Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1993, Síða 21
LAUGARDAGUR 16. JANÚAR 1993.
21
dv_____________________________Bridge
Bridgeheilræðakeppni BOLS:
Ekki ganga á spýtunni
Það óvenjulega við bridgeheilræði
dagsins er ef til vill sú staðreynd að
það er ætlað byrjendum í bridge. Það
er því við hæfi að bridgekennari ann-
ist verkið og það er Bandaríkjamað-
urinn David Poriss. Við gefum hon-
um orðið:
„Geriö ykkur í hugarlund hve auð-
velt er að ganga á jörðinni á spýtu
sem er sex fet á lengd og eitt á breidd.
Takið síðan sömu spýtu og leggið
milh tíu hæða húsa og verkið er því
sem næst óhugsandi. Þegar refsingin
af mistökum hækkar hefir maður
tilhneigingu til þess að breyta um
aðferð. Maður gengur einfaldlega eft-
ir spýtunni á jörðunni en maður
myndi reyna að skríða á henni milli
tíu hæða húsa. Refsing fyrir mistök
í bridge er samt sem áður aðeins
huglæg ekki líkamleg þannig að refs-
ingin er aðeins í huga spilarans.
Flestir reyndir bridgespilarar
gleyma hve hræddur byijendasagn-
hafinn getur orðið og fyrirbrigðið
virðist tengt hæð lokasamningsins.
Þetta getur einnig átt við góða spilara
þegar andstæðingarnir eru þekktir
sem sérfræðingar. Þegar þeir lenda
í sviðsljósinu verða þeir ofsahræddir
- segir David Poriss
og dómgreindin flýgur út um
gluggann. Komist sagnhafi yfir
hræðsluna gæti honum opnast nýjar
víddir í úrspilinu.
Bridge
Viö skulum taka dæmi úr keppni.
Þú ert að spila við bandarísku lands-
liðsmennina Eddie Kantar og Alan
Sontag.
V/A-V
* 985
V G74
♦ ÁG103
+ G82
♦ 7632
V 5
♦ ?87
+ D10764
* G104
V ÁKD93
♦ K62
+ 53
Eddie í vestnr opnar á einu grandi
(15-17 HP) og það er passað til þín í
suður. Á hagstæðum hættum leyfir
þú þér að segja tvö hjörtu. Þegar hér
er komið sögu doblar Eddie. áhættan
hefir skyndilega vaxið og spýtan á
jörðinni hefir flutt sig um nokkrar
hæðir. Ef þú vinnur spilið verður þú
uppi í skýjunum en ef þú tapar því
þá er auðmýkingin algjör.
Eddie tekur þrjá hæstu í spaða, síð-
an spilar hann ás og kóng í laufi og
þriðja laufi. Þú trompar og tekur
trompin. Þú ert sveittur í lófunum,
með svitaperlur á enninu, hver á tíg-
uldrottninguna?
Eddie hefir þegar sýnt nákvæmlega
16 HP. Grandopnunin sýnir 15-17 HP,
þannig að hann getur ekki átt tígul-
drottningu. Þú svínar gegnum aust-
ur eða varstu of taugaóstyrkur til
þess að reikna þetta út? Að skilja
þennan hugsanagang og að yfirvinna
hræösluna er þýðingarmikið til þess
að þú getir bætt spilamenskuna.
BOLS heilræði mitt er því: Láttu
ekki hæð samningsins eða gæði and-
stæðinganna eyðileggja hugsana-
gang þinn. Lærðu að ganga í hugan-
um eftir spýtunni á jörðinni í stað
þess að skríða á spýtunni milli hæða.
V 10862
♦ ?54
.1. Á LrO
Reykjavíkurmót
í sveitakeppni
Síðastliðinn miðvikudag lauk und-
ankeppni Reykjavíkurmótsins í
sveitakeppni. Alls kepptu 24 sveitir
en 8 þær efstu unnu sér rétt til þátt-
töku í útsláttarkeppni og 12 efstu
fengu rétt til spilamennsku í undan-
keppni íslandsmóts í sveitakeppni.
Lokastaðan að lokinni riðlakeppn-
inni varð þessi:
1. Ghtnir 462
2. VÍB 441
3. Tryggingamiöstöðin 438
4. Roche 429
5. Landsbréf 425
6. S. Ármann Magnússon 407
7. Hrannar Erlingsson 390
8. Nýherji 378
9. Símon Símonarson 359
10. Gísh Steingrímsson 348
11. Hjólbarðahölhn 344
12. Júlíus Snorrason 335
13. Ármenn 331
14. Gunnlaugur Kristjánsson 323
Sveit Gunnlaugs verður varasveit
fyrir Reykjavík þar sem sveit Ár-
manna keppti ekki um réttinn til
Reykjavíkurmóts. Spilarar í sveit
Ghtnis eru Aðalsteinn Jörgensen,
Björn Eysteinsson, Guðmundur
Sveinn Hermannsson, Helgi Jó-
hannsson og Ragnar Magnússon.
Spilarar í sveit VIB eru Guðlaugur
R. Jóhannsson, Öm Arnþórsson,
Páh Valdimarsson, Karl Sigurhjart-
arson og Sigfús Öm Árnason.
Sveit Tryggingamiðstöðvarinnar
er skipuð þeim Val Sigurðssyni, Sig-
urði Sverrissyni, Hrólfi Hjaltasyni,
Sigurði VUhjálmssyni, Braga Hauks-
syni og Sigtryggi Sigurðssyni. Sveit
Roche er skipuð Hauki Ingasyni,
Gylfa Baldurssyni, Sigurði B. Þor-
steinssyni, ísaki Emi Sigurössyni,
Jóni Hjaltasyni og Steingrími G. Pét-
urssyni. Spilarar í sveit Landsbréfa
eru Jón Baldursson, Sævar Þor-
björnsson, Matthías Þorvaldsson,
Sverrir Ármannsson, Guðmundur
Páll Arnarson og Þorlákur Jónsson.
í sveit S. Ármanns eru Ólafur og
Hermann Lárussynir, Hjördís Ey-
þórsdóttir, Ásmundur Pálsson, Jak-
ob Kristinsson og Pétur Guðjónsson.
í 8 hða úrshtum spha saman sveit-
ir Ghtnis við Nýherja (1), VÍB og
Hrannars (2), Tryggingarmiðstöðv-
arinnar og S. Ármanns (3) og Roche
og Landsbréfa (4).
SpUað verður á miðvikudag, 20.
janúar, og verður spUaður 32ja spila
leikur.
Keppnisstjóri í Reykjavíkurmót-
inu, Kristján Hauksson, reiknaði út
árangur einstakra para í mótinu,
enda vom spUuð sömu spUin miUi
sveita í öhum umferðum. Bestum
árangri aUra para náðu Sigurður
Sverrisson-Valur Sigurösson sem
skomðu 18,75 stig að meðaltah í 10
leikjum.
Sviðsljós
Hádegisverður á Argentínu
Matargestirnir á Argentínu steikhúsi eru af ýmsu sauðahúsi. Á dögunum kom þar t.d. kálfur i hádegisverð
en þegar betur var að gáð reyndist hér vera á ferð kynning i tengslum við svakamálaleikrit þeirra Harrý
og Heimis á Bylgjunni. Frá og með nk. þriðjudegi gefst gestum Argentinu kostur á svakamálamáltíö ásamt
því að leysa létta og.skemmtilega svakamálaþraut. DV-mynd RaSi
DALEIÐSLA
Tímar í dáleíðslu geta hjálpað þér á ýmsa vegu t.d.: Hætt að
reykja, stjóma mataræðí, losnað við feimni, sviðskrekk, ná betrí
árangri í íþróttum - starfi, losna við þunglyndi, bæta minni,
Iosna við kynlífsvandamál o.m.fi.
Friðrik Páll Ágústsson R.P.H. C.Ht.
Vesturgata 16, Sími: 91-625717
Árshátíð Brunavarðafélags Vestmannaeyja
í tilefni af því að 20 ár eru liðin frá gos-byrjun í Heimaey
hefur Brunavarðafélag Vestmannaeyja ákveðið að halda
árshátíð sína á veitingastaðnum Höfðanum í Vestmanna-
eyjum 23. janúar nk. Sérstaklega bjóðum við velkomna
þá brunaverði er voru við störf í Vestmannaeyjum á gos-
tímabilinu. Allar nánari upplýsingar gefa Einar Steingríms-
son í síma 98-11209 og Sigurður Georgsson í síma
98-11737.
Vinsamlega hafið samband fyrir 19. janúar.
HRAÐNAMSTÆKNI
í TUNGUMÁLANÁMI
ENSKA - ÞÝSKA - DANSKA
- FRANSKA - fíALSKA -
SPÆNSKA OG ÍSLENSKA
FYRIR ÚTLENDINGA
SKRÁNING STENDUR YFIR
Opið um
helgina frá
kl. 12-16.
MÁLASKÓLINN MÍMIR
SÍMI
10004
Námskeiðin hefjast
18. janúar
LANGAR ÞIG
AÐ LÆRA?
Fullorðinsfræðslan býður upp á allt
helsta námsefni grunn- og framhalds-
skólanna. Um er að ræða bæði nám-
skeið og námsaðstoð, hóp- og einstakl-
ingskennslu.
Enska * Sænska * Danska
íslensk stafsetning
Máluppbygging og málfræði
Hagnýtur reikningur
Hægt er að Ijúka námi í þessum fogum með prófum samsvarandi grunnskólaprófí.
íslenska fyrir útlendinga • Franska • Spænska
alska • Þýska • Stærðfræði • Eðlis- og efnafræði •
Bókhald og skrifstofutækni • Ritaranám • Viðskipta-
enska • Rekstrarhagfræði • Tölvufræðsla
H*g, er að taka helstu framhaldsskólaáfanga með prófum samsvarandi prófáföngum fram-
haldsskólanna
Við bjóðum einnig upp á stutt hraðnámskcið með kennslu 3-5 sinnum
í viku.
Öo'fM«un
25% ^ 7G Hjemmur'1*'5' /
AFHÆUS- lei.SiErfdslí,
AFSLATTUR
Opið alla daga
allan ársins Itring