Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Qupperneq 10
10
MÁNUQAGUR 26. OKTÓBER 1§92.
Nelson Mandela var ánægður á svip þegar hann leiddi dóttur sina, Zindzi, upp að altarinu. Hann kom til brúð-
kaups dóttur sinnar í fylgd Winníar, konu sínnar, en þau hafa ekki búið saman frá því í vor og ekki sést saman í
marga mánuði. Símamynd Reuter
Zindzi, dóttir Mandela-hjónanna, gengur í hjónaband:
Sættir að takast milli
Winníar og Nelsons?
- komu saman til brúökaupsins eftir sögulegan skilnaö í vor
Kreppan gerði
útafviðsafan-
garðinn
Windsor safarígarðinum á Eng-
landi, einum stærsta villidýra-
garöi Evrópu, var lokað i gær.
Garðurinn, sem er nærri Winds-
or kastala Englandsdrottningar
fyrir vestan London, varð gjald-
þrota fyrir tíu mánuðum og eiga
færri gestir og kreppan í efna-
hagslífi Bretlands sök þar á.
Um sex hundruð dýr eru í garð-
ínum og eru þau ekki í neinni
hættu vegna lokunarinnar. Aðtir
dýragaröar ætla aö sjá um dýrin
þar til framtíö Windsor-garðsins
verður ráðin.
Áttahundruð
Norðmennfluttír
JL Lma|JL
aoron
Um átta hundruð manns voru
fluttir á brott frá bænum Fredrik-
stad í suðurhluta Noregs eftir að
nokkrar sprengingar urðu í ná-
lægri sojaolíuverksmiðju, að því
er lögreglan skýrði frá í gær.
Engín slys urðu á fólki í spreng-
ingnnum sem urðu seint á laug-
ardagskvöld eftir að fljótandi kol-
vatnsefni tók að leka. Efnið er
notað til að vinna olíu úr soja-
baununum. Slökkviliðsmenn úð-
uðu froðu ytir verksmiðjuna til
að koma í veg fyrir að eldur bryt-
ist út.
Teikningueftir
Rembrandt
stoliðaf hátíð
Þjófum tókst að krækja sér í
teikningu eftir 17, aldar meistar-
ann Rembrandt og aðra eftir
samtíðarmann hans á stærstu
listakaupstefnu Hollands. Teikn-
ingarnar eru metnar á um 25
milljónir íslenskra króna og var
þeim stolið úr geymsluherbergi í
sýningarhöllinni. Teikningarnar
sáust síðast á laugardag en þjóöi-
aðurinn uppgötvaðist ekki fyrr
en síðdegis i gær. Ströng öryggis-
gæsla var á svæöinu og er talið
hugsanlegt að starfsmaður standi
á bak við rániö.
Margt þykir benda til að sættir séu
að takast milli Winníar og Nelsons
Mandela, helstu leiðtoga blökku-
manna í Suður-Afríku. Dóttir þeirra
gekk í hjónaband um helgina og
komu þau hjón saman til brúðkaups-
ins. Þau hafa ekki sést saman opin-
berlega frá því apríl í vor þegar þau
skildu að borði og sæng.
Nelson sagði þá að hjónabandinu
væri lokið vegna mikilla erfiðleika í
sambúðinni. Winnie hefur legið und-
ir ámæli fyrir framhjáhald með lög-
fræðingi sínum og hafa blöð í Suður-
Afríku birt ástarbréf sem farið hafa
milli þeirra. Þá á Winnie yíir höíði
sér fangelsisdóm vegna aðildar að
barsmíðum á ungum fylgismönnum
sínum. Einn unglingsdrengur lét þá
lífið og er sagt að Winme hafi í það
minnsta vitað um meðferðina á hon-
um. Sumir segja að hún haíl fyrir-
skipað mönnum sínum að berja
hann.
Avirðingar Winníar urðu til þess
aö félagar í Afríska þjóðarráðinu
sviptu hana embættum sínum og
mikill þrýstingur var á Nelson að
slíta sambandinu við hana. Nelson
var í fangelsi flest hjónabandsárin.
Dóttirin, sem nú giftist, var þriggja
ára þegar faðir hennar var handtek-
inn. Hún er þrítug egJieitir Zindzi
en maður hennar er Zwelinbanzi
Hlongwane, 27 ára gamall kaupmað-
ur frá Soweto. Reuter
ráðherrar EB
leita samstöðu
umGATT
Jean-Pierre Soisson, landbúnaðar-
ráðherra Frakklands, fundaði með
sem starfsbræðrum sínum úr Evr-
ópubandalaginu í gær til að reyna
að komast að sameiginlegri afstöðu
í samningaviðræðunum um nýtt
GATT-samkomulag um frelsi í
heimsverslun. Landbúnaðarráð-
herrar EB funda um málið í Lúxem-
borg í dag.
