Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1992, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992.
Neytendur
DV kannar verð á matvöru á Akureyri:
Verðið talsvert hærra en
á höfuðborgarsvæðinu
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
í verðkönnun á nokkrum tegund-
um matvöru, sem DV framkvæmdi
nú í vikunni á Akureyri, kom í ljós
að þær verslanir sem bjóða lægst
verð í höfuðstað Norðurlands stand-
ast ekki samanburö við þær sem
lægst vöruverð bjóða á höfuðborgar-
svæöinu. Til samanburðar var verð-
könnun sem DV gerði í Reykjavík í
síöustu viku. Af 9 vörutegundum í
matarkörfunni fengust 6 í þeim
þremur verslunum á Akureyri þar
sem könnunin var gerð, Hagkaupi,
KEA-Nettó og KEA-Hrísalundi.
Á Akureyri kostuðu þessir 6 vöru-
flokkar 1495 krónur í Hagkaupi, 1537
krónur í KEA-Nettó og 1559 krónur
í KEA-Hrísalundi. En ef við lítum á
könnun á sömu 6 vöruflokkum í
þremur verslunum á höfuðborgar-
svæðinu í síðustu viku kemur í ljós
að í Fjarðarkaupum kostuðu þessar
vörur 1220 krónur, 1223 krónur í
Miklagarði og 1429 krónur í Hag-
kaupi.
Mörgum finnst þaö eflaust furðu-
legt að ódýrustu mandarínur á höf-
uðborgarsvæðinu skuli kosta 75
krónur á sama tíma og þær eru ódýr-
astar á Akureyri á 160 krónur. Eða
að kínakál sem kostar 70,00 krónur
í Miklagarði skuli vera ódýrast á
Akureyri í KEA-Nettó á 137 krónur
og kosti 202 krónur í KEA-Hrísa-
lundi.
Lítill munur á eplum
Á Akureyri fást ódýrustu eplin í
KEA-Nettó, kosta þar 118 krónur, en
reyndar ekki nema einni krónu
meira í Hagkaupi. í Kea-Hrísalundi
Tegundir
Bónus
Mikligarður
Kaupstaður
Fjarðarkaup
Hagkaup
Lægst Hæst Lægst Hæst Lægst Hæst Lægst Hæst Lægst Hæst
Epli 1 kg 47,00 69,00 74,70 74,70 117,00 117,00 55,00 119,00 109,00 119,00
Mandarínur/Klementínur 1 kg 75,00 75,00 105,73 105,73 75,00 75,00 109,00 109,00
Perur, 1 kg 73,00 73,00 105,73 105,73 117,00 117,00 109,00 149,00
Kínakál 70,00 70,00 79,50 79,50 139,00 139,00 105,00 105,00 139,00 139,00
Matarolíal 1 117,00 379,00 117,00 463,66 122,00 512,00 119,00 487,00 199,00 399,00
Whiskas kattamatur 'A dós 68,00 68,00 75,00 75,00 74,00 74,00
Lambakótiletturkg 741,00 741,00 763,00 763,00 749,00 749,00 764,00 830,00
Verðkönnun á höfuðborgarsvæðinu 12. nóvember.
voru ódýrustu eplin á 122 krónur.
Samanburður við þrjár verslanir á
höfuðborgarsvæðinu er mjög óhag-
stæður því ódýrustu eplin þar voru
í Miklagarði og kostuðu 47 krónur.
Ódýrustu eplin í Hagkaupi voru hins
vegar á 79 krónur.
Mandarínur og klementínur
Ekki var mjög mikill verðmunur á
þessum vöruflokki. Ódýrastar voru
mandarínumar/klementínurnar í
Hagkaupi á 160 krónur, 162 krónur í
KEA-Nettó og 171 krónur í KEA-
Hrísalundi.
Perur
Perumar vora ódýrastar í KEA-
Hrísalundi, kostuðu þar 102 krónur
kg. í KEA-Nettó kostaði kg 129 krón-
ur og dýrastar voru þær í Hagkaupi
á 149 krónur eða á sama verði og
dýrari perumar í Hagkaupi í Reykja-
vík.
Furðuverð á kínakáli
Lægsta verð á kínakáli á Akureyri
Til sölu bílasala
Góð staðsetning, lágur rekstrarkostnaður, fyrirtæki
sem nýtur trausts, inniaðstaða, gott útisvæði.
Upplýsingar í síma 673769.
WORLD PRESS PHOT01992
Opið daglega kl. 14-22.
Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 22.
nóv.
Listasafn ASÍ
Framkvæmdastjóri
Laust er til umsóknar starf framkvæmdastjóra Ung-
mennasambands Eyjafjarðar frá og með 1. jan. nk.
Vinnutími er breytilegur frá degi til dags, þó föst við-
vera á skrifstofu sambandsins frá kl. 13.00-15.00
alla virka daga. Vinnuskylda er 40 klst. á viku. Fullt
starf.
