Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1992, Síða 17
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1992.
17
Fréttir
Byggðasafn Skagfirðinga:
Endurbætur á stærsta saf ngripnum
Öm Þóiarinsscm, DV, njótum:
í sumar og haust hefur verið unnið
við Áshúsið sem í framtíðinni vérður
stærsti sýningargripur byggðasafns-
ins í Glaumbæ. Áshúsið er byggt á
Ási í Hegranesi 1883-1886. Þetta er
mjög rammbyggt timburhús á 3 hæð-
um, 90 m2 hver hæð. Húsið þótti
merkilegt á margan hátt og því
ástæða til að varðveita það. Sýslu-
nefnd Skagafjarðarsýslu fékk húsið
að gjöf fyrir nokkrum árum og það
var flutt að Glaumbæ í mars 1991.
Síðan hefur verið unnið að endurbót-
um við það með hléum.
Að sögn Sigríöar Sigurðardóttur,
safnvarðar í Glaumbæ, er viðgerð að
utan nánast lokið en talsvert er enn
óunnið innandyra. Fyrirhugað er að
ýnjsir munir byggðasafnsins verði
hafðir til sýnis í húsinu og þar veröi
einnig veitingasala og snyrtingar. Þá
mun húsið koma í góðar þarfir sem
geymsla fyrir safnmuni.
Nýlega er lokið framkvæmdum á
lóðinni við húsið og með frágangi
hennar breytist aðkoma gesta að
byggðasafninu. Þrátt fyrir margvís-
legar endurbætur á húsinu er það
nánast óbreytt að innan, hæði hvað
varðar herbergjaskipan og útht. Til
framkvæmda sl. sumar fékkst ein
milljón kr. úr húsfriðunarsjóði en að
öðru leyti hefur kostnaður viðgerð-
arinnar að mestu verið greiddur af
Héraðsnefnd Skagfirðinga.
Ashúsið er hið myndarlegasta enda stendur það á kjallara hlöðnum úr
grjóti sem sótt var út á Skaga. DV-mynd örn
Mikið byggt á
Selfossi
Regina Thoiarensen, DV, Selfossi:
Ég átti nýlega tal við Helga Helga-
son, bæjarritara Selfossbæjar,
vegna þess hve mikið er byggt hér
á staðnum, hve vel e.r unnið við
húsin og hve hratt þau rísa.
Helgi sagði að um þessar mundir
væru í byggingu á vegum einstakl-
inga og byggingaverktaka 12 ein-
býhshús og 10-12 íbúðir í rað- og
parhúsum. Meðalstærð einbýhs-
húsa er um 130 m2 en rað- og par-
húsa 90 m2.
í ár var lokið við 13 íbúða fjölbýl-
ishús við Álftarima 11, sem Selós
hf. byggði, og sami aðili er að und-
irbúa viðbyggingu við eldra fjölbýl-
ishús að Alftarima 1-3.
Við Austurveg 9 er risið verslun-
ar-og skrifstofuhús, 2 hæðir og
kjahari, ahs 1200 m2. Aðaleigandi
er Árvirkinn hf. en einnig mun ís-
landsbanki og fleiri aðhar fá þar
inni fyrir starfsemi sína. Þá er að
geta viðbyggingar við Fjölbrauta-
skóla Suðurlands um 3000 m2 á 3
hæðum og að lokum má geta þess
að nokkur fyrirtæki hafa verið að
og eru að koma upp iðnaðarhús-
næði fyrir starfsemi sína, sagði
Helgi Helgason.
Til STyRkTAR CiqTARfÉUqÍ ísÍANds.
VerÖ FrÁ kR 69-
MAqNAfslÁnuR tíL aIIra KodAk Express
klúbbfÉUqA, atIh AðqANquR í
klúbbiNN er ókEypis.
r 7- ■ ■ r
ALIMINGAR
1957 -1992
Afmælistilboð: 20% afsláttur af 35
b'mbo
barnabílstólum
Flytja 1 stærra
og hentugra
húsnæöi
1. des.
AÐ SIÐUMÚLA 23
(Selmúlamegin)
-ORYGGI.