Dagblaðið Vísir - DV - 19.11.1992, Side 25
FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 1992.
33
ÞJÓÐLEIKHÚSE)
Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00.
DÝRIN í HÁLSASKÓGI eftir
Thorbjörn Egner.
Lau. 21/11 kl. 14.00, uppselt, sun. 22/11
kl. 14, uppselt, sun. 22/11 kl. 17.00, upp-
selt, mið. 25/11 kl. 16.00, örfá sæti laus,
sun. 29/11 kl. 14.00, uppselt, sun. 29/11
kl. 17.00, uppselt, sun. 6/12 kl. 14.00, sun.
6/12 kl. 17.00, sun. 13/12kl. 14.00, sun.
13/12 kl. 17.00.
HAFIÐ eftir Ólaf Hauk
Simonarson
Lau. 21/11, uppselt, lau. 28/11, uppselt,
föstud. 4/12, lau. 5/12, lau. 12/12.
KÆRA JELENA eftir Ljúdmílu
Razumovskaju.
Á morgun, uppselt, föstud. 27/11, upp-
selt, miðvikud. 2/12, fimmtud. 3/12.
Ath. Siðustu sýningar.
UPPREISN
Þrir ballettar með islenska dans-
flokknum.
í kvöld, næstsiðasta sýning, flmmtud.
26/11, siðasta sýning.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00.
STRÆTI eftir Jim Cartwright.
Lau. 21 /11, uppselt, sun. 22/11, uppselt,
miövikud. 25/11, uppselt, fimmtud. 26/11,
uppselt, lau. 28/11, uppselt, föstud. 4/12.
lau. 5/12, miðvikud. 9/12, lau. 12/12..
Ath. að sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er unnt aö hleypa gestum I sallnn
eftir að sýning hefst.
Litla sviðið kl. 20.30.
RÍTA GENGUR MENNTA-
VEGINN eftir Willy Russel.
í kvöld, uppselt, á morgun, uppselt,
ósóttar pantanlr seldar i dag, lau. 21 /11,
uppselt, sun. 22/11, aukasýning, ósóttar
pantanir seldar í dag, uppselt, miðvikud.
25/11, uppselt, timmtud. 26/11, uppselt,
lau. 28/11, uppselt, fimmtud. 3/12, föstud.
4/12. lau. 5/12, fimmtud. 10/12, föstud.
11/12. lau. 12/12.
Ekki er unnt að hleypa gestum inn í sal-
inn eftir að sýning hefst.
Ath. aðgöngumiðar á allar sýningar
greiölst viku fyrir sýningu ella seldir
öðrum.
Miðasala Þjóðleikhússins er opln alla
daga nema mánudaga frá 13-18 og fram
að sýnlngu sýningardaga.
Mlðapantanir frá kl. 10 virka daga i sima
11200.
Greiðslukortaþj. -Græna linan 996160.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stórasvlðlðkl. 20.00.
DUNGANONeftirBjörn
Th. Björnsson
Laugard. 21. nóv.
Næstsíðasta sýning.
Föstud. 27. nóv.
Siðasta sýning.
HEIMA HJÁ ÖMMU eftir Neii
Simon.
í kvöld.
Föstud. 20.nóv.
Fimmtud. 26. nóv.
Laugard. 28. nóv.
Litla sviðið
Sögur úr sveitinni:
eftir Anton Tsjékov
PLATANOV OG VANJA
FRÆNDI
PLATANOV
Föstud. 20. nóv. Fáein sæti laus.
Laugard. 21. nóv. kl. 17.00. Uppselt.
Sunnud. 22. nóv. kl. 17.00.
Fimmtud. 26. nóv.
Laugard. 28. nóv. kl. 17.00.
VANJA FRÆNDI
Fimmtud. 19. nóv.
Laugard. 21. nóv. Fáein sæti laus.
Sunnud. 22. nóv.
Föstud. 27. nóv.
Laugard. 28. nóv.
Verð á báðar sýningarnar saman aðelns
kr. 2.400.
KORTAGESTIR, ATH. AÐ PANTA ÞARF
MIDA Á LITLA SVIÐIÐ.
