Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Page 26
38
MANUDAGUR 26. OKTÓBER 1992.
$1S\ ...alltafþegar
það er betra
STANGVEIÐIMENN
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í stangveiði í Svartá, A-Hún., ásamt
veiðihúsi, sumarið 1993.
Tilboð sendist til Halldórs B. Maríassonar, Finns-
tungu, 541 Blönduós, fyrir 5. nóv. nk„ sem veitir
allar uppl. í sima 95-27117.
Áskilinn réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða
hafna öllum.
Stjórn Veiðifélags Blöndu og Svartár
VÖRUBÍLSBRETTl
BRETTAKANTAR
Framleiðum úr trefjaplasti bretti, sólskyggni og margt fleira
■MBi fyrir vörubíla, einnig brettakanta
fmímm og sólskyggni fyrir flestar vMv
tegundir jeppa og picupbíla. Tökum að okkur plastviðgerð-
ir og breytingar. Boddíplast
SCANIA V Uppl. alla daga í simum 91-684045 - 670043 - 677006
Aukablað
Tækni
DV-tækni er sérstakt aukablað sem fyrirhug-
að er miðvikudaginn 11. nóvember nk.
í blaðinu verður Qallað um tækni og visindi á breið-
um grundvelli, sérstaklega nýjustu tækni til daglegra
nota á heimilum og til tómstunda og skemmtunar.
Efnistök einkennast af stuttum, hnitmiðuðum grein-
um á máli sem venjulegir notendur skilja jafn vel og
tæknimenn.
í ráði er að fjalla m.a. um tækni og búnað á íslensk-
um markaði, svo sem myndbandstökuvélar, mynd-
bandstæki, sjónvörp, gervihnattasjónvarp, síma, far-
síma, símsvara, póstfax, þjófavarnarkerfi og rafeinda-
hljóðfæri, svo að eitthvað sé nefnt.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa i
þessu aukablaði vinsamlega hafi samband við Sonju
Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta, i síma
632722.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur auglýs-
inga er fimmtudagurinn 5. nóvember.
iNú er ódýrt að flísaleggja! ■
.V Hagstæð innkaup
wr Niðurfelling jöfnunargjaids
| >V Hagstæð gengisþróun
Nýjar sendingar á lægra verði.
Dæmi: |
| Gólfflísar 20 x 20 kr. 1.250.-
30 x 30 kr. 1.450.-
Veggflísar 15 x 22,5 kr. 1.350.-
! ALFABORG !
Meiming
Saga háskóla-
bygginga án við-
unandibókasafns
Rit þetta einkennist öðru fremur af miklum dugnaði
höfundarins, dr. Páls Sigurðssonar prófessors, við
heimildaöflun, og á þaö jafnt við um ritaðar heimild-
ir, myndir, uppdrætti, teikningar og viðtöl við starfs-
menn Háskóla íslands. Hér er um að ræða framhald
af riti sama höfundar, sem gefið var út á 75 ára af-
mæli Háskóla íslands 1986. Fjallaði fyrra bindið um
byggingarsögu háskólans, hugmyndir, aðdraganda og
framkvæmdir fram yfir 1940. Hér tekur höfundur upp
þráðinn þar sem frá var horfið og rekur söguna frá
1940 til 1990.
Þetta síðara bindi er enn meira að vöxtum en hið
fyrra, sem þó var engin smásmíð. Stærð ritsins ræðst
mjög af þeirri aðferð höfundar að láta frumheimildim-
ar sem mest tala sínu máh sjáifar. Má e.t.v. segja að
það sé í senn kostur og galli, allt eftir þvi hvernig á
málið er htið. Stærð bókarinnar virkar kannski frá-
hrindandi á einhvern hátt og e.t.v. hefði verið unnt
að auka enn á læsileika hennar með því að vinna bet-
ur úr heimildunum og skera efnið þannig niður. En á
móti kemur að með þessu móti fá lesendur að heyra
óritskoðuð sjónarmiö margra helstu frumhérja og
Bókmenntir
Gunnlaugur A. Jónsson
baráttumanna í húsnæðis- og byggingarmálum há-
skólans.
Rit þetta er raunar miklu meira en byggingarsaga
háskólans í þröngum skilningi, því mikið er lagt upp
úr að veita lesendum innsýn í það mannlíf og þá starf-
semi sem þrifist hefur í háskólabyggingunum. Eru það
ekki síst þeir hlutar ritsins sem gæða það lífi og auka
á læsileika þess.
Þetta síðara bindi skiptist í þrjá meginþætti. Fyrsti
hlutinn íjallar um tímabilið 1940 til 1961, þ.e. frá vígslu
aðalbyggingar háskólans og fram til vígslu Háskóla-
bíós. Varla getur nokkur andmælt þeirri ákvörðun
höfundar að kenna þetta tímabil við dr. Alexander
Jóhannesson, prófessor og rektor, svo mikill fr'um-
kvöðull og forystumaður sem hann var í öllum framf-
aramálum háskólans þennan tíma. Næsta timabil,
1961-1976, einkennist að mati höfundar ekki síst af
sókn raunvísindagreina og byggingu húsnæðis fyrir
þær. Síðasti þátturinn íjallar um þróun síðustu ára,
sem einkennst hefur af mikilli íjölgun stúdenta í há-
skólanum sem og íjölgun kennslugreina og háskóla-
stofnana.
