Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1993. Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð i lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblaö 150 kr. Byrjuðu ballið Vextir bankanna hækkuðu um áramótin. Þó er skammt síðan menn gerðu sér almennt vonir um lækk- un vaxta. Forsvarsmenn atvinnulífsins fjölluðu um slíka lækkun sem eina helztu aðgerðina, sem gera þyrfti til að rétta við atvinnulífið. Það var í október. En staðan hefur gjörbreytzt, aðallega vegna gerða ríkisstjómar- innar. Bankamir hækkuðu nú vexti á óverðtryggðum lánum um allt að tveimur prósentustigum. Raunvextir hækk- uðu einnig hjá sumum bankanna. Landsbankinn hækk- aði vexti á verðtryggðum skuldabréfum um 0,25 pró- sentustig og íslandsbanki um 0,5 prósentustig. Stjómar- hðar í bankaráði Landsbankans stóðu að hækkuninni ásamt fulltrúa Kvennahstans. Margir hafa orðið til að mótmæla vaxtahækkun nú, enda eykur hún samdrátt- inn í atvinnulífinu. Þegar grannt er skoðað, kemur í ljós, að gild rök em fyrir hækkun vaxtanna út frá sjón- armiðum banka. Hækkun nafnvaxta byggist á því, að verðbólgustigið fer hækkandi. Hraði verðbólgunnar hefur verið um eitt og hálft prósentustig að undanfórnu, en nú er verðbólg- an komin á skrið. Búizt er við, að hraði verðbólgu verði 17 prósent miðað við hreyfingu vísitölunnar um næstu mánaðamót og síðan 9,6 prósent miðað við hreyfingu vísitölu í febrúar - marz, 7 prósent í febrúar - apríl og 5,5 prósent febrúar - maí. Hér er átt við verðbóguhraða miðað við heht ár, ef hraðinn héldist. Spáð er, að dragi úr verðbólgu með vorinu. Eðlhegt er, að bankar og spari- sjóðir hækki nafnvexti, þegar verðbólgan hefur aukizt. Aukning verðbólgu stafar af ákvörðunum, sem ríkis- stjómin hefur tekið. Gengisfelhngin veldur því, að verð- lag hækkar. Ennfremur hefur verðlag farið hækkandi vegna annarra aðgerða stjómvalda. Fuh þörf var á gengisfellingunni eftir hið mikla um- rót á alþjóðlegum peningamörkuðum. En gengisfellingin er dýr. Þótt talað sé um, að verðbólgan fari minnkandi með vorinu, fer því fjarri, að það sé ljóst. Fjöldi verka- lýðsfélaga hefur sagt kjarasamningum upp. Styrjaldar- tónn er víðast í launþegahreyfingunni og ríkjandi skoð- un, að tími „þjóðarsátta" sé hðinn. Næst verði átök. Verkalýðshreyfingin htur svo á, að ríkisstjómin hafi kastað stríðshanzkanum með aðgerðum sínum í nóv- emberlok. Þannig gæti svo farið, að átök verði brátt á vinnu- markaði, friðurinn úti og afleiðingin nýtt kapphlaup kaupgjalds og verðlags. Þótt hækkun nafnvaxta stafi að mestu leyti af áhrifum hinnar óhjákvæmhegu gengisfellingar, hlýtur ríkis- stjómin að sæta ámæh fyrir að halda uppi hinu háa raunvaxtastigi, sem jafhvel fer hækkandi. Háir raun- vextir em th komnir vegna of mikilla umsvifa ríkisins á Qármagnsmarkaðinum. Þama koma fram áhrif þess, að ríkisstjómin setur hvert „skattametiö“ af öðm. Þann- ig hækkuðu vextir spariskírteina ríkissjóðs fyrir skömmu og fóm upp fyrir lægstu útlánsvexti banka. Auðvitað gengur ekki, að taka megi bankalán th að hagnast á kaupum spariskírteina ríkissjóðs á verðbréfa- þingi eins og staðan var orðin. Þannig byrjaði ríkissjóður balhð. Atvinnulífið á örð- ugt með að borga hækkandi raunvexti. Samdrátturinn er mikhl fyrir, og þetta er eitt hið versta, sem gerzt gat í þessari stöðu. Hjá því verður ekki komizt að álykta, að ríkisstjómin hafi bmgðizt í vaxtamálum. Haukur Helgason Labrador -Nðe Jf ^ o Nuuk Hvarf worour- Grænlandshaf Jan *' Reykjavíko ÍSLAND ATLANTSHAF 0 1000 2000 km o Arkangelsk .Öq Æ & 'Q FINNLAND ^ ° Helsinki ^sl0 Stokkhólmur „Samstarf og samvinna við Evrópuþjóðirnar útilokar ekki samstarf og samvinnu við Bandaríki Norður- Ameríku ... “ segir Finnur m.a. í grein sinni. Af hverju hjáseta í EES-málinu? Markmið okkar íslendinga í samskiptum við aðrar þjóðir, þ.e. í utanríkismálum, er að tryggjá hag íslensku þjóðarinnar. Það hlýtur því að vera ráðandi þáttur í utan- ríkismálum okkar þjóðar á hvem hátt við stöndum að samstarfl við Norður-Ameríku annars vegar og Evrópu hins vegar. Samstarf og samvinna við Evrópuþjóðimar úti- lokar ekki samstarf og samvinnu við Bandaríki Noröur-Ameríku og öfugt heldur þvert