Ekkl er hægt að hleypa gestum inn I salinn
eftir að sýning er hafin.
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17.
Miðapantanir i síma 680680 alla virka
dagafrákl. 10-12.
Greiðslukortaþjónusta -
Faxnúmer 680383.
Leikhúslínan, sími 991015.
Aðgöngumiðar óskast sóttir þrem
dögum fyrir sýn.
Munið gjafakortin okkar, skemmtileg
gjöf.
Leikfélag Reykjavikur -
Borgarleikhús.
Skemmtanir
Safnaðarstarf
Áskirkja: Opið hús fyrir alla aldurshópa
í dag kl. 10-12 og 13-16. Biblíulestur í
safnaðarheimilinu í kvöld kl. 20.30. Opin-
berun Jóhannesar.
Hóteigskirkja: Kvöldsöngur með Taizé
tónlist kl. 21.00. Kyrrð, íhugun og endur-
næring. Allir hjartanlega velkomnir.
Langholtskirkja: Aftansöngur alla virka
daga kl. 18.
Laugarneskirkja: Kyrrðarstund kl. 12.
Orgelleikur, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu
að stundinni lokinni.
Neskirkja: Bibliulestur í kvöld kl. 20.00
í safnaðarheimilinu í umsjá sr. Franks
M. HaUdórssonar. Farið verður í Matt-
eusarguðspjall.
Djass í Duushúsi
Kvartettinn Duusgengið leikur djass í
kvöld kl. 22. Einnig munu leiða saman
hesta sína Sigurður Johnny og Friðrik
Theodórsson.
Sólarkvöld í Berlín
Hvítar baðstrendur verða í fyrirrúmi,
drykkurinn Malibu og hljómsveitin
Kandís skemmtir gestum með sól-tónhst.
Steinn Red Hot og Kiddi Big foot ætla að
spila hressa sólarblöndu.
Tapað-fimdið
Gulbröndóttur köttur
tapaðist fcá heimili sínu Langholtsvegi 104
kjallara. Kötturinn er ekki fullvaxinn og
með blátt hálsband. Sími 688718.
Tvær leiðir
eru hentugar til þess
að verja ungbarn í bíl
Látið barnið annaðhvort liggja
í bílstól fyrir ungbörn eða
barnavagni sem festur er
með beltum.
UMFERÐAR
RÁÐ
Leikhús
I
JmtWTíjRI R st W
í.jt-IÍlLSFIj
Leikfélag Akureyrar
eftir Astrid Lindgren
Laugard. 21. nóv. kl. 14.
Sunnud. 22. nóv. kl. 14.
Laugard. 28. nóv. kl. 14.
Sunnud. 29. nóv. kl. 14
Síðustu sýningar.
Enn er hægt að fá áskrittarkort.
Verulegur afsláttur á sýnlngum
lelkársins.
Miðasala er í Samkomuhúsinu, Hafn-
arstræti 57, alla virka daga nema
mánudaga kl. 14-18 og sýningardaga
fram að sýningu. Laugardaga og
sunnudaga
frákl. 13-18.
Símsvari allan sólarhringinn.
Greiðslukortaþj ónusta.
Simi I miðasölu: (96) 24073.
ÍSLENSKA ÓPERAN
__iiiii
Succa ch 3!ccmmevmoov
ettir Gaetano Donizetti
FÁAR SÝNINGAR EFTIRI
Föstud. 20. nóv.kl. 20.00.
Uppselt.
Sunnud. 22. nóv. kl. 20.00.
Uppselt.
Föstud. 27. nóv. kl. 20.00.
Sunnud. 29. nóv. kl. 20.00.
Miðasalan er opln frá kl. 15.00-19.00
daglega en til kl. 20.00 sýningardaga.
SÍM111476.
GREIDSLUKORTAÞJONUSTA.
LEIldLl’STARSKÓU ÍSLANÐS
Nemenda
leikhúsið
1 INDARBÆ simi 21971
Lindargötu 9
CLARA S. e. Elfriede
Jelinck.
14. sýn. laugard. 21. nóv. kl. 20.30.
15. sýn. sunnud. 22. nóv. kl. 20.30.
