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar, sem er formaöur, Leifur
Magnússon verkfræðingur hjá Flug-
leiðum, Þorgeir Pálsson prófessor,
Páll Halldórsson þyrluflugstjóri og
Þorsteinn Þorsteinsson ílugvéla-
verkfræðingur. -ÓTT
LOKI
Kemst kortaklippir þá loks-
ins heim?
Veðriöámorgun:
HHiumogyfir
frostmarki
Um landið norðanvert lítur út
fyrir skammvinna noröanátt með
snjókomu eða éljum og vægu
frosti en um sunnanvert landið
verður vestan- eða norðvestanátt
með smáéljum suðvestantil en
léttskýjað suðaustanlands og hití
yfir frostmarki.
Sryggissíminn
Vandað og viðurkennt öryggistæki
lyrir þig og þó sem þér þykir vænt um
Sctla - Leiga - Þjónusta
tm 1 91-29399
-ÍVv Allan sólarhringinn
ír Öryggisþjónusta
VARI síðan 1 969