Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1992. Fréttir Ritari bresku stríðsglæpanefndarinnar um mál Eðvalds Hinrikssonar: Furðar sig á viðbrögðum íslenskra stjórnvalda - vill að kannað verði hvers vegna Eðvald fékk að koma til Skotlands John Mendelson, ritari bresku stríðsglæpanefndarinnar, segist furða sig á viðbrögðum íslenskra stjómvalda í máli Eðvalds Hinriks- sonar. Þama væri um þungar ásak- anir að ræða sem yrði að taka fyrir og kæmi afar illa út ef íslensk stjóm- völd ætluðu að þegja það í hel. Þetta kom fram í fréttum ríkisútvarpsins í gærkvöldi. Mendelson sagði jafnframt við fréttaritara Ríkisútvarpsins ytra að farið yrði fram á rannsókn og við- horf breskra stjómvalda könnuð á hvers vegna Eðvald fékk að koma til Skotlands er hann heimsótti son sinn sem rekur hótel. Stríðsglæpanefnd breska þingsins er skipuð fulltrúum allra flokka og lætur til sín taka mál meintra stríðsglæpamanna. Mendelson sagði að nefndinni væri vel kunnugt um ásakanir á hendur Mikson og sér þætti full á ástæða til að taka þátt í að fylgja því eftir á al- þjóðlegum vettvangi. Hefði nefnd- inni verið kunnugt um ferð Eðvalds er hann heimsótti son sinn, í stuttri ferð til Skotlands, telur Mendelson líklegt að brottvísunar hefði verið krafist af hálfu nefndarinnar. Eftir að Mikson fór munu bæði meðimir stríðsglæpanefndarinnar og fréttamenn sem rannsaka slík mál hafa frétt af vem hans ytra og höfðu þeir sitthvað við dvölina að athuga, að sögn fréttaritarans. 100 slík mál eru til rannsóknar hjá lögreglunni. Ríkisútvarpið sagði að talsverðar líkur væru á að mál Miksons yrði tekið upp á þingi í formi fyrirspumar til innanríkisráðherra. -ÓTT Handteknirí ráns-og skemmdarferð Gyifi Knatjánsson, DV, Akureyli: Tveir ungir menn, 17 og 20 ára, vom handteknir í Hliöarfjalli við Akureyri og lauk þar með ráns- ferð þeirra sem reyndar haföi leg- ið alla leið tú Dalvíkur. Mennimir stálu biireið á Bíla^ sölu Norðurlands á Akureyri og síðan lá leið þeirra að „Verk- smiöjunum“ í bænum, þaðan í skíðaskála Dalvíkinga í Böggvis- staðaijalli og loks í skíðahótelið í Hlíðarfjalli. Ekki stálu þeir miklu á þessum stöðum, aðaUega sæl- gæti og skiptimynt, en þeir unnu miklar skemmdir með rúöubrot- um og þess háttar og skemmdu auk þess bifreiðina talsvert. Bankaeftirlitið: Höfumhaft ákveðin afskipti - af Skandiasjóðum „Ég vil ekkert fara að ijá mig um hvemig okkar samskiptum er háttað, okkar og Fjárfestingar- félagsins Skandia. Við höfum þær skyldur samkvæmt lögum að hafa eftirlit með fyrirtækjum og verðbréfasjóðum sem eru í umsjá þess fyrirtækis og við gerum það með þeira hætti sem best sam- rýmist okkar skyldum. Það hefur náttúrlega þaö í for með sér að við höfum haft ákveðin afskipti af þessu máli og gripiö til þeirra aögeröa sem við teijum eölilegar undir þeim kringumstæðum og um það er ekkert meira að segja,“ sagöi Þórður Ólafsson, forstöðu- maður Bankaeftirlits Seðlabanka íslands. Bankaeftirlitiö mun hafa sent Fjárfestingarfélaginu Skandia bréf og farið þess á leit að það taki sem fyrst ákvörðun um framhald félagsins. -GHK Fékk f íkniefni sendmeðflugi fráReykjavfk Lögreglan á Egilsstöðum handtók ungan mann, sem haiöi 20 grömm af hassi og 8 grömm af amfetamíni í fórum sínum, á laugardag. Maðurinn var að koma frá því að sækja pakka, sem honum var sendur frá Reykjavík, á flugvöllinn. Málið er talið upplýst, að sögn lögreglu á Seyðisfirði sem sá um yfirheyrslur í málinu. Umræddur aðili hefur áður komið viö sögu afbrotamála. -ÓTT Rúða var meðal annars brotin í verslunarglugga hjá Japis í Brautarholti og geislaspilara stolið. DV-mynd Tryggvi Rúnarsson Höfuðborgin um helgina: Verulegt tjón eftir skemmdarverk Mikið var um ýmis skemmdarverk í höfuðborginni um helgina og var tilkynnt um á annan tug slíkra at- vika til lögreglu, aðaliega aðfaranótt laugardagsins. Tjón af þessum sök- um er verulegt og nemur hundruð- um þúsunda króna. Skemmdir voru unnar á salemis- skálum og ljósum í Hinu húsinu við Brautarholt aðfaranótt laugardags- ins. Rúða var brotin í verslunar- glugga hjá Japis í Brautarholti og geislaspilara stohð. Rúður voru einn- ig brotnar í Breiðholtsskóla, bakarí- inu Krás í Hólmaseli, í húsi við Grett- isgötu og í versluninni Með allt á hreinu í