Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1992, Síða 44
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Sími 632700 Frjálst,óháð dagblað MÁNUDAGUR 26. OKTÓBER 1992. Karlmaður á sextugsaldri lést á sjúkrahúsi í Reykjavik í gær eftir slys í Borgarnesi aðfaranótt sunnu- dagsins. Maðurinn er talinn hafa fallið niður úr stiga sem hann reisti við hús sitt er hann var að koma heim til sín í fyrrinótt en hann hafði ekki lykla meðferðis. Við fallið htaut maðurinn höfuðáverka. Um 5 klukkustundum eftir slysíð, að því er talið er, um klukkan hálftíu i gær- morgun, fannst maðurinn liggjandi við stigann, þá orðinn mjög kaldur. Farið var með hann á sjúkrahúsið á Akranesi en siðan var hann ffuttur með þyrlu á Borgarspitalann. Þar lést hann í gær. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. DV-mynd Sveínn Hamarsfjörður: Einnléstoghjón slösuðust í hörö- umárekstriá þjóðveginum 29 ára karlmaður lést í bílslysi sem varð á þjóðveginum við svokölluð Brunnklif í Hamarsfirði um klukkan 14.30 í gær. Maðurinn var einn í fólksbíl sínum þegar hann mætti öðrum bíl en í honum voru hjón og slösuðust þau bæði. Bílarnir mættust við blindhæð en akstursskilyrði voru að sögn lög- reglu á Fáskrúðsfirði að öðru leyti góð. Á slysstaðnum er bundið sbtlag með góðum yfirborðsmerkingum. Áreksturinn er talinn hafa verið mjög harður og er önnur bifreiðin taiin hafa verið á öfugum vegarhelm- ingi er bílamir mættust. Hjónin slösuðust bæði og er konan tahn hafa hlotið alvarleg meiðsl. Vegfarandi, sem kom að slysstaðn- um, tilkynnti um slysið til lögreglu og var kallað á lækni. Þegar hann kom á staðinn reyndist maðurinn sem ók einsamail í bíl sínum vera látinn. Hjónin voru hins vegar flutt með sjúkraflugvél til Reykjavíkur. Bílarnir eru báðir taldir gjörónýtir eftir áreksturinn. Rannsóknarlög- regla frá Eskifirði mun annast rann- sókn málsins ásamt lögreglu á Fá- ’skrúðsfirði. Ekki er unnt að greina fránafnihinslátna. -ÓTT LOKI Lifi sauðþráinn! „Niðurskurðurinn í þorskveið- unum á þessu kvótatímbili kemur svo miklu verr við smábátaeigend- ur en aðra útgerðaraðila að ég fuh- yrði að verði þetta ekki leiðrétt verður gengið af greininni dauðri. Þess vegna róum við nú hfróður fyrir tilveru okkar og þá verður fast tekið á,“ sagöi Arthur Bogason, formaöur Landssambands smá- bátaeigenda, en þing sambandsins hófst í morgun. Arthur segir að það hljóti hver maður að sjá að flatur niðurskurð- ur í þorskinum komi verr niður á ' trihukörlum, sem nær eingöngu veiða þorsk á grunnslóð, enhinum sem geta sótt dýpra. Smábátaeig- endur geti ekki farið dýpra eins og stóru fiskiskipin til að ná í aðrai' tegundir. Smábátarnir séu bundnii- við ströndina. Hann segir þessa aðfór að smábátaútgerðinni þeim mun sorglegri þar sem hún sé besta og hagkvæmasta greinin í sjávar- útvegi og skapi að auki rnikla vinnu í landi. „Smábátaeigendur eru hátt í tvö þúsund og það sjá allir aö ef þeim verður gert útilokað að starfa áfram mun atvinnuleysið stórauk- ast Auk þess sem ekki verður um annað að ræða en brenna bátana. Ég hef sagt það áður aðef viö fáum ekki leiðréttingu okkar mála verð- ur haldin hér mesta brenna sem sögur fara af þegar trillumar fara á eldinn," sagði