Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Page 39
MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1992. dv Fjölmiölar Imbinn Stöð 2 hefur boöið upp á ágætis sjónvarpskvöld á sunnudögum undanfarið. Það sama verður vart sagt um hina stöðina. Vafa- laust finnst einhver manneskja sem áliuga hefur á að horfa á Hvíta víkinginn en varla er það Qöldinn. Ljótleikinn í mynda- tlokknum er yfirgengilegur að mínu mati. Hins vegar má vel segja að leikarar standi sig þar með ágætum. í gærkvöldi tók ég skoskan tveggjaþátta myndaflokk framyf- ir. Alveg ágætis þáttur þó hann væri ruglingslegur. Það verður því enn meira spennandi að bíða eftir síðari hlutanum í kvöld. Margir virðast geta komið til greina sem morðingjar og varla er hann saklaus saksóknarinn. Svo virðist hins vegar vera sem klíkan í kringum hann ætli sér að láta dæmið líta þannig út. imbakassi þeirra Gysbræðra hefur farið ágætlega af stað þó Sigga Sigurjóns sé sárt saknaö. Vonandi á að hann eftir aö koma til liös við þessa félaga sina. Gys- bræður virðast vera að búa til eigin stíl án áhrifa frá Stöðinni. Það virðist hafa tekist nokkuð vel en aö mínu mati er allt í lagi þó áhrifm fái að halda sér frá gömlu þáttunum. Aðalatriðið er að koma áhorfendum til aö brosa og varla veitir af á þessum síðustu og verstu tímum. Það hefur Gys- bræðrum tekist og þá er tilgang- inum náð. Þáttur Helga Péturssonar fór þvi miöur fvrir ofan garð og neð- an vegna gestakomu. Það væri ekki vitlaust hjá Sjónvarpinu að endursýna þá þætti t.d á sunnu- dagseftirmiðdegi - fyrir þá sem eru uppteknir á laugardags- kvöldinu við eitthvað annað en sjónvarpsgláp. Elín Albertsdóttir Andlát Valný Tómasdóttir, Kvisthaga 21, lést í Borgarspítalanum 23. október. Jarðarfarir Magnús Magnússon, Brekkubæ 2, er lést aö kvöldi 21. þessa mánaðar í Landspítalanum, verður jarðsung- inn frá Lágafeflskirkju fóstudaginn 30. okt. kl. 13.30. Útför Ásmundar Steins Bjömssonar, Sunnuhvoli, Garði, hefur farið fram. Hinrik Eiriksson, Nökkvavogi 28, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju þriðjudaginn 27. október kl. 15. Stefanía Sigurgeirsdóttir frá Grana- stöðum, Espigerði 10, Reykjavík, verður jarðsett frá Langholtskirkju þriðjudaginn 27. október kl. 13.30. Ingi Guðmonsson bátasmiður, Hlíð- argerði 2, Reykjavík, -verður jarð- sunginn frá Akraneskirkju fimmtu- daginn 29. október kl. 14. Minningar- athöfn verður í Fossvogskirkju þriðjudaginn 27. október kl. 13.30. Sigriður Ólafsdóttir, Droplaugar- stöðum, áður til heimflis í Ingólfs- stræti 21 D, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 27. október kl. 15.30. Þórey Þórðardóttir, Sólvallagötu 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðviku- daginn 28. Qktóber kl. 15. Haraldur Georgsson bóndi, Haga, Gnúpveriahreppi, sem andaðist á heimili sínu þann 19. október, verður jarðsunginn frá Stóra-Núpskirkju þriðjudaginn 27. október kl. 14. Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11.30. Guðmunda Kristjana Guðmunds- dóttir, Huldulandi 1, verður jarð- sungin í Fossvogskirkju í dag, 26. október kl. 15. Lína Kragh, til heimilis í Hraunbæ 102 E, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, 26. október kl. 13.30. © 1991 by King Features Syndicate. tnc. Wortd rights tosenred. /O-/ 'ÓsMeZ Ég ætla að fara í burtu í nokkra daga, svo ég skil hérna eftir nokkrar kvöldmáltíðir. Lalli og Lína Slökkvilið-lögregla Reykjavík: Lögreglan sími 