Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Side 6
6
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1993.
Fréttir
Guðjón B. Ólafsson, fyrrum forstjóri Sambandsins:
Vissi ekki hve slæm
staðan var er ég tók við
- hefði ekki tekið við forstjórastöðunni ef ég hefði vitað hveming hún var
„Þegar ég tók við stöðu forstjóra
Sambandsins vissi ég ekki að öllu
leyti hve slæm staða fyrirtækisins
var. Það liðu tvö ár í starfi þar til öll
kurl voru komin til grafar. Um var
að ræða alls konar skuldbindingar
utan Sambandsins, þar á meðal
ábyrgðir vegna fiskvinnslustöðva,
með stórar skuldir sem féllu á Sam-
bandiö, kaupfélaga og svo framvegis.
Þetta höfðu allt verið taldar góðar
eignir í bókum Sambandsins en
reyndust svo ekki vera það. Hefði ég
vitað hvernig afit var í pottinn búið
heíði ég ekki tekið við stöðu for-
stjóra. Eg hefði frekar reynt aö halda
því áfram sem ég var að gera í Banda-
ríkjunum,“ sagði Guðjón B. Ólafsson,
fyrrverandi forsfjóri Sambandsins,
við DV. Guðjón lét af störfum um
áramót af heilsufarsástæðum.
Guðjón varð forstjóri Sambandsins
haustið 1986 en þar áður stjórnaði
hann Iceland Seafood Corpöration,
dótturfyrirtæki Sambandsins í
Bandaríkjunum, í rúman áratug.
Kom Guðjón rekstri þess á réttan
kjöl eftir erfiðleika. Úr velgengninni
vestanhafs kom Guðjón heim í mikla
erfiðleika hjá Sambandinu sem end-
uðu nánast með endalokum þess.
- Var upplýsingum um stöðu Sam-
bandsins viljandi haldið frá þér þeg-
ar þú tókst við forstjórastöðunni?
„Það er erfitt að svara því í örfáum
setningum, máhð er flóknara en svo.
Málið var tvíþætt. Annars vegar
voru hlutir sem voru taldir góðar
eignir en reyndust svo ekki vera það.
Þar á meðal voru kaupfélög og fisk-
vinnslustöðvar sem héldu áfram að
hlaða á sig vísitölu- og vaxtakostnaði
sem urðu stórar upphæðir þegar þær
lentu endanlega á Sambandinu. Hins
Guðjón B. Olafsson segist ekki
mundu hafa tekið við stöðu forstjóra
Sambandsins 1986 hefði hann vitað
hve slæm staða fyrirtækisins var.
Liðu tvö ár í forstjórastóli áður en
öll kurl voru komin til grafar varð-
andi stöðuna.
vegar voru miklar skuldbindingar í
fyrirtækjum, til dæmis íslandslaxi,
sem hurfu af sjónvarsviðinu og Sam-
bandið sat uppi með sárt ennið og
skuldasúpuna. Það eru meðal annars
þessir hlutir sem ég hef í huga. En
ég get ekki farið að rekja í stuttu við-
tali hvað af þessu var viljandi og
hvað öðruvísi."
Guðjón hefur ekki lagt árar í bát
þótt hann hafi hætt störfum sem for-
stjóri Sambandsins. Hann á sæti í
stjómum nokkurra fyrirtækja og
segir talsverð verkefni vera tengd
þeim næstu mánuði. Annars er fram-
tíðin óráðin.
- Nú átt þú í höggi við illvígan sjúk-
dóm, hvemig hefur þú það?
„Ég hef það þokkalega gott í dag
en sjúkdómurinn er enn til staðar.“
-hlh
DV-mynd GVA
Fullt var út úr dyrum á kynningarfundi um fasteignakaup í Flórida sem haldinn var á Hótel Sögu um helgina.
Fasteignakaup Islendinga í Bandaríkjunum:
Sólin í Flórída heillar landann
- á þriðja hundrað manns mættu á kyningarfund um fasteignakaup
„Eg átti ekki von á svona miklum
áhuga. Það var fullt út úr dyrum og
margir urðu frá aö hverfa. Sólin í
Flórída heillar fólk. íbúðarverð er
margfalt lægra þar en hér á landi.