Höfundur bendir réttilega á að það sem sérkennir
byggingarsögu Háskóla íslands frá upphafi er að flest
hafa húsin verið reist fyrir tekjur af Happdrætti Há-
skólans, sem löngum hefur notið velvildar og vinsælda
meðal almennings. Kemst höfundur vel að orði er
Byggingar á Háskólalóðinni séðar úr lofti.
hann segir að með þessum hætti hafi byggingarnar
orðið eins konar „þjóðargjöf' og óvíst væri meö öllu
hvernig umhorfs væri á háskólalóðinni ef hennar hefði
ekki notið við. Hér er því miður ekki einu sinni rými
til aö stikla á stóru í þessari fróðlegu sögu.
Það hlýtur að koma í huga margra við lestur þessa
rits að þrátt fyrir allar hinar miklu byggingarfram-
kvæmdir háskólans þá er það enn svo að bókasafns
skólans er með öllu óviðunandi og stenst engan veginn
þær kröfur sem geröar eru til háskóla og rannsóknar-
stofnana af svipaðri stærð erlendis. Hugmyndin um
sameiningu Háskólabókasafns og Landsbókasafns var
áratugagömul þegar Alþingi samþykkti vorið 1970
þingsályktun þess efnis að í tilefni af 1100 ára afmælis
íslandsbyggðar skyldi reist Þjóðarbókhlaða. Allir
þekkja þá raunasögu. Nú, meira en 20 árum síðar,
hefur sú bygging enn ekki verið tekin í notkun, og
hafa fáar opinberar byggingar verið lengur í smíðum
en Þjóðarbókhlaðan. Er óhætt að segja að sú saga sé
til mikillar minnkunar þeirri þjóð sem kallar sig bóka-
þjóð á hátíðarstundum. Páll Skúlason heimspekipró-
fessor hitti naglann á höfuðið er hann líkti tómri bygg-
ingunni við „grafhýsi hugsjónanna" í blaðagrein fyrir
fáeinum árum. Þrátt fyrir allt það mikla sem áunnist
hefur i húsnæðismálum háskólans og þessi ítarlega,
fróðlega og vandaða bók Páls Sigurðssoncir prófessors
lýsir svo vel, þá hvílir þessi skuggi yfir Háskóla ís-
lands að skólinn ræður ekki enn - eftir meira en 80
ára starf - yfir viðunandi bókasafni þó gott starf sé
unnið af starfsmönnum þess litla safns sem skólinn
ræður þó yfir. Hafa háskólamenn margir hverjir verið
furðu sinnulausir um framgang bókhlöðumálsins, og
meðan svo er veröur stjórnmálamönnunum ekki ein-
um kennt um hvemig komið er, þó vissulega sé
ábyrgðin fyrst og fremst þeirra.
Páll Sigurósson:
Úr húsnæðis- og byggingarsögu Háskóla íslands II.
Draumsýnir, framkvæmdir og svipmyndir af samfélaginu
1940-1990.
Háskólaútgáfan 1991 (613 bls.)
Bíóborgin: Rush: ★★ */2
Eitur í æðum
Rush er lauslega byggð á sannsögulegum atburðum
sem komu fyrir lögréglukonua Kim Wozenkraft þegar
hún vann huldu höfði meðal eiturlyfjaneytenda og
seljenda í smábæ í Texas á miðjum áttunda áratugn-
um. Hún og félagi hennar áttu að hafa hendur í hári
kráareiganda sem grunaður var um eiturlyfjasölu en
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir gaf hann ekki færi á
sér. Málið dróst á langinn og lögreglumennirnir tveir
soguðust lengra inn í heim eiturlyfja en þeir ætluðu
sér.
Myndin byrjar á langri samfelldri töku, eins og eru
mikið í tísku núna, en það er í eina skiptið sem ég tók
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
eftir að tæknivinnan tranaði sér áberandi fram í mynd-
inni. Hún er rólega gerð, vel sviðsett en full ópersónu-
lega. Persónumar eru fjarlægar og raunir þeirra eru
ekki eins átakanlegar og þær gætu verið.
Þau Jason Patric og Jennifer Jason Leigh sýna mjög
agaðan og raunverulegan leik, sérstaklega Leigh, en
fá ekki úr miklu að spila, sérstaklega ekki þar sem
þau eiga að vera í ástarsambandi. Myndin er svo hörð
á þvi að vera raunveruleg án þess að vera með heim-
ildamyndasniði að hún sniðgengur dramatíkina í at-
burðarásinni. Áhorfandinn er aðeins vitni að slatta
af atriðum með lágmarkssamhengi. Góðir aukaleikar-
ar eru jafnvel enn betri en parið, sérstaklega Perlish
sem á fáar myndir að baki en gæti átt góða framtíð.
Það tekur myndina langan tíma að byggja upp
spennu með atburðarásinni sjálfri en hún er raunveru-
leg og á endanum grípandi en ekki alveg nóg.
Handritið að myndinni er skrifað af Pete Dexter, rit-
höfundi og upprennandi leikstjóra (Paris Trout, sem
var líka mjög ópersónuleg) en Rush er leikstýrð af
Lili Fini Zanuck, eiginkonu Richard D. Zanuck, sons
hins fræga Darryl F. Zanuck. Þau Zanuck-hjónin eru
búin að vera iðin við framleiðslu síðustu árin og gerðu
meðal annars Driving Miss Daisy og Cocoon en þetta
er fyrsta myndin sem Lih leikstýrir.
Rush (Band. 1991) 120 mín.
Handrit: Pete Dexter eftir bók Kim Wozencraft.
Leikstjórn: Lill Fini Zanuck.
Lelkarar: Jason Patrlc (Lost Boys, Solarbabies), Jennlfer Ja-
son Leigh (Single White Female, Backdraft, Last Exit to Brook-
lyn), Sam Elllot, Max Perlich (The Butcher’s Wife), Gregg
Allman, William Sadler (Bill & Teds Bogus., Die Hard 2).