Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Page 11
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1993. 11 Utlönd Notkun hreinsiefiia stöðvuð við Hjaltland: Hreinsiefnin veiri en olían - Karl prins væntanlegur á slysstað að kanna ástandið Ibúar á Hjaltlandseyjum hafa mót- mælt notkun á hreinsiefnum til aö koma í veg fyrir oliumengun vegna slyssins mikla við eyjarnar í síðustu viku. Dreifing efnanna var hætt um helgina eftir mótmæli fólksins sem telur að heilsutjón geti hlotist af efn- unum. Olíuskipið er nánast komið í spón þótt talið sé að einhver olíu sé enn í Hjaltlendingar óttast að hestar þeirra verði illa úti í menguninni. Þeir eru af fágætu kyni smáhesta. Olía gengur yfir eyjarnar og klinist á allt. Simamynd Reuter tönkum þess. Miklum vandkvæðum er þó bundið að kanna aðstæður vegna veðurs. Tæpast er búist við að nokkuð verði að gert í dag af þeim sökum. Karl Bretaprins ætlar í dag að fara til Hjaltlands og kynna sér aðstæður á slysstað af eigin raun. Hann er kunnur fyrir áhuga á umhverfismál- um. Filippus faðir hans verður með í fór. Laxeldismenn á Hjaltlandi eru mjög uggandi tun sinn hag, mest vegna umtalsins sem strand olíu- skipsins hefur leitt af sér. Enn hefur olía ekki komist í eldiskvíar en svo gæti þó fariö áður en langt um líður. Reuter FAGOR KYNNINGARVERÐ GERÐFE54-STAÐGREITTKR. 39900 KR. 41990 -MEÐAFBORGUNUM J RONNING SUNDABORG 15 SÍMI 68 58 68 We MAKE THE WORLD'S BEST MATTRESS VIÐ BUUM TIL HEIMSINS BESTU DÝNUR "WE MAKE THE WORLD S BEST MATTRESS" er hið viðurkennda vörumerki og auglýsingaslagorð Serta verksmiðjanna í Ameríku. It’s Out of This Workl. Frakkar tllbúnir 1 aðgeröir 1 Bosníu: Hóta árásum á pyntingabúðir Serbar sæta síauknum þrýstingi á alþjóðavettvangi vegna stríðsrekst- ursins í Bosníu. Bandarískt flugvéla- móðurskip nálgast nú Adríahafið, íslömsk ríki eru reiðubúin að fara fram á aukinn stuöning við íslams- trúarmenn í Bosníu og Frakkar eru tilbúnir að grípa til einhliða aögerða og frelsa „pyntingabúðir" sem Serb- ar reka. Forseti Svartfjallalands, sem ásamt Serbíu myndar það sem eftir er af Júgóslavíu, sagði að þjóð sín liði mik- inn skort vegna refsiaðgerða Sam- einuðu þjóðanna og gæti ekki risið undir þeim öllu lengur. Yfirmaöur júgóslavneska hersins var þó ögrandi og sagöi að Júgóslav- ía væri reiðubúin að mæta erlendri hernaðaríhlutun. Owen lávarður, sáttasemjari Evr- ópubandalagsins, og Boutros Bout- ros-Ghali, framkvæmdastjóri SÞ, ít- rekuðu í gær andstöðu sína við hem- aðaríhlutun. En Roland Dumas, ut- anríkisráðherra Frakklands, sagði að Frakkar mundi einir grípa til að- gerða ef nauösyn krefði til að frelsa fangabúðir á vegum Serba þar sem óbreyttir borgarar hafa sætt nauðg- unum og pyntingum. Stjómvöld í Bosníu hafa lýst yfir- menn herliðs SÞ í landinu ábyrga fyrir moröinu á Hgjika Turajlic að- stoðarforsætisráðherra á fostudag. Serbneskir byssumenn drápu hann þar sem hann ferðaðist í brynvörð- UmbUSÞ. Reuter Rússar í innkaupaferð í Póllandi: Drösluðust með lík í marga daga Hópur Rússa í innkaupaferð í Pól- landi ákvað að breyta í engu tilhögun ferðarinnar þó einn úr hópnum létist úr hjartaslagi skömmu áður en kom- ið var að pólsku landamærunum. Farið var með rútu og var líkinu komið fyrir aftasta sætinu og ferð- inni haldið áfram. Stóð svo i nokkra daga að Rússamir fóru milli verslana með líkið í rútunni. Tass fréttastofan segir að fólkið hafi sótt um leyfi til að jarða mann- inn í PóUandi en ekki fengið. Þá var um það tvennt að velja að snúa heim eða haida áfram og varð samkomu- lag um að fylgja síðari kostinum. Komið var heim til Novogord um helgina og líkinu komið í vígða mold. Rússar fara nú í hópum til PóUands og hagnast vel á viðskiptum þar. Tass sagði að gróðafíknin væri svo mikU að fólk gætti ekki að virðingu sinni og góðum siðum. Þegar þú ákveður að kaupa þér amerískt rúm þá skaltu koma til okkar og prófa hvort þér líkar best stíf eða millistíf dýna eða mjúk. Við eigum þær alltaf til á lager og getum afgreitt þær strax og þeim fylgir 20 ára ábyrgð. SERTA dýnan er einstök að því leyti að hún er eina breiða rúm- dýnan á markaðnum sem er bundin í báðar áttir sem þýðir að hjón sem sofa saman á dýnunni verða lítið vör hvort við annað þegar þau bylta sér. Þetta er augljós kostur þegar annar aðilinn er þyngri því þá truflar hann ekki léttari aðilann á SERTA dýnu. Elnu stniá SERTA alltat Húsgagnahollin BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199 Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.