Fyrir 5 miiljónir er hægt að fá prýði-
legt einbýlishús og það freistar
margra," segir Sigríður Guömunds-
dóttir fasteignasali.
Sigríður gekkst fyrir kynningar-
fundi á fasteignum í Flórída á Hótel
Sögu um helgina. Á þriðja hundrað
manns mættu á fundinn. Fyrirhugað
er að halda annan fund bráðlega í
stærri salarkynnum.
Aö sögn Sigríöar hafa á þriðja tug
íslendinga keypt sér fasteignir í
Flórída til orlofsnota og afslöppunar.
Hún segir verðið það lágt að einstakl
ingar og hópar geti vel ráðið viö slíl
kaup. Engin fasteignakaup áttu sé
stað á fundinum um helgina ei
margir munu þó hafa lýst yfir áhugi
áslíkumviðskiptum. -kai
Kjörbókareigendum brá:
Vantaði vexti á yfirlitið
„Vegna mistaka hjá Reiknistofu
bankanna fóru út yfirlit sem voru
vitlaus að því leyti að það vantaði
vexti á Kjörbækur fyrrihluta ársins.
Þessir vextir voru reyndar teknir
fram á séryfirhti um mitt ár en vant-
aði nú. Þess vegna finnst Kjörbókar-
eigendum vextimir síöasta ár vera
lágir. En þó þessa vexti vanti inn á
yfirlitið eru allar niðurstöðutölur
réttar," sagði Brynjólfur Helgason,
aðstoöarbankastjóri Landsbankans,
viðDV.
Þeim sem eiga Kjörbók hjá Lands-
bankanum brá í brún er þeir fengu
yfirht frá bankanum í vikunni. Vant-
aði vexti fyrri hluta ársins inn á yfir-
htið og leit því svo út að bankinn
borgaði lægri vexti en hann hefur
auglýst. Þó vexti fyrri hluta ársins
vanti á yfirhtið hafa þeir verið
greiddir og niðurstöðutölur á yfirht-
unum eru réttar. Til að koma í veg
fyrir frekari misskilning segir Brynj-
ólfur að send verði út ný yfirht til
allra Kjörbókareigenda þar sem
vextir alls ársins í fyrra verði tíund-
aðir. -hlh
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLAN óverðtr.
Sparisj. óbundnar Sparireikn. 1-2,2 Sparisj.
3ja mán. upps. 1,25-1,5 Búnaðarb.
6 mán. upps. 2-2,25 Sparisj.
Tékkareikn., alm. 0,5-1.7 Sparisj.
Sértékkareikn. 1-2,2 Sparisj.
VfSITÖLUB. REIKN.
6 mán. upps. 2 Allir
15-24 mán. 6,&-7,0 Landsb., Sparsj.
Húsnæðissparn. 6,5-7,1 Sparisj.
Orlofsreikn. Gengisb. reikn. 4,75-5,5 Sparisj.
iSDR 4,5-6 Islandsb.
iECU 8,5-9,6 Sparisj.
ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKN.
Vísitölub., óhreyfðir. 2-3 íslandsb., Bún.b.
Óverðtr., hreyfðir 4,4-5,5 Islandsb.
SÉRSTAKAR verðbætur
(innantímabils) Vísitölub. reikn. 2,4-3 Landsb., Is- landsb.
Gengisb. reikn. 2,4-3 Landsb., is- landsb.
BUNONIR SKIPTIKJARAREIKN.
Vísitölub. 4,5-5,5 • Búnaðarb.
Óverðtr. 5.5-7,5 Búnaðarb.
INNLENDIR GJALDEYRISREIKN.
$ 1,9-2,2 Sparisj.
£ 4,5-5 Bún.b., Sparisj., Isl.b.
DM 6,7-7,1 Sparisj.
DK 8-10 Landsb.
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
ÚTLÁN ÓVERÐTRYGGÐ
Alm.víx. (forv.) 13,5-15,6 Bún.b, Lands.b.
Viðskiptav. (forv.)1 kaupgengi Allir
Alm.skbréf B-fl. 13,25-15,15 Landsb.
