Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Síða 22
22 MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1992. Fréttir „Bæjarstjóramálið“ á Ólafsfirði blossar upp: Það hef ur ekki gróið um heilt með mönnum - segir Óskar Þór, forseti bæjarstjómar - ekki meiriMuti fyrir því að ég hætti, segir Bjami bæjarstjóri Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Það hefur bara ekki gróið um heilt með mönnum þótt þeir hafi setið á sér,“ segir Óskar Þór Sigur- bjömsson, forseti bæjarstjórnar á Olafsfirði. „Bæjarstjóradeilan" þar í bæ hefur nú komið upp á yfirborð- ið aftur og Bjama Grímssyni bæj- arstjóra hefur verið gert tilboð um að láta af störfum en hann hafnað því. Menn minnast eflaust deilunnar sem upp kom á síðasta ári milli bæjarstjórans ög þriggja fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem er í meiri- hluta í bæjarstjóminni. Þá urðu lyktir málsins þær að þrír bæjar- fulltrúar meirihlutans af fjórum tóku sér frí frá störfum tÚ ára- móta, Siguröur Björnsspn, Kristín Trampe og Þorsteinn Ásgeirsson, og varamenn komu í þeirra stað. Um áramótin komu þeir síðan inn aftur og þá var því lýst yfir að sætt- ir hefðu tekist með mönnum og þeir myndu starfa í einlægni með bæjarstjóranum. Bjarni Grímsson bæjarstjóri sagði í samtali við DV að ástandið nú væri ekkert verra en það hefði verið og hefði ekkert lagast þrátt fyrir yfirlýsingar á sínum tíma. „Málið er að þeir geta ekki gert mér neitt tilboð um starfslok nema meirihluti sé fyrir því í bæjar- stjórninni og ég veit ekki um þann meirihluta. Þangað til gildir samn- ingur við mig og menn verða að fara eftir honum nema meirihluti bæjarstjórnar telji sig ekki geta stárfað með mér. Eg hef ekki brotið af mér í starfi og þetta er mál Sjálf- stæðisflokksins," segir Bjami. Óskar Þór Sigurbjörnsson, odd- viti sjálfstæðismanna, sem ávallt hefur stutt bæjarstjórann í þessu deilumáli, tjáöi DV að ýmsar um- leitanir hefðu farið fram í „fullum góðheitum" en það væri ekkert frekar á döfinni nú en í vor að bæjarstjórinn léti af störfum. „Þetta hafa verið óformlegar þreif- ingar. En ég get staðfest að fyrir um hálfum mánuði var rætt við bæjarstjórann um starfslok hans,“ segir Óskar Þór. ðskar Þór segir að ekki sé annað hægt en að menn starfi sáttir og þetta séu persónulegar deilur manna frá gamalli tíð sem komi upp í ýmsum málum. En er það ekki ófært að meirihlutamenn geti ekki unnið af heilindum með bæj- arstjóra? „Það er auðvitað ófært en það má segja aö þetta sé ipjög afmörkuð deila sökum þess að hún er per- sónuleg. Ég á ekki von á því að málið gangi eins langt og gerðist á síðasta ári, ég held að menn hafi þroskast í þeirri deiiu.“ Hvernig hyggst þú taka á þessu máli sem oddviti meirihlutans í bæjarstjórn? „Það læt ég ekki uppi í fiölmiðl- um. Þótt þetta mál hafi verið dreg- iö fram núna þá er það ekkert frek- ar á döfinni nú en t.d. fyrir nokkr- um mánuðum. Þetta hefur blossað upp í einstaka málum en legið niðri þess á milli,“ sagði Óskar Þór. Heimir að snúa í fjallagrasaflekknum DV-mynd Ragnar Fjallagrös í tonnatali Júlía Imsland, DV, Höfru „Fjallagrös þarf að þurrka líkt og hey og nægir venjulega einn góður þurrkdagur," sagði Heimir Þór Gíslason á Höfn