Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Síða 15
MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1992. 15 H vað er EES ekki? af eöa á ... segir m.a. í grein Jónasar. í umræðum að undaníomu um samninginn um hið evrópska efna- hagssvæði hefur verið tilhneiging til þess að gera meira úr samningn- um en efni standa til. Samningur- inn er vissulega stærsti, umfangs- mesti og mikilvægasti viðskipta- samningur sem ísland hefur gert. Hann snýst í meginatriðum um viðskiptafrelsi milh landa á sviði vöru, þjónustu, vinnuafls og fjár- magns. Auk þess sem í honum er að frnna ákvæði sem stuðla eiga að heilbrigðri samkeppni jafnframt því sem samvinna er aukin á ýms- um sviðum s.s. neytendaverndar, umhverfismála og menntunar- og rannsókna svo eitthvað sé nefnt. Það er hins vegar langur vegur frá því að EES-samningnum megi jafna til Maastricht-sáttmálans eða aðildar að Evrópubandalaginu, eins og látið hefur verið liggja að. Hér á eftir verða nefnd nokkur at- riði sem ekki er að finna í EES- samningnum. Ekki tollabandalag - möguleikar á frekari viðskiptasamningum Evrópska efnahagssvæðið verður fríverslunarsvæði en ekki tolla- bandalag eins og EB. íslendingum verður eftir sem áður fijálst að gera viðskiptasamninga við þjóðir utan Evrópska efnahagssvæðisins s.s. Bandaríkin eða Japan. Auðvdt- að væri æskilegt að slíkir fríversl- unarsamningar næðust, en þeir eru sem stendur ekki í augsýn, en möguleikinn verður áfram fyrir hendi. í EES-samningnum er beinlínis gert ráð fyrir tollasamningum vdð KjaUarinn Jónas Fr. Jónsson lögfræðingur Verslunarráðs íslands ríki utan EES. Þar er kveðið á um tilkynningu um slíka samninga til annarra vdðskiptaaðila auk þess sem samningsaðilar eiga að gefa gaum athugasemdum um röskun vegna slíkra samninga. Þetta er ekki nema sjálfsögð kurteisi samn- ingsaðila, vdrkar í báðar áttir og er alls ekki óalgeng í almennum við- skiptasamningum. Ekki afnám landamæra Þó svo að samningurinn kveði á um viðskiptafrelsi er ekki verið að afnema landamæri. Eftir sem áður verður hér tolleftirlit og útlend- ingaeftirlit ef íslendingar kjósa svo. Aðildarríki semja hins vegar um að reyna að einfalda eftirlit og formsatriði vdð tollskoðun og varla hefur nokkur maður á móti því að tollafgreiðsla gangi fljótar fyrir sig og formsatriöum fækki. Slíkt þarf ekki að bitna á gæðum eftirlitsins. Ekki sameiginleg landbúnaðarstefna eða sjávarútvegsstefna Almenn vdðskiptafrelsisákvæði EES ná ekki til landbúnaðar og sjávarútvegs. Hins vegar er í samn- ingnum samið um tollfrelsi á nokkrum vörum sem flokkast sem unnar landbúnaðarvörur eða vöruflokka sem í eru notuð land- búnaðarhráefni. Á ýmsa þessa vöruflokka verður hins vegar hægt að setja verðjöfnunargjald auk þess sem innflutningur nokkurra af- urða verður takmarkaður vdð til- tekið tímabil þ.e. afskordn blóm, tómatar, salathöfuð, gúrkur og paprika. I samningnum fá íslendingar toll- frelsi af 95% af núverandi toll- greiðslum sínum (tæpir 2 milljarð- ar á ári). íslendingar geta sett girð- ingar varðandi fjárfestingar er- lendra aðila í veiðum og vdnnslu (ef þeir vilja). Á móti þessu geta EB- ríki flutt inn fisk til íslands og selt auk þess sem samið var um gagn- kvæmar veiðiheimildir á milli landanna. Ekki meirihluta- ákvarðanir eða alræði EB í samningnum kemur skýrt fram að honum veröi ekki breytt ef ein- hver samningsaðpa mælir því í mót. Þannig hafa íslendingar neit- unarvald varðandi breytingar á samningnum. Hver samningsaðila getur átt frumkvæði að breytingum á samningnum eða reglum sem leiddar eru af honum, en hins veg- ar vegna þess hvemig lagaverk EB er byggt upp þá þurfa breytingar á afleiddum reglum að fara í gegnum EB fyrst. Á endanum er þaö síðan alltaf Alþingi íslendinga sem tekur af skarið af eða á, hvort það sam- þykkir lagabreytingar sem snerta samninginn. Það verður að hafa í huga, að þegar menn gera með sér samninga þá breyta þeir honum ekki einhliða. Það sama á vdð um EES-samninginn. Að síðustu má benda á að verði það reynslan að stórfelldlega halli á ísland vegna samningsins um EES má segja samningnum upp með einungis árs fyrirvara. Jónas Fr. Jónsson „Þó svo að samningurinn kveði á um viðskiptafrelsi er ekki verið að afnema landamæri. Eftir sem áður verður hér tolleftirlit og útlendingaeftirlit ef ís- lendingar kjósa svo.“ Hugleiðingar um heilbrigðismál: Hugsarþú um heilsuna? „Með því að efla heilbrigði og aðbúnað unga fólksins í dag má ætla að það geti frekar sinnt sjálfsumönnun er það eldist", segir m.a. í grein- inni. Almenningur í dag er vel mennt- aður og spyr því um orsakir og af- leiðingar þeirra heilbrigðisvanda- mála sem að honum steðja. T.d. ef þú færð sjúkdómsgreiningu hjá lækni vdltu fá útskýringar á hvað er að, hvers vegna, og hvaða leiðir eru mögulegar til úrbóta, eins og lyfjameðferð og/eða skurðaðgerð. Læknirinn er þinn starfsmaður og þú getur leitað ráðlegginga hjá honum, en það ert þú, lesandi góð- ur, sem velur og hefur lokaorðið, þetta er jú þinn líkami og þitt líf sem um ræðir. Hjúkrunarfræðing- amir leitast vdð að hjálpa þér til sjálfshjálpar og vert er að minna á að þjónustan er ekki einungis bundin við spítalann. Róttækar þjóðfélags- breytingar Meðallegudagafjöldi á sjúkrahús- um hefur farið lækkandi undanfar- in ár. Margar rannsóknir er nú farið að gera á dag- og göngudeild- um sem áður þurfti að leggja fólk inn á spítala í nokkra daga eða vdk- ur til að fá framkvæmdar. Þessi breyting gerir skjólstæðing- um kleift að fá að vera heima hjá sér ef aðstæður þeirra leyfa, um leið og það skilar spamaði í rekstri og gefur möguleika á að sinna fleiri skjólstæðingum. Þeir-tímar sem vdö lifum á ein- kennast af róttækum og óaftur- kræfum þjóðfélagsbreytingum. Má þar nefna 600% aukningu á at- Kjallarinn Sólfríður Guðmundsd. hjúkrunarfræðingur M.Sc. vdnnuþáttöku mæðra 5 til 15 ára bama á síðustu 25 árum (úr 12,8% í 81%). Einnig hefur íjölskyldusam- setning breyst til muna því fyrir 30 árum áttu foreldrar að meðaltali þrjú til ftögur böm en í dag'eignast meðaltalsfjölskyldan eitt til tvö börn. Auk þess hefur hjónaskilnuöum fjölgað frá 1960 um 200% og talið er að a.m.k. 500 böm þurfi að þola skilnað foreldra sinna á ári hveiju. Á sama tímabili hafa ævdlíkur ís- lendinga aukist um nær 30 ár og gera má ráð fyrir frekari fjölgun eldri borgara sem eiga rétt á góðri heilbrigðisþjónustu. Sjálfsumönnun I byrjun aldarinnar var einn af hverjum 25 íbúum Ameriku eldri en 65 ára,.árið 1984 var hlutfallið einn af hverjum átta íbúum. Sam- kvæmt spám verður einn Banda- ríkjamaður af hverjum sjö eldri en 65 ára árið 2010 og einn af hveijum fimm árið 2050. Gera má ráð fyrir svdpaðri fjölgun eldri borgarbúa hérlendis sem krefst markviss undirbúnings af hálfu allra þegna þjóðfélagsins. Hjúkrunarfræðin leggur áherslu á að fólkið beri ábyrgð á eigin heilsufari en bendir á leiðir til að stuðla að aukinni vellíöan einstakl- inga og bæta heilbrigðisástand samfedagsins. Með því að efla heilbrigði og að- búnað unga fólksins í dag má ætla að þaö geti frekar sinnt sjálfsu- mönnun er það eldist, í heilsugæsl- unni eru heilbrigðisþarfir metnar til að greina þá hópa, Qölskyldur og/eða einstaklinga sem eru í áhættu vegna yfirvofandi eða mögulegs sjúkdóms, fótlunar, eða ótímabærs dauödaga. Þá er gerð markvdss áætlun um hvemig á að mæta greindum heil- brigðisþörfum þar sem tekið er mið af bæði styrkleika og veikleika vdð- komandi. Það er höfðað til vals skj ólstæðingsins/samfélagsins enda hefur það reynst vænlegra til árangurs heldur en þegar fagfólk tekur ákvarðanir sem jafnvel geta stangast á vdð vdlja vdðkomandi. Áætlunin er framkvæmd í sam- vdnnu við skjólstæðinginn og ár- angur er metinn m.t.t. markmiðs sem vdðkomandi aðilar settu sér í upphafi samstarfsins. Við þetta ferli eru notaðar ýmsar kenningar í hjúkrun og í síauknum mæli er stuðst vdð niöurstöður rannsókna. Taktu þér 5 mínútur Fræðsla er eitt aöalúrræði for- varna og heilbrigðiseflingar. Starfsfólk heilsugæslustöðva um land allt sinnir heilbrigöisfræðslu og forvömum sem almenningur er hvattur til að nýta sér. Hjúkrunar- fræðingar nýta öll tækifæri sem gefast til að koma á framfæri upp- lýsingum og fræðslu til skjólstæð- inga sinna og almennings. En eitt er að vdta og annað að framkvæma. T.d. vdta allir hvað það er óhollt að reykja, en hegða sér ekki sam- kvæmt því. „Bömin læra það sem fyrir þeim er haft.“ Þú berð ábyrgð á eigin heilsufari, og heilsufar bama þinna er einnig mikið undir þér komið. Hvemig er lífi foreldra á íslandi almennt háttað? Hvað finnst þér um þína heilsu? Taktu þér nú 5 mínútur og skráðu niður jákvæða og neikvæða áhrifaþætti á heilsu- far þitt. Settu þér raunhæf markm- ið og tímasettu hvaða tíma dagsins þú ætlar að nota fyrir þig. Þú þarft að ákveða hvemig þú ætlar að ná settu marki og nota fyrirfram ákveðnar aðferðir til að meta árangurinn. Ef þú fram- kvæmmir þetta skilar árangurinn sér fljótlega í betri alhliða líðan sem öll fjölskyldan nýtur góðs af. Gangi þér vel að hugsa um heilsuna. Sólfríður Guðmundsdóttir „Hjúkrunarfræðin leggur áherslu á að fólkið beri ábyrgð á eigin heilsufari en bendir á leiðir til að stuðla að aukinni vellíðan einstaklinga og bæta heil- brigðisástand samfélagsins.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.