Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Qupperneq 2
Fréttir Játar kynferðismisnotkun á broskaheftum karlmanni Fimmtugur karlmaöur hefur ját- aö við yfirheyrslur hjá Rannsókn- arlögreglu ríkisins að hafa misnot- aö þrjátíu og fimm ára þroskaheft- um tíma. Upphaf málsins er þaö aö lögregl- unni harst til eyrna aö þroskahefti maöurinn hetöi verið misnotaður. Hann kom síöan til lögreglu, sagði frá málsatvikum og greindi frá því að atburðimir hefðu átt sér staö um þrisvar sinnum á síðasta ári gegn sínutn vííja. Maðurinn er verulega greindar- skertur og býr h)á ættingjum sín- um í austurborg Reykjavíkur. Við rannsókn málsins kom í Ijós að fimmtugur karlmaöur átti sök á málinu en hann þekkir þann þroskahefta í gegnum þriðja aðila. Sá aðili er ekki talinn tengjast mál- inu á nelnn annan hátt Maðurinn var handtekmn og við yfirheyrslur játaði hann að hafa haft uppi kynferðislega tilburöi gagnvart þeim þroskahefta. Mað- urinn játaöi að kynferöisleg mis- notkun hefði átt sér stað tvisvar sinnum á síðastliðnu ári. Hann neitaði hins vegar að samræðið hefði verið gegn vtija þess þroska- Að sögn rannsóknarlögreglu er málið talið upplýst og hefur mann- inum verið sleppt úr haldi. Málið verður sent ríkissaksóknara sem gefur út ákæru á hendur mannin- um. Ánægðir kvikmyndaleikstjórar. Hilmar Oddsson og Friðrik Þór Friðriksson fengu stærstu styrkina úr Kvikmynda- sjóði íslands þetta árið og eru báðir í startholunum. DV-mynd BG Úthlutun úr Kvikmyndasjóði: Friðrik og Hilmar fengu hæstu styrkina íslenska kvikmyndasamsteypan, sem er fyrirtæki Friðriks Þór Frið- rikssonar og fleiri, fékk hæsta fram- leiöslustyrkinn, 26 miHjónir (21,6% af heildarkostnaöi) frá Kvikmynda- sjóði íslands til að gera kvikmyndina Bíódaga en í gær var úthlutað 75 milljónum úr sjóðnum til kvik- myndagerðarmanna. Næststærsta styrkinn fékk Nýja bíó, fyrirtæki Hilmars Oddssonar og fleiri. Fékk Hilmar 23 milljónir (36,3% af heildar- kostnaði) til að gera kvikmyndina Vita et Mors en í henni er fjallað um líf Jóns Leifs tónskálds. Þetta voru langstærstu styrkimir sem úthlutað var að þessu sinni en alls fengu 19 aðilar styrki úr kvikmyndasjóði. Ein önnur leikin kvíkmynd fékk framleiðslustyrk, Stuttur frakki, 3 milljónir. Er sú kvikmynd langt komin. Sjö aðilar fengu styrk til handritsgerðar og undirbúnings en hæst var veitt 1 milljón í þeim flokki. Þriðja hæsta styrkinn fékk Þór Elís Pálsson, 7 milljónir, til framleiðslu á stuttmyndinni Nifl. Úthlutunamefnd skipuðu Ámi Þórarinsson ritstjóri, Kristbjörg Kjeld leikkona og Laufey Guðjóns- dóttirdagskrárfulltrúi. -HK Maður dæmdur í fangelsi fyrir samræði við sofandi konu: Klippti fötin utan af kæranda Hæstiréttur hefur dæmt 23 ára Reykvíking í 6 mánaða fangelsi fyrir að hafa haft samræði við konu sem svaf ölvunarsvefni heima hjá sér í Reykjavík í desember 1991. Dómur- inn þyngdi refsingu Héraðsdóms Reykvfldnga í málinu sem dæmdi sömu refsingu en skilorðsbatt 3 mán- uöi af henni. Maðurinn var dæmdur fyrir að hafa klippt fót konunnar utan af henni áður en hann hafði við hana samræði. Hann gaf ýmsar skýringar á því athæfi sínu, til að réttlæta gjörðir sínar - þetta hefði verið „grín“ og átt að vera “spennandi". Dómurinn komst að þeirri niður- stööu að þessar skýringar væra ótrú- verðugar. Eftir verknaðinn hitti maöurinn tvö vitni í málinu og gaf þeim upp rangt nafh. Þetta taldi dóm- urinn einnig ótrúverðugt og til þess fallið að styðja kæm konunnar þess efnis aö maðurinn hefði haft við hana samræði án þess að hún gerði sér grein fyrir því. Dóminn kváöu upp hæstaréttar- dómaramir Þór Vilhjálmsson, Gunnar M. Guömundsson, Haraldur Henrysson og Hjörtiu1 Torfason og Bjami K. Bjamason fyrrverandi hæstaréttardómari. -ÓTT Er Ríkisútvarpið í „keðjubréfaskriftum"? Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; „Það sem mér finnst skrítnast við þetta bréf er að það er sent á bréfs- efni frá Ríkisútvarpinu og á umslag- inu, sem bréfið var í, er póststimpill þeirrar stofnunar. Bréfið er nafn- laust svo þaö liggur beinast við að ætla að Ríkisútvarpið sé að senda fólki þessi bréf,“ segir kona á Akur- eyri sem fékk sent keðjubréf fyrir nokkrum dögum. Bréfið er eitt svokaflaðra „hamingju- bréfa“ sem af og til skjóta upp kolflnum hér á landi. Það er skrifað á ensku og boðskapur þess er sá að ef viðtakandi þess sendi 20 aðilum sams konar bréf innan fjögurra sólarhringa eigi hann hamingju í vændum sem getur m.a. boðist í formi happdrættisvinnings. Það er einnig skýrt tekið fram að sá sem skerst úr leik og ekki sendir 20 bréf áfram eigi yfir höfði sér óham- ingju og nefnd era dæmi um fólk sem galt fyrir það með lífinu. Konan á Akureyri sagðist ekki taka svona bréf alvarlega, þetta væri ekki nema til að hlæja að og bréfið færi í ruslakörfuna. „Þaö sem ég undrast hins vegar er að opinber stofnun skuli vera notuð til að greiða sendingar- kostnað undir slík bréf,“ sagði konan. w Erlendir ríkisborgarar: ísland lokkar til sín fleiri konur en karla - Danir Qölmennastir útlendinga hér á landi Útlendum ríkisborgumm á íslandi -363 Bretar, 111 Júgóslavar, 233 Pól- veijar, 271 Þjóðveiji, 657 Bandaríkja- menn, 135 FUippseyingar, 48 Kínverj- ar, 148 Tælendingar og 17 frá Græn- höfðaeyjum. Þó konur séu í meirihluta erlendra ríkisborgara hér á landi gildir það þó ekki um öll þjóðemin, til dæmis Eista, ítali, Júgóslava, Japana, Tyrki, og Marokkómenn. Konur era hins vegar í yfirgnæfandi meirihluta sé horft til ríkisborgara frá Póllandi, Tælandi, Filippseyjum og Þýska- landi. -kaa fækkaði um 10,5 prósent á síðasta ári eða samtals 569. Mest varð fækkunin á Austurlandi eða 22,9 prósent. Á Norðurlandi eystra fjölgaði hins veg- ar erlendum ríkisborgurum um 2,3 prósent. í lok síöasta árs bjuggu sam- tals 4.826 erlendir ríkisborgarar á íslandi, þar af 2.835 konur og 1.991 karl. Hlutfallslega er frændþjóðin Danir fjölmennust hér á landi en afls vom hér búsettir 1.095 Danir í árslok 1991. Þá voru hér meðal annars búsettir Samvinnuferöir - Landsýn: Sala haf in á orlofsferðum verkalýðsfélaga „Við erum mjög ánægðir með þennan samning sem náðst hefur við Flugleiöir. Meöaltalshækkunin á or- lofsferðunum er ekki nema 8 pró- sent,“ segir Helgi Jóhannsson, for- sfjóri ferðaskrifstofunnar Sam- vinnuferðir-Landsýn. Ferðaskrifstofan býður nú í sam- vinnu við átta verkalýðsfélög firmn þúsund sæti til ellefu borga í sumar, það er Kaupmannahafnar, Óslóari Stokkhólms, Gautaborgar, Glasgow, London, Lúxemborgar, Amsterdam, Parísar, Vínar og Baltimore. Ferð til Kaupmannahafnar kostar 17.900 krónur sé um staðgreiðslu að ræða. Til Glasgow kostar ferðin 14.900 krónur en 35.500 til Baltimore. Sala á ferðunum hefst á mánudag og stendur til 3. maí. Eftir 28. febrúar hækkar verðið um 1500 til 2.000 krón- ur. Verkalýðsfélögin sem aðild eiga að samningnum em BSRB, ASÍ, VR, BHM, KÍ, FFSÍ, HFÍ og SÍB. -IBS LAUGÁRDAGUR 16. JANÚAR 1993.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.