Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Síða 2
2 MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1993. Fréttir Umræðum um EES-samninginn lokið á Alþingi: Davíð útilokar umræður stjórnarliða um EB-aðild - segir EES-samninginn taka gildi innan hálfs árs „Þetta eru búnar að vera miklar umræður og mun meiri en þekkst hefur annars staðar. Það er ágætt að þeim sé nú lokið. EES-máliö er mikið meira en fullrætt," segir Davíð Oddsson forsætisráðherra. Aðspurður útilokar Davíð um- ræður meðal stjómarliða mn EB- aðild, þó svo að Karl Steinar Guðnason hafi látið þá skoðun í ljós á Alþingi í síöustu viku aö tíma- bært sé fyrir íslendinga að leggja fram aöildarumsókn. Þriðju og síðustu umræðu um EES-samninginn á Alþingi lauk á laugardaginn. Atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram í dag og þykir Ijóst að hann verði sam- þykktur með atkvæöum allra þing- manna Alþýðuflokks og stórs meirihluta þingmanna Sjálfstæðis- flokksins. Eyjólfur Konráð Jóns- son, Ingi Bjöm Albertsson og Eg- gert Haukdal hafa einir stjórnar- sinna boðað andstöðu við samning- inn. Hins vegar hafa sex stjómarand- stæðingar, 5 úr Framsóknarflokki og 1 úr Kvennalista, lýst þvi yfir að þeir muni sitja hjá í atkvæða- greiðslu um samninginn, þau Hall- dór Ásgrímsson, Jón Kristjánsson, Finnur Ingólfsson, Valgerður Sverrisdóttir, Jóhannes Geir Sig- urgeirsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Full andstaða er hins vegar gegn samningnum í þing- flokki Alþýöubandalagsins. Sérkennileg framkoma Inga Björns Að sögn Davíðs er þaö afar sér- kennileg framkoma af hálfú Inga Bjöms Albertssonar að tilkynna ekki fyrirfram félögum sínum í þingflokki Sjálfstæðisflokks að hann hygöist greiða atkvæði gegn EES-samningnum. Á fundi þing- flokksins hafi verið leitað eftir af- stöðu manna fyrir nokkrum dögum og þá hafi hann ekki boðað and- stöðu. Á hinn bóginn hafi bæði Eggert Haukdal og Eyjólfur Konráð gert grein fyrir afstöðu sinni. „Hann kaus að láta ekki flokksfé- laga sína vita um afstöðu sína fyrr en í síðustu ræðu þegar búið var að ákveða að hætta umræðum. Þetta er sérkennileg framkoma en hann verður að hafa það eins og hann vill.“ Davíð segir það nú einungis formsatriði að ganga frá EES- samningnum. Gera þurfi nokkrar leiðréttingar vegna Sviss. Sameig- inlegur skilningur manna sé aö samningurinn geti tekið gildi á fyrri hluta ársins og ekki síðar en um mitt ár. -kaa Landhelgisgæslan náði I mikið slasaöan mann á laugardagskvöldið. Hér er verið að koma með hann á Borgar- spftalann. DV-mynd S Tvö vélsleðaslys í nágrenni Reykjavikur: Á gjörgæsludeild mikið meiddur á höfði Á laugardagskvöldið rétt fyrir klukkan níu var hringt í Landhelgis- gæsluna vegna vélsleðaslyss viö Kjalveg. Þyrla Vamarliðsins fór á staðinn og náði í mikið slasaðan mann og flutti hann á Borgarspítal- ann. Slysið varð skammt fyrir sunn- an Hlöðufell. Ekki er nákvæmlega vitað um tildrögin en þama hafði verið á feröinni hópur fólksájeppum og vélsleðum. Vélsleðamaðurinn hlaut verulega höfuðáverka og var fluttur á gjörgæsludeild. Annað vélsleðaslys varö um fimm- leytiö á laugardag á Grafningsvegi viö Þingvallaveg. Maöur ók vélsleða sínum á 80 kílómetra hraöa og lenti, aö sögn lögreglunnar, á steini. Við það hentist hann 28 metra frá sleðan- um og handleggsbrotnaði. Auk þess hlaut hann einhver bakmeiösl. Mað- urinn var fluttur á slysadeildina með sjúkrabíl. Hann var grunaöur um ölvunviöakstur. -em Sænskur flugmaður nauðlenti á Keflavlkurflugvelli: Hef uráður lent í sjónum við íslandsstrendur Ingi Bjöm Albertsson um EES-málið: Harmaað þjóðinséekki spurð álits - segir sér ftjálst aö hafa skoðanir í þj^gflokkniim „Ég var fyrir löngu búinn að lýsa því yfir að ég myndi nota minn tíma