Umsækjandi þarf að vera vel að sér í almennri skrif-
stofuvinnu, s.s. bókhaldsvinnslu, ásamt allri annarri
tölvuvinnslu.
Æskilegt er einnig að umsækjandi hafi þekkingu á
félagasamtökum sem þessum.
Umsóknarfrestur er til 30. nóv. 1992.
Upplýsingar eru veittar í síma 96-26257 e. kl. 16.00.
Umsóknir skulu berast til
UMSE b/t Þuríður Árnadóttir
Hólabraut 22
600 Akureyri
Tegundir
Hagkaup
KEA-Nettó
KEA-Hrísalundi
Lægst Hæst Lægst Hæst Lægst Hæst
Epli, 1 kg 119,00 119,00 118,00 118,00 122,00 122,00
Mandarínur/klementínur, 1 kg 160,00 160,00 162,00 162,00 171,00 171,00
Perur, 1 kg 149,00 149,00 129,00 129,00 102,00 102,00
Kínakál, 1 kg 139,00 139,00 137,00 137,00 202,00 202,00
Matarolía, 11 139,00 283,00 179,00 245,00 114,00 288,00
Whiskaskattamatur, ‘A dós 74,00 74,00 87,00 87,00
Lambakótelettur, 1 kg 789,00 809,00 812,00 812,00 848,00 848,00
Verðkönnun á Akureyri 18. nóvember.
reyndist vera 137 krónur í KEA-
Nettó, 139 krónur í Hagkaupi og 202
krónur í KEA-Hrísalundi. En á höf-
uðborgarsvæðinu var hæsta verð á
kínakáli 139 krónur en lægsta 70
krónur í Bónusi.
Matarolía ódýrustfyrir norðan
Á Akureyri var lítrinn á matarolíu
ódýrastur í KEA-Hrísalundi, kostaði
114 krónur. í KEA-Nettó kostaöi ódý-
rasta matarolían 179 krónur og í
Hagkaupi 139 krónur. í Hagkaupi í
Reykjavík kostaði ódýrasta matarol-
ían hins vegar 199 krónur.
Lambakótelettur
Verð á lambakótelettum var hærra
á öllum þremur stöðunum á Akur-
eyri en í verslununum þremur á höf-
uðborgarsvæðinu. í Hagkaupi á Ak-
ureyri kostuðu þær kg 789 krónur, í
KEA-Nettó 812 krónur og 848 krónur
í KEA-Hrísalundi. í Hagkaupi 1
Reykjavík kostaði kg hins vegar 764
krónur en var lægst í Miklagarði 741
króna.
Langt í „Bónusverðið“
Ef teknir eru þeir vöruflokkar sem
fengust í verslununum þremur í
könnuninni á Akureyri og sömu
Verð á grænmeti og ávöxtum er
hærra á Akureyri en í Reykjavík.
vöruflokkar í Bónusi í Reykjavík, er
munurinn hrikalegur. Eph, mandar-
ínur, perur, kínakál og matarolía
kostuðu í Bónusi 382 krónur. í KEA-
Hrísalundi kostuðu þessir vöra-
flokkar samtals 711 krónur, 706 krón-
ur í Hagkaupi á Akureyri og 725
krónur í KEA-Nettó.
Skýringar viðtöflur
Taflan yfir verð í verslunum á höf-
uðborgarsvæðinu er frá fimmtudeg-
inum 12. nóvember en þá var verð
kannað í fimm verslunum, Hagkaup,
Miklagarði, Kaupsstað, Fjarðar-
kaupum og Bónus. Verð í verslunum
á Akureyri var kannað þriðjudaginn
17. nóvember. Leitað er að hæsta og
lægsta verði í öllum tilfellum og ekki
gerður greinamunur á vörumerkj-
um.
Þess ber að geta að verð á ávöxtum
og grænmeti er misjafnt dag frá degi.
Það kemur í ljós að verð á ávöxtum
og grænmeti í Hagkaup á Akureyri
og í Reykjavík er það sama. Þó eru
ódýrari pakkningarnar ekki til í Hag-
kaup á Ákureyri. Við lauslega athug-
un í Hagkaup í Reykjavík í gær var
verð á grænmeti ennþá þaö sama á
þremur tegundum; rauð epli kostuðu
109 og 119 krónur, perur 109 krónur
og kínakál 139 krónur en klementín-
ur eða mandarínur fengust ekki.
Verð í Bónus hafði breyst í gær og
þar kostuðu eplin 50 og 72 krónur,
mandarínur/klementínur 89 og 119
krónur, perur 73 krónur og kínakál
60 krónur.
í Miklagarði kostuðu rauð epli 86
og 106 krónur í gær, mandarínur/kle-
mentínur 99 krónur, perur 77 krónur
og kínakál 68 krónur.
Verðkönnun á Akureyri
- munur á hæsta og lægsta verði
uv
1 kg kínakál
o
o
co
o
o
c\T
o
CM
Lægsta
Hæsta
1 kg lambakótelettur
o
o
05
co
o
o
oo'
■sr
00
Lægsta Hæsta