Viðskskbréf1 kaupgengi Allir
útlAn verotryggð
Alm.skb. B-flokkur 9-10 Landsb., Sparisj
AFURDALÁN
l.kr. 13,5-14,8 Sparsj.
SDR 7,75-8,35 Landsb.
$ 5,9-6,6 Sparisj.
£ 9,25-9,6 Landsb.
DM 11 Allir
Dráttarvextir 16%
MEÐALVEXTIR Almenn skuldabréf janúar 12,5% Verðtryggð lán desember 9,3% VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala janúar 3246 stig Lánskjaravísitala desember 3239 stig Byggingavísitala janúar 189,6 stig Byggingavísitala desember 189,2 stig Framfærsluvísitala í desember 162,2 stig Framfærsluvisitala í nóvember 161,4 stig Launavísitala i desember 130,4 stig Launavísitala í nóvember 130,4 stig
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
KAUP SALA
Einingabréf 1 6.471 6.590
Einingabréf 2 3.522 3.540
Einingabréf 3 4.230 4.307
Skammtimabréf 2,187 2,187
Kjarabréf 4,159
Markbréf 2,259
Tekjubréf 1,493
Skyndibréf 1,886
Sjóðsbréf 1 3,154 3,170
Sjóðsbréf 2 1,944 1,963
Sjóðsbréf 3 2,173
Sjóðsbréf4 1,515
Sjóðsbréf 5 1,330 1,343
Vaxtarbréf 2,2225
Valbréf 2,0832
Sjóðsbréf 6 515 520
Sjóðsbréf 7 1076 1108
Sjóðsbréf 10 1187
Glitnisbréf
islandsbréf 1,365 1,391
Fjórðungsbréf 1,140 1,156
Þingbréf 1.378 1,397
Öndvegisbréf 1,365 1,384
Sýslubréf 1,316 1,335
Reiðubréf 1,336 1,336
Launabréf 1,014 1,029
Heimsbréf 1,209 1,245
HLUTABRÉF
Sölu- og kaupgengi á Verðbréfaþingi íslands:
Hagst. tilboð
Loka-
verð KAUP SALA
Eimskip 4,71 4,20 4,73
Flugleiðir 1,49 1,49
Grandi hf. 2,24 2,30
Olís 2.09
Hlutabréfasj. VÍB 1,05
isl. hlutabréfasj. 1,12 1,07 1,12
Auðlindarbréf 1,09 1,02 1,09
Hlutabréfasjóð. 1,30 1,30 1,45
Marel hf. 2,62 2,62
Skagstrendingur hf. 3,55 3,55
Þormóður rammi hf. 2,30
Sölu- og keupgengi á Opna tilboásmariiaðinum:
Aflgjafi hf.
Almenni hlutabréfasjóðurinn 0,91
hf.
Ármannsfell hf. 1,20
Árnes hf. 1,85
Bifreiðaskoðun islands 3,40
Eignfél. Alþýðub. 1,15 1,40
Eignfél. Iðnaðarb. 1,70
Eignfél. Verslb. 1,36
Faxamarkaðurinn hf.
Haförnin 1,00
Hampiðjan 1,38 1,40
Haraldur Böðv. 2,75 2,85
Hlutabréfasjóður Norðurlands 1,09
Islandsbanki hf. 1,38 1,35
Isl. útvarpsfél. 1,95 1,65 1,95
Jarðboranir hf. 1,87
Kögun hf.
Olíufélagið hf. 5,10 4,50 5,20
Samskip hf. 1,12 1,00
S.H.Verktakarhf. 0,70 0,80
Síldarv., Neskaup. 3,10
Sjóvá-Almennarhf. 4,30
Skeljungurhf. 4,65 5,00
Softis hf. 7,00 8,00
Sæplast 2.80 2,80 3,50
Tollvörug. hf. 1,43 1,43
Tæknival hf. 0,40 0,80
Tölvusamskipti hf. 4,00
Útgerðarfélag Ak. 3,70 3,20 3,75
Útgerðarfélagið Eldeyhf.
Þróunarfélag islands hf. 1,30
1 Við kaup á viöskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum,
útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi.