Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Qupperneq 27
MÁNUDAGUK 26: OKTÓBER 1992.
.39
Meiuiing
Sálmur á
leiðarenda
Þessi skáldsaga gerist um borð í skipinu Titanic í
apríl 1912. Það var eins og flestir vita risavaxið farþega-
skip og einstaklega ríkmannlega búið, talið ósökk-
vandi, en rakst á borgarísjaka í fyrstu ferð sinni og
sökk ásamt fjölda manns. Hér er þessi saga sögð með
hijómsveitina í sviðsijósinu. Hún dregur eðlilega að
sér athyglina þegar sagt er frá endalokum Titanic,
vegna þeirrar lífseigu þjóðsögu að hún hafi leikið
„Hærra minn guð til þín“ meðan skipið sökk. Hér er
sú saga reyndar tætt sundur. Aukapersónur eru fáein-
ir þjónar og yfirmenn á skipinu en statistar eru farþeg-
ar, einkum á fyrsta farrými, en einnig svolítið farþeg-
ar þriðja farrýmis. Hljóðfæraleikaramir eru í skarpri
andstöðu við yfirstéttarfólkið, sem mest ber á, því
þeir eru fátækir og aliir á einhvem hátt misheppnaðir
listamenn, svona kaffihúsahijómsveit er ekki mikils
metin.
Bókmenntir
örn Ólafsson
Flétta
sögunnar er að ýmsu leyti vönduð. Þannig koma
forboðar um þoku, ís, dauða o.fl. af því tagi einmitt í
lýsingum af unaði og fegurð. En skáldsagan er þannig
samsett að rammi hennar segir frá ferð skipsins, með
sérstakri áherslu á hljómsveitina. Inn í þetta er svo
skotið forsögu fimm hljóðfæraleikara af sjö, allt frá
bamsaldri. Og á þessu tvennu virðist mér mikill gæða-
munur. Rammasagan og saga hljómsveitarstjórans
enska eru myndrænar og þmngnar dapurlegu and-
rúmslofti, einkum í þeirri síðarnefndu er dauði sífellt
stef í ýmsum tilbrigðum. En hinar forsögumar ijúfa
þennan hugblæ, með því að fara langt af vettvangi og
tíma. Það liggur við að aðalsagan gleymist, það er eins
og maður sé farinn að lesa aðrar bækur. Ein gerist í
Rússlandi, önnur í Þýskalandi og París, þriðja í Vín,
fjórða í Ítalíu. Þannig verður skáldsagan breið í fram-
setningu, sýnir margvíslegt mannlíf, sem allt hnígur
þó að sama enda, meiningarlausum dauða. Þetta verð-
ur dæmigert fyrir allt mannlífið, ætti að geta gert sög-
una altækari og látið hana grípa lesendur. En höfund-
ur ræður bara ekki við allt þetta sundurleita efni.
Enda eru sögurnar, einkum af Spot og Davíð, að sönnu
langar en afar samþjappaðar, hvor um sig átakasöm
mannsævi í stuttu máli. Þetta verður eins konar ágrip
af kunnum skáidsögum, t.d. Jóhanni Kristófer eftir
Romain Rolland. Enda er þetta mestmegnis frásögn
ágengs sögumanns, sem ekki bara veit allt, heldur
túlkar líka allt ofan í lesendur (t.d. bls. 216+291): „Hon-
um datt ekki 1 hug að hughreysta hana, reyna að
skilja hugarangur hennar. Hinsvegar lét hann á sér
skilja að hann væri sjálfur óhamingjusamur" o.s.frv.
Það er auðskilið að svona frásögn grípur lesendur
Sálmur á leiðarenda gerist um borð í Titanic.
miklu síður en ef þeir fengju sjálfir að skynja, hugsa
og álykta. Fyrir bragðið dettur sagan niður í miðjum
klíöum að mínu mati.
Þýðingin
virðist yfirleitt vönduð, skila bæði merkingu og
stílblæ. Það er varla tiltökumál þótt einstakir hnökrar
séu í svo löngu verki. Nefna má t.d.: „í þröngri götu
haíði lágvaxinn maður með bögglaðan skálk gengið í
veg fyrir hann“ (bls. 29). Setningin er óskiljanleg, í
hvaða orðabók sem flett er upp á skálkur. En þetta
er þá þýðing á norska orðinu „skalk" sem merkir pípu-
hattur. Á sama hátt er „sakkváte" þýtt sem „sökkvot-
ir“ (bls. 352), en það orð er ekki til í íslensku. „Þau
borðuöu lambakótilettur í stað grænmétis" (bls. 215)
er ankannalegt enda hefur þýðandi sett grænmetið inn
í dæmið. Ruglað saman forsetningunum af og að, og
„hljómsveitarmeðlimir" þykir mér stirt, sömuleiðis
„persónur“ fyrir menn eða mannverur, og „til sjós“
fyrir á sjó. Einkum er þetta slettulegt orðalag. En þaö
er ekki áberandi í bókinni. Hún er ekkert listaverk
en ágæt lesning á köflum.
Erik Fosnes Hansen: Sálmur á leíöarenda
Hannes Síglússon þýddi.
Mál og menning 1992, 361 bls.
