Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992.
33
Friðfinnur Hilmarsson á efsta hesti í B-flokki, Stíganda.
DV-myndir E.J.
Munurinn eitft stig
á Herði og Stíganda
- í gæðingakeppni Gusts 1 Kópavogi um helgina
Gæðingakeppni Gusts í Kópavogi fór
fram um helgina. Úrslit fóru fram í
gær í blíðskaparveðri. Auk þess að
valdir voru bestu gæðingar félags-
manna fór fram úrtaka fyrir hvíta-
sunnukappreiðar Fáks þar sem tveir
gæðingar í hverri grein munu keppa
frá Gusti. Hjá Gusti gilti sú regla að
tveir hæst dæmdu gæðingar í hverj-
um flokki, eftir forkeppni, verða full-
trúar Gusts.
í B-flokki gæðinga var keppni
grimm. Röð þriggja efstu hesta
breyttist ekki, þó svo að munur á
efsta hesti, Stíganda, og þeim sem
kom næstur, Herði, væri einungis
eitt stig.
Stígandi Arnar Þorvaldssonar sigr-
aði, fékk 8,53 í einkunn. Knapi var
Friðfinnur Hilmarsson. Hörður, sem
Halldór Victorsson á og sat, kom
næstur með 8,52 og Toppur Hilmars
Jónssonar, sem Sigurbjöm Bárðar-
son sat, varð þriðji með einkunnina
8,51. Toppur var jafnframt valinn
glæsilegasti gæðingur mótsins.
í A-flokki stóð efstur Mökkur Jóns
Gísla Þorkelssonar sem sýndi hann
sjálfur. Mökkur fékk einkunnina
8,36. í 2. sæti varð Funi Guðrúnar
Bjamadóttur sem fékk 8,22 í ein-
kunn. Knapi var Halldór Gísli
Guðnason. í þriðja sæti varð Gnýfari
Karls Kristjánssonar sem Georg
Kristjánsson sat. Gnýfari fékk 8,11 í
einkunn og kom fimmti inn í úrslit.
Hörð keppni Stráks og Juniors
í barnaflokki var einnig háð mikil
keppni. Strákur, sem Ásta Dögg
Bjarnadóttir sat, og Junior, sem
Sandra Karlsdóttir sat, voru mjög
jafnir. Strákur fékk 8,48 í einkunn
og Junior 8,41 og eftir röðun héldu
hestamir sætum sínum. Heggur, sem
Sigríður Þorsteinsdóttir sat, varð
þriðji með 7,69 í einkunn.
í unglingaflokki voru úrsht skýr.
Snúður, sem Victor B. Victorsson
sat, stóð efstur með 8,26 í einkunn.
Jarpur, sem Oddrún Sigurðardóttir
sat, varð annar með 7,69 og Dropi,
sem Björg María Þórsdóttir sat, varð reið, grillveisla og fleira sem kætir
þriðji með 7,57 í einkunn. unga eldmóðsknapa.
Einnig voru kappreiðar, naglaboð- -E.J.
Frændurnir Jón Gísli Þorkelsson á efsta hesti i A-flokki, Mekki, og Halldór
Gísli Guðnason á Funa sem varð í 2. sæti. Hestarnir og knaparnir rekja
allir ættir sína til bæjarins Þóreyjarnúps í Vestur-Húnavatnssýslu.
Iþróttir
Berglind með
glæsilegasýningu
Félagar í íþróttadeild Harðar í
Mosfellsbæ búa enn að hinum glæsi-
legu íslandsmótum sem haldin vora
í Mosfellsbæ sumrin 1988/89. íþrótta-
völlurinn er ávallt tilbúinn undir
mikla reið og skipulag til fyrirmynd-
ar.
Harðarfélagar héldu íþróttamót
sitt fóstudaginn 22. og laugardaginn
23. maí og luku mótinu með dúndr-
andi gleði í nýlegu félagsheimili á
svæðinu. Keppt var í þremur flokk-
um: barna, unglinga og fullorðinna.
Þátttaka var töluverð. Til dæmis
voru skráðir um það bil tuttugu
knapar í tölt ogfjórgang fullorðinna.
