Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Page 8
8 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993. Svipmyndin Af hverri er svipmyndin? Stundum er um það talað að sápuóperur verði að veruleika. En það var einmitt það sem gerðist í lífl þeirrar sem svipmyndin er af. Hún var leikona og lék í kvik- myndum og úvarpsþáttum á veg- um fyrirtækis sem hét Radical So- ap. Hún var lagleg en þó varð ekki beinlínis um hana sagt að hún væri fogur. Það var lífsgleði hennar og töfrar sem maðurinn féll fyrir. Og nú hafði hún kynnst manni sem var þess virði að kynnast. Hann var fjörutíu og níu ára en hún aðeins 24 ára. Þau hittust af tilviljun á dansleik góðgerðarsamtaka. Ást kviknaði við fyrstu sýn. Maðurinn sem hún kynntist þar umgekkst gjaman ungar stúlkur. Þegar saman bar fundum hans og þeirrar sem hér er lýst var hann með við hlið sér átján ára stúlku sem hann var vanur, í gamni, að kynna sem dóttur sína. Nú varð sú átján ára að víkja. Og ástríðufullt samband hófst. Sú sem svipmyndin er af var kona sem vissi hvað hún vildi. Hún var frá fátæku sveitaheimili. Fimmtán ára hafði hún farið til stórborgarinnar til þess að reyna fyrir sér. Draumur hennar var að verða leikkona. Næstu ár voru erfið. Henni tókst þó að fá smáhlutverk í kvikmynd- um og útvarpsleikritum. Þaö var þó fyrst þegar Radical Soap fór að sýna henni áhuga að hagur hennar vænkaðist. Til þess að vekja athygli á sér gerðist hún sömuleiðis fyrirsæta óg myndir af henni birtust í viku- ritum. Þær sýndu aðlaðandi og fá- klædda dökkhærða stúlku. Fót- leggimir og berar axlimar vom áberandi. A nokkmm myndanna má sjá í brjóstin. Myndimar voru í raun ekki neitt til að hneykslast yfir en engu aö síður fannst sumum sér misboðið. Og síðar vom gerðar tilraunir til að nota þær gegn henni. Þá vora þær prentaðar í stóm upplagi og þeim dreift um landið. Skammlíf Nú skein sólin. Hún haföi kynnst stóra ástinni. Þau gengu í hjóna- band í kyrrþey. Sú sem hér er lýst var kona sem stóð í einu og öllu með manninum sínum. Þar sem hún vissi hvað það var að vera fátæk stóð hún aö margs kyns félagslegri hjálpar- starfsemi. Það gerði hana mjög vin- sæla meðal verkafólks. Hver sem var gat snúið sér til hennar með vandamál sín. Þá fór hún einnig að láta til sín heyra um kosningarétt kvenna. Árum saman hafði hún verið því hlynnt að konur fengju að kjósa. Má þakka henni það að miklu leyti að þær fengu kosningarétt. Hins vegar hélt hún á lofti skoð- unum sem kvenréttindakonum féllu ekki. „Heimiiið er vettvangur konunn- ar.“ „Engin kvenréttindahreyfing getur náð umtalsverðum árangri ef hún styður ekki baráttu karl- mannanna." Það er ekki að undra þótt til heitra umræðna hafi komið. Eftir nokkur ár varð sú sem svip- myndin er af veik og hún lést að- eins þijátíu og þriggja ára. Lík hennar var smurt svo það varð- veittist. Eftir lát hennar vegnaöi manni hennar ekki eins vel og áður. Þrem- ur ámm síðar varð hann að yfir- gefa landið. Nýja ríkisstjómin reyndi að útmá allt sem minnti á hjónin vinsælu. Breytt var götunöfnum og styttur ijarlægðar. Þá krafðist öryggis- þjónustan þess að fá lík þeirrar sem svipmyndin er af framselt. Var þaö sett í herstöð, í geymslu sem merkt var „Hlutir í útvörp". Líkið hverfur Líkflutningurinn vakti mikla reiði aðdáenda þeirrar sem svip- myndin er af. Til mikils andófs kom og settar vom fram kröfur um að líkinu yrði skilað. Mjög fáir vissu hvar það var. Nú var tekið að flytja það stað úr stað. Þá komst margvíslegur orðrómur á kreik. Sumir héldu jafnvel að það hefði verið lagt í ómerkta gröf. Aðrir voru aftur þeirrar skoðunar að því hefði verið kastað í fljót. Majór í öryggisþjónustunni er sagður hafa tekið að sér að geyma kistuna á heimih sínu um hríð. Hann svaf með skammbyssu undir koddanum. Nótt eina heyrði hann þmsk og sá skugga bregða fyrir svefnherbergisdymar. Hann skaut mörgum skotum en komst svo að raun um að hann haföi skotið til bana konu sína sem verið hafði á leið fram í baðherbergið. Það var árið 1956 sem líkið hvarf. Það kom ekki fram aftur fyrr en árið 1971. Þá skilaði öryggisþjón- usta því til manns hennar og kom það mjög á óvart. Þegar hér var komið var hann orðinn sjötíu og fimm ára og bjó í Madrid. Hann hafði þá kvænst dan- smær á næturklúbbi. Vörabíll ók upp að húsinu sem hann bjó í og kistan var borin inn í setustofuna. Lásinn á henni var síðan brotinn upp. „Þarna liggur hún!