Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1992.
7
GREETINGS FROM GLASGOW
(KVI-DJA FRA GI.ASGOW)
I jiM/
F’em l'í^ mH'^JskHietc
i 5 iíi;
' liOuaSS ' Lookiffi.S;oi l<*w
j*.t ***'
/gp
scori
Innihald kortsins í lauslegri þýðingu:
GEISLADISKARNIR ERU ÓDÝRASTIR ÍJAPIS
Einnig viljum við benda áaðvtö hjá JAPIS erum
retöubúin að qfgreiða þig á engilsaxnesku og þér
er velkomtö að gretöa diskana með skoskum
pundum, hjá okkur er ekkert hámark og engin
tollskoðun.
BRAÚTARlíOLTl
KRINGLUNNl
JAPIS
Fréttir
Hjálparstofnanir falla í sömu gryfju og grænfriðungar:
Myndir af sveltandi bömum:
Réttlætanlegar í neyð
- segir Jónas Þórisson framkvæmdastjóri
„Þetta er vandamál sem hefur ver-
ið mikið rætt meðal frjálsra hjálpar-
stofnana, það er að gæta sín á því
að misnota ekki myndir af sveltandi
börnum til að ná til fólks. Hins vegar
eru flestir sammála því að þegar
ástandið er eins og það er núna í
Afríku þá væri það bara sögufölsun
að sýna ekki raunveruleikann og það
er ekki veriö að tala um hungurklám
í því sambandi," segir Jónas Þóris-
son, framkvæmdastjóri Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar.
„Það er hungurklám þegar svona
myndir eru sýknt og heilagt sýndar
og peningum ekki safnað öðruvísi en
með því aö draga upp mynd af Afríku
á þennan hátt. Það eru því miður til
hjálparstofnanir sem hafa misnotað
þetta og kannski hafa allir fallið eitt-
hvað í þá gryfju. Flestum er hins
vegar ljóst að það þarf að fara var-
lega í að nota þetta og um leið þarf
að benda á það sem er jákvætt. Viö
reyndum til dæmis á veggspjaldinu
okkar fyrir síðustu jól að benda á
árangursríkt hjálparstarf og þróun-
arhjálp með myndum af fallegum og
vel útlítandi bömum,“ segir Jónas.
Jónas segir að það sé tvímælalaust
réttlætanlegt að nota átakanlegar
myndir þegar verið sé að safna pen-
ingum fyrir neyðaraðstoð. „Það er
nú einfaldlega svo að það er eins og
það sé léttara að ná tíl fólks þegar
svona myndir em sýndar. Og þegar
mikið liggur á að ná inn peningum
er þetta besta aðferðin. Þaö er erfitt
að tala um að fólk sé að deyja úr
hungri ef maður sýnir það ekki. Ef
við hins vegar notuöum svona mynd-
ir þegar hungursneyðin væri gengin
yfir eða ef við sýndum ekkert annað
þá væri það mjög slæmt. Það er ekki
öll Afríka svona og það er ýmislegt
sem tekst mjög vel þó að sumt fari
úrskeiðis," segir Jónas.
-ból
Þessi villandi ofnotkun á myndum sem valda geðshræringu og rekur fólk
til að seilast ofan í vasann hefur í útlöndum verið kallað hunger porno-
graphy eða hungurklám, segir Jón Ormur Halldórsson. Myndin er af svelt-
andi barni i Sómalíu. Símamynd Reuter
Nota hungurklám til að saf na peningum
segir Jón Ormur Halldórsson, lektor í HI
„Hjálparsamtök fara stimdum þá
einfoldu leið þegar þau eru að höfða
til gefenda að nota villandi áróður
sem byggir á ríkjandi fordómum.
Starfið er þá byggt á því aö safna
peningum með því að sýna myndir
af deyjandi bömum en það gefur
mjög einfaldaða mynd af ástandinu.