Þrír fullorðnir
fengu gullverðlaun
Nokkrir knapanna gerðu góða ferð á
mótið. Þrír knapar unnu öll gullverð-
launin í flokki fullorðinna. Berglind
Árnadóttir skaut mörgum harð-
skeyttum karlmanninum aftur fyrir
sig og sigraði í tölti, fjórgangi og ís-
lenskri tvíkeppni á Snjalli.
Trausti Þ. Guömundsson kom
einnig nokkuð við sögu. Hann sigraði
í hlýðnikeppni á stóðhestinum
Kappa, vann skeiðtvíkeppnina á
Garpi og varð stigahæstur knapa.
Sigurður Sigurðsson sigraði í fimm-
gangi á Létti. Hestakostur í Mos-
fellsbæ er mikill og þóttu fjórgangs-
hestamir lofa góðu.
Gunnar Þorsteinsson gerði sér lítið
fyrir og vann allar fjórar greinarnar
í unglingaflokki. Hann sat hryssuna
Perlu í tölti og fjórgangi og það nægði
einnig til sigurs í íslenskri tví-
keppni. Þá var hann stigahæstur
knapa í unglingaflokki.
í barnaflokki sigraði Guðmar Þ. Pét-
ursson fjórar greinar af fimm. Hann
mætti með þrjá fáka sinna á mótið.
Guðmar vann töltið á Limbó, fjór-
gang á Mána, hlýðnikeppnina á Jarpi
og varö einnig stigahæstur knapa.
Garðar Hólm Birgisson vann ís-
lenska tvíkeppni á Skafrenningi.
-E.J.
Leiðrétting:
Halldór sat
Nökkva og
Straum
Því miður slæddist inn meinleg
villa í grein um íþróttamót Gusts í
Kópavogi fyrir skömmu. Sagt var að
Halldór Victorsson hefði keppt í tölti
og fjórgangi á Herði. Það er rangt.
Hann keppti á fimm vetra fola,
Nökkva, í fjórgangi og sigraði og sat
Straum í tölti og varð þar í öðru sæti.
-E.J.
Verðlaun dreifðust
á marga keppendur
Maria Dóra Þórarinsdóttir sigraði (jórfalt á íþróttamóti Andvara. Hér
situr hún Jökul. DV-mynd E.J.
- á íþróttamóti Andvara í Garðabæ
íþróttamót Andvarafórframfyr- knapinn í barnaflokki. flest gullverðlaun allra keppenda á
Verðlaun dreifðust einnig í ungl- mótinu: fem. Hún sigraði í fjór-
ingaflokki. Stefán Ágústsson sigr- gangi og íslenskri tvíkeppni á Jökii
aði í fjórgangi á Brún, Elva D. Jóns- og hindranarstökki og ólympískri
dóttir sigraði í íslenskri tvíkeppni tvíkeppni á Yl.
á Vin og Sigurður G. Halldórsson Amar Bjamason og Friðþjófur
sigraði i tölti á Rósu. Hann vann Vignisson fengu tvenn gullverð-
bikar tii eignar því að þetta er launhvor. Arnarsigraðiígæöinga-
þriðja árið í röð sem hann vinnur skeiði og skeiðtvíkeppni á Lúkasi
töltkeppnina. Sigurður varð einnig en Friðþjófur i fimmgangi á Flug-
stigahæstur knapa x unglinga- ari og varð einnig stigahæstur
flokki. knapa i flokki fuiloröinna.
Sveixm Gaukur Jónsson sigraði í
María Dóra fékk tölti á Glanna og Vilhjálmur Ein-
flestgullverölaun arsson í hlýðnikeppni á Þrym.
María Dóra Þórarinsdóttir fékk -E.J.
ir skömmu, Keppendur hjá And-
vara voru óvepjumargir. Þó að
Andvari hafi færri félagsmönnum
á aö skipa en félög í stærri bæjarfé-
lögum er unnið markvisst starf í
Garðabæ. Stefnt er að byggingu nýs
keppnisvallar skammt frá þeim
sem nú er notaður.
Þrír keppendur í bamaflokki
unnu til gullverðlauna. Sigurður
Halldórsson sigraði í fjórgangi á
Kardínála, Inga B. Ingólfsdóttir
fékk gullverðlaun á Toppi fyrir tölt
og íslenska tvíkeppni og Þórdís
Höskuldsdóttir varð stigahæsti