Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Page 12
12 LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993. Bamaheill koma upp meðferðarheimili fyrir vegalaus böm: Byggja upp ríkisjörð fyrir 25 milljónir Þannig kemur það til með að líta út, meðferðarheimilið að Geldingalæk í Rangárvallasýslu, eftir endurbygginguna samkvæmt frumdrögum. Arthúr Morthens, formaöur Barnaheilla. DV-mynd BG „Bamaheill hafa tekið jörðina Geldingalæk í Rangárvallasýslu á leigu og hefur verið gengið frá rekstrarsamningi. Þar verður rek- ið meðferðarheimili fyrir böm á aldrinum 6-12 ára. Er gert ráð fyrir aö þar dveljist 6 böm í senn, í 1-3 ár, ásamt 4-5 starfsmönnum. Við áætlum að uppbygging heimihsins kosti í allt um 25 milljónir króna og að það taki til starfa í vor eða sumar.“ Þetta sagði Arthúr Morthens, for- maður samtakanna Barnaheilla, þegar DV spurði hann um framtíð- arstarf samtakanna. Sem menn muna var efnt til mikillar fjársöfn- unar á þeirra vegum til að unnt væri að byggja upp heimili fyrir vegalaus böm. Þá söfnuðust um 27 miUjónir króna. Einnig var seld hljómplata í fjáröflunarskyni fyrir samtökin. Tónhstarmenn, með Ingva Þór Kormáksson í broddi fylkingar, gáfu vinnuna á þeirri plötu. Loks voru haldnir veglegir jólatónleikar með Kristjáni Jó- hannssyni og rann ágóði þeirra til Bamaheilla. Og nú er ýmislegt framundan hjá samtökunum, þar á meðal uppbygging ofangreinds heimhis að Geldingalæk. Ámörkum dreif- býlisogþéttbýlis „Þetta er stór jörð sem er ekki nema tíu mínútna akstur frá Hellu. Þetta er eitt þeirra atriða sem við höfum leitað eftir, að vera á mörk- um dreifbýhs og þéttbýhs," sagði Arthúr. „Húsið á jörðinni er ansi Ula farið og það þarf að gera það upp fyrir um 6-10 milljónir. Er stefnt að því að sú viögerð hefjist á næstu dögum. Við erum búnir að fá arkitekt til að taka úr húsið og emm að fara af stað með undirbún- ig að útboði. Síðan er viðbygging sem gæti far- ið í 15 milljónir króna. Við erum því að tala um heildarkostnað upp á 25 mihjónir." Arthúr sagði að heimilið yrði dýrara en upphaflega hefði verið gert ráð fyrir. En ástæðan fyrir því að ákveðið hefði verið að fara með starfið út í sveit væri sú aö sam- dóma áht fagmanna væri aö heppi- legt væri að vinna með böm í sveit þar sem þau lærðu að taka ábyrgð á bústörfum og skepnum. Slíkt væri sterkur hður í ahri meðferð- arvinnu. Nú væri verið að ganga endan- lega frá máhnu og vonandi hefðu félagsmálaráðuneytið og landbún- aðarráðuneytið hnýtt alla lausa enda þess þegar þetta birtist. Til dæmis væri síðamefnda ráðuneyt- ið uppi með hugmyndir um að nýta hluta jarðarinnar undir skógrækt. 25-30 vegalaus böm „Þau böm, sem koma tíl með að dvelja þama em vegalaus böm sem hafa verið í fóstri en fósturfor- eldrar gefist upp,“ sagði Arthúr. „Þetta em erfið böm sem þurfa ipjög mikihar aðstoðar við. Á land- inu öhu em um 25-30 böm á aldrin- um 6-12 ára sem þannig er ástatt um. Við munum hafa pláss fyrir 6 börn í senn. Að dvöhnni hjá okkur lokinni er ætlunin að þau fari th fósturforeldra eða heim ef foreldr- ar em færir um að taka við þeim.“ Arthúr sagði að þetta starf yrði unnið í ipjög nánu samstarfi við félagsmálastofnanir og félagsmála- ráðuneytið, svo og barna- og ungl- ingageðdehd. Heimihð yrði sjálfs- eignarstofnun. Starfandi yrði hús- nefnd sem í ættu sæti fulltrúar frá félagsmálaráðuneyti, Bamahehl- um og meðferðaraðhum. Einnig yrði starfandi inntökunefnd, sem myndi velja bömin á heimhið hverju sinni. Hún yrði skipuð full- trúum allra helstu aðha sem fjöll- uðu um málefni umræddra barna. „Hitt er annað að hópurinn á unghngastiginu, sem er vegalaus og á í miklum vanda, er býsna stór og þarfnast vemlegar aðstoðar. Ég get bent á að þegar sótt er um inn á Torfastaði em yfirleitt 4-5 um hvert pláss. Þetta eitt sýnir þörfina fyrir