á móti. Fyrst Evrópa síðan Banda- ríkin Ég held aö með samningnum um EES hafi okkur íslendingum opn- ast leiðir til samninga sem aila jafn- an em lokaðar og hefðu verið lok- aðar hefðum viö í upphafi staðið utan þeirra samninga. Ég er sann- færður um að ef leitað yrði eftir viðskiptasamningi við Bandaríkin skapaði EES-samningurinn betri stöðu í þeim samningmn. Við ís- lendingar eigum því strax að leita eftir víðtækum viðskipta- og sam- starfssamningi við Bandaríkin á gnmdvelh gagnkvæmra hags- muna, þar á meðal þeirra sérstöku hagsmuna sem leiða af legu ís- lands. Aldrei inn í EB Bókun 6 hefur skapað okkur ís- lendingum betri stöðu á evrópska markaðnum með sjávarafúrðir heldur en Norðmenn, sem era okk- ar aöalsamkeppnisaöilar, hafa haft. Norðmenn hafa nú staðfest EES- samninginn og því skyndilega öðl- ast betri samkeppnisstöðu á evr- ópska markaðnum heldur en við. Það mun setja íslenskan fiskiðnað í mikinn vanda. Ef við íslendingar njótum þess sem viðskiptahlið EES-samnings- ins veitir okkur verður staða Is- Kjallarinn Finnur Ingólfsson alþingismaður Framsóknar- flokksins í Reykjavík lendinga og Norðmanna sambæri- leg á markaðnum varðandi tolla, þó svo að Norðmenn gangi inn í Evrópubandalagið. Ég tel því að viðskiptahlið samningsins um hið Evrópska efnahagssvæði sé okkar sterkasta vopn í vöm okkar fyrir því að sogast inn í Evrópubanda- lagið því þangað megum við aldrei fara. Óásættanlegur sjávarút- vegssamningur Tollalækkunina á Evrópumark- aönum höftun við íslendingar því miður þurft að kaupa dým verði því þegar sjávarútvegssamningur- inn hggur nú fyrir og hann er veg- inn og metinn þá er alveg ljóst að hann er algjörlega óásættanlegur fyrir okkur íslendinga þar sem ekki er um jafngildar veiðiheimild- ir að ræða. Þetta er ein sönnun þess að ríkisstjómin hefur haldið illa á þessu máli á síðari stigum samningsferlisins. Rökrétt afleiðing Vafi leikur á því hvort stofnana- hluti samningsins brýtur í bága viö íslensk stjómskipunarlög. Til að taka af allan vafa í þeim efnum fluttu fulltrúar stjómarandstöð- unnar hjá Alþingi framvarp til breytinga á stj ómskipunarlögum en meirihlutinn á Alþingi kaus að vísa málinu frá. Einnig leikur vafi á því hvort frumvarpið er hæft til meðferðar á Alþingi þar sem það er ekki full- búið. Það er því eðlilegt að doka við og fá málið fullbúið inn á Al- þingi en ríkisstjómarflokkamir ákváðu að láta máliö hafa þann framgang sem það nú hefur fengið. Þeir verða því einir að bera alla pólitíska ábyrgð á málinu. Það er því rökrétt að sitja hjá við af- greiðslu málsins. Finnur Ingólfsson „Við Islendingar eigum þvi strax að leita eftir víðtækum viðskipta- og sam starfssamningi við Bandaríkin á grundvelli gagnkvæmra hags- muna.. Skoðanir annarra Tveir aðskildir samningar „ Með því að halda upphaflegri áætlun með fisk- veiðisamninginn og staðfesta hann nú, þrátt fyrir töfina á fæðingu EES, gefst íslendingum tækifæri til að skilja enn gerr á milli þessara tveggja samninga. Það tækifæri eiga íslendingar afdráttarlaust að nýta. Allar vangaveltur um að fresta staöfestingu Alþingis á fiskveiðisamningnum eru byggðar á hrapallegum misskilningi á því sem íslandi er fyrir bestu.“ Úr forystugr. Alþbl. 8. jan. Þeir fátæku og þeir ríku „í niöurstöðum könnunar, sem fjármálaráðu- neytið lét gera og kynntar vom á síðasta ári, kom fram að einungis á milli áranna 1990 og 1991 jókst hrein eign 245 efnuöustu hjónanna um rúma fjóra mihjarða króna. Á sama tíma jukust skuldir efnam- innstu hjónanna um því sem næst sömu upp- hæð... Þegar við bætist að fjármagnstekjur era al- gerlega skattlausar er ekki að sökum að spyrja. Þeir fátæku verða stöðugt fátækari en þeir ríku ríkari - miklu ríkari." Úr forystugr. Dags á Akureyri Vænlegasta leiðin í bankamálum „ Ef dregiö yrði úr vaxtamun myndi það leiða til þess að greiða þyrfti samsvarandi upphæð í bankana að stuttum tíma liðnum. Þeir fiármunir yrðu teknir úr ríkissjóði og lagðir á skattgreiðendur. - Sjálfsagt er vænlegasta leiðin til vaxtalækkunar sú að selja helst erlendmn bönkum stóran hlut í ríkisbönkun- um.“ ÚrforystugreinPressunnar7.jan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.