11166 og 0112, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Seltjarnarnes: Lögreglan sími 611166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100. Keflavík: Lögreglan sími 15500, slökkvilið sími 12222 og sjúkrabifreið sími 12221. Vestmannaeyjar: Lögreglan sími 11666, slökkvilið 12222, sjúkrahúsið 11955. Akureyri: Lögreglan símar 23222,23223 og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 22222. ísafjörður: Slökkvilið sími 3300, bruna- sími og sjúkrabifreið 3333, lögreglan 4222. Apótek Nætur- og helgidagaþjónusta apótekanna í Reykjavik 23. okt. til 29. okt., að báðum dögum meðtöldum, verður í Reykjavík- urapóteki, Austurstræti 16, sími 11760. Auk þess verður varsla í Borgarapóteki, Álftamýri 1-5, simi 681251, kl. 18 til 22 virka daga og kl. 9 til 22 á laugardag. Upplýsingar um læknaþjónustu eru gefn- ar í síma 18888. Mosfellsapótek: Opið virka daga frá kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12. Apótek Garðabæjar: Opið mánudaga- föstudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl. 11-14. Sími 651321. Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá kl. 9-19, laugardaga kl. 9-12. Hafnarflörður: Noröurbæjarapótek er opið mánudaga til fímmtudaga frá kl. 9-18.30, Hafnarfjarðarapótek frá kl, 9-19. Bæði apótekin hafa opið fóstudaga frá kl. 9-19 og laugardaga frá kl. 10-14 og til skiptis annan hvem helgidag frá kl. 10-14. Upplýsingar í símsvara apó- tekanna, 51600 og 53966. Apótek Keflavíkur: Opið frá kl. 9-19 virka daga, aðra daga frá kl. 10-12 f.h. .Nesapótek, Seltjarnamesi: Opið virka daga kl. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokað laugar- daga og sunnudaga. Akureyrarapótek og Stjörnuapótek, Akureyri: Virka daga er opið i þessum apótekum á afgreiðslutíma verslana. Apótekin skiptast á sína vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidaga- vörslu. Á kvöldin er opið í því apóteki sem sér um þessa vörslu til kl. 19. Á helgidögum er opið kl. 11-12 og 20-21. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bak- vakt. Upplýsingar em gefnar í síma 22445. Heilsugæsla Slysavarðstofan: Sími 696600. Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur og Seltjamames, sími 11000, Hafnarfjörður, sími 51100, Keflavik, sími 12222, Vestmannaeyjar, sími 11955, Akureyri, sími 22222. Krabbamein - Upplýsingar fást hjá fé- lagsmálafulltrúa á miðvikudögum og fimmtudögum kl. 11-12 í síma 621414 Læknar Læknavakt fyrir Reykjavik, Seltjarn- arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar- stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og tímapantanir í sími 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu em gefnar í símsvara 18888. Borgarspitalinn: Vakt frá kl. 8-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sími 696600) en slysa- og sjúkravakt (slysadeild) sinnir slösuðum og skyndi- veikum allan sólarhringinn (sími 696600). Læknavakt Þorfinnsgötu 14: Skyndi- móttaka rúmhelga daga kl. 10-16. Sími 620064. Seltjarnarnes: Heilsugæslustöðin er opin virka daga kl. 8-17 og 20-21, laugar- daga kl. 10-11. Sími 612070. Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar, sími 51100. Keflavík: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar. Vakthaf- andi læknir er í síma 14000 (sími Heilsu- gæslustöðvarinnar). Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna í síma 11966. Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Heilsu- gæslustöðinni í síma 22311. Nætur- og helgidagavarsla frá kl. 17-8, sími (far- sími) vakthafandi læknis er 985-23221. Upplýsingar hjá lögreglunni í síma 23222, slökkviliðinu í síma 22222 og Akureyrarapóteki í síma 22445. Heimsóknartími Landakotsspitali: Alla daga frá kl. 15-16 og 18.30-19. Bamadeild kl. 14-18, aðrir en foreldar kl. 16-17 daglega. Gjör- gæsludeild eftir samkomulagi. Borgarspítalinn: Mánud.-fostud. kl. 18.30-19.30. Laugard.-sunnud. kl. 15-18. Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og 18.30-19.30. Fæðingardeild Landspitalans: Kl. 15-16 og 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Heimsóknartími frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30. Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kl. 15-16.30 Kleppsspítalinn: Alla daga kl. 15-16 og 18.30- 19.30. Flókadeild: Alla daga kl. 15.30-16.30. Grensásdeild: Kl. 16-19.30 virka daga og kl. 14-19.30 laugard. og sunnud. Hvítabandið: Frjáls heimsóknartími. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15-17 á helgum dögum. Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug- ard. kl. 15-16 og 19.30-20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15-16.30. Landspítalinn: Alla virka daga kl. 15-16 og 19-19.30. Bamaspítali Hringsins: Kl. 15-16 alla daga. Sjúkrahúsið Akureyri: Alla daga kl. 15.30- 16 og 19-19.30. Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15.30- 16 og 19-19.30. Hafnarbúöir: Alla daga frá kl. 14-17 og 19-20. Vífilsstaöaspítali: Alla daga frá kl. 15-16 og 19.30-20. Geðdeild Landspítalans Vífilsstaða- deild: Heimsóknartími: Sunnudaga kl. 15.30- 17. Vísir fyiir 50 árum Mánudagur 26. október Þjóðverjar taka tvö stræti í Stalingrad. 4.5 milljón Þjóðverja fallnir eða örkumlamenn segir sænskt blað. 51 Spalcmæli Sá sem hrósar öllum hrósar engum. Samuel Johnson. Söfnin Ásmundarsafn við Sigtún. Opið dag- lega kl. 13-16. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74: Op- ið daglega nema mánudaga kl. 13.30-16. Árbæjarsafn: Opið í júní, júlí og ágúst alla daga nema mánudaga kl. 10-18 og um helgar í sept. á sama tíma. Upplýs- ingar i síma 84412. Borgarbókasafn Reykjavíkur Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s. 79122, 79138. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: mánud.-fimmtud. kl. 9-21, föstud. kl. 9-19, laugard. ki. 13-16. Aðalsafn, lestrarsalur, s. 27029. Opið mánud.-laugard. kl. 13-19. Hofsvallasafn, Hofsvallagötu 16, s. 27640. Opið mánud.-föstud. kl. 16-19. Bókabílar, s. 36270. Viökomustaöir víðs vegar um borgina. Sögustundir fyrir böm: Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgarbókasafnið í Gerðubergi, fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn, miðvikud. kl. 10-11. Sólheimar, miðvikud. kl. 11-12. Lokað á laugard. frá 1.5.-31.8. Kjarvalsstaðir: opið daglega kl. 11-18. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7: er opið daglega nema mánud. kl. 12-18. Listasafn Einars Jónssonar er opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga kl. 11-16. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnesi er opið mánud.-fimmtud. kl. 20-22 og um helgar kl. 14-18. Kaffi- stofan opin á sama tíma. Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg: Opið sunnud., þriðjud., fimmtud. og laugard. kl. 13.30-16. Norræna húsið við Hringbraut: Sýn- ingarsalir í kjallara: alla daga kl. 14-19. Bókasafn Norræna hússins: mánud. - laugardaga kl. 13-19. Sunnud. kl. 14-17. Sjóminjasafn íslands er opið alla daga nema mánudaga 14-18. J. Hinriksson, Maritime Museum, Sjó- og vélsmiðjuminjasafn, Súðarvogi 4, S. 814677. Opiö kl. 13-17 þriðjud. - laugard. Þjóðminjasafn Islands. Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og sunnud. kl. 12-16. Bilaiúr Rafmagn: Reykjavík, Kópavogur og Seltjamames, sími 686230. Akureyri, sími 11390. Keflavík, sími 15200. Hafnarfjöröur, sími 652936. Vestmannaeyjar, sími 11321. Hitaveitubilanir: Reykjavík og Kópavogur, sími 27311, Seltjamarnes, sími 615766. Vatnsveitubilanir: Reykjavík sími 621180. Seltjamames, sími 27311. Kópavogur, sími 41580, eftir kl. 18 og um helgar, sími 41575. Akureyri, sími 23206. Keflavík, sími 11552, eftir lokun 11555. Vestmannaeyjar, símar 11322. Hafnarfjörður, sími 53445. Simabilanir: í Reykjavík, Kópavogi, Seltjamamesi, Akureyri, Keflavík og Vestmannaeyjum tilkynnist í 05. Bilanavakt borgarstofnana, sími 27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17 síðdegis til 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólarhringinn. Tekið er við tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa aö fá aðstoð borgarstofnana. Tilkyiiningar AA-samtökin. Eigir þú við áfengis- vandamál að stríða, þá er sími samtak- anna 16373, kl. 17-20 daglega.' Leigjendasamtökin Hverfisgötu 8-10, Rvík., sími 23266. Lífiínan, Kristileg símaþjónusta. Sími 91-676111 allan sólarhringinn. Stjömuspá Spáin gildir fyrir þriðjudaginn 27. október. Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.): Reyndu að leysa vandamálin um leið og þau koma upp. Gættu þess að falla ekki fyrir freistingum. Farðu varlega í fjármálunum. Fiskarnir (19. febr.-20. mars.): Það auðveldar samkomulag við aðra að slaka dálítið á kröfunum. Leggðu ekki árar í bát þótt þér gangi ekki allt í haginn. Hrúturinn (21. mars-19. apríl): Taktu þér nægan tima til að hugsa málin áður en þú tekur ákvarö- anir. Einbeittu þér að fjölskyldunni og lifmu heima fyrir. Nautið (20. apríl-20. mai): Reyndu ekki að sætta fólk nema þegar ekki veröur komist h)á því. Taktu þér eitthvað skemmtilegt fyrir hendur. Happatölur eru 1, 9 og 18. Tvíburarnir (21. maí-21. júní): Ræktaöu vináttu þína við aöra. Mundu eftir að heimsækja gamla staði og komast í snertingu við gamla tímann. Krabbinn (22. júni-22. júli): Sýndu kænsku þína í viðskiptum við aðra. Þú gætir átt erfitt starf fyrir höndum en þú gefst ekki upp þótt þú þurfir að taka á. Ljónið (23. júlí-22. ágúst): Með dugnaði nærð þú mjög góðum árangri áður en þú leggur í stórræði og forðast að ofreyna þig. Meyjan (23. ágúst-22. sept.): Einbeittu þér að því að gera vel það sem þú ert að gera. Þú ert ekki í vandræðum með kunningja því þú ert hrókur alls fagnaðar. Vogin (23. sept.-23. okt.): , Þér stendur athyglisvert verkefiú til boða. Þú skalt taka því, enda er það þess virði. Miklar kröfur eru gerðar til þín. Sporðdrekinn (24. okt.-21. nóv.): Þú þarft vinnufrið í dag, enda vinnur þú að mikilvægum verkefn- um. Vertu samt jákvæður. Happatölur eru 5,18 og 20. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.): Hugsaniegt er að ákveðinn vinskapur verði ekki langlífur. Vertu viðbúinn því. Einbeittu þér að málum sem þarfnast skjótra úr- lausna. Steingeitin (22. des.-19. jan.): Forðastu tímaþröng og gefðu þér tíma til þess að leysa málin. Taktu það rólega í kvöld og veldu þér góðan félagsskap.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.