Lokasýning.
Mlðapantanlr I s. 21971.
Veggurinn
Höfundur: Ó.P.
Tilkymtingar
Félagsstarf aldraðra, Furu-
gerði
Konur úr Bandalagi kvenna bjóða upp á
kvöldvöku í kvöld kl. 20. Kaffiveitingar.
Allt ókeypis. 67 ára og eldri velkomnir.
Eyfirðingafélagið
Spiluö félagsvist að Hallveigarstöðum í
kvöld kl. 20.30. Opið öllum.
Kvenfélag Kópavogs
heldur fund í kvöld kl. 20.30 í Félagsheim-
ili Kópavogs. Sýning á pelsum. Stjóm-
andi Sóley Skúladóttir.
Söngfólk úr Pólýfónkórnum
Söngfólk úr Pólýfónkómum ætlar að
hittast í Rúgbrauðsgerðinni Borgartúni
laugard. 21. nóvember kl. 20.
Félag eldrl borgara
Opið hús í Risinu frá kl. 13-17 í dag. Tví-
menningur í hridge byrjar kl. 12.30.
Félag eldri borgara, Kópavogi
Munið bingóið í kvöld kl. 20 að Digranes-
vegi 12. Allir velkomnir.
Félag fráskilinna
Fundur í Risinu, Hverfisgötu, fóstudag-
inn 20. nóv. kl. 20.30. Nýir félagar vel-
komnir.
Félag eldri borgara
Árshátíð félagsins verður 28. nóvember í
Ártúni. Matur, skemmtiatriði og ijörug
músík. Uppl. á skrifstofu félagsins í síma
28812.
Hannes Hólmsteinn
í Nýlistasafninu
Fimmtudaginn 19. nóvember kl. 20.30.
mun Hannes Hólmsteinn Gissurarson
halda fyrirlestur í Nýhstasafninu, Vatns-
stíg 3b. Fyrirlesturinn mun fjalla um list-
ir og stjómmál. Hannes Hólmsteinn er
dósent í stjómmálafærði við Háskóla ís-
lands. Hann er höfundur sjö bóka sem
fjalla aðallega um sagnfræði og stjóm-
mál. Þar á meðal er bókin „Frjálshyggja
er mannúðarstefna" sem kom út snemma
á þessu ári. Fyrirlesturinn er öllum op-
inn.
Jólafundur Bandalagsins
veröur þriðjudaginn 24. nóvember að
Hallveigarstöðum og hefst kl. 20. Gestir:
Jenna Jensdóttir rithöfundur, dr. Sigur-
björn Einarsson biskup, Erla G. Garðars-
dóttir söngkona og Pavel Smid píanóleik-
ari og fleiri.
Bókmenntaviðburður á kaffi-
húsinu Sóloni íslandus!
Á Uðnu vom fannst bimki meö bréfum
Jóhanns Jónssonar skálds uppi á háa-
lofti norður á Húsavík, en Jóhann skrif-
aði þau til æskuvinar síns, sr. Friðriks
A. Friðrikssonar, á ámnum 1912-1925.
Þessi bréf em birt í bókinni Undarlegt
er líf mitt! sem Vaka-Helgafell gefur út í
dag. í tilefni af útkomu bókar með þess-
um einstæðu bréfum, verður í fyrsta
skipti lesið opinberlega úr þeim á Sóloni
íslandus, nýopnuðu kaffihúsi og gaUeríi
á homi Ingólfsstrætis og Bankastrætis,
fimmtudaginn 19. nóvember kl. 17.00. Þar
verður reynt að skapa svipaða stemningu
og ríkti á samkomum þar sem Jóhann
Jónsson las á úti í Múnchen á árum áður
en í efnisskrá þá var hann kallaður „der
islandische Meistersprecher" eða ís-
lenski mælskumeistarinn. Auk þess sem
lesið verður úr bréfum á Sóloni fslandus
á fimmtudag, mun Ingi Bogi Bogason
bókmenntafræðingur fjalla um skáldið
og Pétur Már Ólafsson útgáfustjóri mun
segja frá tilurð bókarinnar. Þá verðm-
leikin tónlist frá fyrstu árum aldarinnar.