Lykill að íslenskri náttúru
Enda þótt íslendingar fari gjaman til annarra landa
í sumarfrí ferðast fiölskyldur mikið um landið og njóta
fallegrar og fiölbreyttrar náttúru. Bömin eru þá oft
með og leitast er við að útskýra ýmislegt það sem fyr-
ir augu ber. Öll fyrirbæri eiga sér nafn og fullorðnir
em oft spurðir spuminga sem þeir eiga fullt í fangi
með að svara.
Þess vegna er sérstakt fagnaðarefni að út er komin
ferðahandbók fyrir böm, Skoðum landið. Höfundur
hennar er Bjöm Hróarsson, jarðfræðingur og áhuga-
maður um ferðamál. í bókinni er í máli og myndum
Bókmenntir
Sigurður Helgason
útskýrt ýmislegt í landslaginu. Til dæmis er útskýrt
hvað sé láglengdi og hálendi, hvað sé fiörður og hvem-
ig dalir hafa orðið til. Þannig er farið yfir flest þau
hugtök sem fólk rekur sig á í náttúrunni og í umhverf-
inu. Meðal spurninga sem svarað er er hvað er stytta
og hvað er minnismerki. Og höfundur ann greinilega
náttúrunni og leitast við að láta fylgja með leiðbeining-
ar um umgengni í náttúrunni, umgengni á tjaldstæð-
um og að sýna aðgát í varplöndum.
Texti bókarinnar er frekar knappur en segir þó í
raun allt sem segja þarf. Málið er skýrt og gott og segja
má að textinn og myndimar vinni mjög vel saman til
að útskýra það sem fiallað er um. Þannig tekst að
skýra hlutina mjög vel út og svara mörgum spuming-
um.
Skoðum landið er eins konar lykill að íslandi og ís-
lenskri náttúru. Sá sem les bókina fær ósjálfrátt áhuga
á að ferðast og kynnast landinu. Höfundur tók mynd-
imar og em þær mjög góðar. Honum hefur tekist að
ná oft á tíðum mjög fallegu sjónarhomi án þess að
draga úr gildi myndarinnar til að útskýra þaö sem
verið er að segja frá.
Skoðum landið er falleg bók og unnin af alúð til að
fræða böm. Styrkur hennar er fyrst og síðast aðgengi-
leiki og skýr framsetning. Enginn vafi leikur á að
kennarar í grunnskólum munu nota hana sem þjálpar-
tæki í kennslu í landafræði. Fremst og aftast em kort
af íslandi sem öll helstu byggðarlög landsins em merkt
inn á, auk annarra markverðra staða.
Bókin Skoðum landið fær lesendur án efa til að hafa
augun betur opin á ferðalögum og skynja umhverfið
betur og átta sig á því hvað fyrir augu ber. Þannig
verða ferðalög skemmtilegri en ella.
Björn Hróarsson:
Skoöum landið. Ferðahandbók barnanna.
Reykjavlk, Mál og mennlng, 1992
MITSUBISHI
SJÓNVARPSTÆKI
TINTEÍr^1
TUBE I
* 21" black diamond flatur slgar * Euro tengi * Skipanir
á skjá * Tímarofi * Fjarsfýring * ísl. stafir í textavarpi.
Sértilboð kr. 56.500 stgr.
CTC | CTI | mu,
NICflM I FASTtXI |RCD
_| IX
Ea hus
* 21" Micam stereo biack diamond flatur skjár * 2x20
W magnari * S-VHS inngangur * Skipanir á skjá * 2 euro
tengi meö 3 minnum fyrir hljóð og mynd * ísl. stafir i
textavarpi * Timarofi * Fjarsfyring.
Sértilboð kr. 69.900 stgr.
SCARTJ
I0FFJ5S
*25" black diamond flatur slgar * Euro tengi * Skipanir
á skjá * Tímarofi * Eullkomið textavarp með ísl. stöfum *
Ijarsfyring.
Sértilboð kr. 69.900 stgr.
ctcIctií^
NICflM I tASUXT |RCD
_| r’C
EOIbus
* 25" riicam stereo black diamond flatur slgar * S-VHS
inngangur * Skipanir á skjá * Euro tengi með 3 mismun-
andi minnum fyrir hljóð og mynd * Fullkomið textavarp
með isl. stöfum * Tímarofi * fjarsfyring * 2x20w magnari.
Sértilboð kr. 89.900 stgr.
■SPfAKfRÍ PLANAR
OBLI BR I CTCICTI
■ I IWHMllS ■
IlMíil
tASHXTl ntsc
Ittkl
*29" black super planar flatur skjár * Topphljómgæði
með Micam stereo og 5 hátölurum * Rafdrifinn snúnings-
fótur * Fjölkerfatæki, n.t. s.c. secam * 2 euro tengi +
S-VHS inngangur * 3 minni fyrir mismunandi hljóð og
mynd * Fúllkomið textavarp með ísl. stöfúm * Fjarstýring.
Sértilboð kr. 129.900 stgr.
Aftxirgunarskilmálar
(D
VÖNDUÐ VERSLUN
HLJÓI O
FÁKAFEN 11 — SÍMI 688005