Mosfellsbæ. Við Lækjargötu var rúða einnig brotin í verslunarglugga og þar var myndavél stohð. Sá sem þetta gerði náðist og var handtekinn. Annar var tekinn eftir að hafa brotið rúðu á Vatnsstíg. Rúður voru auk þess brotnar í verslununum Gullfossi og hjá Pétri Eyfeld á Laugavegi. Bílar fengu einnig sinn skammt af skemmdarfýsn borgarbama. Spark- að var í bíla og þeir skemmdir í Brautarholti og nokkrir bílar voru skemmdir í Traðarholti. Aðfaranótt sunnudagsins voru tveir teknir grunaðir um hafa brotið rúðu og stohð fatnaði í Miðbæjar- markaðinum í Aðalstræti. Rúður voru einnig brotnar í Reykjavík- urapóteki og í húsum við Skeija- braut og Amtmannsstíg. „Þjóðlifsmálið“ enn í hremmingum: Lögmaðurinn of seinn að leggja fram áfrýjunina - samdi síðan um lok málsins en hafði ekki heimild til þess Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyii „Þetta á að verða prófmál fyrir Neytendasamtökin um það hvort kerfið á að vera fyrir klækjarefi eða fyrir venjulegt fólk og það er ætlunin að ég fái annan lögmann svo á þaö verði látið reyna,“ segir Ingibjörg Einarsdóttir í Eyjafiröi, en hún er kunn af því aö vera eitt af fóm- arlömbum „Þjóðlífsmálsins" svo- kahaða. Ingibjörgu var gert með dómi á Akureyri að greiða skuld við inn- heimtumenn vegna áskriftar að tímaritinu Þjóðlífi sem hún hafði þegar greitt, og hafði kvittanir sem sönnuðu það. Þá tók kerfið við sér og var ákveðið að Ingibjörg fengi gjafsókn til að áfrýja málinu til Hæstaréttar. Guðmundur Pétursson, lögmaður hennar, var hins vegar of seinn að áfrýja, áfrýjunarfresturinn rann út áður en það var gert. Lög- maðurinn samdi hins vegar um lok málsins en hafði enga heimild til þess, að sögn Ingibjargar. „Það má segja að máhð sé nú í bið- stöðu. Dómsmálaráðuneytið ætlar að leggja mér til annan lögmann svo vonandi kemst einhver skriður á þetta," segir Ingibjörg. klukkustundum Þrjár bílveltur urðu á nokkur hundruð metra kafla á Suður- landsvegi í Hraungerðishreppi á sunnudagsmorgun. Lögreglan á Selfossi segir að hált hafi verið en getur engar aðrar skýringar gefið á óhöppunum en þær að launhált hafi verið á þessum kafla. Klukkan átta varð fyrsta veltan þegar sendiferðabíh valt. Öku- maðurinn hlaut minniháttar meiðsl. Þremur stundarflórðung- um síðar kom næsta velta og klukkan tíu varð sú þriðja. Engin meiðsl urðu á fólki í tveimur síð- asttöldu veltunum. Um klukkan flögur síðdegis varð fjórða umferðaróhappið í Árnessýslu þegar flárflutninga- bíh og fólksbhl með hestakerru aftan í rákust á. Við höggið slitn- aði hestakerran aftan úr bílnum og valt en í henni voru tvö hross. Annað þeirra skarst og varð að kalla á dýralækni th að gera að sárum þess. Engin meiðsl urðu á fólki. -ÓTT Svarti markaðurinn: Seldi 180 skrokkaá einum degi „Við fengum frábærar móttök- ur. Við getum sagt að við höfum verið að koma til móts við þarfir markaðarins. Ef fólk viU versla með þessum hætti þá erum við tUbúnir tU að veita þessa þjón- ustu,“ sagöi Sverrir Siguijóns- son, sölumaöur hjá Kjötsalnum sf. Kjötsalurinn bauð til sölu um helgina á Svarta markaðnum í JL-húsinu fryst dUkakjöt á he'ld- söluverði. Seldust um 180 skrokk- ar á laugardeginum en ekki lá fyrir í gær hver heUdarsalan var. Sverrir taldi aö verðið hefði verið 10 tU 20 prósent lægra en í versl- unum almennt. Um næstu helgi verða fleirí kjöttegundir í boöi. -GHK TværveHuri hálku á Reykja- nesbraut Tvær bílveltur urðu á Reykja- nesbraut um helgina sem raktar eru til þess að hálka var á vegin- um. Önnur veltan varð í Kúa- gerði en í hinu tiUeUinu valt bíll viö Strandaheiði. Engin meiðsl urðu á fólki en bílarnir eru skemmdir. -ÓTT Svipturréttind- um vegna glannaaksturs í hálku Lögreglan í Keflavik svipti öku- mann ökuréttindum vegna glannaaksturs um götur bæjarins aðfaranótt laugardagsins. Mað- urinn sinnti ekki stöðvunar- merkjum lögreglunnar og ók um göturnar, sem voru hálar, þannig að fótgangandi fóUd stafaöi hætta af akstri mannsins. Ökumaður- inn stöðvaði bíl sinn eftir að lög- reglan hafði veitt honum eftirfór nokkrastund, -ÓTT Slösuðust í veltu viðSandskeið Farþegi í jeppa slasaðist er bíll- inn valt í hálku á Bláflallavegi við Sandskeið á fóstudagskvöld- iö. Okumaður slasaðist minna. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.