aðstoð við þessa unglinga. En við ætlum koma þessu heim- ih fyrir vegalaus börn fyrst upp, áður en lengra verður haldið. Að því loknu verðum við þá í sam- vinnu við félagsmálayfirvöld og fé- lagsmálaráðuneytið að skoða á hvern hátt verður haldið áfram uppbyggingu heimha fyrir ungl- inga í vanda. Það kæmi th greina að sá þáttur starfseminnar yrði einnig staðsettur á Geldingalæk. Hvort þama verða byggð upp fleiri meðferðarheimhi eða einhvers konar sumarbúðir, það verður að koma í ljós í framtíðinni." Barnasáttmáli SÞ Auk ofangreindra verkefna hgg- ur ýmislegt fyrir hjá samtökunum Bamaheih. Meðai annars er vinna við Bamasáttmála Sameinuðu þjóðanna. islendingar samþykktu hann í lok október sl. í honum er skýrt tekið fram að aðildarþjóðim- ar verði aö kynna hann bæði böm- um og fullorðnum. Bamaheill hafa áhuga á að taka þessa kynningu að sér í samvinnu við stjórnvöld. Samtpkin hafa þegar útbúið kynn- ingarbækhng sem ætlunin er að dreifa til 10 ára barna í gmnnskól- um. Hann verður einnig kynntur öðrum aldursflokkum bama og unglinga. „Þetta er afskaplega mikhvægt mál sem snýr að vitneskju bama um þau mannréttindi sem þau eiga rétt á og einnig fyrir foreldra og aðra sem em að vinna með böm- um. Þá emm við núna að undirbúa málþing, m.a. um ofbeldi bama og ofbeldi gegn bömum. Það hefur farið mjög vaxandi og okkur finnst heimur bama vera orðinn ansi harður, bæði hvað varðar ofbeldi bama á mhh, svo sem einelti, svo og ofbeldi unnið á bömum, svo sem kynferðislegt ofbeldi." Vandi inn- flytjendabarna „Það hafa verið í gangi umræður um hagi innflytjendabarna. Því miður viröist ekki gert ráð fyrir neinni fjölgun þessara barna í fjár- lögum. Ég get nefnt sem dæmi, að í Reykjavík eru nú um 220 böm sem hafa flutt hingað frá útlöndum. Þau fá, því miður, mjög htla aðstoð. í einstökum skólum er þessi vandi orðinn gríðarlegur. Þama er um ákveðin mannréttindi að ræða sem þarf að taka á. Við höfum rætt að halda í haust ráðstefnu í samvinnu við samtökin Heimili og skóla, sem við erum í nánu samstarfi við. Þar yrði fjallað um líðan barna í skólum á íslandi og stöðu þeirra. Þetta er mikilvægt mál. Þá erum við að setja á laggirnar rannsóknarsjóð sem myndi efla og styrkja barnarannsóknir. Við ætl- um að setja hluta þess fjármagns sem fékks fyrir hljómplötusöluna, svo og hluta ágóðans af jólatónieik- unum í þennan sjóð. Rannsóknir á málefnum barna hér á landi eru afskaplega litlar og við teljum mjög mikilvægt að efla þær.“ Þá sagði Arthúr að samtökin væru að hefja samstarf með systur- samtökum á Norðurlöndum. Væri fyrirhugað að athuga ákveðin verkefni í samráði við Dani og Svía. Væri um að ræða verkefni til styrktar börnum á Grænlandi, svo og börnum í Suður-Ameríku. „Við viljum vinna á tvennum víg- stöðvum. Annars vegar sem mál- svarar barna hér heima og hins vegar að hjálparstarfi erlendis. Framtak í útgáfumálum Bamahehl hyggja á ýmiss konar útgáfu. Þau gefa þegar út tímarit og fréttabréf. Th viðbótar hafa ver- ið gerðar þrjár stuttmyndir um bamasáttmálann og málefni bama. Þær verða sýndar í sjónvarpi. Einnig hefur verið unnið að gerð þátta um uppeldi bama, í sam- vinnu við Plús-film. Verið er að gefa út slysavarnaspil í samvinnu við Mál og menningu. Einnig er á leiðinni bækhngur um slysavamir sem gefinn er út í samvinnu við Slysavarnafélagiö og Rauða kross- inn. „Þá eram við að athuga mögu- leika á að setja upp faghóp lögfræð- inga og annarra sérfræðinga í mál- efnum barna. Slíkur hópur gæti verið ráðgefandi fyrir foreldra svo og börn. I þetta fólk væri hægt að hringja og leita aðstoðar finnist viðkomandi á sér og bömum sínum brotið. Það era þvi fjöldamörg verkefni fram undan og er stefnt að því að takast á við þau eftir því sem möguleikar era á,“ sagði Árt- húr. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.