“ var sagt. Lík- ið var vel varðveitt. „Ég mim eiga mörg ánægjuleg ár í nærvem þessarar konu,“ sagði sá sjötíu og fimm ára gamli. Líkið hafði mikið táknrænt gildi fyrir fyrrverandi stuðningsmenn hennar. Þess vegna hafði það verið geymt á óþekktum stööum í svona mörg ár. Flogið hafði verið meö það á laun frá Argentínu til Mílanó á Ítalíu. Þar hafði það verið jarðsett undir nafninu Maria Maggi. Nú var þaö flutt til heimalandsins á ný. Loks fékk hún að hvíla í ró. Um ævi hennar var gerður frægur söngleikur sem hlotið hefur miklar vinsældir. Hver var hún? Svar á bls. 56 Matgæðingur vikunnar_dv Bakaður humarréttur „Þetta er nú spariréttur á mínu heimili," sagði Hrafnhildur Björg- vinsdóttir, matgæðingur vikunnar og húsmóðir í Grindavík, við DV. „Hann er mjög þægilegur því það er hægt að hafa hann tilbúinn í ofninn þegar gestirnir koma. Hér em nú staddar tvær vinkonur mín- ar sem búa erlendis. Það er mjög vinsælt að bjóða þeim í humar.“ Það sem þarf 15 humarhalar 2 dl hrísgijón Vi dós grænn aspas Zi dós sveppir smjörkhpa 2 eggjahvítur 2 tesk. hveiti 100 g majones 1. tesk. karrí Aðferð Smjörið er brætt og karríið sett saman við. Humarhalamir eru soönir. Hrísgrjónin em soðin í saf- anum af sveppunum og aspasinum. Ef enn meiri vökva skyldi vanta á þau er upplagt að taka aðeins af humarsoðinu. Eggjahvítumar em þeyttar með hveitinu og majonesinu. Þegar hrísgijónin em soðin eru þau sett í botninn á smurðu, eld- fóstu móti. Humrinum, aspasinum og sveppunum er raðað ofan á þau. Þeyttum ggjahvítunum er smurt Hrafnhildur Björgvinsdóttir. ofan á. Rétturinn er bakaður í ofni í 20 mínútur við 200 gráða hita. Með honum er gott að bera fram ristað brauð og hrásalat, ef vill. Hrafnhildur ætlar aö skora á Helga Haraldsson, sjómann í Grímsey. „Hann er mikill lista- kokkur. Ég hef fengið hjá honum lambalæri sem hann tók uppskrift- ina að úr einhverri franskri mat- reiðslubók. Það er alveg frábærlega gott. Ég vona að hann gefi upp- skrift að því,“ sagði hún. Hmhliðin_____________________ Ætla að dúndra mér til Ítalíu - segir Ásdís Skúladóttir leikstjóri „Ég er afskaplega ánægð með Ronju ræningjadóttur," sagði Ásdís Skúladóttir leikstjóri sem leikstýr- ir því vinsæla verki sem sýnt er í Borgarleikhúsinu þessa dagana. Það er komið að Ásdísi að sýna á sér hina hliðina í helgarblaði DV. „Verkiö hefur gengið mjög vel, enda er ég með gott fólk í kringum mig. Þetta er hiö besta mál.“ Fullt nafn: Ásdís Skúladóttir. Fæðingardagur og ár: 30. júni 1943. Maki: Sigurður Karlsson leikari. Börn: Móeiður, 22 ára, nemi í Bos- ton, og Skúh, 7 ára, nemi í Hlíða- skóla. Bifreið: Engin. Starf: Leikstjóri og starfsmaður frístundahópsins Hana-nú Laun: Minnstu nú ekki á það ógrát- andi! Áhugamál: Allt milli himins og jarðar. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur í lottóinu? Spila aldrei í lottó. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Leikstýra. Hvað fmnst þér leiðinlegast að gera? Vinna heimilisverk. Uppáhaldsmatur: Rauðvínslegið lambalæri með sérrísósu og kart- öflum. Uppáhaldsdrykkur: Kamparí „on the Rocks". Hvaða íþróttamaður finnst þér Ásdís Skúladóttir leikstjóri. standa fremstur í dag? Allir simd- kapparnir milli klukkan 5 og 7 í Sundlaug Seltjamamess. Uppáhaldstímarit: Vera. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð fyrir utan maka? James Dean. Ertu hlynnt eða andvig ríkisstjórn- inni? Ekki orð um það mál! Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Astrid Lindgren aftur. Uppáhaldsleikari: Þröstur Leó Gunnarsson út af stólaatriðinu í Ronju. Uppáhaldsleikkona: Sigrún Edda Björnsdóttir. Uppáhaldssöngvari: K.K. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Ingi- björg Sólrún Gísladóttir. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Fred Flintstone og frú. Uppáhaldssjónvarpsefni: Góðir fræðsluþættir og spennumyndir, að ógleymdum fréttunum. Ertu hlynnt eða andvíg veru varn- arliðsins hér á landi? Það ætti að vera farið fyrir löngu. Hver útvarpsrásanna fmnst þér best? Tvímælalaust rás 1 sem er landi og þjóð til sóma. Uppáhaldsútvarpsmaður: Jónas Jónasson. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Auðvitað Sjónvarpið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Derrick. Uppáhaldsskemmtistaður: Best að vera heima. Uppáhaldsfélag í íþróttum: Valsar- ar. Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtíðinni? Já. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Helst ætla ég að dúndra mér til Ítalíu og skoða þar leikhús og óperur. Ég stefni líka á París í sömu erindagjörðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.