Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1993, Qupperneq 17
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1993.
17
Fréttir
Seyðisfjörður:
Fjöldasöngurinn í malar-
námunum naut sín vel
Pétur Kristjánsson, DV, Seyðisfirði;
Áramótin voru ósköp róleg og
notaleg hér í firðinum. Að sögn lög-
reglunnar voru engin óhöpp né ólæti.
Um hálftíuleytið kveiktu menn úr
Björgunarsveitinni ísólfi í myndar-
legum bálkesti sem þeir höfðu hlaðið
og héldu síðan bálinu vel við. Brenn-
an var nú annað árið í röð í mal-
arnámunum gömlu hér rétt fyrir
innan bæinn. Þar hefur orðið til all-
skemmtilegt samkomusvæði sem
gott er að safnast saman á og naut
fjöldasöngurinn sín þar vel.
Um miðnættið logaði himinninn
glatt eins og annars staðar á landinu.
Og ekki brunnu peningamir sem
fóru í flugeldakaup því aUur ágóði
sölunnar fer til Björgunarsveitarinn-
ar ísólfs.
Diskótek var síðan í félagsheimil-
inu Herðubreið fram eftir nóttu.
Andrúmsloftið var létt og óþvingað
og greinilegt að allir skemmtu sér
eins og best verður á kosið.
DV-mynd Pétur
Sungið í malarnámunum
Söngelskar konur:
Stofna
Kvennakór
Reykjavíkur
Hafinn er undirbúningur að stofn-
un Kvennakórs Reykjavíkur sem
starfa á í líkingu við Karlakór
Reykjavíkur: æfa tvisvar 1 viku, vera
með undirleikara og annað aðstoðar-
fólk og halda árlega jóla- og vortón-
leika.
Hugmyndin að stofnun kvemia-
kórsins á rætur að rekja til kórskóla
Margrétar J. Pálmadóttur þar sem
konur hafa sungið saman undanfarið
ár. Konurnar héldu tónleika í Lang-
holtskirkju síðastliðið vor og eftir þá
fékk hugmyndin um kvennakór byr
undir báða vængi. Frá því skólinn
hóf stöf í haust hefur verið unnið
markvisst að hugmyndinni og radd-
legur undirbúningur farið fram. Hélt
hópurinn tónleika í troðfullri Krists-
kirkju fyrir jól.
Nú verður Kvennakór Reykjavíkur
formlega stofhaður og inntökupróf
haldin á Hallveigarstöðu'm miðviku-
daginn 13. janúar kl. 17-22 og sunnu-
daginn 17. janúar kl. 13-17. Þeim
konum sem ekki standast inntöku-
skilyrði verður bent á ýmsa mögu-
leika til undirbúnings.
Stjómandi kórsins verður Margrét
J. Pálmadóttir. Jóhanna V. Þórhalls-
dóttir verður raddþjálfari og tón-
fræðikennari og Svana Víkingsdóttir
mun sjá um undirleik.
-hlh
Útboð ríkisvíxla:
Ávöxtunin hækkar
Útboði á þriggja mánaða ríkisvíxl-
um lauk með opnun tilboða fyrir
helgi. Alls bárust 43 gild tilboð í ríkis-
víxla að fjárhæð 2.730 milljónir
króna. Heildarfiárhæð tekinna til-
boða var 2.118 milljónir frá 20 aðilum.
Meðalávöxtun samþykktra tilboða
er 11,99% sem svarar til 11,77% for-
vaxta. Meðalávöxtunin hækkaði frá
síðasta útboði þegar hún var 11,86%.
í þeim útboðum sem hafa verið síð-
asta mánuðinn hefur meðalávöxtun-
in hækkað úr 11,38% í því fyrsta í
11,99% nú. -Ari
Ámeshreppur:
Loksinseríbúa-
fjöldinnréttur
Regína Thorarensen, DV, Selíossi:
Ég átti nýlega tal við séra Jón
ísleifsson, prest í Árneskirkju á
Ströndum. Þar var messa um jólin í
hinni nýju kirkju. Kirkjusókn var
góð þrátt fyrir hálku.
Nú eiga lögheimili í Árneshreppi
109 manns samkvæmt manntals-
skráningu 1. desember 1992. Þá er
loksins komin rétt tala á íbúafiöld-
ann því að Hagstofan er búin að
koma þeim mörgu á rétta staði sem
flutt hafa úr hreppnum í góða at-
vinnu suður og eiga íbúðir í Reykja-
vík og víöar á höfuðborgarsvæðinu
en borguðu sín háu gjöld til Ámes-
hrepps.
•GRÆNN = 20%AFSLATTUR
WRAUB
, Geislaplötur og
9 kassettur merktar með
GULUM límmiða eru
• með 15% afslætti,
•
. Geislaplötur og kassettur
merktar með GRÆNUM límmiða
. eru með 20% afslætti,
Geislapíötur merktar með eru með 10% $ og kassettur ; RAUÐUM Ifmmiða afslætti, (
JLJ Nu er bara að drifa sig á útsölu ársins •i < \ •j / ( j
RÆf 1IIM ■ * ( j • ] •! < i
OG ALUR AF STAOl
UTRÍK ÚT5ALA í BOREARKRIHIELUIMIMIOG
MJónnmm
10% AFSLA TTUR*15%AFSLA TTUR*20%AFSLA TTUR af öllum nýjum og gömlum
vörum í verslunum okkar í BORGARKRINGLUNNI og MJÓDDINNI (Álfabakka 14)
og reyndar miklu meira en það, því jafnframt er ígangi ÚTSÖLUMARKAÐUR
þar sem geislaplöturnar kosta frá 99. -krónum og kílóið af gömlu
plastplötunum (5 stk.) er á 1000 kall. Auk fleiri kostaboða, svo sem öll
nýjustu myndböndin leigð út á 250, - krónur og TDK kassettur á
tilboðsverði. 5% aukaafsláttur fyrir meðlimi BÓNUSKLÚBBSINS ofl. ofl.
H/Ú ALLSR AF STAÐS
f/MUSIl
ÖpyNdÍR
5% AUKAAF5LÁTTUR r
FYRIR BÓIMU5KLLIBBFÉLAGA
•®TDK,
THAUSTAH OG DUGAIMDI KASSETTUR
1-Ú-S-Í-K0
• Y N D-im
, HUÓMPLÖTUR
Á ÍOOO KR.
KfLÓIÐ
ALFABAKKI 14 MJODD s: 74848 ■ BORGARKRINGLAN s: 679015
ATHUGIÐ AÐ VERSLANIRNAR ERU OPMAR TIL KL. 23:31
ÖLL KVÖLD VIKUNNAR
SENDUM í PÓSTKRÖFU SÍMINN ER 91-1 16 20