Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Blaðsíða 20
20
MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1992.
Sviðsljós
Frá athöfninni i Arbæjarsafnskirkju.
Rómantíkin í
lögreglunni
Rómtíkin blómstrar í lögreglunni
ekkert síöur en annars staöar eins
og sannaðist á dögunum þegar Sig-
uröur Þórðarson og María Sigurbjört
Lárusdóttir gengu í hjónaband í Ár-
bæjarsafnskirkju. Þau starfa bæði
hjá lögreglunni í Reykjavík þar sem
leiðir þeirra lágu saman við störf í
umferðardeildinni fyrir þremur og
hálfu ári. í dag eru þau komin í al-
mennu deildina og auðvitað vinna
hjónakomin á sömu vaktinni.
Brúðkaupsferðin var farin „fyrir-
fram“ til Dubhn á írlandi eij í kirkj-
una og mótttökuna mættu nánustu
ættingjar og vinir enda átti allt að
fara fram í kyrrþey. Það heppnaðist
nú kannski ekki alveg því ljósmynd-
ari DV var á staðnum og festi allt á
filmu.
DV-myndir Sveinn
Sigurður og María Sigurbjört í fullum skrúöa.
Sjúkrabíll í
Strandasýslu
Nýtt
umferðar-
skilti?
Einhverjum náunganum hefur
greinilega ekki fundist þörf á að
nota peysuna sína í islenska
haustveörinu og því tyllt henni á
þetta umferöarmerkl sem er rétf
viö lögreglustöðina á Dalvík. Þar
hékk peysan í nokkra daga en
er nú vaentanlega komin aftur I
klæðaskáp eigandans.
DV-mynd Heimir
Krislinsson, Dalvik
Guöfirmur Firmbogason, DV, Hólmavílc
Rauöakrossdeildin í Strandasýslu
afhenti 11. okt. nýjan sjúkrabO til
afnota fyrir læknishéraðiö. Við Qár-
öflun var gengið í hvert hús og haft
samband við forsvarsmenn allra fé-
laga, stofnana og fyrirtækja í sýsl-
unni með þeim árangri aö lítið vant-
ar á að full greiðsla hafi verið innt
af hendi. Framlag úr sérverkefna-
sjóði RKI skipti miklu; nam 25% af
veröi bílsins sem kostaði 6,8 millj. kr.
Hann er af Ford Econoline-gerð,
rpjög fullkominn. Viö afhendingu
þakkaði Gunnar Jónsson, formaður
fjáröflunamefndar, fyrir stuðning og
við það tækifæri • afhenti Jóhann
Amgrímsson, umboðsmaður Sjóvá-
Almennra á Hólmavík, Rauðakross-
deildinni 100 þús.krónur.
Bjarnveig Pálsdóttir, formaður stjómar heilsugæslustöðvarinnar á Hólma-
vfk, tekur við lyklum úr hendi Gunnars Jónssonar. DV-mynd Guðfinnur
Sinawik-konur á Dalvik færðu nýlega heilsugæslustöðinni þar i bæ
skyndihjáipartösku að gjöf. Andvirði töskunnar er 154 þúsund krónur
en konumar gáfu jafnframt einstaklingi peningagjöf og Kvennaathvarfinu
i Reykjavik færðu þær 25 þúsund krónur. Peningamir eru afrakstur
„konukvölds" sem haldið var fyrr á árinu með Heiðari Jónssy ni snyrfi.
DV-mynd Heimir Kristinsson, Dalvík
Traktorinn, sem stendur við Safnahúsið Hvol á Dalvik á sumrin, hefur
verið flultur í vetrargeymslu og var myndln tekin við það tækifæri. Trakt-
orlnn, sem gerður var upp og er $ fullkomnu lagi, var fyrsta alvöru land-
búnaðartækið sem notað var i Svarfaðardal og nágrenni.
DV-mynd Heimir Kristinsson, Dalvík
Gestir á Púlsinum veittu hljómsveitinni Af lífi og sál mikla athygli og
þá ekki síst söngvurunum Kristjönu Ólafsdóttur og Hauki Haukssyni.
Haukur er bróðir hins þekkta söngvara, Eiríks Haukssonar, og var ekki
laust viö að margir sæju ýmislegt líkt með þehn bræðrum. A.m.k. er
hárstíllinn ekki ósvipaöur. DV-mynd RaSi
„Flókakvöld" var haldið á Kjarvalsstöðum nýlega og var uppákoman I
lengslum vlð sýníngu á verkum AHreðs Flóka. Nokkrir vinir listamanns-
ins minntust hans, hver á slnn hátt, og á meðal þeirra voru Atli Heimir
Sveinsson, Sjón og Ólafur Gunnarsson sem hér sitja saman.
DV-Sveinn