Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Síða 13
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1993. 13 Fréttír Verslunin Karma á Neskaupstað: Opin nema til komi lögbann - sýslumaður segir það mál dómstóla ef grípa eigi til lokunaraðgerða „Lögreglustjóri mun á þessu stigi málsins ekki beita frekari lokunar- aðgerðum, svo sem innsiglun, enda væri um að ræða verulega skerðingu á lífsafkomu fjölskyldu. Bæjarsfjóra og byggingafulltrúa hefur verið bent á að um svona mál verði að fjalla fyrir dómstólum og þá hugsanlega að undangengnu lögbanni,“ segir Bjami Stefánsson, sýslumaður á Neskaupstað. Á annað ár hafa staðið yfir deilur á Neskaupstað milli bæjaryfirvalda og Gests Janusar Ragnarssonar kaupmanns um starfrækslu verslun- arinnar Karma. Verslunin var opnuð í óleyfi sumarið 1991 og hefur bygg- inganefnd og bæjarstjóm ítrekað óskað eftir lokun. Staðsetning henn- ar stangast á við skipulag og að auki þykir hún ekki uppfylla skilyrði um hollustuhætti og bílastæði. Umhverf- isráðuneytið og skipulagsstjóri ríkis- ins hafa viðurkennt réttmæti kröf- unnar og nýverið gerði sýslumaður það einnig. Þrátt fyrir andstöðu yfirvalda gagnvart verslunarrekstrinum telur Gestur Janus sig í fullum rétti. Segir hann bæjaryfirvöld beita sig órétti sem að hluta til eigi sér pólitískar skýringar. í samtali við DV fyrir skömmu kvaðst Gestur Janus ekki ætla að loka búðinni. Ljóst er því að ætli bæjaryfirvöld að ná fram viþa sínum og loka versluninni þá verða þau að óska lögbanns og hefja mála- ferli. „Úr því sýslumaður treystir sér ekki til að loka versluninni þá verð- um við að setjast niður og ákveða framhaldið. Það em mér hins vegar mikil vonbrigði ef byggingalög og reglugerð gefa yfirvöldum ekki heimild til lokunaraðgerða þegar um svona augljós brot er að ræða,“ segir Guðmundur Bjamason bæjarstióri. -kaa Ólafsfjörður: Verðlag í lægri kantinum Helgi Jónsson, DV, Ólafefirði: Verðlag á landsbyggðinni er 4,9% hærra en á höfuðborgarsvæðinu. Hér á Ólafsfirði er það 3,1% hærra. Þetta kom fram í umfangsmikilli verðhökk- un sem Verðlagsstofnun gerði. Vöraverð á yfir 30 stöðum var gefið upp í þessari könnun og aðeins sex staöir geta boðið íbúum sínum lægra vöraverð en Ólafsfirðingum býðst í sinni heimabyggð. Verölag hér er t.d. lægra en í Grindavík, Hveragerði, Selfossi og Borgamesi. Selfoss: Hótelrekstur ísókn Regína Thorarensen, DV, Selfossi: Að sögn Heiðars Ragnarsson, hót- elstjóra á Hótel Selfossi, hefur hótel- reksturinn gengið ágætlega og aukist með hveiju árinu hér á Selfossi en komið er á fimmta ár frá þvi Heiðar tók við rekstri Hótel Selfoss. Með vaxandi aðsókn er fastráðið starfsfólk 8-10 yfir vetrarmánuðina. Bætt er við fólki um helgar, þegar mikið er um að vera, - bæði hús- mæðram og skólafólki. Yfir sumar- tímann er fastráðið starfsfólk 16-20 að sögn Heiðars. Mikill menningarbragur er á starf- semi hótelsins auk þess sem það eyk- ur atvinnu á staðnum. Nýttembætti skattrannsókn- arstjórarikisins „Ég tel að þessi breyting sé af hinu góða. Embætti skattrannsóknar- stjóra verður sjálfstætt gagnvart rík- isskattstjóra og mun einbeita sér að rannsóknarþættinum. Samkvæmt lögum hefur þetta sjálfstæði verið til staðar en það þótti eðlilegt að að- skilja þetta algjörlega. Menn vænta að með þessari breytingu verði kerfið skilvirkarar“ segir Guðmundur Guð- bjamason skattrannsóknarstjóri. Um áramótin gengu í gildi ýmsar lagabreytingar í skattamálum. Meðal annars verður stofnað sérstakt emb- ætti skattrannsóknarstjóra ríkisins sem mun alfarið sinna meintmn skattsvikum og almennri skattrann- sókn. Þar með leggst af rannsóknar- deild ríkisskattstjóra. Eftirhtssviðið, sem áður heyrði undir skattrann- sóknarstjóra, færist nú undir Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóra. Ahs era nú 24 stöðugildi hjá skatt- rannsóknarstjóra. Hluti þessara stöðughda mun flytjast til ríkisskatt- stjóra en önnur flytjast yfir til nýja embættisins. Að sögn Guðmundar hggur enn ekki fyrir hjá hvora embættinu ein- stakir starfsmenn verða á nýbyijuðu ári. Búið er að auglýsa stöðu skatt- rannsóknarstjóra ríkisins lausa til umsóknar. -kaa Enn einu sinni fá viðskiptavinir sparisjóðanna vinninginn 7,01 % raunávöxtun HÆSTA ÁRSÁVÖXTUN Á INNIÁNSREIKNINGI Hæsta ávöxtun á innlánsreikningum hjá bönkum og sparisjóðum árið 1992 kom í hlut þeirra sem skipta við sparisjóðina. Enn einu sinni hefur reynslan sýnt að þeir sem vilja ávaxta sparifé á innlánsreikningum geta borið mest úr býtum hjá sparisjóðunum. Hafðu þetta í huga. SPARISJÓÐIRNIR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.