Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Síða 19
MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1992.
19
Fréttir
Fjórir af eigendum Hlaðs. Frá vinstri Þorsteinn, Jónas, Gunnar og Trausti.
DV-mynd Jóhannes
50 tonn af
skotum á ári
Jöhannes Siguijónsson, DV, Húsavilc
Fyrirtækið Hlað sf. er hið eina
sinnar tegundar á íslandi; er með
fjöldaframleiðslu' á haglaskotum af
ýmsum stærðum og gerðum og end-
urhleður rifilskot. Efnin eru innflutt
en síðan hlaða starfsmenn Hlaðs.
Auk þess selur fyrirtækiö flestar
vörur sem tengjast skotveiðum.
Hlað sf. var stofnað 1984 og eigend-
ur þess eru Jónas HaUgrímsson, Jó-
hannes Haukur Hauksson, Trausti
Jón Gunnarsson, Þorsteinn Rúnar
Þorsteinsson og Gunnar Bóasson.
Að sögn Hlaðmanna er framleiðsl-
an seld um allt land. Aðeins 20% fara
á heimamarkað. Þeir telja markaðs-
hlutdeild sína á landinu vera 40-50%
en erfltt er að áætla það nákvæm-
lega. Innflutningur nemur milh 40
og 50 tonnum af efni árlega.
„Ætli það séu ekki svona 30 tonn
af höglum frá okkur sem fljúga um
loftin blá árlega," segja Hlaðmenn
og segjast alveg samkeppnisfærir við
innflutt skot um verð og gæði.
„Við erum með hágæðavöru og
höfum yfirleitt verið með lægsta
verðið,“ segir Gunnar Bóasson.
Reyndar telja margir að Hlað hafi
haldið verði á skotfærum niðri. Það
hefur ekki hækkað lengi.
ERTU VIÐBUINN
VETRI?
Líttu inn á næstu ESSO-stöð. Við bjóðum
sérstaka vetrarþjónustu fyrir bílinn þinn.
Starfsfólk okkar veit hvað gera þarf.
. Húsavík:
Áform um annað sambýli fatlaðra
Olíufélagið hf
-hvernig sem viðrar
Jóhaimes Siguijónsson, DV, Húsavík;
Sambýlið í Sólbrekku á Húsavík
hefur verið starfrækt í nokkur ár
með afar góðum árangri og er al-
menn ánægja með hvernig til hefur
tekist meðal íbúa, starfsfólks og bæj-
arbúa. Og nú eru líkur á að öðru
sambýli verði komið á fót í bænum.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á
Norðurlandi eystra hefur sent bæjar-
ráði bréf og óskar eftir viðræðum um
stofnun nýs sambýlis á Húsavík, en
samtökin Þroskahjálp hafa fengið
lánsloforð frá Húsnæðisstofnun til
byggingar einnar íbúðar fyrir fatlaða
á Húsavík.
Bæjarráð tók jákvætt í þessa mála-
Laugarvatn:
NýþökáNös
ogKös
Vilberg Tryggvason, DV, Laugarvatni:
Að undanförnu hefur staðið yfir
viðgerð á húseignum Menntaskólans
á Laugarvatni. Meðal annars voru
byggð ný þök yfir heimavistimar
Nös og Kös en fyrir löngu var orðið
tímabært að skipta um þök vegna
leka.
Aðspurður sagði Kristinn ‘ Krist-
mundsson skólameistari að þessar
aðgerðir hefðu byijaö með endumýj-
un húsgagna í herbergjum Nasar og
sagðist hann eiga von á frekari fram-
kvæmdum, sennilega næst nýju þaki
á yngsta hluta skólabyggingarinnar,
seni míglekur í rigningu, og múr-
klæöningu á elsta hluta skólahússins
sem hefur bólgnað og spmngið frá
veggjum um þó nokkra sentímetra.
Kristinn sagðist ekki vita um
kostnaðaráætlun vegna þess að Hótel
Edda stæði fyrir framkvæmdunum
og greiddi þannig leigu á húsnæðinu
yfir sumartímann. Hins vegar sagði
hann að hvort þakið á heimavistirn-
ar hefðu kostaö 7 milljónir króna.
Menntamálaráðherra, Ólafur G. Ein-
arsson, kom nýlega í heimsókn hing-
að og leist vel á það sem gert hefur
verið.
leitan og hefur bæjarstjóra verið fal-
ið að vinna að frekari undirbúningi
málsins.
ALLAR SKIPANIR KOMA UPP Á SJÓNVARPSSKJÁINN
MITSUBISHI M54 - 4 HAUSAR
MITSUBISHI MX1
Þrír hausar, allar skipanir á skjá, swift servo gerir alla þraeðingu og hraðspólun
mun hraðvirkari og betri, digital tracking, ýmsir leitunarmöguleikar, punktaleit-
un (index), tímaleitun, intelligent picture nær þvi besta úr gömlu myndböndun-
um, fullkomin fjarstýring, barnalæsing. o.fl.
Sértilboð kr. 33.950 stgr.
MITSUBISHI M34 - 4 HAUSAR
Fjögurra hausa tæki með long play, bæði mynd og hljóð, 8 tíma upptöku/af-
spilun, skipanir á skjá. Swift servo gerir alla þræðingu og hraðspólun mun
hraðvirkari og betri, digital tracking, ýmsir leitunarmöguleikar, punktaleitun
(index), tímaleitun, intelligent picture nær því besta úr gömlum myndböndum,
ársupptökuminni, fullkomin fjarstýring, barnalæsing og fleira.
Sértilboð kr. 39.950 stgr.
ÞETTA FÆRÐU HVERGI NEMA Í HLJÓMCO
Afborgunarskilmálar
S SS|S CE)
Ml JNALAN
Fjögurra hausa tæki með long play, bæði mynd og hljóð, 8 tíma upptöku/af-
spilun, skipanir á skjá. Fullkomin kyrrmynd. Nicam hi-fi stereo. Swift servo
gerir alla þræðingu og hraðspólun mun hraðvirkari og betri. Skipanir á skjá,
digital tracking, intelligent picture nær því besta úr gömlum myndböndum.
Ýmsir leitunarmöguleikar, svo sem punktaleitun (index), tímaleitun, barnalæs-
ing og fleira.
Sértilboð kr. 55.900 stgr.
MITSUBISHI M55 - 4 HAUSAR
Fjögurra hausa tæki með long play, bæði mynd og hljóð, 8 tíma upptöku- og
afspilun. Micam hi-fi stereo, NTSC afspilun á pal-tæki, afspilun á S-VHS spól-
um, punktaleitun (index), tlmaleitun, skipanir á skjá, ársupptökuminni, sjálfvirk
hausahreinsun, swift servo gerir alla þræðingu og hraðspólun mun hraðvirkari
og öruggari. Klippimöguleikar, intelligent picture nær því besta úr gömlum
myndbóndum. Digital tracking, fullkomin fjarstýring, barnalæsing og fleira.
Sértilboð kr. 69.950 stgr.
Vönduð verslun
ULJÍMC6
FÁKAFENI 11 - SÍMI 688005