Samningamenn bandarískra
stjómvalda gengu út af fundi um
GATT-samkomulag með fram-
kvæmdastjóm Evrópubandalagsins
fyrir helgina. Þeir hafa hótað að setja
refsitolla á innílutning frá EB nema
fljótlega náist samkomulag um jurta-
olíuinnflutning og niðurgreiðslur til
landbúnaðar innan bandalagsins.
Frakkar einir hafa staðið í vegi fyr-
ir að hægt væri að binda enda á sex
ára samningaviðræður. Danski land-
búnaðarráðherrann sagði hins vegar
í París í gær að þeir kæmust ekki
upp með einangrunarstefnu sína í
málinu, það væri ekki stefna EB.
Danski ráðherrann sagði ólíklegt
að samkomulag tækist um nýjan
GATT-samning á næstu þremur til
íjóram mánuðum og var þar með
sama sinnis og franskir ráðherrar.
Reuter
Mennivtgamtála-
ráðherrann
svipturökuleyfi
Norski ; menningarmálaráð-
herrann, Áse Kleveland, var
svipt ökuskírteiiú sínu í síðustu
viku þegar Óslóarlögreglan góm-
aðí hana á 77 kílómetra hraöa þar
sem leyfilegur hámarkshraði er
50 km á klukkustund.
Ráðherrann missir skírteinið í
þrjá mánuði hið núnnsta en sum-
ir segja að hún eigi yflr höfði sér
sex mánaða ökuleyfissviptingu.
Auk þess þarf hún að greiða sem
svarar um 35 þúsund krónnm is-
lenskum í sekt.
Áse Kleveland ekur um á 25 ára
gömlum sportbíl af gerðinni Saab
Sonnett og að eigin sögn hefur
hún ekki gaman af hraðakstii.
Svissneskur
hægriflokkurá
móti EES
Einn fjögurra stjórnarflokka í
Sviss ákvað um helgina að hafna
samningnum um Evrópska efna-
hagssvæðið, EES, í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni í desember.
Á þingi hins hægrisinnaða
Þjóðarflokks greiddu 289 fulltrú-
ar atkvæði með því að fella EES
en 119 fulltrúar lýstu sig fylgjandi
samningnum.
Ræöumenn á þinginu sögðu að
með því að samþykkja EES væru
menn að fórna fullveldi landsins
fyrir skammvinnan efnahagsleg-
an ávinning.
Annar sfjómarflokkur, Sósía-
listaflokkurinn, ákvaðhins vegar
um helgina að Ijá EES stuðning
sinn. Á þingi þeirra var yfirgnæf-
andi meirihluti þeirrar skoðunar.
Þá hafa þrír stjórnarflokkanna
tekiö afstöðu til EES, tveir með
og einn á móti. Fjórði flokkurinn,
Kristilegir demókratar, fjalla um
málið í næstu viku.
Japanirstöðva
innflutning bók-
arMadonnu
Japanskir tollverðir hafa í bili
stöðvað innflutning á umdeildri
bók rokkstjörnunnar Madonnu,
„Kynlíf'. Embættismenn lögöu
hald á sex eintök á Naritaflug-
velli á laugardag til frekari skoð-
unar.
Að sögn embættismannanna
óttast þeir að skapahár kunni að
sjást á einhverjum myndanna í
bókinni. Slíkar myndir era með
öllu bannaðar í Japan.
En þaö er ekki bara bók Ma-
donnu sem fer fyrir brjóstið á rit-
skoðurum í Asiu. í Singapore
voru Qörutíu eintök af geisladiski
hennar, „Erotica'*, gerð upptæk,
Ástæöan er sú aö eitt laganna
þótti ekki bjóðandi ungviði Singa-
pore.
VinsældirFrakk-
landsforseta
minnkaenn
Vinsældir Francois Mitterr-
ands forseta meðal frönsku þjóö-
arinnar eru enn á niðurleið. Nú
er svo komið að tæpur þriöjungur
kjósenda er ánægður með
frammistöðu hans í embætti, ef
marka má skoðanakönnun sem
birt var á laugardag.
Könnuiún leiddi í ljós að 31 pró-
sent aðspuröra voru ánægðir
með forsetann en 59 prósent voru
á öndverðum meiði. Þetta er örlít-
ið verri niðurstaða fyrir forset-
arm en í könnun fyrir mánuði.
Óákveðmr voru jafn margir og
áöur.
Mitterrand, sem verður 76 ára
í næstu viku, á aö gegna forseta-
embættinu þar til í maí 1995.
NTIi og Rcuter
Reuter
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, 3. hæð, sem hér segir
á eftirfarandi eignum:
Amartangi 61, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Valur Steingrímsson, gerðarbeiðandi
Vátryggingafélag íslands, 30. október
1992 kl. 10.00.
Álftamýri 38, 2. hæð t.h., þingl. eig.
Erlendur Ólafsson, gerðarbeiðendur
Amarfell sf. og Lífeyrissjóður Vest-
mannaeyinga, 30. október 1992 kl.
10.00._____________________________
Dúfnahólar 2, 4. hæð A, þingl. eig.
Bjami Sigurðsson, gerðarbeiðandi
Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Fram-
sóknár, 30. október 1992 kl. 10.00.
Dvergabakki 30,1. hæð t.v., þingl. eig.
Pálmi Einarsson og Ingibjörg Sigur-
steinsdóttir, gerðarbeiðandi Spari-
sjóður Kópavogs, 30. október 1992 kl.
11.45._____________________________
Fannafold 186, hluti, þingl. eig. Frið-
rik H. Friðriksson, gerðarbeiðendur
Kreditkort hf. og Sparisj. Rvíkur og
nágr., 30. október 1992 kl. 10.00.
Flugumýri 6, hl.c, Mosfellsfcæ, þingl.
eig. Rafbrú sf., gerðarbeiðendur Bún-
aðarbanki íslands, Iðnlánasjóður,
Sparisj. Reykjav. og nágr. og Toll-
stjórinn í Reykjavík, 30. október 1992
kl. 10.00.
Frakkastígur 14, efri hæð (ris), þingl.
eig. Katrín Ævarsdóttir, gerðarbeið-
andi Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, 30. október 1992 kl. 10.00.
Hringbraut 103, hluti, þingl. eig. Gúst-
af Grönvold, gerðarþeiðendur Ræsir
hf., Vátryggingafél. íslands hf. og ís-
landsbanki hf., 30. október 1992 kl.
10.00.____________________________
Kríuhólar 4, 3. hæð E, þingl. eig.
Haukur Harðarson, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins, 30. október
1992 kl. 10.15.___________________
Ós v/landspildu í landi Eyja í Kjós,
þingl. eig. Asta Guðmundsdþttir, gerð-
arbeiðendur Landsbanki Islands og
Pólar hf., 30. október 1992 kl. 13.30.
Ráðagerði, fiskvinnsluhús, þingl. eig.
Seifúr hf., gerðarbeiðandi Helgi Sig-
‘ urðsson hdl., 30. október 1992 kl. 10.00.
Selbraut 24, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Halldór S. Guðmundsson, gerðarbeið-
endur Byggingasjóður ríkisins, Gjald-
heimta Seltjamamess, Innheimtu-
stoínun ríkisins, Lífeyrissj. málm- og
skipasmiða, Steingrímur Þormóðsson
hdl., Tollstjórinn í Reykjavík, Vá-
tryggingafélag íslands og Zinkstöðin
hf., 30. október 1992 kl. 10.00.
Vegghamrar 49, hluti, þingl. eig. Hall-
dór B. Baldursson, gerðarbeiðendur
Bílastoð hf., Jón G. Sæmundsson,
Póst- og símamálastofnun, Tollstjór-
inn í Reykjavík og íslandsbanki hf.,
30. október 1992 kl. 10.15.
Vindás 2, 3. hæð 03-02, þingl. eig.
Magnús Atli Guðmundsson, gerðar-
beiðandi Veðdeild Landsbanka ís-
lands, 30. október 1992 kl. 10.00.
SÝSLUMAÐUEINN1REYKJAVÍK
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Álakvísl 102, þingl. eig. Edith Thor-
berg* Traustadóttir, gerðarbeiðandi
Landsbanki íslands, 30. október 1992
kl. 15.00.______________________
Háberg 5, þingl. eig. Aðalsteinn Gísla-
son, gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í
Reykjavík og Veðdeild Landsbanka
íslands, 30. október 1992 kl. 14.30.
Klapparberg 21, þingl. eig. Einar Skúli
Hjartarson, gerðarbeiðendur Helgi
Sigurðsson hdl., Sparisj. Rvíkur og
nágr. og Steían Einarsson, 30. október
1992 kl. 14.00._________________
Suðurhólar 28, hluti, þingl. eig. Svan-
hildur Kr. Hákonardóttir, gerðarbeið-
andi Gjaldheimtan í Reykjavík, 30.
október 1992 kl. 15.30.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK