Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Qupperneq 20
20
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993.
Kvikmyndir
Eitt af ástaratriðunum úr nýjustu mynd Louis Malle.
Ný mynd frá
Louis Malle
Þá er Louis Malle aftur kominn í
sviðsljósið með nýjustu mynd
sinni, Damage. Að venju fer Louis
Malle óhefðbundnar leiðir þegar
kemur að söguþræði myndarinnar.
Hann tekur oft fyrir forboðna hluti
í samfélaginu og ekki síst þá er
snerta ástarsamband, eins og
myndir hans Murmur of the Heart
(1971), sem fjallaði um ástarsam-
band móður við 14 ára gamlan son
sinn, og The Lovers (1970), sem
fjallaði um ástarsamband einmana
eiginkonu við mun yngri mann.
The Lovers olli miklum deilum í
Bandaríkjunum sem endaði með
réttarhöldum. Einnig má nefna
myndina Pretty Baby (1978), sem
gerði Brooke Shields fræga, en hún
lék 11 ára gamla stúlku sem starf-
aði í vændishúsi í New Orleans og
kynntist ljósmyndara sem hún
heillaði upp úr skónum. Líkt og
margar aðrar myndir Louis Malle
var Pretty Baby mjög umdeild á
sínum tíma enda þótti efnið óvið-
eigandi og sum atriðin ganga of
langt.
Bönnuð bömum
Sama er upp á teningnum með
Damage. Þegar myndin var sýnd
kvikmyndaeftirMnu í Bandaríkj-
unum þóttu sum atriðin of djörf svo
að myndin hlaut hinn lítt eftirsótta
Umsjón
Baldur Hjaltason
stimpil, NC-17, sem nýlega var
komiö á fót þar vestra til aö að-
greina almennar myndir, sem
bannaðar eru bömum innan 17
ára, frá klámmyndum sem em
merktar með X. Reynslan hefur
hins vegar sýnt að kvikmynda-
húsagestir gera sér ekki fyllilega
grein fyrir þessrnn nýju merking-
mn og líta á myndir merktar NC-17
sem klámmyndir þótt hér sé ein-
göngu um að ræöa myndir sem
falla undir R flokkinn (Bönnuð
börnum undir 17 ára nema í fylgd
meö fullorðnum) ef ástaratriöin
em stytt um nokkrar sekúndur.
Það neyddist Louis Malle til aö gera
þótt gagnrýnendur, sem hafa séð
upphaflegu útgáfu myndarinnar,
fullyrði að þar sé ekkert sem ekki
hefur sést áður á hvíta tjaldinu í
myndum í R flokknum. Þess má
geta að nokkrar umræður urðu um
hvort Ógnareðli ætti að merkjast
meö NC-17 eða R. Aðalleikendur
Damage, þau Jeremy Irons og Juli-
ette Binoche, viöurkenna þó að
sum ástaratriöin hafi veriö erfið.
„Eitt sinn, þegar Louis hafði lokið
tökum á einu ástaratriðinu, litum
við Juliette upp og sáum að kvik-
myndatökuliðið starði á okkur eins
og það hefði verið að horfa á King
Kong háma í sig Empire State bygg-
inguna. Ég hef aldrei unnið með
öðru eins hði,“ var haft eftir Jer-
emy Irons.
Mikill harmleikur
Irons leikin breskan þingmann í
íhaldsflokknum að nafni Stephen
Fleming sem hafði gifst til auðs og
lifir nú ráðsettu lífi. Eiginkona
hans er Ingrid (Miranda Richard-
son) og saman eiga þau dóttur að
nafhi Sally og soninn Martin sem
er nýbyijaður lífsferil sinn sem
blaðamaður sem lofar góðu. í einu
af þessum leiðinlegu póhtísku
hanastélum eru hins vegar örlög
Stephen ráðin þegar hann hittir
Önnu Barton sem er kærasta sonar
hans. Á fyrsta stefnumóti þeirra er
ekkert veriö að tvínóna við hlutina
því þau hoppa strax upp í rúmið,
sem verður að teljast mettími af
Bretum að vera, og upp úr því hefst
ástríðufuht ástarsamband sem þau
reyna að halda leyndu af fremsta
megni.
Spilaborgin fellur
Til aö reyna að koma reglu á ást-
armál sín stingur Stephen upp á
því að hann skhji við konu sína og
flytji til Önnu. Hún ráðleggur hon-
um frá þvi vegna þess að hann
græði ekkert á því. Hún sé hans
og muni ahtaf vera. Einnig býr í
henni ákveðinn ótti eftir að bróðir
hennar hafði framið sjálfsmorð
vegna ástar sinnar á henni. En eins
og svo oft hrinur sphaborgin og
fallið er hátt. Stephen heldur aö
hann geti komist upp með lífemi
sitt en annað verður upp á teningn-
um.
Myndin er byggð á bók Josephine
Hart og tryggði Louis Mahe sér
kvikmyndaréttinn áður en bókin
varð metsölubók. Myndin ber einn-
ig merki handritshöfundarins sem
er leikritaskáldið David Hare. Hon-
um hefur tekist vel aö skila efni
bókarinnar í handritinu og í hönd-
um Louis Mahe verður útkoman
ágætis mynd - fyrir þá sem hafa
gaman af verkum Mahes.
Harkan í fyrirrúmi
Það er Harvey Keitel sem leikur í Reservoir Dogs.
Það er erfitt fyrir óþekkta, unga
leikstjóra að skapa sér nafn því
samkeppnin er hörð. Þó virðist
vera að myndast ný kynslóð eða
að minnsta kosti hópur leikstjóra
sem hafa sótt í þátíðina sér th fyrir-
myndar og efniviðinn th mafíunn-
ar og undirheima stórborganna.
Þetta eru leikstjórar á borð við
Quentin Tarantino með mynd sína
Reservoir Dogs, Tom Kalin með
Swoon, Stacy Cochran með My
New Gun svo og þeir Abel Ferrara
og Hal Hartley með myndimar Bad
Lieutenant og Simple Men en síð-
astnefndu félagamir em þó orðnir
pínulítið meira sjóaðir sem leik-
stjórar.
Það sem einkennir myndir þessa
hóps er miskunnarlaust ofbeldi og
meiri raunsæisblær heldur en tíðk-
ast í hefðbundnum Hohywood-
myndum um sama efni. Raunar
má segja að fyrirmynd þessara
leikstjóra sé mynd þeirra Coens-
bræðra, Ethan og Joel, sem bar
heitið Blood Simple og var gerð
1984. Þeir tóku að mörgu leyti það
besta úr evrópskri og bandarískri
kvikmyndagerð og útkoman varð
spennandi sakamálamynd um
morð og leit leynhögreglumanns
aö morðingjanum.
Ámörkunum
Líkt og í Blood Simple sýna þess-
ir leikstjórar ahan óþverrann á
hvíta tjaldinu því þannig gerast
hlutirnir. Þeir eru ekkert að fela
neitt, þetta er raunveruleikinn. Við
lifum í hörðum heimi þar sem ekk-
ert er sjálfgefið. Svo notfæra þessir
leikstjórar sér einnig hve tækninni
hefur fleygt fram við kvikmynda-
gerð sem gerir þeim kleift aö setja
á svið ótrúlegustu atriði og láta líta
út sem raunveruleg, sem engum
hefði dottið í hug að reyna jafnvel
fyrir aðeins tíu árum.
Það kemur kannski ekki á óvart
að sami leikarinn leikur í tveimur
af þessum myndum, eða Reservoir
Dogs og Bad Lieutenant. Þetta er
Harvey Keitel sem er þekktur fyrir
að fara ótroðnar slóðir hvað viðvík-
ur hlutverkavali. Hann hefur leikiö
í stórmyndum á borö við Bugsy
(1991) og The Two Jakes (1990), ein-
földum myndum sem síðan skutust
upp á vinsældalistana, eins og
Thelma & Louise (1991) og Sister
Act (1992), svo og óþekktum verk-
um, eins og The Naples Connection
(1985), Dear Gorbachev (1988) og
Two Evil Eyes (1990). Þaö furðuleg-
asta er að hann kemst upp með
þetta og heldur ahtaf vinsældum
sínum sem leikari.
Spilltlögga
ogbófagengi
í Bad Lieutenant leikur Keitel
gjörspihtan lögregluþjón sem er
háöur eiturlyfjum og hefur fengið
það verkefni að rannsaka nauðgun
á nunnu sem gerðist í kirkju. í
myndinni eru nokkur svo hrottaleg
atriði að hún hefur verið bönnuð
bömun innan 17 ára með NC-17
flokkuninni.
Reservoir Dogs fjallar um hóp
glæpamanna sem taka að sér að
fremja demantsrán. Þeir þekkjast
ekkert og nota því dulnefni og
höfðu verið ráðnir th verksins af
alræmdum glæpamanni. En lög-
reglan kemur að þeim í miðju rán-
inu sem endar með miklum skot-
bardaga þar sem mannfah verður
á báða bóga. Þeir sem komast und-
an velta fyrir sér hvað fór úrskeið-
is og hvort einhver hafi kjaftað í
lögreglima. Þetta leiðir th blóðugs
uppgjörs.
Þessar myndir vom frumsýndar
hvor sínum megin við áramótin
vestanhafs og ættu því að koma í
íslensku kvikmyndahúsin með
hækkandi sól. Það verður einnig
forvitnhegt að fylgjast með hvort
svona efni á upp á pallborðið al-
mennt hjá kvikmyndahúsagestum.
Helstu heimildir: Sight
and Sound, Variety, Entertainment
Weekly Time Magazine.