Arthur. Hann sagði að þetta þing sraá- bátaeigenda mundi snúast um með hvaða hætti menn gætu náð fram leiðréttingu á niðurskuröinum. Ályktanir þingsins mraii án nokk- urs efa ganga í þá átt að skora á stjórnvöld að gripa hér inn íogleið- rétta niöurskurðinn. „Ég trúi ekki öðru en augu manna hljóti að fara að opnast fyr- ir því sem er hér að gerast og sjái og skilji sérstööu smábátaeigenda," sagðiArthurBogason. -S.dór Margir lögðu leið sína í Kolaportið á sunnudaginn tii að kaupa frjálsa dilkakjötið hans Kára Þorgrimssonar, bónda í Mývatnssveit. Kári hefur hafnað opinberum styrkjum vegna sauðfjárframleiðslu sinnar. Ávinningur neytenda er umtalsverður af þessu framtaki Kára enda gæti það leitt til skattalækkana þegar fram í sækir. DV-mynd JAK Veöriðámorgun: Þurrtá Suðvestur- ogVestur- landi Norðaustanátt, víðast stinn- ingskaldi og súld eða rigning norðan- og austanlands en þrart á Suðvestur- og Vesturlandi. Veðrið í dag er á bls. 52 Nauðgaði frænku sinni Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: Rúmlega tvítugur karlmaður á Akureyri hefur viðurkennt að hafa nauðgað 14 ára stúlku í heimahúsi aðfaranótt laugardags. Lögreglu- menn á eftirlitsferð óku fram á stúlk- una sem var á hiaupum, illa á sig komin eftir atburðinn, klæðlítil og niðurbrotin. Stúlkan og maðurinn, sem er frændi hennar, munu hafa hist í miðbæ Akureyrar og farið saman í bíl að húsi þar sem maðurinn býr ásamt foreldrum sínum. Þegar inn var komið kom maðurinn fram vilja sínum við stúlkuna sem síðan komst undan. Maðurinn var handtekinn skömmu síðar og við yfirheyrslur um helgina játaði hann og er málið þar með upplýst. Sexlíkamsárásir Lögreglumenn í Reykjavík og Hafnarfirði höfðu afskipti af sex lík- amsmeiðingarmálum sem upp komu um helgina. Meiðsl urðu ekki mikil í hvert skipti en alvarlegasta máhð átti sér stað í vesturbænum. Þrír réð- ust þar að manni við Öldugötuskóla í Reykjavík og veittu honum áverka. Maður var einnig sleginn á veit- ingahúsinu Keisaranum. Sá maður fór sjálfur á slysadeild. Maður kom einnig á lögreglustöð- ina í miðborginni og tiikynnti um að ráðist hefði verið á sig. Konu var hrint í gólfið á veitingahúsinu Ingólf- skaffi. Maður var einnig sleginn í andlitið á mótum Laugavegar og Vitastígs. í Hafnarfirði meiddist maður á eyra eftir átök við annan við veitingahúsið Fjöruna. -ÓTT Færeyskur sjó- maðurdrukknaði Ægir Kristmsson, DV, Fáskrúðsfirði: Færeyskur sjómaður af Guðmundi Kristni fannst látinn í sjónum á Fá- skrúðsfirði í gær. Fjöldi smábáta og björgunarsveitarmanna auk kafara leitaði í gær að manninum þegar far- ið var að sakna hans. Síðast sást til mannsins um klukk- an hálftíu á laugardagskvöldið við fiskverkunarhús Pólarsíldar á Fá- skrúðsfirði. Sjómaðurinn fannst síð- an látinn í norðanverðum firðinum, á móts við Strönd, yst í þorpinu, um klukkan fjögur síðdegis í gær. Talið ,er að hann hafi fallið í sjóinn á milli skips og bryggju en engir sjónarvott- ar voru að slysinu. Maðurinn hefur verið skipveiji á Guðmundi Kristnin frá því í maí. Hann hét John Finn Bisp, 45 ára, og var frá Þórshöfn í Færeyjum. mrorix | (rompton RAFMÓTORAR W^autsen 8uAuftendabraut 10. 8. 6M408.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.