Bókmenntavakan í Sóloni íslandus hefst
eins og áður sagði kl. 17.00 á fimmtudag-
inn og er aðgangur ókeypis og öllum
heimill.
Bókmenntakynning
í kvöld, 19. nóvember, gengst bókaforlag-
ið Mál og menning fyrir kynningu á bók-
um í Norræna húsinu og hefst upplestur-
inn klukkan 20.30. Þar mun Helgi Hálf-
danarson lesa úr þýðingum sínum á kín-
verskum ljóðum og áður óbirt ljóð eftir
Snorra Hjartarson sem væntanleg eru í
nýju heildarsafni Snorra, Hjalti Rögn-
valdsson leikari les úr smásagnasafni
Böövars Guðmundssonar og nýrri þýð-
ingu Sigurðar A. Magnússonar á verki
James Joyce, Ódysseifi. Að auki koma
þama fram eftirtaldir höfundar og lesa
stutta kafla úr nýjum verkum sínum:
Einar Kárason, Kristín Ómarsdóttir, Inga
Huld Hákonardóttir, Linda Vilhjálms-
dóttir, Gyrðir Elíasson og Thor Vil-
hjálmsson.
________________Menning
Píanótónleikar
í gærkvöldi voru tónleikar í Listasafni Islands. Jo-
han Duijck píanóleikari lék þar verk eftir Emst von
Dohnanyi, César Franck, Franz Liszt, Robert Schu-
mann og sjálfan sig. Duijck mun, meðan á dvöl hans
hérlendis stendur, einnig stjóma Hamrahlíðarkórnum
og verða þeir tónleikar nú um helgina.
• í pistlum þessum hefur oft verið lýst furðu með það
hve margir ungir píanóleikarar einblína á nítjándu
öldina í verkefnavah. Tónskáld hafa samið hljóm-
borðstónlist í margar aldir og með engu móti verður
því haldið fram að nítjánda öldin hafi þar einhverja
fagurfræðilega sérstöðu. Að vísu þróaðist hljóðfærið
ört á þeirri öld, varð kröftugra og hljómmeira, auk
þess sem leiktækni fleygði fram. Þetta endurspeglaðist
í tónhstinni en hvort það gerði hana endilega betri er
annað mál.
Það er auðvitað fullt tilefni til að leika píanóverk
Chopins og Schumanns. Hins vegar em fjölmargar
offluttar eftirlíkingar minni spámanna eitt af því sem
oft gerir það heldur kvíðvænlegt að fara á píanótón-
leika. Passacagha Dohnanyis er verk af þessu tagi og
sama má segja um mikið af tónhst Liszts og þar á
meðal Ballöðu þá sem þama var flutt. Gagnrýnandi
DV hefur stundum af því nokkrar áhyggjur hve lítið
hann botnar í smekk margra góðra píanóleikara og
hefur því fengið Snorra Sigfús Birgisson til að flytja
sér einn eða tvo einkafyrirlestra um efnið. Má því
búast við upplýstari skrifum um það á næstunni.
Duijck píanóleikari fylgdi þeim gamla góða sið að
leika verk eftir sjálfan sig. „Recognitio" er í síðróman-
tískum anda, en með nútímalegra tónmáli. í róman-
tískri tónlist er hljómfræðin oftast aðalbyggingarefnið.
Ef hljómfræðinni er fleygt en annað látið halda sér
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
s*
er hætt við að útkoman verði heldur sundurlaus. Þetta
er soð sem margir hafa brennt sig á og ein megin-
ástæða þess að Schönberg taldi sig knúinn til að upp-
götva nýja tónsmíðaaðferð á sínum tíma. í aukalagi,
sem Duijck lék,'var hljómfræðin hefðbundnari og í
meira samræmi við efniö að öðru leyti.
Píanóleikur þessa unga tóniistarmanns var mjög
góður. Skýrleiki var upp á það besta og blæbrigði og
fjölbreytni i túlkun hvort tveggja með ágætum. Verður
gaman að heyra frammistöðu hans í kórstjóm um
helgina.