til fulls áöur en ég tæki afstöðu til EES-samningsins. Afstaða mín þurfti ekki að koma neinum á óvart. Ég harma að þjóðin skuli ekki fá að segja álit sitt í jafn stóru og afdrifaríku máh. Þaö hefði veriö skynsamlegasta leiðin,“ segir Ingi Bjöm Albertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. í lok umræðna um EES-málið á laugardaginn lýsti Ingi Bjöm því yfir að hann myndi greiða atkvæði gegn EES-samningnum. Þessi afstaða Inga Bjöms kom mörgum samflokks- mönnum hans á óvart enda hafði fariö fram hðskönnun í þingflokkn- um varðandi afstöðu manna. Þá lét Ingi Bjöm hvorki uppi andstöðu né stuðning. „Ég kannast ekki við að það hafi verið gengið á menn í þingflokki Sjálfstæðisflokks og þeir spurðir um afstöðu sína. Mönnum er íúns vegar frjálst að hafa sínar skoðanir, ég mína og þeir sína. Andstaða mín grundvallast fyrst og fremst á stjórn- arskrárþætti málsins og eins tel ég að máhð hggi ekki nógu skýrt fyrir.“ -kaa Átta bílar í hálendisferð: Ekkert samband síðan á laugardag - lögreglan telur fólkiö sitja um kyrrt í Snæfellsskála í nágrenni Egilsstaöa vora átta um lofúðu að hlusta á útvarpið og jeppabifireiöar staddar inni við fara eftir öhum settum reglum Snæfeh. Fólkið lagði af staö á laug- Lögreglan hefur ekki náð sam- ardagsmorgun í helgarferð og ætl- bandi viö fólkið en frétti af því rétt aði að koma aftur í gær. Lögregl- áður en þaö kom 1 skálann. A Eghs- unni hefur ekki tekist aö ná sam- stööum biðu menn eftir vonda bandi viö það en hefúr fregnir af veðrinu um kaffileytlö í gær en að hópurinn ætíi að bíða af sér ekki vora neinar sérstakar réðstaf- veðrið í skála sem ne&ist Snæfells- anir geröar. Fólk gekk frá öhu sem sltóli. . var lauslegt og Björgunarsveitin Þetta era vanir fiallagarpar sem og almannavamaneftid vora í við- aö sögn lögreglunnar á Egilsstöö- bragösstöðu. UmborðíVenusi: Á laugardaginn nauölenti lítil eins hreyfils flugvél á Keflavíkurflug- velh. Flugmaöur flugvélarinnar er sænskur og heitir Ruben Várjefelt, ferjuflugmaður aö atvinnu. Að sögn Skúla Jóns Sigurössonar, fram- kvæmdastjóra flugslysarannsókna- dehdar flugmálasljómar, lagöi Ru- ben af staö frá Sept Else, sem er ht- ih eyjaklasi út af Nýfundnalandi, í síöustu viku. Flugvélin er eins hreyf- ils, af geröinni Sessna 182. Vélin er skrásett 1 Bandaríkjunum. „Þegar Ruben nálgaöist Keflavík drapst á mótommn og hann fór að ganga skrykkjótt. Þegar hann var um tvær mflur frá landi drapst á vél- inni. Ruben kom mótomum ekki í gang aftur en var svo heppinn að komast inn til lendingar á Keflavík- urflugvelh," segir Skúh Jón. „Ruben ætlaði aö fljúga tfl Reykja- víkur en ég stoppaði hann af og kraföist þess að flugvirkjar skoðuöu vélina. Síðar flaug Ruben áfallalaust til Reykjavíkur og geymir vél sína í flugskýli ftjá íslandsflugi.“ „Ruben er með mikla reynslu en tekur örugg- lega einhveija óþarfa áhættu svo að eitthvað fer úrskeiðis. Þetta er í ann- að skiptið sem hann lendir í vand- ræðum hér við land. Fyrir þremur eða fjóram árum lenti hann í sjónum langt suður af landinu, fann ekki landið og varö eldsneytislaus. Hon- um var síðan bjargað en hann er síð- ur en svo ábyrgöarfullur flugmað- ur,“sagðiSkúhJónaðlokum. -em „Þaö voru komin um tíu vindstig þegar viö hættum á veiðum um klukkan fiögur í gær. Þaö var tals- vert veður en við höfum oft veriö í verra veöri en þessu,“ sagöi Sölvi Pálsson, fyrsti stýrimaður á tógar- anum Venusi frá Hafnarfirði, í morgun þegar Venús lá í vari inn á ReyöarfirðL „Við vorum í Reyöarfiaröardýp- inuífrekarilélegufiskiríLViöviss- um aö það myndi skella á bræla, veðurkortaritarinn var búinn að gefa það tfl .kynna. Þetta var nú aTmér landstimið,“ sagði Sölvi styrimaöur. -sme

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.