Þessi villandi ofnotkun á myndum
sem valda geðshræringu og rekur
fólk til aö seilast ofan í vasann hefur
í útlöndum verið kallað hunger
pomography eða hungurklám," seg-
ir Jón Ormur Halldórsson, lektor við
Háskólann, en hann hélt framsögu-
erindi á málþingi um aðstoð íslend-
inga við aðrar þjóðir sem Rauði kross
íslands og Alþjóðamálastofnun Há-
skólans stóðu fyrir nýlega.
„Þetta minnir pínulítið á aðferðir
Grænfriðunga. Þeir hafa fundið það
út að það er hægt að safna fyrir hvöl-
um en ekki fyxir öðra og leggja því
mjög mikla áherslu á söfnun fyrir
björgun hvala þó að það sé aðeins
brot af starfinu hjá þeim. Það gefur
villandi mynd áf umhverfisvanda í
heiminum að vera alltaf að tala rnn
hvali en það hefur gagnast vel til að
safna peningum," segir Jón Ormur.
Hann segir að svona einfaldanir
séu hættulegar og ýti undir fordóma.
Fólk horfir á myndimar í fjölmiðl-
um, sér hungrað fólk og vill senda
því mat. „Það hættulega við þetta er
að þegar hlutimir era settir svona
upp er alltaf kallað á sömu einföldu
viðbrögðin. Um leið kemur upp ein-
hver fyrirlitning á þeim aumingja-
skap sem alltaf er þama á ferðinni.
Það eina sem fólk man eftir í umfjöll-
un fiölmiðla inn þriðja heiminn era
myndir af hungraðu fólki frá Afríku.
Þetta ýtir undir kynþáttafordóma og
stórkostlegar ranghugmyndir fólks
um ástand menningar- og atvinnu-
mála og hvað fólk er almennt að gera
í heiminum fyrir utan Evrópu. Það
er að vísu hægt aö safna í nokkur
ár eitthvað af peningum út á að sýna
svona myndir en þetta er svo gróf
og villandi einfóldun að það er að
mínu viti ekki forsvaranlegt að halda
áfram á þessari braut,“ segir Jón
Ormur.
Að sögn Jóns Orms hefur verið
mikið um mistök í hjálparstarfi og
oft hefur þróunaraðstoð reynst
gagnslaus. „Mistök í þróunaraðstoð
era alltaf út af því að það era ein-
hveijir hagsmunir, alveg ótengdir
hinum fátæku sem toga í hana. Þann-
ig mistekst aðstoðin af því að hún
nær aldrei til þeirra sem þurfa á
henni að halda. Opinber aöstoð er
ætíð háð einhveijum hagsmunum og
ég vil því ýta undir að menn styðji
frjáls félagasamtök sem starfa í gras-
rótinni og ná beint til fólksins svo
sem Hjálparstofnun kirkjunnar og
Rauða krossinn. Þessi samtök lenda
hins vegar stundum í vandræðum
þegar þau eru að safna peningum og!
höfða þá til ríkjandi fordóma. Þau
mega aftur á móti alls ekki vera háð
fordómum því það er engu betra en
að vera háður hagsmunum," segir
JónOrmur. -ból
HAUSTDAGAR
HJÁ ÍSELCO
Vegna breytinga í verslun okkar munum við
bjóða stórfelldan afslátt af öllum vörum
okkar næstu daga.
ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR
Rafsuðuvélar
Loftpressur
Öryggisvörur
Smursprautur
Topplyklasett
Rafstöðvar
Loftverkfæri
Lóðboltar
Rafhlöður
Stígvél
Öryggisskór
Rakatæki
Borvélar
Rafsuðuafsog
Trésmíðavélar
Slípivörur
Útiljós
Iðnaðarryksugur
Vinnuhanskar
Rafsuðuhjálmar
Hleðslutæki
Málbönd
Vasaljós
Málningarspr.
Vinnusokkar
Handverkfæri
og margt fleira
NÚ ER TÆKIFÆRI TIL AÐ GERA VERU-
LEGA GÓÐ KAUP Á ÚRVALSVÖRUM
O Skeifan 11d, sími 91 -686466