Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1992, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1992, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1992. 11 Elle McPhereson, ofurfyrirsæta frá Ástralíu, vekur jafnan athygli hvar sem hún kemur. Hún var I Royal Albert Hall I Lundúnum um helgina og afhenti þar verðlaun fyrir framúrskarandi sjónvarpsefni. Simamynd Reuter Bandaríkj amenn vilja aðgerðir 1 Afríku: Nauðsyn að senda herlið til Sómalíu Bandarískur embættismaður lét hafa eftir sér í gær að nauðsynlegt kunni að reynast að senda herlið til Sómalíu til aö binda enda á stjóm- leysið þar. Hann mælti einnig með því að Sameinuðu þjóðimar kæmu á fót bráöabirgðastjóm í landinu og efndu til kosninga svo fljótt sem auð- ið væri. Hjálparstarf gengur illa í Sómalíu vegna þess hve erfitt er að veija hjálpargögnin fyrir ránum skæm- hðahreyfinganna í landinu. Af þess- um sökrnn hafa Bandaríkj amenn hug á að senda hermenn, væntanlega í umboði Sameinuðu þjóðanna, til að styðja við bakið á hj álparstofnunum. Daglega deyr fiöldi manna úr hungri í Sómalíu. Engin sfióm er við völd og upplausnin alger á öllum sviðum þjóðfélagsins. Hjálparstofn- anir eiga í vaxandi erfiðleikum með að fá gjafafé til starfsins vegna þess að margir trúa að gjafir séu til þess eins að efla skæruiiðahreyfingamar. Reuter Hungur verður daglega fjölda manns að bana i Sómaliu. Simamynd Reuter Jeltsín vill koma á fót nýjum flokki Borís Jeltsín Rússlandsforseti sagöi í gær að stuðningsmenn hans yrðu að koma á fót nýjum sfióm- málaflokki til aö styðja umbóta- stefirn sfiómvalda. Jeltsín hefur til þessa verið andvígur því að tengjast flokkum of náið og er því um grund- vallarbreytingu á stefirn hans að ræða. Jeltíns sagöi á fundi með stuðn- ingsmönnum sínum í gær aö hann yrði að eiga traustari bakhjarl meðal þjóðarinnar en verið hefur til þessa. í þessu sambandi taiaði hann um að koma á fót samtökum, jafnvel sfióm- málaflokki, eins og hann orðaði það. Þessi stefnubreyting forsetans kemur ekki á óvart þegar haft er í huga að hann á í vaxandi vandræð- um með að fylgja umbótastefnu sinni fram. Verðbólga fer mjög vaxandi á sama *íma og dregur úr framleiðslu. Þetta gerir það að verkum að vin- sældir forsetans dvína j afnt og þétt Reuter Útlönd Námsmenn í Belgrad með undirskiiftalista: Panic gegn Milosevic Námsmenn í Belgrad tilnefndu Milan Panic, forsætisráöherra Júgó- slavíu, sem frambjóðanda í forseta- kosningunum í Serbíu í næsta mán- uði. Nemendumir lögöu fram undir- skriftalista með tíu þúsund nöfnum á síðustu stundu í gær. Ekki var ljóst hvort Panic mundi samþykkja að fara í framboð gegn Slobodan Milosevic, forseta Serbíu. Hann nýtur þó mun meiri vinsælda en forsetinn, samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum. Vestrænir sfiómarerindrekar sögðu að kosningamar væra mjög þýðingarmiklar og að ef Panic færi fram gegn Milosevic og sigraði gæti : það haft úrslitaáhrif á lausn styijald- arátakanna í fyrrum lýðveldum Júgóslavíu. „Við yrðum skrefi nær lausn stríösins í Bosniu," sagði einn sfióm- arerindreki. Þó svo að Panic hafi hvorki sagt af eða á opinberlega segja heimildar- menn innan sambandssfiómarinnar að hann líti frumkvæði námsmann- anna jákvæðum augum. Vopnahlé milli sveita Serba og sveita Króata í Bosníu gekk í gildi á miðnætti síðastliðnu. Engu að síður héldu bardagar milli Serba annars vegar og Króata og íslamstrúar- manna hins vegar áfram í norður- hluta lýðveldisins fram eftir nóttu. Útvarpið í Bosníu sagði í morgun að bærinn Gradacac, þar sem Króat- ar og íslamstrúarmenn hafa völdin, hefði orðið fyrir sprengju- og stór- skotahðsárásumígærkvöldi. Reuter Námsmenn I Belgrad vitja aö Milan Panic, forsætisráðherra Júgóslavíu, bjóði sig fram gegn Serbíuforseta. Simamynd Reuter -J :mde »1«.. GOLF VEIÐI HEILSURÆKT KVENNA FYRIRSÆTUR SPORTBÁTAR JEPPAR FJALLAHJÓL TORFÆRA AKSTURSÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS MEISTARA ÖKUMAÐUR í KAPPAKSTRI ÁSUZUKI MÓTORHJÓLI í EINKAVIÐTALI P*i f SJfiUNBS HiHlti íWittíí »trtri- ««»»* ásWr»-v- «4 mm NÝTT BLAÐ Á BLAÐSÖLUSTOÐUM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.