en hann eyðir sumr- inu á „grasafialli“ ásamt konu sinni, Sigríði Helgadóttur. Heimir og Sigríður eru sennilega þau einu hérlendis sem hafa fialla- grasatínslu að atvinnu. í sumar tíndu þau þrjú og hálft tonn af grösum en það magn fyllir eitt þúsund svarta ruslapoka. Þá er miðað við þurrkuð grös. Grösin tína þau 'norður á Jökul- dalsheiði og að lokinni þurrkun og hreinsun, sem er mikil vinna, eru þau seld til Þýskalands utan þaö sem fastir viðskipavinir fá. „Við notum mikið af fiallagrösum sjálf, til dæmis í slátur, brauö og súpur," sagði Heimir „og okkur finnst þetta afskaplega góður mat- ur“. Hress hrútur þrátt fyrir langa útivist öm Þórarinsson, DV, Fljótuni: Við smölun í haust heimtist hrútur sem hafði gengið úti í fyrravetur. Þetta var veturgamall hrútur sem hafði verið í Héðinsfirði. Hrússi haföi sést á útmánuðum í vor í firðinum. Þá var reynt að ná hrútnum en það mistókst. Hann kom síðan til rétta með öðru fé í haust þegar Siglfirðing- ar smöluðu Héðinsfiörð. Hrúturinn, sem er frá Brúnastöð- um í Fljótum, er vænn miðaö við aðstæður enda sumarhagar sérlega góðir í Héðinsfirði. Það heyrir til al- gerra undantekninga að útigengið fé heimtist í Fljótum en síðasti vetur var sérlega mildur. Húsavík: Prentsmiðjan á Bessa- stöðum til sölu Jóhames Siguijónsson, DV, Húsavík: Prentsmiðjan Örk á Húsavík hefur verið auglýst til sölu. Prentsmiðjan hefur verið í rekstri um árabil á Húsavík en verið sl. 7 ár í eigu þeirra Sigrúnar Ingvarsdóttur og Grétu Sigfúsdóttur. Prentsmiðjan er til húsa í gömlu húsi sem heitir því höfðinglega nafni Bessastaðir. Reksturinn hefur reyndar gengið vel og haft næg verkefni en eigend- umir vilja einfaldlega fara að minnka við sig vinnu og eru því að kanna hvort einhver hefur áhuga á að kaupa fyrirtækið. Nokkrir aðilar hafa spurst fyrir um hugsanleg kaup en Sigrún sagði að ekkert ákveðið lægi fyrir og eins víst að þær yrðu áfram með fyrirtækið um nokkurn tíma. EskiQörður: Bygging heilsu- gæslustöðvar haf in Emil Thorarensen, DV, Eskifirði: Langþráðum áfanga í tengslum við heiibrigðismál byggðanna við Reyð- arfiörð og Eskifiörð var náð 8. októb- er þegar formlega var hafist handa við byggingu heilsugæslustöðvar fyrir Eskfiröinga og Reyöfirðinga. Viðstaddir athöfnina voru sveitar- stjórnarmenn byggðarlaganna og starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar. Sigurborg Einarsdóttir, hjúkrun- arforstjóri á Eskifirði, tók fyrstu skóflustunguna að þessu langþráða húsi en hún hefur á 28 ára farsælum starfsferli unnið sem ljósmóðir, hjúkrunarfræðingur og forstjóri síð- an stöðin var tekin í notkun árið 1964. Heilsugæslustöðin er staðsett á Eskifirði og er 650 m2 á 2 hæðum að flatarmáli. Eftir útboð var samið viö Byggðarholt sf. á Eskifirði en tilboð þess var 46.850.000 kr. í fullbúið hús- iö. Skal verkinu lokiö vorið 1995. Arkitektar eru Magnús Skúlason og Sigurður Harðarson, Rvík. Raf- tæknistofan sér um rafmagnshönn- un en verkfræöilegu hliðina Hönnun hf. Stjórnarformaður heilsugæslu- stöðvarinnar er Jón Guömundsson á Reyðarfirði. Sigurborg Einarsdóttir tekur fyrstu skolfustungana að viðstöddum sveitar- stjórnarmönnum. DV-mynd Emil

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.